Morgunblaðið - 19.06.2015, Síða 21
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Tugmilljónum manna hefur verið
nauðugur einn sá kostur að flýja
heimili sín sökum stríðsátaka og of-
sókna undanfarin ár. Nú er svo
komið að tæplega 60 milljón manns
eru á hrakningum, helmingur
þeirra börn. Ljóst er að þessi
gríðarmikli fólksflótti, sem í mann-
kynssögunni þykir fordæmislaus,
hefur lagt þungar byrðar á mörg
ríki sem þola álagið illa til lengdar.
Tölur sem Flóttamannastofnun
Sameinuðu þjóðanna opinberaði í
gær varpa skýru ljósi á ástandið í
heimi þar sem ný átök virðast
reglulega rísa upp og þau eldri sýna
lítil merki um rénun. Fólk sem flýr
heimalönd sín endar sjaldnast á
Vesturlöndum heldur á stöðum þar
sem þróun er komin skemmra á
veg. Tyrkland, Íran og Pakistan
hýsa þannig hvert fyrir sig hátt
hlutfall flóttamanna í heiminum.
Einn af hverjum fjórum hælisleit-
endum hefst við í heimsins fátæk-
ustu löndum. Til að mynda njóta
mun fleiri skjóls í Eþíópíu og Kenía
en í Bretlandi og Frakklandi. Segir
í skýrslunni að dreifing flóttamanna
á heimsvísu halli verulega á þær
þjóðir sem ekki geti talist ríkar.
Þrátt fyrir það hefur myndast
töluverð andúð í ríkjum Evrópu
gagnvart þeim bylgjum fólks sem
koma norður yfir Miðjarðarhafið á
flótta undan átökum, meðal annars í
Erítreu og Sýrlandi. Evrópusam-
bandið hefur samt sem áður hætt
við að leita samþykkis hjá Örygg-
isráði SÞ fyrir því að beina valdi
gegn smyglurum sem reyna að
koma fólki yfir hafið, ásamt því að
eyðileggja skip þeirra.
Íhuga hernaðaraðgerðir á hafi
Sambandið hyggst þó hefja fund-
arhöld á mánudag um hvort hefja
skuli hernaðaraðgerðir á alþjóða-
hafsvæði í Miðjarðarhafinu, en fyrir
slíkar ráðstafanir er óþarft að leita
blessunar ráðsins.
„Á öld fordæmislauss fólksflótta
þurfum við fordæmislausa mannúð-
araðstoð. Við þurfum að endurnýja
skuldbindingar alþjóðasamfélags-
ins um að skýla skuli því fólki sem
flýr átök og ofsóknir,“ segir for-
stöðumaður Flóttamannastofnun-
arinnar í yfirlýsingu sem fylgdi
skýrslunni.
Fordæmislaus fólksflótti
Ný skýrsla SÞ varpar ljósi á fjölda flóttamanna í heiminum
Flestir sem flýja heimalönd sín enda í vanþróuðum löndum
AFP
Landganga Fólk á flótta frá Afganistan myndað við landgöngu á grísku eyjunni Lesbos. Konur og börn má víða
finna á ströndum og í borgum eyjarinnar, örmagna eftir ferðalag um Eyjahafið. Eftir skráningu er fólkið eitt á báti.
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2015
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Evrópusambandið er tilbúið að
framlengja viðskiptaþvinganir gegn
Rússlandi um 6 mánuði til viðbótar.
Var ákvörðun um þetta tekin af
sendiherrum sambandsríkjanna í
Brussel á miðvikudag og er búist við
að hún verði staðfest á fundi utanrík-
isráðherra sömu ríkja snemma í
næstu viku.
Ákvörðunin er til þess fallin að slá
á ótta margra um að beiskar og ár-
angurslausar samningaviðræður við
Grikki, um lán til handa ríkisstjórn
landsins, myndu gera Rússum kleift
að rjúfa samstöðu sambandsríkj-
anna. Hafa meðlimir Evrópuþings-
ins látið í ljós áhyggjur sínar af því
að forsætisráðherra Grikklands,
Alexis Tsipras, myndi mögulega
nota neitunarvald landsins til að
hindra frekari þvingunaraðgerðir og
þannig reyna að tryggja ríkinu lána-
pakka frá Rússum.
Þurfa aðeins eitt ríki af 28
Stjórnvöld í Kreml hafa enda bar-
ist hart gegn því að þvinganirnar
verði framlengdar, en þeim var kom-
ið á í kjölfar þess að Rússland inn-
limaði Krímskagann frá Úkraínu í
mars á síðasta ári. Fyrir ákvörðun
um slíkar aðgerðir þarf einróma
samþykki allra 28 sambandsríkjanna
að koma til, svo Kremlverjar þurfa
aðeins að snúa einu þeirra á sína
sveif til að hindra framlengingu.
Nú virðist hins vegar sem þeim
hafi mistekist að tryggja sér atkvæði
frá nokkru þeirra landa sem sýnt
hafa þvingunum lítinn áhuga, en auk
Grikklands má þar nefna Kýpur og
Ungverjaland, og hafa Rússar þó
biðlað til þeirra statt og stöðugt,
samkvæmt heimildum bandaríska
dagblaðsins New York Times.
Bandarísk yfirvöld hafa þrýst á
helstu Evrópuríkin um að viðhalda
þvingunum og fengu þau loforð frá
Angelu Merkel Þýskalandskanslara
og öðrum leiðtogum á G7-fundinum í
síðustu viku, um að þær yrðu áfram
til staðar þangað til Rússar hjálpa til
við að koma á friði í Úkraínu.
Rússum mistekst að
rjúfa samstöðu í ESB
AFP
Pútín Svo virðist sem Kremlverjum hafi mistekist að snúa einhverju sam-
bandsríkjanna á sína sveif til að hindra framlengingu efnahagsþvingana.
60
milljónir manna í heiminum eru á
flótta undan átökum og ofsóknum.
14
milljónir manna flúðu heimili sín á
síðasta ári samkvæmt tölum SÞ.
‹ FÓLK Á FLÓTTA ›
»
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
ÍSLENSKAR KILJUR
VIKAN 10.06.15 - 16.06.15
1 2
5 6
7 8
109
43
Ljós af hafi
M.L.Stedman
Ég á teppi í þúsund litum
Anne B. Ragde
Stjörnur yfir Tókýó
Hiromi Kawakami
Hilma
Óskar Guðmundsson
Hamingjuvegur
Liza Marklund
Blóð í snjónum
Jo Nesbø
Tapað fundið
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Auga fyrir auga
Roslund & Hellström
Rótlaus
Dorothy Koomson
Skuggadrengur
Carl-Johan Vallgren