Morgunblaðið - 17.06.2015, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR SKODA
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem
uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk
starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
• Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgja með
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 109.990
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 137.489
Meira en bara
blandari!
Ísak Rúnarsson
Jóhann Ólafsson
Fjölbreytt hátíðardagskrá verður
um allt land í dag í tilefni af þjóð-
hátíðardegi Íslendinga. Dagskráin í
Reykjavík hefst klukkan tíu, en
skátar munu leiða skrúðgöngur frá
Hlemmi niður Laugaveg og frá
Hagatorgi niður að Hljómskála-
garði klukkan eitt. Á Akureyri mun
dagskrá hefjast klukkan eitt í
Lystigarðinum en skrúðgangan
mun halda þaðan að Ráðhústorginu
kl. 13.45. Í Hafnarfirði munu 100
fjallkonur flytja ávarp í Hamrinum
klukkan 13.00.
Ekki allir sáttir við mótmæli
Einnig hafa verið boðuð mót-
mæli gegn ríkisstjórninni á Austur-
velli á nánast sama tíma og hátíðar-
dagskrá Alþingis og forsætis-
ráðuneytisins hefst, kl. 11.10. Ekki
eru allir sáttir við að boðað hafi ver-
ið til mótmælanna.
Meðal dagskrárliða sem fara
fram á þessum tíma á Austurvelli er
ávarp fjallkonunnar, en forseti Ís-
lands mun einnig leggja blómsveig
frá íslensku þjóðinni að minnisvarða
Jóns Sigurðssonar og forsætisráð-
herra flytja hátíðarræðu. Guðfinna
Jóhanna Guðmundsdóttir, borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins, fer
ekki fögrum orðum á Facebook-síðu
sinni um þá sem hyggjast mótmæla
á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Henni
þykir ekki í lagi að fólk skuli boða
til slíkra mótmæla á þessum degi og
finnst að hugsa ætti frekar um
börnin sem skemmti sér þennan
dag.
„Samfélagsmiðlar breytt
mótmælum“
„Ég hef nú bara verið hérna í
30 ár en ég man ekki eftir því. Það
hafa einhverjir menn komið með
skilti en engin skipulögð mótmæli.“
segir Arnar Rúnar Marteinsson,
aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu, í samtali við
mbl.is. Stefán Pálsson sagnfræð-
ingur bendir hins vegar á að árið
2009 hafi nokkrir mótmælendur
truflað ræðu forsætisráðherra en að
einnig hafi Falun Gong-liðar mót-
mælt árið 2002 í tengslum við heim-
sókn forseta Kína til Íslands. „Þetta
var 17. júní 2002 og þótti nokkuð
óvenjulegt.“ segir Stefán við mbl.is.
Hann segir einnig að sam-
félagsmiðlar hafi breytt eðli mót-
mæla. Áður fyrr hafi formlegur aðili
þurft að standa fyrir mótmælunum
og máli sínu en að nú sé hægt að
búa til viðburð á Facebook þar sem
fullt af fólki bóki sig, hvort sem það
mæti eða ekki.
Lögreglan verður með aukinn
viðbúnað og mannskap við störf í
dag en þó verða ekki settar upp
mótmælagirðingar heldur verða
lokanir hefðbundnar miðað við dag-
inn.
Dagskráin í Reykjavík
Mikið verður um að vera í
Reykjavík, en eins og áður sagði
hefst dagskráin kl. 10.00 á sam-
hljómi kirkjuklukkna í Reykjavík.
Gengnar verða þrjár skrúðgöngur;
auk áðurnefndra skrúðgangna á
vegum skátanna klukkan eitt verð-
ur farið í skrúðgöngu frá Austur-
velli og að leiði Jóns Sigurðssonar
klukkan 11.50. Barna- og fjöl-
skylduskemmtanir hefjast í
Hljómskálagarði sem og á Arnar-
hóli kl. 13.30. Útitónleikar hefjast á
Austurvelli klukkan 14.00 og aðrir
útitónleikar á Arnarhóli klukkan
17.00.
Mótmælendur á sama
tíma og fjallkonan
Morgunblaðið/Eggert
Fjallkonan Mótmæli munu standa yfir er fjallkonan flytur ávarp sitt í ár.
Mikið um að vera á þjóðhátíðardaginn Mótmæli boðuð
Mótmælt á Austurvelli
» Samtökin Jæja standa
fyrir mótmælunum, en þau
hafa boðað til þó nokkurra
mótmæla að undanförnu.
» Um 3.500 manns hafa
boðað komu sína á mótmælin
á Austurvelli kl. 11.00 í dag.
» Lögregla mun auka við-
búnað vegna mótmælanna.
Á þjóðhátíðardaginn skiptir veðrið
Íslendinga miklu máli, enda fer mest
öll dagskrá fram utandyra. Dumb-
ungur verður yfir höfuðborgarsvæð-
inu og dropar á lofti fram eftir degi
en þó mun sólin sennilega eitthvað
láta sjá sig. „Hitastigið gæti farið
upp í 11-12 gráður en ekki mikið
meira,“ segir Þorsteinn V. Jónsson,
veðurfræðingur hjá Veðurstofunni.
Á Akureyri og fyrir austan verður
hins vegar hlýtt og hiti gæti farið
upp undir 18 gráður. Á Vestfjörðum
verður sennilega öllu kaldara.
Hér að ofan má svo sjá tölur yfir
veðurfar í Reykjavík frá aldamótum,
á hádegi 17. júní. Þannig hefur t.d.
ekki rignt þá síðan árið 2003.
Veðurfar 17. júní kl. 12 á hádegi í Reykjavík
frá aldamótum
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
2008
2009
2010
2011
2012
2013
2014
Spá 2015
Meðaltal
0 2 4 6 8 10 12 14 16
Heiðskýrt
Léttskýjað
Skýjað
Alskýjað
Lítilsháttar
rigning
Hiti
Vindur m/s
N/A
„Dæmigert en milt
17. júní veður“
Vissara að taka með sér regnhlíf