Morgunblaðið - 17.06.2015, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015
Árnína Guðbjörg Sumarliðadóttir er leik- og grunnskólakennariog starfar sem umsjónarkennari í Smáraskóla. Hún er fædd íSandgerði, þar sem hún ólst upp í stórum systkinahópi, en býr
í dag í Kópavogi. Árnína syngur annan sópran í Kvennakór Kópa-
vogs, en þetta er fjórða árið hennar í kórnum. Hún og maður hennar
hafa einnig mjög gaman af dansi. „Við höfum verið á dansnámskeiði
sem við höfum mjög gaman af, Komið og dansið, það er mjög
skemmtilegur hópur og æfingadansleikir, margir dansstílar í boði og
námskeið,“ segir Árnína.
Hún mun verja afmælisdeginum í Óðinsvéum í Danmörku, þar sem
hún dvelur ásamt sambýlismanni sínum hjá dóttur hans og fjölskyldu.
Í tilefni sextugsafmælisins verður svo haldið frá Danmörku í hús son-
ar hennar á Marbella á Spáni.
Árnína er mikil fjölskyldukona, en hún á þrjá syni. „Ég á þrjá syni
og fjögur ömmubörn, Nínu Dögg og Sölva Salvarsbörn og litlu
tvíburastrákana Viktor og Hilmi Árnasyni, en þeir eru átta mánaða,“
segir Árnína, en hún nýtur þess mikið að eyða tíma með barnabörn-
unum enda uppeldismál og skólamál almennt henni mjög hjartfólgin.
„Ég hef mikið yndi og áhuga á börnum,“ segir Árnína. Elsti sonur
hennar, Salvar, er markaðsfræðingur og rekur sitt eigið fyrirtæki í
mörgum löndum. Sá næstelsti heitir Árni Björn og er að ljúka félags-
fræði við Háskóla Íslands en yngsti sonurinn, Egill Birnir, hann starf-
ar hjá bróður sínum í London.
Afmælisbarn Árnína Guðbjörg mun halda upp á afmælið sitt á Spáni.
Eyðir afmælisdeg-
inum í Danmörku
Árnína Guðbjörg Sumarliðadóttir er sextug
H
elgi fæddist á Eski-
firði 17.6. 1945 og
ólst þar upp til 11
ára aldurs. Þá flutti
fjölskyldan til Kefla-
víkur þar sem faðir hans var mat-
sveinn til sjós og á Keflavíkur-
flugvelli: „Ég fór ekki varhluta af
Bítlafárinu í Keflavík á þessum
árum. Skólabræður mínir voru
Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíus-
son, Eiríkur Jóhannsson í Óð-
mönnum og meðal vina minna
voru Þórir Baldursson og Þor-
steinn Eggertsson textahöfundur.
En ég var ekki í tónlistinni eins
og þeir heldur allur í myndlist-
inni.“
Helgi var Barnaskóla Eski-
fjarðar og Barnaskóla Keflavíkur:
„Ég hafði alltaf áhuga á að fara í
auglýsingateiknun, fór á samning
hjá Birgi Guðnasyni og Kristni
Guðmundssyni, ungum málara-
meisturum. Með þeim fór ég til
Álaborgar, lærði þar skiltamálun
og lauk þar prófum. Síðan lauk ég
sveinsprófi í húsamálun 1965.“
Helgi hóf störf hjá Daníel Þor-
kelssyni, málarameistara og
söngvara, og Osvald Knudsen
kvikmyndagerðarmanni á árunum
1968-72: „Þar unnum við Hringur
Jóhannesson, Leifur Ólafsson og
Arnar Herbertsson að gyllingu og
skreytingum. Þetta var skemmti-
legur tími í góðra vina hópi.“
Helgi lauk meistaraprófi í húsa-
málun 1968 og lauk síðan diplom-
námi í skreytimálun í Danmörku í
árslok 1969. Í því felst t.d. oering
og marmaralíking, ásamt gyllingu
Helgi Gretar Kristinsson, kennari við Iðnskólann – 70 ára
Hjónin Helgi Gretar og Svanfríður Guðrún á Kirkjubæjarklaustri fyrir fimm árum, á leið í Danmerkurferð.
Endurlífgun eldri húsa
– verksvit fyrri tíma
Sólargeislinn Helgi Gretar og
barnabarnið Ríkey Svanfríður.
Helena Regína Jónsdóttir og Ragnheiður Grímsdóttir héldu tombólu við Krón-
una á Selfossi og söfnuðu 1.940 krónum fyrir Rauða krossinn.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
35.900,-
Verð Kr.
USG CNIP4
Yfirskápur 4 skúffur.
Sterkur skápur með lás.
88.900,-
Verð Kr.
USG FIRP7B Verkfæraskápur
7 skúffur – 1/4", 3/8“ & 1/2" topplyklasett
Splittatangir, skrúfjárn, fastirlyklar, tangir,
skralllyklar, meitlar, sexkantar, rennimál,
þjalir.
115.900,-
Verð Kr.
USG FIRP7B-FOAM Verkfæraskápur
7 skúffur með frauðefnisbökkum. 1/4",
3/8“ & 1/2" topplyklasett. Splittatangir,
skrúfjárn, fastirlyklar, tangir, skralllyklar,
skiptilykill, meitlar, sexkantar, rennimál,
þjalir. 172 verkfæri í sterkum vagni með lás.
15.900,-
Verð Kr.
USG
B5094M
1/2“ & 1/4"
Topplyklasett 94 stk
Skrall 72 tanna, framlengingar,
hjörluliður, átaksskaft, djúpir-
toppar, kertatoppar, bitajárn.
USG GWB2045M
1/4“ Topplyklasett 45 stk
Skrall 72 tanna, framlengingar,
hjörluliður, átaksskaft,
bitar, sexkantar, bitajárn,
4.990,-
Verð Kr.
USG
GWB3029M
3/8“ Topplyklasett 29 stk
Skrall 72 tanna, hjöruliður,
djúpir & grunnirtoppar,
kertatoppar, framlengingar.
7.990,-
Verð Kr.
Síðumúla 11 - 108 Reykjavík Sími 568-6899
Póstfang: vfs@vfs.is Netsíða: www.vfs.is