Morgunblaðið - 17.06.2015, Síða 36
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 168. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Lést í skemmtigarði í Svíþjóð
2. Vinningshafinn í áfalli
3. Myrti nágrannann á …
4. Orkan hækkaði um 40%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Í tilefni af 100 ára kosningaafmæli
kvenna verður aukasýning á leikritinu
Þöggun eftir Jón Gunnar Þórðarson í
Leikhúsinu á Möðruvöllum í Hörgár-
dal föstudaginn 19. júní kl. 20. Verkið
fjallar um Ólöfu frá Hlöðum, Skáld-
Rósu og Guðnýju frá Klömbrum.
Aukasýning á
Þöggun í Hörgárdal
Tuttugu listamenn verða með há-
vaða á sýningunni Hávaði II sem opn-
uð verður í dag í viðburðarýminu
Ekkisens á Bergstaðastræti 25b. Fjöl-
mörg verk verða afhjúpuð á opnunar-
hátíðinni og má þar nefna nýjan þjóð-
fána sem saumaður hefur verið úr
nærbrókum almúgans, en honum
verður flaggað í fyrsta sinn undir tón-
um þekkts karlakórs.
Hávaðanum fylgja einnig fjölmörg
útiverk sem hægt verður að finna í
garðinum við Ekkisens en einnig á víð
og dreif um miðborgina í júní. Einnig
verður netið nýtt sem sýningarými og
heimasíða Hávaðans vígð á sjálfan
opnunardaginn. Meðal sýnenda eru
Freyja Eilíf Logadóttir, Katrín Inga
Jónsdóttir Hjördísardóttir, Lommi,
Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson og
Sunneva Ása Weisshappel.
20 listamenn með
hávaða í Ekkisens
Á fimmtudag Vestlæg átt, 3-8 m/s, en 8-13 syðst. Skúrir eða dá-
lítil rigning og hiti 7 til 18 stig, hlýjast á SA-landi.
Á föstudag Suðaustlæg átt, 3-8 m/s og skýjað með köflum en
þurrt að kalla. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast N-lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestlæg átt, 3-8 og víða dálítil væta en
þurrt að mestu NA-til. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast N-lands.
VEÐUR
Aðeins munar einu stigi á
Breiðabliki og Selfossi á
toppi Pepsideildar kvenna í
knattspyrnu fyrir leik lið-
anna á Kópavogsvelli næsta
þriðjudag. Blikar eru efstir
eftir stórsigur á Val í
gærkvöld, 6:0, og
Selfoss vann
Aftureldingu
2:0. ÍBV vann
Fylki en KR og
Þróttur R.
skildu jöfn. »2
Blikakonur efstar
eftir stórsigur
Kristján Flóki Finnbogason, framherj-
inn ungi hjá FH, er ánægður með lífið
hjá Hafnarfjarðarliðinu, en
hann sneri aftur þangað í
vor eftir tvö ár hjá FC
Köbenhavn. „Ég lærði
mjög mikið og
bætti mig sem
knattspyrnu-
maður,“ seg-
ir Flóki um
tímann í Danmörku,
en hann er leikmaður
8. umferðar Pepsi-
deildar karla hjá
Morgunblaðinu. »
2-3
Erfitt en lærdómsríkt í
Kaupmannahöfn
„Stefan talaði þó alltaf þannig að
hann væri til í að koma til okkar aftur
og hélt sambandi við okkur í sumar.
Honum líkaði vel hérna og kann vel
við menninguna, matinn og fleira,“
sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Njarðvíkur, meðal annars við Morgun-
blaðið í gær, en Njarðvíkingar hafa
samið við Stefan Bonneau um að
leika áfram með liðinu í körfunni. »1
Bonneau sýndi því
áhuga að koma aftur
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Dúfa Sylvía Einarsdóttir hefur sinnt
sjálfboðaliðastörfum í tæplega 45 ár.
„Við hjónin höfum fengið mikla að-
stoð vegna þroskahamlaðrar dóttur
okkar og það er dásamlegt að geta
einnig gefið af sér eins og ég geri í
Hjálparstarfi kirkjunnar,“ segir
Dúfa við Morgunblaðið.
