Morgunblaðið - 19.06.2015, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2015
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
!
"!
#$$
%#
% #"
#
!$!"
%#%
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%%
"
"#
##$
!$$
$$
% "
#
!%""
%!$!
"$
!
"$
##"
#$
% $"
!$
%#
$ $
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Jakobs Ásmundsson, forstjóri
Straums fjárfestingarbanka, hefur
gert samkomulag um starfslok. Eins
og greint hefur verið frá í fréttum
stefna Straumur
og MP banki að
samruna með
haustinu, en
stjórnir beggja fé-
laga hafa sam-
þykkt samruna-
áætlun sem borin
verður undir hlut-
hafafundi á mánu-
daginn. Gert hafði
verið ráð fyrir að
forstjórar félaganna tveggja yrðu
báðir forstjórar í sameinuðum banka.
Í tilkynningu segir Jakob hins veg-
ar að hann hafi frá upphafi talið
betra að hafa einn forstjóra í stafni
bankans en ekki tvo. „Þess vegna kýs
ég að stíga til hliðar á þessum tíma-
mótum og óska ég bæði samstarfs-
fólki mínu í Straumi og starfsfólki og
stjórn sameinaðs banka alls hins
besta.“
Jakob hefur starfað hjá Straumi í
tíu ár, fyrst sem framkvæmdastjóri
og síðustu tvö ár í forstjórastóli.
Hann mun láta af störfum þegar
samrunaferlinu verður formlega lokið.
Jakob hyggst láta af
störfum hjá Straumi
Jakob
Ásmundsson
STUTTAR FRÉTTIR ...
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
„Ég vil virkja karla. Jafnrétti er
efnahagsmál sem varðar bæði kon-
ur og karla en er ekki einungis
kvennamálefni,“ segir Halla
Tómasdóttir í samtali við Morgun-
blaðið, en hún er hugmyndasmiður-
inn að ráðstefnunni Women Empo-
werment (WE) sem hófst í Hörpu í
gær. Hún hóf undirbúning ráðstefn-
unnar í desember á síðasta ári og
eru þátttakendur á ráðstefnunni
alls staðar að úr heiminum, meðal
annars frá Bandaríkjunum, Noregi,
Danmörku, Sviss og Mexíkó. Halla
segir að það sé líklega einstakt í
umræðu um jafnréttismál að saman
komi svo breiður hópur karla og
kvenna úr áhrifastöðum, en á ráð-
stefnuna mættu meðal annarra for-
sætisráðherra, fjármála- og efna-
hagsráðherra, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, utanríkisráðherra
og innanríkisráðherra ásamt fjölda
forstjóra og stjórnarmanna ís-
lenskra og erlendra fyrirtækja.
Hún telur það mikilvægt að fá karla
og konur úr áhrifastöðum saman
því að það sé lykillinn að því að ná
frekara jafnrétti; þetta sé fólkið
sem geti tekið ákvarðanir um breyt-
ingar.
Jafnrétti er efnahagslegt mál
En hvaða þýðingu hefur það að
halda ráðstefnu sem þessa á Ís-
landi? „Ég held að það hafi bæði
áhrif inn á við og út á við. Ísland
hefur síðustu sex árin verið fremst
meðal þjóða í jafnrétti og það er
örugglega lykill að efnahagslegum
árangri okkar. En ef við viljum vera
áfram í forystu, bæði efnahagslega
og viðskiptalega, þurfum við að
sameinast um að klára þetta því að
enn vantar upp á jafnréttið. Alþjóð-
legir aðilar horfa mikið til forystu
okkar í þessu máli. Í mínum huga
getur Ísland sinnt forystuhlutverki
meðal þjóða í þessum málaflokki því
að þetta er nokkuð sem við gerum
mjög vel og eigum skuldlaust.“
Halla bætir við að jafnrétti sé mjög
mikilvægt efnahagslegt mál fyrir
samfélagið. „Þetta getur verið tæki-
færi fyrir okkur að komast á kortið
fyrir hluti sem nánast allar þjóðir
eru að reyna að gera betur. Margir
horfa til okkar og mun fleiri en við
