Morgunblaðið - 27.06.2015, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Kostnaðurinn við að byggja nýjan
innanlandsflugvöll í Hvassahrauni er
í skýrslu stýrihóps um flugvallarkosti
á höfuðborgarsvæðinu áætlaður 22,3
milljarðar.
Til samanburðar má nefna að
kostnaðurinn við að endurnýja
Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýri er
áætlaður 18,5 milljarðar króna. Þetta
kemur fram í frummati um stofn-
kostnað við flugvöll sem Mannvit tók
saman fyrir stýrinefndina.
Stærsti einstaki kostnaðarliðurinn
er byggingar upp á 10,1 milljarð
króna; er það tæplega helmingur
stofnkostnaðarins. Í því felast m.a.
flugskýli, flugstöð, slökkvistöð og að-
staða fyrir Landhelgisgæsluna, flug-
málastjórn og þyrluskýli.
0,75 m niður á burðarhæft land
Þorsteinn R. Hermannsson, verk-
efnastjóri stýrinefndarinnar og höf-
undur stofnkostnaðaráætlunarinnar,
segir það kostnaðarsamt að búa til
land undir flugbrautirnar. Grafa þurfi
niður á burðarhæft undirlag og skipta
út jarðvegi fyrir burðarlög.
Landgerð kostar 3,5 milljarða
króna að mati Mannvits. Í Hvassa-
hrauni er gert ráð fyrir því að 0,75
metrar séu niður á burðarhæfan jarð-
veg eða klöpp og um moldarlag og
ónýtanleg efni sé að ræða. Það er
þynnra yfirborðslag en gert er ráð
fyrir í stofnkostnaðaráætlun á Bessa-
staðanesi og Hólmsheiði, sem skýrist
af því að um lítið gróið hraun er að
ræða. Þó að talið sé að landgerðin
verði erfiðari í hrauni er gert ráð fyrir
að til falli meira af nýtanlegu efni í
Hvassahrauni, sem svo verði notað í
fyllingar og neðra burðarlag, segir í
frummatinu.
„Þetta er heilmikil jarðvinna“
„Þótt flugbrautin sé bara 45 metra
breið þarf að hafa öryggissvæði til
hliðanna upp á 150 metra. Það svæði
þarf líka að vera slétt. Það er heilmikil
jarðvinna í kostnaðinum við flugvöll-
inn sjálfan. Þegar búið er að malbika
og merkja þarf að setja upp alla lýs-
ingu og leiðsögubúnað með blikkljós-
um og öðru eins sem þarf í flugvelli,“
segir Þorsteinn.
Hann bætir við að dýrara sé að
malbika flugbraut en venjulegan veg;
þykkara malbik sé notað á flugbraut-
um enda eigi þær að endast betur.
Ef byggja ætti flugvöll í Hvassa-
hrauni sem ætti að geta tekið á móti
hluta millilandaflugs yrði byggingar-
kostnaðurinn 35,7 milljarðar. Verk
nefndarinnar var hins vegar að finna
stað fyrir innanlandsflugvöll og
byggja útreikningar á þeirri for-
sendu.
Byggingar helm-
ingur af kostnaði
Byggja þyrfti flugskýli, flugstöð og slökkvistöð í Hvassahrauni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hraun Landgerð kostar 3,5 ma. kr., enda þarf að vinna mikla jarðvinnu.
Áætlaður stofn-
kostnaður flugvallar
í Hvassahrauni
Heimild: Mannvit. Frummat
á stofnkostnaði flugvallar.
Verkþáttur (m.kr.)
Undirbúningsframkvæmdir 420
Landgerð 3.500
Flugbrautir og flughlað 3.800
Búnaður 780
Veitur 170
Vegtengingar 120
Ófyrirséður kostnaður (20%) 1.800
Hönnun og umsjón (15%) 1.600
Byggingar 10.100
Samtals 22.300
Hvassahraun
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ólöf Nordal innanríkisráðherra
segir að þótt Rögnunefndin hafi
nú skilað skýrslu sinni sé flugvall-
arumræðunni hvergi nærri lokið.
Í hennar huga standi það upp úr
að nefndin leggur til að rekstr-
aröryggi Reykjavíkurflugvallar
verði tryggt, a.m.k. í bili.
„Ég er rétt byrjuð að rýna
skýrslu stýrihópsins, vegna þess
að þessa dagana eru annir miklar.
Það er gott að skýrslan er komin
út og að Rögnunefndin svokallaða
hafi lokið störfum. Ég þakka
nefndinni fyrir hennar störf,“
sagði Ólöf í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
„Það stendur auðvitað upp úr í
mínum huga, í tillögum nefnd-
arinnar, sú áhersla sem lögð er á
að samkomulag verði um að
rekstraröryggi Reykjavíkur-
flugvallar í Vatnsmýri verði
tryggt, að minnsta kosti í bili. Það
skiptir miklu máli og eins það að í
þessu starfi sínu er nefndin að
horfa til langs tíma,“ sagði ráð-
herra.
Ólöf segir að
það sé ákveðin
langtíma-
hugsun í þeim
forsendum
sem skýrslu-
höfundar gefa
sér, sem sé já-
kvætt. „Það
þarf að hafa
það í huga, að
allt skipulag
flugrekstrar þarf að vera til langs
tíma og það þarf að vera ákveðinn
fyrirsjáanleiki. Það er það sem
við höfum haft áhyggjur af, sem
rekum flugvöllinn í Vatnsmýr-
inni, að menn verða að hafa fyrir
sér talsvert langan tíma, áður en
ráðist er í breytingar í flug-
rekstri. Með þessari skýrslu er því
fengin ákveðin niðurstaða, en
flugvallarumræðunni er hvergi
nærri lokið með henni,“ sagði
Ólöf.
