Morgunblaðið - 17.06.2015, Side 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015
Í grein í Mbl. 27.
mars 2015 gerir Guð-
mundur Jóelsson end-
urskoðandi grein fyrir
áralangri baráttu sinni
við Endurskoðendaráð,
en það stýrir umdeildu
gæðaeftirliti í gegn um
Félag löggiltra endur-
skoðenda (FLE). Saga
Guðmundar og reynd-
ar fleiri endurskoð-
enda gefur þá innsýn í störf núver-
andi Endurskoðendaráðs að þau
minni um margt á hreinsanir í ein-
ræðisríkjum. Svipting löggildingar
til starfa við endurskoðun sýnist
vera orðið takmark í sjálfu sér,
þegar einyrkjar stéttarinnar eiga í
hlut. Ekki endurmenntun þeirra
eða faglegur stuðningur við þá í
starfi.
Þau tímamót hafa orðið með úr-
skurði Atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytins 20. maí sl. að
Endurskoðendaráð fær ekki fram-
gengt kröfu sinni um að ráðherra
svipti Guðmund réttindum sínum.
Endurskoðendaráð hefur að mati
ráðuneytisins fallið á gæðaprófi í
þremur tilgreindum
atriðum sem fóru í
bága við gildandi lög.
Endurskoðendaráði
stóðu tveir kostir til
boða í vinnulagi sínu,
styðja við bakið á
endurskoðendum eða
skera þá við trog.
Þær ógöngur sem
Endurskoðendaráð
hefur nú lent í stafa
af illskiljanlegri refsi-
gleði ráðsins og end-
urskoðendur sem ef
til vill finnst þeir standa höllum
fæti í fræðunum eru að vonum
ófúsir að leggjast á höggstokkinn.
Að óbreyttu gæti ráðuneytið
fræðilega séð fallist á sviptingu
stjórnarskrárvarinna réttinda á
grundvelli skoðunar sem aðili úti í
bæ hefur framkvæmt. Ekki verður
séð að ráðuneytinu sé skylt að
skoða sjálfstætt í hverju meint
brot endurskoðanda kann að hafa
verið falið. Sé þetta svo þá verður
ekki betur séð en réttur til rétt-
látrar málsmeðferðar sé fyrir borð
borinn. Endurskoðendaráði er þá
falið vald sem er ígildi dómsvalds
en slíkt fyrirkomulag er með öllu
óásættanlegt og ráðið hefur sýnt af
sér framgöngu sem hræðir.
Af nýlegum dæmum sést að end-
urskoðun fyrirtækja tengdra al-
mannahagsmunum virðist í svip-
uðum farvegi og fyrir hrun. Það er
reyndar með ólíkindum að Endur-
skoðendaráð skuli vilja refsa
harkalega þeim sem jafnvel hafa
þó engu tjóni valdið, það er ein-
yrkjum, á þeim forsendum að ein-
staka krossa vanti í einhver box í
endurskoðunarferli, en sneiði gagn-
gert hjá því að taka á einstaka at-
burðum eins og urðu þegar endur-
skoðendur brugðust þjóð sinni í
aðdraganda hrunsins.
Tilgangur með endurskoðun, al-
mennt séð, hlýtur að vera að auka
öryggi fjárhagsupplýsinga. Kostn-
aður við að ná þessu markmiði get-
ur ekki orðið meiri en sem nemur
ávinningi af slíkum aðgerðum. Hið
sama gildir um eftirlit með endur-
skoðendum en kostnaður við eft-
irlitið bætist óhjákvæmilega við
endurskoðunarkostnaðinn en mjög
er efast um gagnsemina
Stjórn FLE hefur staðið gegn
tilnefningu fulltrúa einyrkja í hópi
endurskoðenda í Endurskoð-
unarráð þar sem viðkomandi átti
að hafa verið umdeildur. Núver-
andi fulltrúar FLE í ráðinu eru
hins vegar með vottorð frá ráð-
herra um að verk þeirra séu um-
deild og að ráðið hafi jafnvel brotið
skýr lagaákvæði.
Sé litið til nýlegs dæmis frá
Sparisjóði Vestmannaeyja (SV), þá
eru samkvæmt fréttum áhöld um
hvort áritun endurskoðanda fái
staðist aðstæður sem þar voru inn-
an veggja. Hér er um að ræða end-
urskoðun á fjármálafyrirtæki
tengdu almannahagsmunum. Ekk-
ert skal fullyrt um hvort einhver
brotalöm hafi verið á vinnu endur-
skoðandans og hans niðurstöðu.
Það er þó deginum ljósara, að við
þær aðstæður sem uppi eru í dag
geta endurskoðendur vænst þess
að Endurskoðendaráð geri engar
athugasemdir við störf viðkomandi
þar sem aðgerðir Endurskoð-
endaráðs beinast alls ekki að árit-
unum á fallin fyrirtæki.
Hafi endurskoðandi brotið af sér
í starfi, þá eru mestar líkur á að
mögulega ófullnægjandi vinna hans
komi aldrei til skoðunar við gæða-
eftirlit Endurskoðendaráðs. Liðið
geta rúm tvö ár frá áritun án þess
að endurskoðandi sé kallaður í eft-
irlit og þegar að því kemur þá eru
vinnupappírar endurskoðanda fyrir
liðin ár og liðin fyrirtæki ekki til
skoðunar.
