Morgunblaðið - 19.06.2015, Page 16

Morgunblaðið - 19.06.2015, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2015 „Þetta verkefni fer vel af stað og er gott dæmi um hvernig reynsla íslenskra fyrirtækja af erlendum verk- efnum getur nýst hér heima,“ segir Garðar Már Birgis- son, sem stýrir verkefninu fyrir hönd Þulu – Norræns hugvits ehf. Hann segir það ánægjulegt að vinna þetta í samstarfi við Lyfjaver og Öldrunarheimili Akureyrar því að báðir aðilar séu með skýra framtíðarsýn um hag- nýtingu upplýsingatækni til þess að ná fram rekstrar- hagræði og auknu öryggi. Hugbúnaðar- og ráðgjafarfyrirtækið Þula hóf starf- semi fyrir rúmlega þremur árum og hefur frá byrjun eingöngu unnið að verkefnum fyrir heilbrigðisstofn- anir í Noregi, en fyrir ári var farið að horfa til tæki- færa á íslenskum markaði. Félagið hefur sérhæft sig í heilbrigðistengdri upplýsingatækni með áherslu á lausnir sem snúa að verkferlum í lyfjaumsýslu. Félagið hefur vaxið jafnt og þétt, en í upphafi störf- uðu hjá því sjö sérfræðingar með langa reynslu af heil- brigðistengdri upplýsingatækni. Í dag eru hjá félaginu 12 starfsmenn og að jafnaði nokkrir hugbúnaðarsér- fræðingar í verktöku frá erlendum samstarfsaðila. Meginstarfsemin er á Akureyri en tveir fastráðnir starfsmenn eru í Noregi. Verkefni Þulu í Noregi hafa verið af tvennum toga. Annað meginverkefnið er unnið fyrir tvö stór heil- brigðisumdæmi í Noregi og stuðlar það að auknu hag- ræði við birgðahald lyfja hjá sjúkrahúsum og sjúkra- húsapótekum ásamt því að samþætta mismunandi hugbúnaðarlausnir, t.d. skömmtunarvélmenni og loft- drifin dreifingarkerfi. Það er hugbúnaðarlausnin sem nú er verið að laga að íslenskum markaði Hitt meginverkefni Þulu er unnið samkvæmt samn- ingi við norska heilbrigðisráðuneytið. Sú lausn hefur hlotið nafnið E-resept FM og er mjög viðamikil eining fyrir rafræn lyfjafyrirmæli. Sú lausn var í upphafi mið- uð að heimilislæknum en hefur einnig verið innleidd á sjúkrahúsum í Mið- og Vestur-Noregi. Útbreiðsla þess- arar lausnar er umtalsverð og hefur hún verið sett upp á yfir 1.000 stöðum. Til marks um umfang má segja að annar hver rafrænn lyfseðill í Noregi sé sendur úr kerfinu. Aðspurður segir Garðar að norsk heilbrigðisyfirvöld séu frekar framsækin þegar kemur að innleiðingu hug- búnaðarlausna sem tengjast rafrænni sjúkraskrá og ekki síst lausnum fyrir stuðning við rafræn lyfja- fyrirmæli. „Fyrir einu og hálfu ári ákváðum við að horfa til þess að koma vörum okkar og reynslu á aðra markaði og þótti nærtækast að horfa fyrst til Íslands. Við teljum að hér séu spennandi tækifæri.“ thorunn@mbl.is Þróun hugbúnaðar fyrir norskan markað nýtt hér  Ört stækkandi hugbúnaðarfyrirtæki á Akureyri Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hugbúnaður Garðar Már Birgisson verkefnisstjóri og Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri Þulu. Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Á tveimur af fimm heimilum á Öldr- unarheimilum Akureyrar er verið að prófa íslenskan hugbúnað sem heldur meðal annars utan um rafræna lyfja- skráningu og lyfjalager. Hugbúnaðinn þróaði fyrirtækið Þula – Norrænt hugvit ehf. fyrir norska heilbrigð- iskerfið. Hug- búnaðurinn geng- ur undir heitinu Alfa og styður við verkferla í inn- kaupum, dreifingu og birgðahaldi lyfja. Þessi íslenska hugbúnaðar- lausn sem hefur nú að hluta til verið heimfærð á íslenska heilbrigðis- stofnun er tilraunaverkefni sem hófst í desember sl. og lýkur í nóv- ember nk. Er hún samstarf þriggja aðila, Öldrunarheimila Akureyrar, Þulu – Norræns hugvits ehf. og Lyfjavers, sem er brautryðjandi í tölvustýrðri lyfjaskömmtun. Verk- efnið hlaut nýsköpunarstyrk frá Vaxtarsamningi Eyjafjarðar. Öruggari lyfjaskömmtun Markmið með notkun hugbúnað- arins er m.a. að ná fram hagræðingu í rekstri og auka öryggi í lyfja- skömmtun og umsýslu lyfja. Halldór S. Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Öldrunarheimila Akureyrar- bæjar, segir mikilvægt að nýta vel- ferðartækni og nútíma aðferðir til að efla og bæta þjónustuna og starf- semina í velferðarþjónustunni eins og öðrum greinum atvinnulífsins. „Þetta tilraunaverkefni er virki- lega spennandi og hefur gefið mjög góða raun. Allir verkferlar verða öruggari og ætla má að töluverð hagræðing hljótist af því að nota hugbúnaðinn. Þá er þetta mun ein- faldara og umhverfisvænna því það bætir nýtingu og minnkar kostnað vegna fyrningar lyfja því að kerfið vaktar birgðastöðuna og sendir raf- rænar tilkynningar eða pantanir eft- ir því hver birgðastaðan er. Ég er fullviss um að ef öll öldr- unarheimili á landinu notuðu þetta kerfi gætu sparast verulegir fjár- munir og tími, sem hvort tveggja eru takmarkaðar auðlindir innan heilbrigðiskerfisins,“ segir Halldór. Hann bendir á að víða sé óhagræði í velferðarkerfinu sem nýsköpun í þjónustu og velferðartækni gætu mögulega leyst á einfaldari hátt en nú er, eins og virðist í þessu tilfelli. Nýir möguleikar opnast „Við fáum líklega nýja möguleika og mun meira út úr þessu verkefni en við héldum upphaflega, því að fyrst og fremst vildum við auka og samræma betur lyfjaskráningu með rafrænum aðferðum. Eftir því sem minni tími fer í lyfjaumsýslu og alla skriffinnsku sem henni fylgir gefst meiri tími til að sinna skjólstæðingunum,“ segir Halldór og bendir á að það hljóti að vera markmiðið. Hann segir að af reynslunni af Alfa-verkefninu að dæma bendi allt til að hagkvæmt sé að hugbúnaður- inn verði í framhaldinu tekinn upp á öllum heimilum hjá Öldrunar- heimilum Akureyrarbæjar. Ná hagræðingu með hugbúnaði  Á tveimur öldrunarheimilum á Akureyri er verið að prófa íslenskan hugbúnað sem m.a. heldur utan um rafræna lyfjaskráningu og lyfjalager  Miklir fjármunir sparast og meiri tími gefst til að sinna fólki Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Lyfjaherbergi Bryndís Björg Þórhallsdóttir, starfsmaður Öldrunarheimilis Akureyrar, sýnir starfsstöð í öðru lyfja- herberginu þar sem Alfa-verkefnið um rafræna lyfjaskráningu er unnið og er hluti lyfjalagersins fyrir aftan hana. Halldór S. Guðmundsson Vinningar Bi rt án áb yr g› ar Volkswagen Passat Comfortline 1.4 TSI, 4.890.000 kr. 49124 Greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti 1.000.000 kr. 72661 154475 Sumarhappdrætti Krabbameins- félagsinsÚtdráttur17. júní 2015 Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun, 100.000 kr. Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun, 200.000 kr. 1244 3156 4057 6333 10370 10413 12006 13158 13589 13723 14193 15094 16611 18139 20900 20957 22708 25561 28409 29111 29159 29278 29709 29949 30935 31097 31150 31211 31422 32913 35739 36189 37728 38549 39626 40507 41915 45836 46034 47175 47677 48962 49472 52406 53307 53310 55125 55163 58900 59465 59622 60950 63391 64199 65621 67242 68031 69189 69873 70337 74392 75247 75823 77091 77192 77990 83477 84627 84735 85516 86370 88177 91178 92944 94077 94105 94733 96888 98416 98607 101659 105188 105429 105643 106769 109161 109794 110358 114885 115127 115552 115773 117103 118564 120410 120592 122307 124331 124364 125754 128850 130819 132049 133650 135789 140679 140806 142686 143305 143949 143973 144928 145895 145924 146897 148519 148692 152118 152974 153482 936 3812 5330 5761 8409 9783 10597 12304 14483 15950 16193 19219 23958 26984 34498 34546 35583 37144 41461 43666 45730 46116 51530 51556 52848 53333 53613 54445 55213 57507 58515 59003 62385 62850 63559 66552 67782 67907 70744 70755 73516 74349 76108 76695 77599 78773 80293 81675 83249 84355 85055 87060 88839 89424 90738 91261 91831 93350 94121 95184 97624 97875 98373 99436 100307 102748 103472 103727 104486 105498 108516 111310 111563 111637 111782 112602 112656 114746 121762 122221 123420 126629 127469 129550 136370 136621 140387 143033 144860 145562 145627 146637 147246 147445 149499 150418 151918 153664 153887 154641 Krabbameinsfélagi› þakkar landsmönnum veittan stu›ning. Handhafar vinningsmi›a framvísi þeim á skrifstofu Krabbameinsfélagsins a› Skógarhlí› 8, sími 540 1900. Byrja› ver›ur a› grei›a út vinninga þann 2. júlí nk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.