Morgunblaðið - 27.06.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015
Tilboðsverð frá19.950 kr.
Flugsæti aðra leiðina. Hótel og íbúðir í
Benidorm, Albir eða Calpe.
Nánar á vita.is
Alicante
Síðustu sætin í júní og júlí!
VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Hjá sýslumanninum á höfuðborgar-
svæðinu eru hafnar prófanir á nýrri
hugbúnaðarlausn fyrir umsóknir
vegabréfa, en lausnin hefur verið í
þróun hjá Þjóðskrá Íslands í rúmt ár.
Umsóknarkerfi vegabréfa er komið
til ára sinna og hefur það meðal ann-
ars haft áhrif á vinnsluhraða umsókna
vegabréfa. Ný lausn felur í sér breyt-
ingar á hugbúnaði og vélbúnaði og er
verkefnið því umfangsmikið. Unnið er
að lagfæringum og umbótum í kjöl-
farið og samhliða frekari prófunum,
að sögn Sólveigar Guðmundsdóttur,
sviðsstjóra hjá Þjóðskrá Íslands.
Margþættur búnaður
Sólveig segir að unnið sé að hrað-
virkara kerfi en sömu kröfur verði þó
gerðar varðandi verklag þar sem unn-
ið sé eftir kröfum Alþjóða flugmála-
stofnunarinnar (ICAO). Vélbúnaður
umsóknarkerfa vegabréfa þarfnist
endurnýjunar en til þess að geta
endurbætt hann þurfi að breyta hug-
búnaðinum.
„Til að hægt sé að taka nýtt hug-
búnaðarkerfi í notkun þarf þó að
skipta um vélbúnað, en tölvubúnaður
fyrir vegabréfagerð er margþættur.
Þarna er um að ræða tölvur, fingra-
faraskanna, búnað til að taka rithand-
arsýnishorn, myndavélar og fleira,“
segir Sólveig.
„Prófun í raunumhverfi hefur haf-
ist með viðskiptavinum sem eru
reiðubúnir til þátttöku. Þar sem um
prófanir er að ræða er mögulegt að
endurtaka þurfi umsóknarferlið.“ Sól-
veig vill þó engu slá föstu um hvenær
mögulegt verði að taka umsóknar-
kerfið í notkun. „Næstu skref ráðast
af því hvort fjármagn fæst til endur-
nýjunar á búnaði á umsóknar-
stöðvum.“
Fleiri vegabréf gefin út
Að sögn Sólveigar kostar hver um-
sóknarstöð ásamt hugbúnaðarleyfum
um 500-600 þúsund krónur. Stjórn-
völd þurfi að ákveða hve margar um-
sóknarstöðvar verði endurnýjaðar,
hvort allar verði endurnýjaðar í einu
og hvort fjölga eigi umsóknarstöðv-
um. Hún telur þó ekki heppilegt að
skipta einungis út hluta umsóknar-
stöðva, þar sem það geti verið flókið
og kostnaðarsamt að halda úti tveim-
ur kerfum í einu. Í maímánuði voru
gefin út 7.635 íslensk vegabréf en í
sama mánuði í fyrra voru útgefin
vegabréf 6.353 talsins. Er það fjölgun
um 16,8% milli ára. brynjadogg@mbl.is
Prófa hraðvirkara kerfi
Ný lausn við útgáfu vegabréfa Afgreiðsla verði skilvirkari
Opnaður var sérstakur fótboltagolfvöllur í
Skemmtigarðinum í Grafarvogi í gærkvöldi.
Fjölmargir voru viðstaddir til að fylgjast með
landsliðsmönnunum Íslands í knattspyrnu og
golfi vígja völlinn. Voru þeir Eiður Smári Guð-
johnsen, Alfreð Finnbogason og Birgir Leifur
Hafþórsson meðal þátttakenda, en af myndunum
að dæma virðist Eiður Smári að minnsta kosti
hafa skemmt sér vel. Að sama tilefni var opn-
aður bar í Skemmtigarðinum sem ber heitið
Sveitabarinn, en þátttakendur og áhorfendur
gátu farið þangað að leik loknum. brynja@mbl.is
Golf og fótbolti mætast í Skemmtigarðinum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsliðsmenn vígja fótboltagolfvöll
Nærri fimm þúsund óskoðaðir
fólksbílar eru í umferðinni hér á
landi. Hafa eigendurnir trassað að
fara eftir reglum samfélagsins að
þessu leyti og ekki fengið opinbera
staðfestingu á að öryggisbúnaður
þeirra og ástand sé í lagi.
