Morgunblaðið - 19.06.2015, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 170. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. „Þetta er lygilega furðulegt“
2. Allt að 18 stiga hiti á …
3. Sjóðandi vatn lenti á börnunum
4. 18 milljónir í stað 17 þúsunda
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Gjörningaklúbburinn stendur í
samvinnu við Listasafn Reykjavíkur
fyrir gjörningi með þátttöku almenn-
ings í höggmyndagarðinum Perlu-
festi í Hljómskálagarðinum í dag, á
eins árs afmæli höggmyndagarðsins
og 100 ára afmæli kosningaréttar
kvenna. Í gjörningnum, sem nefnist
Möskvi, verður kíkt ofan í jarðlög
kvennasögunnar og perlur hennar
dregnar fram í dagsljósið. Gjörning-
urinn, sem fer fram utandyra, hefst
kl. 12 og tekur a.m.k. klst. en áhorf-
endur geta komið og farið að vild.
Morgunblaðið/Heiddi
Möskvi í Perlufesti
Prins Póló held-
ur tvenna tónleika
á Norðurlandi um
helgina ásamt
konunglegri hirð
sinni, í kvöld á
Kaffi Rauðku á
Siglufirði og ann-
að kvöld á Græna
hattinum á Akur-
eyri. Hvorir tveggja tónleikanna hefj-
ast stundvíslega klukkan kl. 22.
Prins Póló með tón-
leika á Norðurlandi
Einstæðar mæður nefnist heim-
ildaverk sem ljósmyndarinn Annie
Ling opnar í Mjólkurbúðinni á Akur-
eyri í dag kl. 15-17 í tilefni af 100 ára
kosningaafmæli kvenna á Íslandi, en
verkið vann hún hérlendis. Annie
Ling er frá Kanada og starfar
sem heimildaljósmyndari.
Verk hennar hafa verið valin
til birtingar í The New York
Times og tímaritinu The
New Yorker. Sýningin er
aðeins opin í dag og á
morgun.
Einstæðar mæður í
Mjólkurbúðinni
Á laugardag Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Dálítil væta
sunnanlands, þokuloft með norðurströndinni en þurrt annars stað-
ar. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast norðaustantil og á Vesturlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæglætisveður framan af degi og birtir til
fyrir norðan en gengur í suðaustan 5-10 á Suður- og Vesturlandi
síðdegis með lítilsháttar vætu. Hiti 10 til 18 stig.
VEÐUR
„Við höfum fundið fyrir
skorti á yngri leik-
mönnum sem pressa á
þá sem hafa verið lengi í
landsliðinu,“ segir Aron
Kristjánsson, sem í gær
var endurráðinn þjálfari
karlalandsliðs Íslands í
handknattleik til næstu
tveggja ára, en þeir Ólaf-
ur Stefánsson og Gunnar
Magnússon verða að-
stoðarþjálfarar með hon-
um. »1
Skortur á yngri
leikmönnum
„Við viljum komast hærra og ef við
höldum Jóhanni Berg og fleiri leik-
mönnum eigum við góðan möguleika.
Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir
Charlton, ég vona að hann verði
áfram hjá okkur og að á sama tíma að
ári verðum við saman
að fagna úrvalsdeildar-
sæti,“ sagði leikmaður
enska knattspyrnu-
liðsins Charlton við
Morgunblaðið. »1
Góðir möguleikar ef
við höldum Jóhanni
KA frá Akureyri er eina liðið utan
efstu deildar sem er komið í átta
liða úrslitin í bikarkeppni karla í
knattspyrnu. KA vann óvæntan
sigur á Breiðabliki, 1:0, í fram-
lengdum leik á Kópavogsvell-
inum, en önnur lið sem komust
áfram eru Fjölnir, KR, Valur, Vík-
ingur R., Fylkir, FH og ÍBV. Dregið
verður í hádeginu í dag. »2-3
KA sló Breiðablik út
úr bikarkeppninni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ísak Rúnarsson
isak@mbl.is
Þær Vigdís Jónsdóttir og Hildur
Petra hafa spilað saman á harmon-
iku undanfarin þrjú ár og gefa nú út
plötu saman. Hildur hefur spilað á
nikkuna frá barnsaldri en Vigdís síð-
an hún fékk harmoniku í fertugs-
afmælisgjöf.
