Morgunblaðið - 17.06.2015, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015
Atvinnuauglýsingar
Vélstjóra
vantar á rækjutogara sem er með tvö
þúsund hestafla vél.
Upplýsingar í síma 893 3077.
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Raðauglýsingar
Kæri viðskiptavinur
Í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna
á Íslandi hvetur ríkisstjórn Íslands vinnuveit-
endur til að gefa starfsfólki frí frá hádegi
föstudaginn 19. júní, svo það geti tekið þátt í
skipulögðum hátíðahöldum.Tollstjóri styður
jafnrétti og því verður afgreiðsla stofnunarinn-
ar lokuð frá kl. 12 þann dag. Við minnum jafn-
framt á að afgreiðslaTollstjóra er opin til kl.
18:00 á fimmtudögum í sumar.
Með bestu kveðju,
starfsfólkTollstjóra.
Tilkynningar
Smáauglýsingar 569
Sumarhús
Glæsilegar sumarhúsalóðir
til sölu við Ytri-Rangá í landi Leiru-
bakka. Aðeins 100 km frá Reykjavík á
góðum vegi. Kjarri vaxið land,
veðursæld, ótrúlega falleg fjallasýn.
Upplýsingar á www.fjallaland.is og í
síma 893-5046.
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Íþróttir
Verðlaunagripir - gjafavara-
áletranir
Bikarar, verðlaunapeningar, barm-
merki, orður, póstkassaplötur, plötur
á leiði, gæludýramerki - starfsgreina-
styttur.
Fannar,
Smiðjuvegi 6, Rauð gata,
Kópavogi , sími 5516488
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Ýmislegt
INNTÖKUPRÓF
verður í Læknisfræði í Jesse-
nius Faculty of Medicine (JFM
CU) í Martin, Slóvakíu:
24. júní nk. kl. 10:30 á Grand
Hótel við Sigtún í Reykjavík.
Ekkert prófgjald. Kennt er á
ensku. Íslendingar stunda nám við
skólann.
Uppl. Í s. 5444333 og fs.
8201071 kaldasel@islandia.is
NÝKOMIÐ AFTUR!
teg. SELENA - þunnur, veitir mjög
góðan stuðning, í stærðum 75-95
D,E,F,G á kr. 6.880,-
teg. ESTER - létt fóðraður, í
stærðum 75-100 B,C,D,E,F
kr. 7.995,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
VIÐ BREYTUM OG RÝMUM!
Úrval af vönduðum leðurskóm
fyrir dömur á 50% afslætti!
Til dæmis þessir:
Teg: 36605 Verð áður: 14.900.- Verð
nú: 7.450
Teg: 7314 Verð áður: 14.885.- Verð
nú: 7.440.-
Teg: 1968 Verð áður: 16.650.- Verð
nú: 8.325.-
Teg: 1949 Verð áður: 16.650.- Verð
nú: 8.325.-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
Sendum um allt land
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílar
Renault Megane Classic RT S/D
til sölu. Árgerð 1999, ek. 174.000 km.
Ný tímareim – Nýskoðaður.
Þjónustubók. Verð kr. 310.000.
Upplýsingar í síma 820-7006.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Húsviðhald
Ríf ryð af þökum,
ryðbletta, hreinsa
þakrennur og tek að
mér ýmis smærri
verk.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
mbl.is
alltaf - allstaðar
Þegar Obba - ég
þekkti hana aldrei
undir öðru nafni og
var raunar kominn á unglings-
aldur þegar ég komst að því að
hún héti annað - var borin til
grafar var tvennt í minningar-
orðunum sem ég tengdi við, öðru
fremur. Annars vegar þegar því
var lýst hversu mjög hún tengd-
ist börnum sem hún annaðist og
svo hversu gaman hún hafði af
því að spila.
Ég var ekki nema nokkurra
vikna gamall þegar Obba kom
inn á heimilið. Þá var hún með
mér alla virka daga á meðan for-
eldrar mínir voru í vinnu. Þetta
var fyrirkomulagið þangað til ég
varð átta ára gamall og farinn að
vera í skólanum stóran hluta úr
degi. Þrátt fyrir að þá væri ekki
lengur nauðsyn til að hafa hana
alla daga gat ég ekki hugsað
mér að missa hana algjörlega frá
mér og úr varð að hún kom einu
sinni í viku. Það gerði hún alveg
þangað til ég byrjaði í gagn-
fræðaskóla. Ég hlakkaði alltaf
mikið til.
Á þessum tíma var Obba
komin á áttræðisaldur. Það var
þó ekki að sjá. Alltaf þegar ég
kom heim úr skólanum var hún
tilbúin með hádegismat – í uppá-
haldi hjá mér og þar af leiðandi
mjög oft á boðstólum voru hrogn
og soðin ýsa – og oftar en ekki
var hún líka búin að baka pönnu-
kökur í eftirrétt. Að ógleymdu
öllu sælgætinu sem hún kom
iðulega með handa mér. Það var
yfirleitt í slíku magni að það
hefði dugað fyrir heila fjöl-
skyldu, hvað þá mig einan.
Það var ekki bara að Obba
gæfi mér svona vel að borða.
Hún var líka alveg óþreytandi
þegar kom að því að leika við
mig – þá var ekki að sjá að það
væri hartnær sjötíu ára aldurs-
munur á okkur. Á ganginum í
Brekkubyggðinni, þar sem við
bjuggum, hafa eflaust verið spil-
aðar fleiri fótboltamínútur en á
flestum íþróttavöllum landsins.