Ef miðað er við bíla sem átti að
færa til skoðunar 1. mars sl. eða
fyrr eru 4.789 óskoðaðir fólksbílar í
umferðinni hér á landi, samkvæmt
upplýsingum Samgöngustofu. Alls
eru um 180 þúsund fólksbifreiðar í
umferð og hafa því eigendur rúm-
lega 2,5% bílaflotans ekki mætt
með bílana í skoðun á réttum tíma.
Þar fyrir utan eru 52 óskoðaðir
húsbílar og 110 óskoðaðir fólks-
bílar sem skráðir eru sem bíla-
leigubílar. Talsvert mörg bifhjól
eru óskoðuð, eða 712, sömuleiðis
ferðavagnar, þar sem 784 eru
óskoðaðir á númerum.
Enginn sparnaður
Það kostar á bilinu 9 til 11 þús-
und að láta skoða venjulegan
heimilisbíl. Gjaldskráin er mismun-
andi eftir skoðunarstöðvum. Ef bíll
er ekki færður til skoðunar er lagt
á eigandann vanrækslugjald, 15
þúsund krónur. Hægt er að lækka
það um helming með því að færa
bílinn til skoðunar. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Öngþveiti Allmargir bílar eru óskoðaðir í
umferðinni. Þeir geta verið óöruggir.
Fimm þúsund óskoð-
aðir bílar í umferð
Endurupptökunefnd hefur sam-
þykkt beiðni Sigurðar Guðmunds-
sonar um endurupptöku dóms sem
hann hlaut í Hæstarétti í apríl 2003.
Þar var hann dæmdur í 18 mánaða
fangelsi fyrir manndráp af gáleysi
með því að hrista níu mánaða barn,
en talið var að áverkarnir hefðu leitt
það til dauða.
Endurupptökunefnd tekur
ákvörðun sína með hliðsjón af niður-
stöðu dómkvadds matsmanns, dr.
Waney Squier, og umsögn réttar-
meinafræðingsins Þóru Steffensen
sem krufði barnið á sínum tíma. Í úr-
skurði nefndarinnar kemur fram að
niðurstaða matsgerðarinnar sé af-
dráttarlaus um að dánarorsök
drengsins sé ekki að rekja til svo-
nefnds „Shaken baby“-heilkennis. Af
hálfu ríkissaksóknara hafi ekki verið
lögð fram fullnægjandi vísindaleg
gögn til að hrekja þá niðurstöðu.
Nefndin telur að matsgerðin
byggi í verulegum atriðum á læknis-
fræðilegum kenningum sem settar
séu fram á grundvelli rannsókna
sem framkvæmdar hafi verið eftir
uppsögn dómsins 2003 og hafi því
ekki komið til skoðunar við úrlausn
málsins. Rannsóknir þessar hagnýti
hinn dómkvaddi matsmaður til að
skjóta stoðum undir þá niðurstöðu
sína að ekki liggi fyrir að „Shaken
baby“-heilkennið hafi orðið bana-
mein drengsins. Endurupptökubeið-
andi hafi þannig lagt fram ný gögn
sem ætla megi að hefðu skipt veru-
legu máli fyrir niðurstöðu málsins ef
þau hefðu komið fram áður en dómur
gekk.
Málskostnaður felldur á ríkið
Sveinn Andri Sveinsson hrl. er
lögmaður Sigurðar. Kostnaður
endurupptökubeiðanda, tæpar 3,6
milljónir kr., er allur felldur á ríkis-
sjóð. helgi@mbl.is
Fallist á endurupptöku máls
Ný gögn sýna að dauði barns verði ekki rakinn til „Shaken baby“-heilkennis
Morgunblaðið/Sverrir
Hæstiréttur Dæmt var 3. apríl 2003.
Hitinn fór yfir tuttugu stig á nokkr-
um stöðum á landinu í gær, þar á
meðal í höfuðborginni, en sam-
kvæmt upplýsingum Veðurstof-
unnar mældist 20,5 stiga hiti í Geld-
inganesi um klukkan þrjú.
Hæstu hitatölurnar voru hins
vegar 21,8 stig á Sauðárkróki, 21,6
stig í Húsafelli og 21,5 stig við
Kolás. Spáð er hlýju og björtu veðri
á Norður- og Vesturlandi um
helgina en súld eða rigningu suð-
austanlands.
Mikil umferð var í gær til og frá
höfuðborginni, bæði vestur og
norður um land og um Suðurland.
Hiti fór yfir 20 stig
á nokkrum stöðum