Samkvæmt þessu er nokkuð
ljóst að gæðaeftirlit Endurskoð-
endaráðs er að vissu leyti mark-
laust sé því ætlað að bæta starfs-
hætti endurskoðenda almennt. Það
er líka svo að þrátt fyrir að við-
komandi endurskoðandi hafi ef til
vill farið nýlega í gæðaeftirlit og
staðist það þá er hann nánast laus
allra mála þrátt fyrir að hann
kunni að hafa gerst brotlegur í
starfi í öðrum tilvikum. Ítrekað
skal að viðkomandi endurskoðandi
(SV) hefur ugglaust fylgt öllum
stöðlum í hvívetna. Ef litið er til
rannsókna flugslysa þá er verklag-
ið þannig af gildum ástæðum að
einungis orðin slys eru rannsökuð
en hin minna. Endurskoðendaráð
sýnist snúa þessu við. Til að lær-
dómur verði dreginn af mistökum
þá þarf að kryfja þau til mergjar.
Í Mbl. 26/4 2015 er viðtal við
þann merka mann Pétur Blöndal
alþm. Hann kemur inn á erindi
sem Ríkisskattstjóri hélt á vegum
FLE á árinu 2010, að hann minnir.
Þar kemur fram að eigið fé ís-
lenskra fyrirtækja hafi hækkað gíf-
urlega fyrir hrun og var komið upp
í sjöfalda þjóðarframleiðslu og ári
síðar í mínus einfalda þjóðarfram-
leiðslu. Pétri mæltist svo: „Þarna
var fullur salur af löggiltum endur-
skoðendum sem höfðu skrifað upp
á þetta allt saman – án viðvarana
og lausna.“
Skiljanlega hefur Pétur verið
hugsi yfir þagnarviðbrögðum end-
urskoðenda. Ekki er kunnugt um
eitt einasta málþing á vegum fé-
lagsins þar sem af einhverju viti
hefur verið fjallað um verk, ábyrgð
og skyldur endurskoðenda í að-
draganda hrunsins mikla.
Heiðarleika gagnvart sjálfum sér
og öðrum virðist ekki að finna í því
magni að hrökkvi til að endurskoð-
endur geri hreint fyrir sínum dyr-
um. Ef eitthvað eitt er grundvall-
aratriði í störfum endurskoðenda
þá er það heiðarleiki og hann er
ekki valkvætt fyrirbrigði að hent-
ugleikum. Endurskoðandi á fyrst
og síðast við samvisku sína að
starfa af heilindum. Svo lengi sem
endurskoðendur skirrast við að
gera upp vinnubrögð sín í aðdrag-
anda hrunsins þá er þess ekki að
vænta að stéttin haldi trúverð-
ugleika sínum.
Ákveði endurskoðandi í skynd-
ingu að vera miður heiðarlegur þá
er fátt sem Endurskoðendaráð
með öllu sínu gæðaeftirliti getur
um það sagt. Það er hins vegar
nauðsynlegt að sá sem verður fyrir
tjóni vegna slíks óheiðarleika geti
sótt fjárbætur. Í lok dags snúast
mál alls ekki um það, hvort Endur-
skoðendaráð sé til eða ekki, heldur
hvort tjónþolar geti náð fram rétti
sínum fyrir dómi. Þaðan ætti hið
raunverulega aðhald að koma.
Fyrir nokkrum árum var sam-
þykkt tillaga á félagsfundi hjá
FLE, og gengust endurskoðendur
þar með undir að tekið yrði upp
gæðaeftirlit á forsendum félagsins.
Lagt var úr hlaði með þá framtíð-
arsýn, að hér gæfist tækifæri til að
efla faglega hæfni félagsmanna og
þeim sem lakar stæðu stæði til
boða fagleg aðstoð til að bæta
vinnubrögð sín.
Þegar litið er yfir sviðið sýnist
það ekki vera skortur á faglegri
þekkingu og færni sem er örlaga-
valdur í störfum endurskoðenda.
Þar sýnist fremur vera á ferðinni
skortur á siðferðisstyrk í starfi
þegar á reynir.
Endurskoðendaráð í núverandi
mynd er ekki svarið við þeim
vandamálum sem því var ætlað að
leysa. Þeir sem sjá aukið eftirlit
sem lausn alls þurfa að skoða hug
sinn.
Endurskoðendaráð á villigötum
Eftir Jón Þ.
Hilmarsson »Endurskoðendaráði
stóðu tveir kostir til
boða í vinnulagi sínu,
styðja við bakið á endur-
skoðendum eða skera þá
við trog.
Jón Þ. Hilmarsson
Höfundur er endurskoðandi.
- með morgunkaffinu
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
SUBARU IMPREZA STI SPEC R
04/2008, ekinn 51 Þ.km, 6 gíra.
Gríðarlega flott eintak! Verð 4.990.000.
Raðnr.253713
NISSAN QASHQAI+2 SE
06/2011, ekinn 77 Þ.km, bensín, sjálfskiptur,
glertoppur, 7manna.Verð 3.980.000.
Raðnr.253442
KIA SORENTO EX LUXURY 2,5
02/2006, ekinn 163 Þ.km, dísel, sjálfskiptur,
leður, lúga ofl.Verð 2.290.000
TILBOÐSVERÐ 1.990.000. Raðnr.253577
YAMAHA XV1900A
04/2008, ekið 19 Þ.km, fullt af flottum
aukahlutum. Hjól í toppstandi! Verð 1.670.000.
Raðnr.285918
HONDA CR-V 2010-2012 lítið ekinn
óskast!
Erummeð kaupanda gegn staðgreiðslu.
Hafið samband
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
VANDAÐUR
vinnufatnaður
frá BULLDOG
á góðu verði
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Öryggisskór
Sýnileikafatnaður
Vinnufatnaður
Vinnuvetlingar
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is