Morgunblaðið - 17.06.2015, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015
Myndstef auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki og ferða-
og menntunarstyrki á vegum samtakanna fyrir verkefni sem
unnin eru á árinu 2015.
Rétt til þess að sækja um styrki Myndstefs hafa allir
myndhöfundar.
Sérstök umsóknareyðublöð eru á vef samtakanna www.
myndstef.is og þar eru einnig nánar skilgreind þau atriði sem
þurfa að koma fram í umsókninni ásamt reglum um úthlutun
styrkjanna. Umsóknarfrestur rennur út 17. ágúst 2015.
Umsóknir sem berast eftir þann tíma fá ekki afgreiðslu. Tekið
skal fram að póststimpill gildir á innsendum umsóknum.
Umsóknir skulu berast til skrifstofu Myndstefs, Hafnarstræti 16,
p.o.box 1187, 121 Reykjavík fyrir ofangreindan tíma.
Vakin er athygli á að þeir sem sent hafa inn umsóknir um styrki
fyrir birtingu þessarar auglýsingar verða að endurnýja þær
umsóknir.
Allar nánari upplýsingar gefur Ólöf Pálsdóttir á opnunartíma
skrifstofunnar, 10:00 – 14:00 alla virka daga. Einnig er hægt að
senda fyrirspurnir á netfangið myndstef@myndstef.is
Vakin er athygli á því að Myndstef áskilur sér rétt til að birta á
heimasíðu sinni texta og myndir um viðkomandi verkefni í
samráði við höfund þess.
Stjórn Myndstefs
Verkefnastyrkir og
ferða- og menntunarstyrkir
Myndstefs 2015
Stærstur hluti kaupsamninga fast-
eigna sem gerðir voru meðan á verk-
falli lögfræðinga stóð hafa borið
vexti. Flestir kaupsamningar miða
við 6% vexti en hærri og lægri vaxta-
prósenta hefur einnig komið til.
Grétar Jónasson, framkvæmda-
stjóri Félags fasteignasala, segir
vaxtagreiðsluna verða greidda undir
lokin, þegar lokagreiðsla berst frá
bankanum, en trúlega muni þetta þó
koma illa við einhverja sem gætu
þurft viðbótarlán til að inna þessa
greiðslu af hendi.
„Það kom alveg ágreiningur í
kringum þetta,
það er alveg ljóst,
en alveg furðu-
lega lítill. Margir
hringdu í okkur
en langflestir átt-
uðu sig á því að
þarna var viss
sanngirni á ferð
og ekkert óeðli-
legt við það sem
þarna var um að
ræða,“ segir Grétar. Seljendum hafi
þótt óþægilegt að afhenda íbúðina
þegar kaupandi hafi ekki getað innt
af hendi greiðslu. Með þessu fyrir-
komulagi, að semja um vexti, hafi
markaðurinn getað haldið áfram en
algengt sé að kostnaður í kringum
vaxtagreiðsluna sé eins og þegar um
er að ræða hóflega leigu.
Fljótlega eftir að verkfallið hófst
fór að bera á því að fasteignasalar
sýndu misjöfn vinnubrögð í sam-
bærilegum málum. Áþekk mál voru
ekki afgreidd með sama hætti og því
beindi Félag fasteignasala þeim til-
mælum til félagsmanna sinna að
miða við 6% vexti vegna verkfallsins.
Yfirlýsingin var send út í byrjun maí
eða rétt um mánuði eftir að verkfall
skall á. Grétar segir viðmiðið hafa
byggst á sanngirnissjónarmiði, en
þegar það var sett hafi sumir kaup-
samningar kveðið á um vexti en aðrir
ekki. Ekki var um að ræða bindandi
viðmið enda voru það samningsað-
ilar sem sömdu um þetta sín á milli
og ýmis tilvik þurfti að skoða sér-
staklega og afgreiða með öðrum
hætti. „Óvissan var algjör. Sumir
héldu að þetta myndi leysast fljótt en
ljóst var að það þurfti að gera eitt-
hvað,“ segir Grétar.
brynjadogg@mbl.is
Flestir með vaxtaákvæði
Í flestum kaupsamningum fasteigna síðustu tíu vikur er kveðið á um vexti
Grétar
Jónasson
Rögnunefndin
svokallaða, sem
nefnd er eftir
Rögnu Árnadótt-
ur, formanni
nefndarinnar,
mun skila
skýrslu sinni og
niðurstöðum eigi
síðar en um
miðja næstu
viku. Starf
nefndarinnar og greiningarvinna
hafði fyrir mánuði síðan kostað 35
milljónir króna.
Líkt og kunnugt er, hefur stýri-
hópur um sameiginlega athugun
ríkis, Reykjavíkurborgar og Ice-
landair Group á flugvallarkostum á
höfuðborgarsvæðinu, starfað frá
því í október 2013. Upphaflega átti
hópurinn að skila skýrslu sinni fyr-
ir síðustu áramót. Þá fékk nefndin
frest til 1. júní sl. Svo átti nefndin
að skila 15. júní, eða í fyrradag.
