Morgunblaðið - 19.06.2015, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 19.06.2015, Blaðsíða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2015 Finnst ykkur skorta fræðslu um samtímaljósmyndun? „Já. Þegar talað er um samtíma- ljósmyndun er eins og fólk viti ekki alveg hvað átt er við,“ svarar Spessi. „Það eru rosalega margir að gera fallegar myndir, norðurljósamyndir og landslagsmyndir og svona en þær myndu ekki falla ekki alveg inn í þetta. Samtímaljósmyndun þýðir í rauninni myndlist, ljósmyndir sem eru í raun hugsaðar sem myndlist en ekki einhverjar skreytingar í túr- istabæklinga,“ segir hann. Félagar í FÍS séu því starfandi myndlistar- menn, hafi lært í myndlistarskólum eða ljósmyndaskólum á háskólastigi og hafi fengist við ljósmyndun í myndlist. Á sunnudaginn kl. 14 verða haldn- ar pallborðsumræður á sýningunni og umræðuefnið staða samtíma- ljósmyndunar á Íslandi samanborin við stöðu hennar erlendis. Spessi stýrir umræðunum og þátttakendur verða m.a. Æsa Sigurjónsdóttir list- fræðingur, Jón Sigurpálsson mynd- listarmaður og Einar Falur Ingólfs- son ljósmyndari. Sýningunni lýkur 11. júlí með leiðsögn og lokateiti. Ljósmynd/Spessi Undirbúningur Valdís Thor, Rúnar Gunnarsson og Spessi í Sindrahúsi. Dómnefnd Hins íslenska glæpa- félags, HÍG, veitti í gær verðlaunin Blóðdropann, fyrir glæpasögu árs- ins 2014, og varð fyrir valinu DNA eftir glæpasagnadrottninguna Yrsu Sigurðardóttur. Tilkynnt var um verðlaunin í Borgarbókasafni í Gróf- inni í gær og verður DNA einnig framlag Íslands til norrænu glæpa- sagnaverðlaunanna Glerlykilsins á næsta ári. Í rökstuðningi dómnefndar segir m.a. um bók Yrsu að hún sé vel upp- byggð og spennandi glæpasaga. „Bókin hefst á óhugnanlegu og að því er virðist óskiljanlegu morði á saklausri konu. Barn sem er vitni að glæpnum býr yfir óvæntum og ill- skiljanlegum vísbendingum um morðingjann. Vísbendingum sem í fyrstu leiða lögregluna aðeins inn í blindgötu en skipta sköpum við lausn gátunnar. Einhver virðist vera að hefna sín en hver er sekur um hvað? Málið er flókið þar sem börn koma við sögu, en þar má finna einn styrkleika Yrsu, hvernig hún nær að fjalla um erfiðleika barna á raunsæj- an og trúverðugan hátt, þannig að varnarleysi þeirra og sársauki skín í gegn. Þetta blasir við í formálanum og þegar mikilvægt vitni er yfir- heyrt í Barnahúsi,“ segir í rökstuðn- ingi og að lesandi eigi gott með að setja sig inn í umhverfi sögunnar. Persónusköpunin hjá Yrsu sé sterk og hafi tekið skref fram á við í bókinni. Þá hafi einn helsti styrkur Yrsu verið að skapa spennu og eftir- væntingu í bókum sínum og vekja grun um óhugnað og í DNA takist henni mjög vel upp. „Lesandinn fylgist með framvindu rannsókn- arinnar og feilsporum lögreglunnar. Fleiri persónur dragast óvænt inn í atburðarásina og morðunum fjölgar. Yrsu tekst að halda lesandanum í heljargreipum spennu og eftirvænt- ingar alveg fram á síðustu blaðsíðu og sögulok eru sannarlega óvænt og ófyrirséð,“ segir í niðurlagi rök- stuðnings. Dómnefnd skipuðu Inga Magnea Skúladóttir, Kristján Jóhann Jóns- son og Úlfar Snær Arnarson. Eirík- ur Brynjólfsson er foringi Hins ís- lenska glæpafélags. Yrsa hlaut Blóðdropann  DNA er glæpa- saga ársins 2014 að mati HÍG Morgunblaðið/Þórður Verðlaunahöfundur Yrsa Sigurðardóttir hlaut Blóðdropann 2015. Consul‘Art nefnist sýning sem