Morgunblaðið - 19.06.2015, Page 8

Morgunblaðið - 19.06.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2015 BURTMEÐMÚSARÚLNLIÐ Eitt algengasta vandamálið meðal tölvunotenda – bæði barna og fullorðinna Léttir álagi af viðkvæmum sinaskeiðum úlnliðsins Minnkar og fyrirbyggir spennu í hendi, handlegg, öxlumog hálsi duopad.is Náttúruleg staða með DuoPadSlæm staða handleggs Meðmæli sjúkraþjálfara léttur og þægilegur ÚLNLIÐSPÚÐI aðeins 4 gr. Fæst á www.duopad.is – fjárfesting gegn músararmi DuoPad fylgir hreyfingum handleggsins í staðinn fyrir að allur líkaminn þurfi að aðlagast stuðningi sem liggur á borðinu. 1 2 3 4 EINKENNI MÚSARÚLNLIÐS Aukinn stirðleiki í hálsi og axlasvæði, síðar seiðingur út í handlegg. Verkur upp handlegg að olnbogameð vanlíðan og sársauka. Verkurinn verður ólíðandi og stöðugur í olnboga, úlnliðumog öxlum. Stífleiki í hálsi getur verið viðvarandi. Fólk getur orðið ófært um að nota tölvumús og jafnvel óvinnufært. Jón Magnússon, fyrrverandi al-þingismaður, skrifar:    Borgarstjórinnvar spurður um mótmæli há- vaðafólks á 17. júní. Hann þurfti virki- lega að vanda sig til að verða ekki fóta- skortur á tungunni. Eftir japl jaml og fuður komst hann að þeirri niðurstöðu að þetta hefðu verið ágæt mótmæli þar sem þau hefðu verið friðsamleg.    Mótmæli eru ekki friðsamleg efþau koma í veg fyrir að aðrir geti notið lýðræðislegra réttinda. Mótmælin í gær voru aðför að tján- ingarfrelsinu og óvirðing við þjóð- höfðinga, þjóðsöng og táknmynd frelsis og sjálfstæðis þjóðarinnar.    Viðmælandi ríkisfjölmiðilsins úrhópi mótmælanda réttlætti mótmælin með því að Jón Sigurðs- son hefði haft uppi mótmæli þegar Danir ætluðu að neyða upp á þjóð- ina stjórnarskrá sem tók sjálfstæði og sjálfsákvörðunrarétt frá þjóð- inni. Sá sem þetta segir þekkir lítt til sögu þjóðarinnar og með hvaða hætti sjálfstæðisbaráttan fór fram.    Jón Sigurðsson gætti í hvívetnaað sýna andstæðingum sínum virðingu þó hann héldi fram mál- stað þjóðarinnar af mikilli festu. Hann gerði ekki aðför, hæddi eða smánaði valdsmenn Danakonungs heldur gerði þeim með hófstilltum hætti grein fyrir sjónarmiðum sín- um og mótmælti ofbeldi fulltrúa hins erlenda valds gagnvart þjóð- kjörnum fulltrúum.    Mótmælendur nú gera hins veg-ar hróp að þjóðkjörnum fulltrúum.“ Dagur Eggertsson Studdi skrílslætin STAKSTEINAR Jón Magnússon Veður víða um heim 18.6., kl. 18.00 Reykjavík 7 alskýjað Bolungarvík 7 alskýjað Akureyri 12 skýjað Nuuk 3 skúrir Þórshöfn 8 alskýjað Ósló 13 skýjað Kaupmannahöfn 13 skúrir Stokkhólmur 12 skýjað Helsinki 11 skúrir Lúxemborg 18 léttskýjað Brussel 15 léttskýjað Dublin 17 skýjað Glasgow 11 skýjað London 20 heiðskírt París 20 skýjað Amsterdam 12 skýjað Hamborg 12 skýjað Berlín 17 skýjað Vín 23 skýjað Moskva 18 heiðskírt Algarve 26 léttskýjað Madríd 30 léttskýjað Barcelona 25 heiðskírt Mallorca 27 léttskýjað Róm 26 heiðskírt Aþena 22 léttskýjað Winnipeg 15 léttskýjað Montreal 22 skýjað New York 20 alskýjað Chicago 26 skýjað Orlando 33 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 19. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:55 24:04 ÍSAFJÖRÐUR 1:35 25:35 SIGLUFJÖRÐUR 1:17 25:17 DJÚPIVOGUR 2:10 23:48 Veggjakrot er orðið þekktur hluti af borgarlífinu en því hafa menn yfirleitt ekki þurft að venjast suður á Mýr- dalssöndum. Flakið af Douglas R4D-8 vélinni hefur orðið vinsælt myndefni hjá ferðamönnum í gegnum árin. Þetta krot, ásamt minna kroti og límmiðum á hinni hliðinni, var málað á hana einhvern tímann milli mánudags og miðvikudags. Vélin nauðlenti á sandinum árið 1973 eftir að óveður lokaði mögu- legum lendingarstöðum. Flakið hefur að sögn landeiganda mátt þola ýmsan ágang í gegnum tíðina. Nýtilegir munir voru fjarlægðir af bandaríska hernum en síðan hefur vélin mátt þola kúlnahríð, bruna og önnur skemmd- arverk, að sögn landeiganda. Stélið af henni var sagað af á tíunda áratugn- um og prýðir nú sumarbústað gerðan úr annarri vél af sömu tegund. Flugvélarflak út- krotað á sandinum Ljósmynd/Stefán Árnason Sólheimasandur Flakið af flugvélinni hefur mátt þola ýmislegt eftir að það var skilið eftir á Mýrdalssandi árið 1973 eftir nauðlendingu. Hæstiréttur hefur fallist á kröfu Barnaverndarnefndar Reykjavíkur um vistun þriggja systkina utan heimilis móður sinnar í sex mánuði frá 21. apríl að telja. Kröfu um slíka vistun fimm barna konunnar hafði verið hafnað í Héraðsdómi Reykja- víkur fyrr í mánuðinum, en eftir úr- skurð dómsins samþykkti konan vist- un tveggja elstu barna sinna utan heimilis fram til 21. október 2015. Fram kemur í dómnum að mál barna konunnar hafi verið til með- ferðar hjá barnaverndarnefndinni allt frá árinu 2005. Þannig hafi henni borist fjöldi tilkynninga um ofbeldi á heimili konunnar, sem m.a. hafi beinst að börnunum. Þá er lýst komu barnaverndaryfirvalda að konunni, barnsföður hennar og börnunum þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að börnin hefðu orðið fyrir líkamlegu og andlegu ofbeldi og búið við óvið- unandi aðstæður á heimilinu. Í skýrslum sem lagðar voru fyrir Hæstarétt kom fram samantekt við- tals starfsmanns barnaverndar- nefndar við eitt barnanna í apríl. Þar kom fram að konan hefði kýlt dreng- inn í magann og sparkað í magann á honum auk þess sem hún „væri að lemja systur hans og draga hana um á hárinu“. Fer nú fram lögreglurannsókn vegna gruns um ofbeldi gagnvart börnunum auk þess sem til stendur að konan gangi undir forsjárhæfnis- mat. Rannsókn vegna gruns um ofbeldi gagnvart börnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.