Morgunblaðið - 19.06.2015, Page 20

Morgunblaðið - 19.06.2015, Page 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2015 VÍKKAÐU HRINGINN Fram undan er spennandi sumar með Morgunblaðinu. Skúli Halldórsson sh@mbl.is Allt lítur út fyrir að ný ríkisstjórn verði mynduð í kjölfar þingkosninga í Danmörku sem fram fóru í gær. Enduðu þær með sigri Bláu fylk- ingarinnar, sem samanstendur af hægriflokkunum sem verið hafa í stjórnarandstöðu undanfarin fjögur ár. Fóru kosningar svo að fylkingin hlaut alls 90 þingmenn og getur því myndað meirihluta gegn 85 þing- mönnum vinstriflokkanna í Rauðu fylkingunni. Venstre-flokkurinn sigraði ekki Þrátt fyrir að Venstre-flokkurinn undir stjórn leiðtogans Lars Løkke Rasmussen hafi farið fyrir fylking- unni getur hann þó ekki talist vera ótvíræður sigurvegari kosninganna. Flokkurinn hlaut 19,5 prósent at- kvæða, sem er 7,2 prósentustigum minna en við síðustu kosningar, og fer hann því úr 47 þingmönnum í 34. Kemur það ekki að sök fyrir Bláu fylkinguna því að flestum að óvörum hlaut Danski þjóðarflokkurinn 21,1% fylgi, alls 37 þingmenn, og er því næststærsti flokkur Danmerkur eftir kosningarnar, á eftir Jafnaðar- mannaflokki fráfarandi forsætisráð- herrans Helle Thorning-Schmidt, sem endaði með 47 þingmenn. Bætti flokkur hennar við sig þremur þing- mönnum frá síðustu kosningum en það reyndist ekki nóg gagnvart gríð- armikilli fylgisaukningu Þjóðar- flokksins, sem er nú stærsti flokkur Bláu fylkingarinnar. „Það sem þetta gefur til kynna er að Danski þjóðarflokkurinn er á leið að verða loks hinn rétti Þjóðarflokk- ur sem við höfum sóst eftir í svo mörg ár,“ sagði formaður flokksins, Kristian Thulesen Dahl, bersýnilega hrærður við gesti á kosningavök- unni, en fyrir kosningarnar var flokkurinn með 22 þingmenn og jók hann því fylgi sitt gríðarlega. Samt sem áður er fastlega búist við að Lars Løkke Rasmussen verði næsti forsætisráðherra Danmerkur, þar sem hann er sá leiðtogi sem fylk- ingin hafði sameinast um fyrir kosn- ingarnar. Tóku áherslur Þjóðarflokksins Ljóst er að stefna Þjóðarflokksins, sem hefur verið sakaður um andúð gagnvart innflytjendum, hefur hlotið nokkurn hljómgrunn á meðal Dana. Sést það kannski best á baráttu hinna tveggja stórflokkanna. Þannig kepptust bæði Rasmussen og Thorn- ing-Schmidt um að saxa á fylgi Þjóð- arflokksins með því að tileinka sér ýmsar áherslur hans í málefnum inn- flytjenda. Styðja líklega minnihlutastjórn Lofuðu leiðtogarnir báðir tveir að girða enn frekar fyrir umferð inn- flytjenda í landið og lýstu einnig yfir vilja til að brjóta upp svokallaðan „velferðartúrisma“, en í því felst að neita atvinnulausum innflytjendum um varanlegt landvistarleyfi. Tilraunir þeirra náðu ekki að koma í veg fyrir stórsigur Þjóðar- flokksins, sem er nú í lykilstöðu, en líklegt þykir þó að hann myndi ekki ríkisstjórn með Venstre-flokki Rasmussens heldur styðji hana sem minnihlutastjórn. Fyrir fram var tal- ið að fjórir þingmenn Færeyinga og Grænlendinga myndu jafnvel ráða úrslitum en fimm þingmanna munur fylkinganna gaf ekki kost á því.  Danski þjóðarflokkurinn óvænt annar stærsti flokkur Danmerkur  Stærstur innan Bláu fylking- arinnar  Jafnaðarmannaflokkurinn áfram stærstur  Venstre-flokkurinn tapaði töluverðu fylgi Blár sigur í dönsku kosningunum AFP Forsætisráðherra? Lars Løkke Rasmussen gengur út úr kjörklefa. Vígamenn Boko Haram í Níger drápu að minnsta kosti 38 manns í árásum aðfara- nótt gærdags, samkvæmt heim- ildum fréttastofu Reuters. Þingmaður í Níger, Bulu Mammadu, segir í samtali við BBC að konur og börn hafi verið á meðal þeirra sem voru skotin til bana. Samtökin eiga sér bækistöðvar í Nígeríu en nágrannalöndin, auk Nígeríu, hafa myndað herlið til að takast á við ógnina sem stafar af samtökunum. Bandaríkin lofa milljónum dala Á mánudag var gerð sjálfsmorðs- sprengjuárás í Tsjad, sem einnig leggur til hermenn í sameinað herlið landanna. Fréttaritari