Jean-Claude Gaudin, borgarstjóri Marseille, opnar í dag með form- legum hætti þar í borg í Maison d́Artisanat. Á sýningunni kynna listamenn frá 71 landi listaverk sín og handverk, en fulltrúar Íslands eru myndlistarmaðurinn Ólöf Björk Bragadóttir með verkið Straumar og hönnuðurinn Anna Gunn- arsdóttir með verk sitt Norðurljós. „Náttúruöflin eru ein helsta upp- spretta hugmynda í verkum Ólafar Bjarkar. Hin sífellda hreyfing og umbreyting sem á sér stað í nátt- úrunni eru þeir meginþættir sem liggja til grundvallar verka hennar. Hún hefur unnið með ólíka miðla í myndlist sinni til þessa en þó að- allega með málverkið, oftast á óhlutbundinn hátt með blandaðri tækni á pappír eða striga,“ segir m.a. í tilkynningu. Þar kemur fram að þetta er í þriðja sinn sem Maison de l‘Art- isanat og Métiers d‘Art standa fyrir sýningunni Consul‘Art. Sýningin stendur til 18. júlí. Straumar Verk Ólafar Bjarkar. Sýna á Consul- ‘Art í Marseille byggingar í London og ná- grenni. Það verk Gyðu sem er Skaga- mönnum að bestu kunnugt er stór brjóstmynd af Haraldi Böðv- arssyni og Ing- unni Sveinsdóttur sem stendur við Vesturgötuna en einnig hefur hún mótað brjóstmyndir af Pétri Ottesen og Hálfdáni Sveinssyni sem eru varðveittar á Byggðasafninu að Görðum á Akranesi en geta má þess að það var faðir hennar, sr. Jón M. Guðjónsson, sem stofnaði Byggða- safnið á Akranesi.“ Gyða hyggur á stóra listsýningu á Vökudögum á Akranesi í haust. Gyða L. Jónsdóttir Wells hefur verið útnefnd bæjarlistamaður Akraness árið 2015. „Gyða er Skagamaður í húð og hár en hún hefur starfað og búið í Englandi um langt skeið og er nýflutt á Akranes aftur. Gyða vinnur bæði stóra og litla skúlptúra og mál- verk í vinnuaðstöðu sinni í Sements- verksmiðjunni á Akranesi, þar sem hún starfar ásamt fleiri listamönn- um. Saman kalla þau sig Samsteyp- una. Gyða segist fyrst og fremst vera myndhöggvari, þar sé hún á heimavelli,“ segir m.a. í tilkynningu. Þar er rifjað upp að Gyða átti og rak Tessera Designs í London á ár- unum 1980 – 1997. „Á þeim tíma hannaði hún flísar fyrir einkahöll Soldánsins af Brunei í London fyrir 11 baðherbergi auk þess sem hún framleiddi skreytingar á fjölmargar lestarstöðvar og aðrar opinberar Bæjarlistamaður Akraness Gyða L. Jónsdóttir Wells KK Bandið leggur land undir fót um helgina. Í kvöld kemur bandið fram á Græna hattinum á Akureyri kl. 22 og annað kvöld á veitinga- og tónleikastaðinn Já Sæll í Fjarðarborg á Borgarfirði eystra kl. 21. Bandið skipa þeir KK, Þorleifur Guðjónsson og Kormákur Geir- harðsson, en samstarf þeirra hófst 1992 þegar þeir sendu frá sér plöt- una Bein leið. Þeir félagar koma saman öðru hvoru og spila gömlu lögin sem þeir hafa verið að spila í þessi rúm 20 ár. Þetta eru m.a. lög af plötunum Lucky One, Bein leið, Hótel Föröyar og svo gömul blús- lög eftir m.a. Robert Johnson, Jimmy Reed og J.J. Cale. KK Band á Græna hattinum Morgunblaðið/Eggert Tónlistarmaðurinn Kristján Krist- jánsson, betur þekktur sem KK. Ódýrt í bíó TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS SÝND KL. 3:50 SÝND KL. 5 Miðasala og nánari upplýsingar POWERSÝNING KL. 10:35 BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND MEÐ OWEN WILSON, IMOGEN POOTS OG JENNIFER ANISTON Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI - bara lúxus

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.