Morgunblaðið - 19.06.2015, Blaðsíða 4
Morgunblaðið/Eggert
Kaup og kjör Viðræður þriggja
iðnaðarmannafélaga mjakast
áfram.
Fjögur af sex félögum iðnaðarmanna
halda nú áfram kjaraviðræðum hjá
ríkissáttasemjara eftir að upp úr
slitnaði í kjaraviðræðum Félags vél-
stjóra og málmtæknimanna (VM) og
Rafiðnaðarsambandsins. Félögin
sem eftir standa eru Samiðn, MAT-
VÍS, Grafía/FBM og Félag hár-
snyrtisveina.
Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, sagðist í vikunni bjartsýnn á að
samningjar við félögin fjögur tækj-
ust öðru hvoru megin við helgi, en
iðnaðarmenn hafa boðað verkfall
næstkomandi þriðjudag verði ekki af
samningsgerð.
Nokkur bjartsýni um samninga
Hilmar Harðarson, formaður
Samiðnar, sambands félag í iðn- og
tæknigreinum, segir möguleika á
lausn á meðan menn ræði saman.
„Það gengur ekki illa í viðræðunum,“
bætir hann við, en nú er rætt um sér-
kröfur hvers félags fyrir sig.
Níels Sigurður Olgeirsson, for-
maður MATVÍS, félags iðnaðar-
manna í matvæla- og veitingageir-
anum, segir viðræðurnar þokast
áfram. „Við vonum að okkur takist
að klára þetta. Við höfum fram að að-
faranótt þriðjudags,“ segir Níels, en
fundarhöld dagsins leiði í ljós hvort
unnið verði um helgina. „Það þyngir
ekki yfir mér meðan okkur tekst að
skýra hlutina þannig að úr verði eitt-
hvað sem við getum farið með í at-
kvæðagreiðslu til félagsmanna okk-
ar,“ segir Níels.
„Vonum að okkur
takist að klára“
Verkföll boðuð í byrjun næstu viku
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2015
Allar starfsstöðvarogþjónustuver
ríkisskattstjóra verða lokaðar frá kl. 12 í dag
í samræmivið tilmæli ríkisstjórnar Íslands
vegna19. júní.
Viðskiptavinumer bent á að gagnlegar upplýsingar
er að finna á rsk.is og skattur.is.
Ríkisskattstjóri
- lokað -
„Fáninn er samkvæmt konungs-
úrskurði samþykktur sem sérfáni
landsins 19. júní 1915. Þetta var
sama erindi og þegar konungur
samþykkti kosningarétt kvenna,“
segir Hörður Lárusson, grafískur
hönnuður og einn helsti sérfræð-
ingur landsins um íslenska fánann.
Hefur hann haldið nokkrar sýn-
ingar og gefið út tvær bækur um
fánann.
Hörður segir að virðing fyrir fán-
anum hér á landi sé mikil. Þá sé
ímynd hans jákvæð.
„Það komu nokkrir fánar til
greina á sínum tíma. Það var aug-
lýst í blöðum árið 1913 að almenn-
ingur mætti koma með tillögur og
ein af þeim endaði sem fáninn okk-
ar. Opinberlega liggur ekki fyrir
hver hannaði fánann þó að það séu
til ýmsar skoðanir og kenningar,“
segir Hörður en um 30 tillögur bár-
ust, meðal annars frá Kjarval, sem
þá var ungur listamaður á uppleið.
„Fáninn hefur lifað vel, margir
fánar fá leiðinlegar tengingar en
okkar fáni hefur haldist góður, sem
trúlega skrifast á stríðsleysi,“ segir
hann og bætir við að virðingin fyrir
fánanum sé mikil, jafnvel of mikil.
„Það er smá hræðsla við fánann. Við
þorum ekki að nota fánann eins og
við ættum að gera. Við erum föst í
allskonar mýtum, eins og til dæmis
að fáninn megi ekki snerta jörðina –
það er ekkert sem bannar það. Eina
sem ekki má er að það má ekki
flagga skítugum eða rifnum fána.
Fólk er óþarflega hrætt við hann.
Það nota allir fánann þann 17. júní
en þann 18. er hann hvergi að sjá.“
Fánadagar eru alls 12 en næsti
fánadagur er 16. nóvember á degi
íslenskrar tungu. benedikt@mbl.is
Íslenski fáninn 100 ára
Morgunblaðið/Kristinn
Úrskurður kon-
ungs um fánann
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Umhverfis- og samgöngunefnd hefur
afgreitt fjögurra ára samgönguáætl-
un fyrir árin 2015 til 2018. Ólöf Nor-
dal innanríkisráðherra mælti fyrir til-
lögunni á Alþingi í maí síðastliðnum
og sagði hún þá meðal annars sam-
göngukerfið vera eina af grundvall-
arforsendum öflugs atvinnulífs og bú-
setugæða.
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður
Framsóknarflokks og formaður um-
hverfis- og samgöngunefndar, segir
afar ánægjulegt að nefndin hafi af-
greitt þessa áætlun. Fer hún nú aftur
til umræðu í þinginu.
„Við komum með viðbætur upp á
rúmlega einn og hálfan milljarða
[króna] og leggjum til að fjármagn
verði sett annars vegar í hafnir og
hins vegar í flug og flugvelli,“ segir
Höskuldur og bendir á að samgöngu-
áætlunin hafi á sínum tíma einna
helst verið gagnrýnd fyrir að skilja
þessa þætti eftir. Þá er einnig fjár-
magn lagt í vegaframkvæmdir.