Ragna Árnadóttir sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að ákveðið
væri að nefndin skilaði af sér í
næstu viku. „Það eru tveir stórir
dagar í þessari viku, 17. júní og 19.
júní, sem gera það að verkum að
erfitt reyndist að ná allri nefndinni
saman í þessari viku. Við skilum af
okkur í næstu viku, vonandi um
miðja vikuna,“ sagði Ragna.
agnes@mbl.is
Rögnunefndin
skilar niðurstöðum
sínum í næstu viku
Ragna
Árnadóttir
Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlög-
regluþjónn, segir rannsókn lög-
reglu á mögulegum skothvelli í
Hlíðarhjalla í Kópavogi 2. júní síð-
astliðinn enn vera opna. „Það eru
ákveðnar ástæður fyrir því að mál-
ið er í smá hvíld. Rannsókn verður
kláruð þegar þar að kemur.“
Sérsveit ríkislögreglustjóra var
kölluð á vettvang um kl. 15 á
þriðjudegi eftir að þrjár tilkynn-
ingar bárust um skothvell í hverf-
inu. Lögregla fór í íbúðina sem
hvellurinn var talinn hafa borist frá
og lagði þar hald á skotvopn og
skotfæri, sem geymd voru með rétt-
um hætti. „Það er talið að skotvopni
hafi verið beitt en við teljum að það
hafi ekki verið þennan dag.“
Rannsókn á meint-
um skothvelli í bið
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
„Það svæði sem varð eldinum að
bráð er illa útleikið. Það er samt
helst mói og kjarr, sem menn gráta
ekki svo mikið þegar það náðist að
verja trjáræktina. Það held ég að
hafi verið viðunandi fórnarkostnað-
ur,“ segir Pétur G. Markan, sveitar-
stjóri Súðavíkurhrepps, spurður um
ástandið í Laugardal í Súðavíkur-
hreppi þar sem upp kom sinubruni á
mánudag. Hátt í 50 manns börðust
við sinueldinn; slökkvilið fjögurra
sveitarfélaga mættu á svæðið auk
björgunarsveita. Eldurinn var
slökktur um klukkan eitt aðfaranótt
þriðjudags en tilkynnt hafði verið
um bruna klukkan 17 á mánudag.
Mikilli skógrækt stefnt í hættu
Pétur segir menn hafa sloppið
merkilega vel frá brunanum. Mikil
skógrækt á svæðinu var í hættu en
slapp að mestu undan eldinum. „Í
minni reynslunnar árið 2012 var tek-
in ákvörðun um að slá ekki slöku við
heldur fara með fullan mannafla á
staðinn. Á staðnum var svo tekin
ákvörðun um að kalla þyrluna til,“
segir hann, en árið 2012 komu upp
sinueldar í Laugardal, hálfum til ein-
um kílómetra frá svæðinu þar sem
sinubruni kom upp á mánudag, og
geisaði þá eldurinn í tæplega tvær
vikur.
Kviknar í út frá raflínustreng
Pétur segir eftirmál snúa að því að
átta sig á því hvar upptök sinuelds-
ins liggi. „Það verður tvímælalaust
hluti af uppgjörsmálum að skoða
hver ber ábyrgð og síðan hvert hægt
er að sækja fjármagn til að mæta
kostnaði. Ég hef enga trú á öðru en
að það leysist,“ segir hann.
Yordan Slavov, slökkviliðsstjóri á
Súðavík, segir að kviknað hafi í út frá
rafmagnslínu og bætir við: „Eftir að
ástandið á svæðinu hafði verið metið
var ákveðið að kalla út þyrlu til að
tryggja að sinueldarnir 2012 endur-
tækju sig ekki. Það var lagt kapp á
að drepa eldinn niður strax í stað
þess að bíða og sjá.“
Ætluðu ekki að gera
sömu mistökin tvisvar
Svæðið illa út-
leikið eftir sinu-
bruna í Laugardal
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Bruni Sinueldur kviknaði í Laugardal í Súðavíkurhreppi á mánudag út frá
rafmagnslínu, að sögn Yordans Slavov, slökkviliðsstjóra á Súðavík.
Kona á besta aldri, eins og Íslensk
getspá orðar það í fréttatilkynn-
ingu, kom í „hálfgerðu áfalli“ í gær
og vitjaði 60 milljóna króna vinn-
ings í lottóútdrætti sl. laugardags.
Vinningsmiðinn var keyptur í
Skalla í Hraunbæ í Reykjavík.
Sagðist konan yfirleitt hafa
keypt lottómiða með völdum af-
mælisdögum en í þetta skipti ákvað
hún að kaupa 10 raða sjálfvalsmiða.
„Hún áttaði sig ekki á því að hún
væri með vinningsmiða í höndunum
fyrr en hún kíkti á netið á sunnu-
deginum og ákvað að fara yfir töl-
urnar. Konan var ekki búin að
segja eiginmanninum sínum þessi
gleðitíðindi, því hún vildi fullvissa
sig um að þetta væri örugglega
raunveruleikinn að hún hefði unnið
þessar 60 milljónir. Þessi vinnings-
upphæð kemur sér heldur betur vel
þar sem vinningshafinn er atvinnu-
laus eftir að hafa misst vinnuna,“
segir í tilkynningu Íslenskrar get-
spár.
Í áfalli
eftir lottó-
vinning
Kona án vinnu
vitjaði 60 milljóna
Björg Baldvinsdóttir fagnaði í gær hundrað ára afmæli
sínu, en hún fæddist 16. júní 1915 í Eyrarlandi á Akur-
eyri. Árið 1934 giftist hún Ágústi Guðmundssyni Berg,
smjörlíkisgerðarmanni og framkvæmdastjóra á Akur-
eyri, en hann lést árið 1979. Áttu þau tvö börn, Alice
Pauline Guðbjörgu Berg og Ágúst Guðmund Berg.
Björg tók mikinn þátt í starfsemi Leikfélags Akureyrar
og var þekkt leikkona. Á myndinni eru, frá vinstri: Lisa
Hart, Björg Baldvinsdóttir, Guðrún Björg Ágústs-
dóttir, Pétur Ágúst Pétursson og Alice Berg.
Hundrað ára afmæli fagnað í gær
Morgunblaðið/Árni Sæberg