gerum okkur sjálf grein fyrir.“
Hún segir að margt bendi til þess
að þegar við hættum að tala um
jafnrétti gleymum við okkur á verð-
inum og hlutirnir eigi á hættu að
falla aftur í sama farið. „Ráðstefnan
er liður í því að viðhalda umræð-
unni. Það hefur vissulega verið mik-
ill kraftur í umræðu kvenna og við
höfum komist langt en til að komast
lengra er mikilvægt að karlar og
konur tali saman um þetta.“
Lagarde segir tækifæri glatast
Í ávarpi Christine Lagarde,
framkvæmdastjóra Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins, í upphafi ráðstefn-
unnar kom fram að huga þyrfti að
tvennu til að minnka bilið milli karla
og kvenna. Annars vegar að hægt
væri að ná umtalsverðum efnahags-
legum ávinningi þegar konur tækju
þátt í vinnumarkaðnum og hins veg-
ar að skapa þyrfti lagaramma til að
jafna tækifæri kynjanna. Hún sagði
að með því að fá fleiri konur á vinnu-
markaðinn væri hægt að hraða hag-
vexti umtalsvert, en um einn millj-
arður kvenna á vinnualdri er ekki
þátttakendur í atvinnulífinu. Hún
nefndi sem dæmi lágt hlutfall
kvenna á vinnumarkaði í Austur-
Asíu, Mið-Austurlöndum og Afríku,
til samanburðar við 80% kvenna á
Íslandi. Þá hefði nýleg rannsókn Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins sýnt að ef
lagalegar hindranir væru afnumdar
þannig að konur gætu verið þátt-
takendur á vinnumarkaði myndi
það leiða til vaxtar í landsfram-
leiðslu. Jafnrétti karla og kvenna
væri því ávinningur fyrir alla.
Hagvöxtur verður meiri
með þátttöku kvenna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jafnrétti Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, ávarpaði ráðstefnugesti í Hörpu í gær.
Framkvæmdastjóri AGS segir jafnrétti karla og kvenna skapa ávinning fyrir alla
Leikjaframleiðandinn CCP hefur
gert samkomulag um að flytja
starfsemi sína á Íslandi í nýbygg-
ingu sem mun rísa á svæði Vísinda-
garða Háskóla Íslands í Vatnsmýri.
Samkomulag þess efnis var und-
irritað í gær af Hilmari Veigari
Péturssyni, framkvæmdastjóra
CCP, Kristínu Ingólfsdóttur, rekt-
or HÍ, og Hilmari Braga Janus-
syni, stjórnarformanni Vísinda-
garða.
Skrifstofur CCP verða í nýbygg-
ingu sem áætlað er að reisa við
Sturlugötu 6, en fyrirtækið er með
starfsstöðvar í fjórum löndum.
Reykjavíkurborg hefur skuldbund-
ið sig til þess að úthluta Háskól-
anum lóðinni, en Háskólinn hefur
falið Vísindagörðum umsjón með
uppbyggingu á henni. Í nýbygging-
unni verður gert ráð fyrir aðstöðu
fyrir fleiri nýsköpunarfyrirtæki
sem falla að stefnu HÍ um rann-
sóknir og nýsköpun og aukin tengsl
við íslenskt atvinnulíf.
Auk samninga um byggingar-
framkvæmdir, lóðarleigu og bygg-
ingarrétt er stefnt að víðtæku sam-
starfi CCP og Háskóla Íslands sem
lúta mun að kennslu, rannsóknum
og nýsköpun á starfssviði CCP.
Sony kynnir nýjan leik CCP
Þá greindi CCP frá því í gær að
nýr leikur fyrirtækisins, EVE
Valkyrie, hefði verið kynntur á að-
alkynningu Sony á E3, einni
stærstu leikjaráðstefnu heims sem
nú stendur yfir. Leikurinn er jafn-
framt hluti af sýningarbás Sony á
ráðstefnunni. EVE Valkyrie verður
fáanlegur fyrir Morpheus-sýndar-
veruleikabúnað Sony á PlayStation
4 og Oculus RIFT-sýndar-
veruleikabúnað fyrir PC-tölvur.
CCP Frá undirritun CCP og Vísinda-
garða um flutning í Vatnsmýri.
CCP flytur í
Vatnsmýrina
Sony kynnti nýj-
an leik fyrirtækis-
ins á E3 í gær