Miðað við hvað oft gekk mikið á
verður reyndar að teljast mesta
furða að hurðin sem var notuð
fyrir mark hafi hangið á hjör-
unum og innanstokksmunir
sloppið óbrotnir – svona flestir í
það minnsta. Þegar ég þreyttist
svo á fótboltanum – og það var
ég sem þreyttist en ekki hún –
var hún svo alltaf tilbúin að setj-
ast inn í eldhús og spila. Þær
eru fáar betri æskuminningarn-
ar en þegar ég spilaði við Obbu.
Heilu klukkutímarnir gátu liðið
á svipstundu þar sem við skipt-
umst á að gefa í hvert spilið á
fætur öðru – og hún sýndi engin
svipbrigði þegar ég gaf meðan
hún skrapp í burtu og fékk allar
átturnar á hendi. Það er til
marks um hve ég naut þess að
vera með henni að ég held mér
hafi ekki nokkurn tímann leiðst,
sem ég held að sé síður en svo
sjálfsagt með lítinn dreng og
gamla konu. En þannig var hún
Obba.
Elsku Obba, sem alltaf var
mér svo góð. Orð fá því ekki lýst
hve þakklátur ég er fyrir allt
sem hún gerði fyrir mig og allt
það sem hún gaf mér.
Þóru og fjölskyldunni allri er
vottuð einlæg samúð.
Þorsteinn Júlíus.
Þá er falleg sál fallin frá. Það
læðist að manni samviskubit að
Þorbjörg
Vilhjálmsdóttir
✝ Þorbjörg Vil-hjálmsdóttir
fæddist 19. apríl
1921. Hún lést 22.
maí 2015.
Útför Þor-
bjargar fór fram í
kyrrþey 5. júní
2015.
hafa ekki gefið
nándar nærri eins
mikið til baka og
maður fékk. Þor-
björg gaf okkur
mikið. Hún var með
einstaklega hlýja
nærveru og við bár-
um ómælda virð-
ingu fyrir henni.
Árið 1978 þegar
réttindi á barneign-
arfríi voru einungis
þrír mánuðir og lítið um dag-
mæður þurftu mæður að redda
sér með öðrum hætti til þess að
komast aftur út á vinnumark-
aðinn. Mamma var sérkennari
og þegar börnin voru orðin þrjú
og ekkert til sem hét dægradvöl
voru góð ráð dýr. Þá kom Þor-
björg inn í líf okkar og það er
óhætt að segja að hún hafi
bjargað málunum. Mamma og
pabbi fundu gullmola sem gerði
svo mun miklu meira en þau
höfðu nokkurn tíma gert ráð fyr-
ir.
Við þurfum öll á akkeri að
halda í lífinu. Einhvern sem er
til staðar sama hvað bjátar á og
hjálpar svo ótrúlega mikið með
nærverunni einni saman. Þor-
björg var þetta akkeri fyrir
marga, meðal annars okkur
systkinin og foreldra okkar.
Hún var mjög stór þáttur í lífi
okkar og það vissu allir í stór-
fjölskyldunni, vinir og vanda-
menn hver hún Þorbjörg var
hvort sem þeir höfðu hitt hana
eða ekki. Hún gaf okkur gott
veganesti út í lífið og var frábær
fyrirmynd. Hún sagði sögur úr
sveitinni, frá systur sinni sem
var sett í skókassa ofan í skúffu
þegar hún fæddist til þess að
halda henni á lífi og þeirri stað-
reynd að þegar mamma hennar
dó var ekkert annað hægt að
gera en að aðskilja barnahópinn
því ekki gat pabbi hennar séð
um þau öll. Hún sagði stolt sög-
ur af barnabörnunum sínum
þeim Einari og Ísól og frá lífinu
á Vegamótum, en þar bjuggu
Þorbjörg og Einar maður henn-
ar áður en þau fluttu í bæinn.
Hún ræddi líka oft í seinni tíð
hversu þakklát hún var henni
Þóru dóttur sinni fyrir að annast
sig vel en þær fóru í bíltúr á
laugardögum meðan heilsan
leyfði.
Að fá að kynnast einhverjum
eins og henni Þorbjörgu eru for-
réttindi. Hún vildi hafa nóg að
gera, nennti ekki að hangsa og
gerði hlutina vel. Hún var húm-
oristi og þegar við vorum lítil
var hún lúnkin við að taka þann-
ig á málunum að þau leystust
farsællega. Hún var dýravinur
og var samband hennar við
heimilisköttinn og hershöfðingj-
ann hann Patton einstakt. Hann
hafði mikið dálæti á henni og tók
oft á móti henni úti á strætó-
stoppustöð. Væntumþykjan var
gagnkvæm og hann fékk oft
klapp á kollinn og eitthvað góð-
gæti. Hún kenndi okkur systk-
inunum margt og á sinn þátt í
því að við erum þau sem við er-
um í dag. Við erum henni inni-
lega þakklát fyrir allt sem hún
gaf okkur.
Þegar komið er að kveðju-
stund finnst manni fátækleg orð
á blaði engan veginn nóg til þess
að koma á framfæri þakklæti
fyrir allt sem hún Þorbjörg
kenndi okkur. Við höfum hins
vegar frá því við urðum sjálf for-
eldrar vottað henni virðingu
okkar á hverjum degi með því að
reyna að koma fram við börnin
okkar eins og hún kom fram við
okkur af góðmennsku, trú-
mennsku, hjálpsemi og með
kærleikann að leiðarljósi.
Við vottum aðstandendum
samúð okkar.
Jón Gestur, Freyja
og Edda Rún.