„Ég hafði grínast með það að á
elliheimilinu ætlaði ég að taka upp á
því að byrja að spila á harmoniku og
taldi að ég hefði ekki tíma fyrr. Mað-
urinn minn var þó greinilega ekki
sammála, því þegar ég varð fertug
gaf hann mér harmoniku í afmæl-
isgjöf,“ segir Vigdís og bætir við að
gjöfin hafi verið mjög óvænt.
Spurð hvort harmonikan sé ekki
flókið hljóðfæri að læra á svarar Vig-
dís því játandi en segir harmonikuna
svo skemmtilega að það geri ekkert
til þó að hún sé flókin.
Þær Vigdís og Hildur eru báðar í
krefjandi störfum, en Vigdís er
framkvæmdastjóri Virk starfs-
endurhæfingarsjóðs en Hildur Petra
er ráðgjafi hjá Einingu-Iðju stéttar-
félagi. Aðspurð segir Vigdís að hún
vildi oft hafa meiri tíma til þess að
spila á harmonikuna en hafi þó svo
gaman af vinnu sinni að helst vildi
hún óska sér að hafa fleiri klukku-
tíma í sólarhringnum.
Samstarfið kviknaði
í kvennasveit
Ástæða þess að þær fóru að spila
saman var sú að Guðrún Guðjóns-
dóttir í Harmonikufélagi Reykjavík-
ur tók sig til, kallaði saman nokkrar
konur sem voru að spila á harmon-
iku og stofnaði kvennasveit.
Kvennasveitin spilaði við Breiðholts-
laugina og á Kjarvalsstöðum, en í
þeirri sveit kynnast þær Hildur og
Vigdís. „Svo vantaði að manna spilið
á jólamarkaðnum á Elliðavatni og
við ákváðum að taka það saman og
kunnum svo vel við það að spila
saman að við höfum gert það síðan,“
segir Vigdís, en hún telur einnig að
þetta sé í fyrsta skipti sem tvær
konur gefi saman út plötu með
harmonikutónlist.
Spila á tónlistarhátíð
í Danmörku
Í sumar munu þær fara víðs vegar
um landið, bæði til að kynna nýju
plötuna sína taka þátt í svokölluðum
harmonikumótum, en á þeim hittast
harmonikuáhugamenn og spila,
syngja og dansa saman. „Við verðum
m.a. á Akureyri og svo á Breiðu-
mýri, en það er árlegur viðburður
hjá okkur,“ segir Vigdís og bætir við
að í byrjun júlí muni þær Hildur fara
til Danmerkur og spila heilmikið
prógramm á tónlistarhátíð þar.
Harmonika í afmælisgjöf
Gefa saman
út harmoniku-
geisladisk
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Í stúdíói Hildur og Vigdís tóku plötuna upp í stúdíói á Akureyri, en trommarinn þeirra ýtti þeim út í upptökur.
Á nýútgefnum geisladiski Hildar Petru og
Vigdísar má finna fimmtán lög. Tvö
þeirra, lögin Tækifæri og Fyrstu skrefin,
eru frumsamin. Hin lögin eru bæði hefð-
bundin danslög, fyrir harmonikur, svo
sem skottísar, valsar og polkar og falleg
dægurlög spiluð á harmonikur. Diskurinn
var tekinn upp á Akureyri og á honum
spila með þeim ýmsir tónlistarmenn.
Hildur og Vigdís stóðu sjálfar að útgáf-
unni og að sögn Vigdísar gengur sala á
disknum vel en hann fæst meðal annars í 12 tónum. Í sumar munu þær
stöllur fara um landið, spila á tónleikum og kynna geisladiskinn.
HILDUR PETRA OG VIGDÍS – DRAGSPILSDRAUMAR
Dragspilsdraumar
Skottísar, valsar og polkar