Höskuldur segir aðspurður góða
samstöðu hafa náðst um aukið fjár-
magn til þessara þátta. „Með þessu
erum við að tryggja að flughlaðið á
Akureyrarflugvelli er komið inn á
áætlun,“ segir hann og bætir við að
strax á næsta ári verði hægt að flytja
það efni sem falli til við gerð Vaðla-
heiðarganga á flugvallarsvæðið. Efn-
ið verði síðan nýtt við gerð nýs flug-
hlaðs.
„Það var búið að tryggja 50 millj-
ónir [króna] fyrir árið 2015 en við
bætum við 100 milljónum fyrir árið
2016 og svo koma 25 [milljónir] á
árinu þar á eftir. Þá á þessu að vera
lokið. Svo leggjum við til að uppbygg-
ing hefjist árið þar á eftir,“ segir
Höskuldur og vísar þar til stækkunar
flughlaðsins.
Hvað hafnir snertir segir Hösk-
uldur brýnasta verkefnið að tryggja
að innsiglingin á Höfn í Hornafirði
verði lagfærð. Var því samþykkt að
veita 35 milljónum króna til verkefn-
isins á þessu ári.
Höskuldur segir einnig lagt til að
um 480 milljónir króna renni í niður-
greiðslu á innanlandsflugi. „Það er
mjög brýnt, við sjáum að um 900
milljónir króna fara í almennings-
samgöngur á höfuðborgarsvæðinu á
ári og um 100 út á land. En á sama
tíma fara aðeins um 250 milljónir í allt
innanlandsflugið og bætum við nú
samtals um 480 milljónum við.“
Samgöngu-
áætlun af-
greidd úr nefnd
Nefndin leggur til ýmsar samgöngu-
framkvæmdir upp á 1,5 milljarða
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyrarflugvöllur Flughlaðið
verður stækkað verulega.
Framkvæmdir
» Umhverfis- og samgöngu-
nefnd leggur til ýmsar fram-
kvæmdir, þar á meðal:
» Að lagðar verði 250 milljónir
kr. í Bárðardalsveg og 20 millj-
ónir í hönnun á endurbótum á
Skagastrandarvegi 2016.
Vinna við mislæg gatnamót
Reykjanesbrautar og Krýsu-
víkurvegar byrji 2017.
» 210 milljónir fari í rann-
sóknir á Seyðisfjarðargöngum
2016 og 2017.
» Að árið 2018 verði 50 millj-
ónir settar í Hörgárdalsveg og
25 milljónir í bundið slitlag á
Skálafellsvegi.
» Að á næsta ári fari 180 millj-
ónir í viðlegukant í Grindavík,
20 milljónir til framkvæmda í
Dalvíkurhöfn og 18 milljónir í
flotbryggju á Breiðdalsvík. Þá
verði 20 milljónum varið til
dýpkunar í Stykkishólmshöfn
2017. Einnig að 100 milljónir
fari í endurbætur á Þorláks-
höfn 2018 og að 12 milljónir
færist fram til 2017.
» Að á næsta ári fari 50
milljónir til yfirborðsviðhalds á
Egilsstaðaflugvelli, 75 milljónir
í að leggja bundið slitlag á
Norðfjarðarflugvöll og 50 millj-
ónir í viðhald aðflugsbúnaðar á
Húsavíkurflugvelli.
Anna Guðrún Jónasdóttir, prófessor í stjórnmála- og
kynjafræði við Háskólann í Örebro í Svíþóð, var í gær
gerð að heiðursdoktor við stjórnmálafræðideild Há-
skóla Íslands, fyrst allra. Athöfnin fór fram á ráðstefnu
háskólans í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar
kvenna, þar sem hún flutti einnig erindi. Anna Guðrún
var líka fyrst íslenskra kvenna til að ljúka doktorsprófi
við deildina og hljóta prófessorsstöðu í kynjafræði.
Morgunblaðið/Golli
Fyrsti heiðursdoktor deildarinnar
Anna Guðrún Jónasdóttir gerð að heiðursdoktor stjórnmálafræðideildar í gær
Ríkisútvarpið (RÚV) hefur beðið
embætti forseta Íslands og Guðjón
Friðriksson sagnfræðing velvirðingar
vegna fréttar RÚV um veitingu fálka-
orðunnar.
Fyrirsögn fréttarinnar, sem birtist
á vef RÚV þann 17. júní, var „Ævi-
söguritari forseta fær fálkaorðu“.
Fyrirsögninni var síðan breytt og
sett athugasemd við fréttina þar sem
sagði að af fyrirsögninni hefði mátt
skilja að störf Guðjóns Friðrikssonar
fyrir forsetann hefðu ráðið því að
hann hefði fengið riddarakrossinn.
Svo væri ekki heldur fjallaði orðu-
nefnd um tilnefningar til orðunnar og
gerði tillögur til forseta um hverja
skyldi sæma henni. Þá var Guðjón
Friðriksson beðinn velvirðingar.
Örnólfur Thorsson forsetaritari
staðfesti í samtali við Morgunblaðið
að skrifstofu forseta Íslands hefði
borist afsökunarbeiðni frá RÚV
vegna fréttarinnar. Ekki náðist í
Rakel Þorbergsdóttur, fréttastjóra
RÚV, í gærkvöld. gudni@mbl.is
Bað forseta
og orðuhafa
afsökunar
RÚV breytti frétt
um orðuveitingu