Morgunblaðið - 17.06.2015, Qupperneq 9
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015
Höldum daginn hátíðlegan með blómum
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Glæsilegir
kaupaukar
kynning
fimmtudag og
föstudag
TAX FREE
af öllum snyrtivörum í júní
ER KOMINN TÍMI
Á SJÓNMÆLINGU?
Hamraborg 10 – Sími: 554 3200 – Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
Traust og góð þjónusta í 19 ár
Úrval af nýjum
umgjörðum frá
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, hef-
ur tekið ákvörðun um heildarafla
fyrir tiltekna nytjastofna fiskveiðiár-
ið 2015-2016. Ráðherrann fylgir ráð-
gjöf Hafrannsóknastofnunar, líkt og
hann hefur gert undanfarin tvö ár.
Fram kemur í fréttatilkynningu
frá atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytinu að aflamark þorsks
verður 239 þúsund tonn sem er
aukning um 21 þúsund tonn frá ráð-
gjöf fyrir yfirstandandi fiskveiðiár;
aflamark ýsu verður 36,4 þúsund
tonn sem er 6 þúsund tonna aukning;
heildarafli í makríl verður 173 þús-
und tonn, sem er aukning um 5 þús-
und tonn frá síðasta ári. Hefur mak-
rílkvóti aldrei áður verið meiri.
Jafnframt kemur fram að versn-
andi horfur séu hvað varðar keilu,
löngu, blálöngu, skötusel, langlúru,
humar og fleiri tegundir sem haldi
sig að mestu í hlýjum sjó við suður-
og vesturströndina.
Í frétt ráðuneytisins kemur fram
að alls gæti verðmætaaukning vegna
aukins heildarútflutnings sjávaraf-
urða vegna aflaaukningar numið 7-8
milljörðum króna, haldist afurðaverð
svipað því sem af er þessu ári.
agnes@mbl.is
Verðmætaaukn-
ing 7-8 milljarðar
Makrílkvótinn
aldrei meiri eða
173 þúsund tonn
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Makríll Ráðherra ákvað að heildar-
afli í makríl yrði 173 þúsund tonn.
Alls voru framkvæmdar 25.170
nafnabreytingar á árunum 2005-
2014, eða tvö til þrjú þúsund á ári.
Þetta kemur fram í nefndaráliti
allsherjar- og menntamálanefndar
við frumvarp 14 þingmanna um
breytingu á lögum um mannanöfn.
Nefndin leggur til að frumvarpinu
verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Á fundum allsherjarnefndar-
innar komu fram upplýsingar um
fjölda skráðra nafnabreytinga sem
framkvæmdar hefðu verið í þjóð-
skrá á þessum árum. Alls voru yfir
17 þúsund kenninafnabreytingar á
þessu árabili, en slíkar breytingar
geta falið í sér að kenning til föður
verður kenning til móður og öfugt,
ættleitt barn er kennt til kjörfor-
eldris. Tvö þúsund skiptu um eigin-
nafn en þar getur verið um að ræða
nýtt eiginnafn, annað tekið til við-
bótar eða fellt niður.
Nefndin vísar frumvarpinu til
ríkisstjórnarinnar en kveðst telja
að breyta þurfi lögum um manna-
nöfn til að þau séu í bestu samræmi
við ríkjandi viðhorf í samfélaginu.
Yfir 25 þúsund nafnabreytingar á
undanförnum áratug hér á landi
Morgunblaðið/Ómar
Fólk Lög um mannanöfn á Íslandi
voru síðast skoðuð fyrir 20 árum.
Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi í
gær svissneskt par í tveggja mán-
aða skilorðsbundið fangelsi fyrir
þjófnað.
Fólkið var handtekið á Ströndum
á Vestfjörðum í fyrradag vegna
gruns um innbrot í Kaupfélagið í
Norðurfirði í síðustu viku.
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum
ákærði þau fyrir að hafa brotist inn
í reykkofa við tjaldstæði þar sem
þau dvöldu þann 28. maí. Þau skáru
á snæri sem batt hurð kofans aftur
og stálu þaðan reyktum rauðmaga,
að verðmæti um 5.000 krónur, sem
þau síðar borðuðu með bestu lyst.
Einnig voru þau ákærð fyrir
þjófnað í verslun og að stela þaðan
reiðufé, samtals 25.000 krónum,
matvöru, gasi, lambhúshettu, hann-
yrðum, sokkum, garni, dömubind-
um, samtals að verðmæti um
100.000 krónur, sem þau báru út úr
versluninni í fimm tauinnkaupa-
pokum.
Parið viðurkenndi sök við þing-
festingu málsins og leit dómurinn á
tvo mánuði sem hæfilega refsingu.
Gátu ekki staðist reyktan rauðmaga,
lambhúshettu og peninga á Ströndum