Vegferðin hófst þegar hún og
Guðmundur Ragnarsson, eigin-
maður hennar, eignuðust stúlku sem
þurfti mikla aðstoð, en þau eiga jafn-
framt tvo heilbrigða syni, tengda-
dætur og sjö gullmola sem eru
barnabörnin. Hjónin gengu í Félag
þroskahamlaðra barna og voru í
stjórn Þroskahjálpar um árabil, sem
og í Foreldra- og kennarafélagi
Öskjuhlíðarskóla, nú Klettaskóla, í
mörg ár. „Sjálfboðaliðastarfið hefur
verið mjög gefandi og skemmtilegt,“
segir Dúfa. „Ég hvet alla sem tök
hafa á til að taka þátt í einhvers kon-
ar sjálfboðaliðastarfi. Það er allt
góðra gjalda vert.“
Stanslaus barátta
„Öll þessi félög höfðu sameiginleg
markmið og margir tóku og taka
þátt í baráttunni,“ heldur Dúfa
áfram. „Í kerfinu komum við alls
staðar að lokuðum dyrum þegar við
vorum að stíga okkar fyrstu spor
með dótturina. Þó að margt hafi
breyst til batnaðar hefur þetta verið
stanslaus barátta sem lýkur aldrei.
Við þurftum að sækja um allt og það
var erfitt að fá þjónustu. Við reynd-
um að breyta þessu og lög um aðstoð
við þroskahefta frá 1979 höfðu mikið
að segja, sem og lög um málefni fatl-
aðra frá 1992.“ Hún áréttar að lögin
auðveldi róðurinn til þess að sækja
það sem fatlaðir eigi rétt á. „Það er
mikill léttir að þurfa ekki að berja á
allar dyr.“
Vinna Dúfu í Hjálparstarfi kirkj-
unnar felst í því að taka á móti
vörum sem berast að gjöf, flokka
þær og þvo eftir atvikum og aðstoða
síðan við að koma þeim í réttar
hendur. „Margt fólk á Íslandi nær
ekki endum saman og við aðstoðum
það ekki aðeins með fatagjöfum
heldur er því hjálpað að hjálpa sér
sjálft.“ Hún áréttar að gott og mikil-
vægt starf sé unnið hjá Hjálparstarfi
kirkjunnar og hafa beri í huga að
enginn viti hvenær hann þurfi á að-
stoð að halda, samanber gosið í
Vestmannaeyjum 1973. „Þá fengum
við mikla aðstoð að utan. Það er
sama hugsunin og við vinnum eftir –
við reynum að gera eitthvað fyrir
fólk í neyð heima og erlendis og
fáum aðstoð þegar við þurfum á
henni að halda. Það er mikilvægt að
hafa það í huga.“
Alltaf til taks fyrir aðra
Hefur sinnt
sjálfboðaliðastörf-
um í nær 45 ár
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sjálfboðaliðar í Hjálparstarfi kirkjunnar Konurnar láta gott af sér leiða í þágu þeirra sem minna mega sín. Frá
vinstri: Mjöll Þórarinsdóttir, Lára Bergsveinsdóttir, Elsa Sveinsdóttir og Dúfa Sylvía Einarsdóttir.
Fyrir um sjö árum fóru 15 manns frá Hjálparstarfi kirkjunnar til Úganda í
þeim tilgangi að kynnast stuðningi kirkjunnar á vettvangi. Dúfa Sylvía
Einarsdóttir og Guðmundur Ragnarsson voru með í för og segir Dúfa að
upplifunin sé ógleymanleg. „Ég fékk aðra sýn á það hvað er nauðsynlegt og
hvað ekki, hvernig maður getur best hjálpað og hve mikið verður úr stuðn-
ingnum,“ segir hún. „Aðalatriðið er að hjálpa fólkinu að hjálpa sér sjálft.“
Þegar Dúfa var í sóknarnefnd Háteigskirkju mætti hún reglulega á fundi
hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, kynntist starfinu og þegar hún hætti á almenn-
um vinnumarkaði gerðist hún sjálfboðaliði hjá Hjálparstarfinu, þar sem hún
lætur gott af sér leiða. „Þegar ég fór á fyrsta fundinn fannst mér ég vera
eins og illa gerður hlutur en þegar mér bauðst að vera tengill á milli kirkj-
unnar og Hjálparstarfsins fannst mér ég loks vera farin að gera gagn.“
Önnur sýn á hjálparstarfið
ÓGLEYMANLEG FERÐ HJÓNANNA TIL ÚGANDA