BBC í Níger- íu segir að með því að ráðast á Níger, Tsjad og Nígeríu í sömu vikunni séu samtökin að reyna að koma höggi á öll þau lönd sem sameinast hafa í baráttunni gegn þeim. Boko Haram réðust fyrst á Níger í febrúarmánuði en ríkisstjórn lands- ins sagðist þá hafa drepið meira en hundrað liðsmenn samtakanna. Nýkjörinn forseti Nígeríu, Mu- hammadu Buhari, hefur sett í farveg áætlanir um að stækka alþjóðlega herliðið svo það samanstandi af 7.500 hermönnum. Bandaríkin hafa lýst yfir stuðningi við framtakið og lofað fimm millj- ónum Bandaríkjadala til að aðstoða við að koma því á laggirnar. Boko Haram voru stofnuð árið 2002 og hafa það að markmiði að stofna nýtt íslamskt ríki á svæðinu. Drápu 38 manns í Níger Muhammadu Buhari  Boko Haram halda áfram að gera árásir Gærdagurinn markaði upphaf Ramadan víðast hvar í heiminum, en svo kallast heilagur mánuður múslima þegar þeir fasta frá sólarupprás til sólseturs. Mánuður- inn hefur mikla trúarlega þýðingu fyrir hinn íslamska heim og eru múslimar jafnan hvattir til að biðja reglu- lega og leggja þeim lið sem minna mega sín. Þegar litið er til samtakanna Íslamskt ríki gefur mán- uðurinn hins vegar efni til áhyggja. Sé litið til síðustu ára hefur Ramadan verið tími aðgerða hjá samtökunum, sem virðast líta á mánuðinn sem aukinn hvata til heilags stríðs, eða jíhads. Ekki er nema ár liðið síðan þau lýstu yfir stofnun kalífadæmis á fyrsta degi Ramadan, þar sem talsmaður þeirra Abu Mohammed al-Adani talaði um „nýtt tímabil alþjóðlegs jíhads“. Í þessu fólst dramatísk stigmögnun á því hvernig samtökin vildu sýnast út á við og tímasetn- ingin var engin tilviljun ef marka má sérfræðinga. Skömmu eftir þetta kom leiðtogi samtakanna, Abu Bakr al-Baghdadi, þá nýorðinn „kalífi“, opinberlega fram í fyrsta skipti. Var hann ótvíræður um mikilvægi Ramad- an fyrir Íslamska ríkið. Þetta var þó ekki í fyrsta sinn sem samtökin hófu miklar aðgerðir í heilaga mánuðinum. Árið 2013 brutust liðsmenn þeirra inn í Abu Ghraib- fangelsið í Írak. Margir fanganna sem sluppu úr fangels- inu gengu til liðs við frelsara sína, sem varð aðeins til að auka fjölda þeirra og ákefð. Árið 2012 hófu samtökin sprengjuherferð sem beindist að öryggissveitum ríkisstjórnarinnar og hverfum sjía- múslima. Breska dagblaðið Guardian vakti þá athygli á því að sprengingarnar væru í reglulegum takti við aðrar tímasetningar á máltíðum og venjum múslima í þessum heilaga mánuði. sh@mbl.is Ramadan vekur ótta  Mánuðinum fylgir ótti um aukna virkni Íslamska ríkisins AFP Regnbogalitskrúð Konur sækja fyrstu bænasamkomu hins heilaga mánuðar Ramadan í Indónesíu á fimmtudag. Frans páfi hvatti Vestur- lönd í opinberu bréfi í gær til að hætta að notast við jarðefnaelds- neyti. Umhverfis- sinnar vonast margir til að skilaboðin muni drífa þjóðir til aðgerða á lofts- lagsráðstefnu SÞ sem fram fer í París í desember. Bréfið er 192 blaðsíður að lengd og rekur ábyrgðina á hlýnun loftslags til gjörða mannsins. „Við erum farin að sjá okkur sem drottna jarðar og húsbónda hennar, með tilkall til allra auð- linda hennar,“ segir páfi meðal annars í bréfinu. Gagnrýnir hann það sem hann kallar „uppsafnaða eigingirni“ en tekur fram að enn sé hægt að koma í veg fyrir skað- ann. VATÍKANIÐ Vill hætta notkun jarðefnaeldsneytis Þingið í Hong Kong hafnaði í gær frumvarpi um breytingar á kosninga- fyrirkomulagi, sem stutt var af stjórnvöldum í Kína. Áttu breyt- ingarnar að gera íbúum Hong Kong kleift að kjósa sér leiðtoga í fyrsta skipti árið 2017. Í frumvarp- inu var þó ákvæði þess efnis að kín- versk nefnd myndi aðeins leyfa þeim að bjóða sig fram sem hún teldi hæfa. Kínverjar segja að breytingarnar muni taka gildi þrátt fyrir höfnun þingsins en íbúar Hong Kong höfðu vonast eftir vænna frumvarpi frá Kína væri þessum lögum hafnað. HONG KONG Höfnuðu frumvarpi um nýtt leiðtogakjör

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.