Morgunblaðið - 17.06.2015, Qupperneq 1
Morgunblaðið/Eggert
Börnin í leikskólanum Rauðhól í Norðlingaholti létu pollagallaveður ekki á
sig fá og hituðu upp fyrir 17. júní í gær, bjuggu til fána, fengu andlitsmáln-
ingu og fóru í skrúðgöngu um hverfið. Viktoría brosti sínu blíðasta enda á
sjálft lýðveldið Ísland afmæli og því ber að fagna með brosi. María, sem er
vinstra megin við hana, gat ekki annað en sungið 17. júní lagið „Hæ hó jibbí
jei og ...“. Aníta Hrönn, sem stendur fyrir aftan, hummaði með í hljóði.
Gleðilega þjóðhátíð
M I Ð V I K U D A G U R 1 7. J Ú N Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 141. tölublað 103. árgangur
FAGNA
HUNDRAÐ
ÁRA AFMÆLI GLEÐILEG SUMARDVÖL
FJÖLBREYTT
HÁTÍÐARDAGSKRÁ
UM ALLT LAND
REYKJADALUR 10 ÞJÓÐHÁTÍÐ FAGNAÐ 13KOSNINGARÉTTUR 18
„Það er sorg í mannskapnum yfir
ástandinu en engan bilbug að finna.
Hjúkrunarfræðingar standa fastir á
sínu sem aldrei fyrr,“ segir Ólafur
Skúlason, formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga. Félagið hélt
upplýsingafund fyrir félagsmenn í
gærkvöldi þar sem harmað var að
lög hefðu verið sett á verkfallið. Um
90 hjúkrunarfræðingar hafa sagt
upp störfum og alls hafa á annað
hundrað starfsmenn Landspítalans
sagt upp störfum eftir að lögin voru
sett á verkföllin.
„Hópurinn er sameinaður sem
aldrei fyrr. Ef eitthvað er þá er tónn-
inn enn ákveðnari. Nokkrir stóðu
upp og sögðu af hverju þeir hefðu
sagt upp störfum og aðrir lýstu yfir
áhyggjum af heilbrigðiskerfinu,
hvert það væri að stefna.
En það var að finna á fundinum að
hópurinn styður aðgerðirnar heils
hugar.“ benedikt@mbl.is
Sorg yfir
ástandinu
en mikil
eining
90 hjúkrunarfræð-
ingar hafa sagt upp
MHjúkrunarfræðingar líta »4
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það virðist hafa skapast uppsöfnuð
þörf fyrir ráðningar. Fyrirtæki sem
biðu með að ráða í sumarstörf virðast
vera að ráða fólk núna,“ segir Agla
Sigríður Björnsdóttir, ráðningar-
stjóri hjá Vinna.is, en nýkynnt áætlun
stjórnvalda um losun fjármagnshafta
virðist hafa aukið bjartsýni í atvinnu-
lífinu. Er þess að vænta að jákvæðra
áhrifa fari að gæta í auknu framboði
starfa á næstunni.
Agla Sigríður segir fyrirtæki hafa
haldið að sér höndum við ráðningar
þegar kjaradeilur og verkfalls-
aðgerðir stóðu sem hæst. Segir hún
fjölbreytt störf í boði í verslun, þjón-
ustu og framleiðslugeiranum.
Fýsilegra til fjárfestinga
Katrín S. Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Hagvangs, segir ráðn-
ingar gefa vísbendingu um að fyrir-
tækin séu að snúa vörn í sókn.
Þá segir Snorri Jakobsson hjá
Capacent að afnám gjaldeyrishafta
muni gera fjárfestingarumhverfið
hér á landi fýsilegra. Áhrifin á at-
vinnulífið séu því jákvæð. »16
Aukin
bjartsýni
á markaði
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Atvinnulífið Afnám haftanna er tal-
ið örva ráðningar á vinnumarkaði.
Áætlun um losun
hafta örvar ráðningar
Dagdeild aldraðra í Þorraseli
verður flutt á Vesturgötu í sumar
þvert á mótmæli notenda þjónust-
unnar og íbúa við Þorrasel. „Við
kynntum fyrir íbúum að þrátt
fyrir mótmæli þeirra hefði sú
ákvörðun verið tekin að dagdeild
aldraðra í Þorraseli yrði flutt
þaðan á Vesturgötu 7,“ segir Sig-
þrúður Erla Arnardóttir, fram-
kvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar
Vesturbæjar. »4
Flytja dagdeildina
þvert á mótmæli
Morgunblaðið/Eggert
Þorrasel Ákvörðunin kynnt á fundi í gær.
Edda Heiðrún Backman hlaut heiðursverðlaun Grím-
unnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, í gær. Í ræðu
sinni, sem sonur hennar Arnmundur Ernst Backman
flutti, sagðist hún hafa óttast að Grímunefndin gengi
ekki heil til skógar, þar sem hún hefði ekki stigið á svið
í 12 ár. Bætti hún við að þrjú atriði væru sér mikið
kappsmál. Í fyrsta lagi jafnrétti. „Maður verður að hafa
frelsi til að vera eins og maður er og frelsi má aldrei
slíta úr samhengi við réttlæti.“ Í öðru lagi íslensk leik-
ritun, og sagði Edda Heiðrún að íslensk leikskáld
þyrftu meðbyr, „því það er sá hópur sem best er til þess
fallinn að fanga íslenskan tíðaranda og koma skila-
boðum áleiðis“. Þá nefndi hún baráttuna fyrir því að
rannsóknir á heilanum og taugakerfinu yrðu eitt af
þróunarmarkmiðum SÞ. „Rúmlega milljarður manna
þjáist af veikindum tengdum taugakerfinu.“ »30-31
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Edda Heiðrún Backman hlaut heiðursverðlaun Grímunnar
Frelsi má aldrei slíta úr samhengi við réttlæti