Innanríkisráðherra segir að
næstu skref, hvað varðar störf
ráðuneytisins, sem lúti að skýrsl-
unni, verði að rýna skýrsluna í
þaula og næstu skref verði ákveð-
in að þeirri vinnu lokinni.
Flugvallarumræðu
hvergi lokið
Ólöf
Nordal
Undir liðnum „undirbúnings-
framkvæmdir“ er meðal annars
gert ráð fyrir að í Hvassahrauni
þurfi að setja háspennulínur í
jörðu svo þær séu ekki fyrir flug-
línunni og hlýst nokkur kostnaður
af þeim undirbúningsfram-
kvæmdum. Landsnet hefur staðið í
deilum við landeigendur á svæðinu
um hvort leggja eigi Suðurnesja-
línu II í jörðu eða ekki.
Guðmundur Ingi Ásmundsson,
forstjóri Landsnets, segir málið
ekki hafa komið inn á borð hjá fyr-
irtækinu, enda hafi ekki verið tekin
ákvörðun um að byggja flugvöll í
Hvassahrauni í framtíðinni.
Þá var Guðmundur spurður
hvort jarðlagning Suðurnesjalínu I
og II væri dýr framkvæmd. „Vænt-
anlega. Nú veit ég ekki um hversu
langan kafla er að ræða, þannig að
ég get illa svarað því, en auðvitað
er það dýrara að leggja í jörðu og
það eru erfiðar aðstæður að leggja
jarðstreng í hrauni, þannig að hver
kílómetri á þessu svæði er mjög
dýr.“
Suðurnesjalínur fari í jörðu
UNDIRBÚNINGSFRAMKVÆMDIR
SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA
Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á
sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan.
Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur
sínum náttúrulega lit.
GERUM SÓLPALLINN
EINS OG NÝJAN
info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is
S: 897 2225
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta hefur verið eins og á BSÍ á
góðum degi. Svo fór strollan á eftir
vegagerðarmanninum eins og útsala
væri í IKEA,“ segir Helga Guðrún
Lárusdóttir, hótelstjóri í hálendis-
miðstöðinni Hrauneyjum, í gær.
Sérstök stemmning var í hálendis-
miðstöðinni í gær. Þangað safnaðist
saman fólk sem beið þess að veg-
urinn í Landmannalaugar yrði opn-
aður. Helga Guðrún taldi að um 50
manns hefðu beðið í ofvæni eftir að
komast þangað inn eftir.
Vegagerðin opnaði Sigölduleið í
Landmannalaugar fyrir fjórhjóla-
drifna bíla en enn er mikill snjór á
Landmannaleið. Helga Guðrún segir
að strollan hafi farið á eftir tækja-
manninum. Einnig var opnað inn í
Veiðivötn í gær, fyrir fjórhjóladrifna
bíla. Hins vegar er enn nokkuð í að
Sprengisandsleið verði opnuð og
geta gestir því ekki komist í
hálendismiðstöðina Hrauneyjar að
norðan. Segir Helga það bagalegt
því að hópar hafi þurft að afpanta.
Opið að Holuhrauni
Á nýju fjallvegakorti Vegagerðar-
innar sést að enn eru flestar leiðir á
hálendinu lokaðar. Þó styttist í að
Kjalvegur opnist allur, en nú er opið
að norðan í Hveravelli.
Margir vegir á Norðausturlandi
hafa verið opnaðir fyrir umferð.
Nefna má leiðina inn í Kverkfjöll og
Dreka, en þaðan má komast að
Holuhrauni. Þótt almannavarnir hafi
enn óvissustig á svæðinu norðan
Vatnajökuls var lokun lögreglu af-
létt í byrjun mánaðarins. Almenn-
ingur getur því farið um svæðið eins
og aðstæður leyfa. Vatnajökulsþjóð-
garður hyggst veita aðgang að
hrauninu eftir merktum gönguleið-
um. Umferð um hraunið er að öðru
leyti óheimil vegna náttúruverndar-
og öryggissjónarmiða.
Mikill snjór er á hálendinu og tef-
ur það ekki einungis opnun fjallvega
heldur veldur einnig erfiðleikum á
gönguleiðum. Slysavarnafélagið
Landsbjörg hvetur göngufólk til að
hafa í huga að snjórinn er víða þung-
ur og blautur og sumar gönguleiðir
aðeins færar vönu og vel búnu
göngufólki.
Strollan á eftir tækinu var
eins og á útsölu í IKEA
Vegir opnaðir inn í Landmannalaugar og Veiðivötn
Ljósmynd/Helga Guðrún Lárusdóttir
Bið Fjöldi fólks beið í Hrauneyjum í gær eftir því að vegurinn opnaðist.
Erilsamur dagur var hjá slökkvilið-
inu á höfuðborgarsvæðinu í gær, en
fimm sinnum voru kallaðir út dælu-
bílar vegna sinuelda og þegar
hreinsa þurfti upp olíu eftir um-
ferðaróhöpp. Þá sinntu sjúkrabílar
80 sjúkraflutningum í gær, en sam-
kvæmt upplýsingum frá slökkvilið-
inu þykir það mjög mikið á einum
degi.
Í gærkvöldi var tilkynnt um sinu-
eld á um 50 fermetra svæði í brekk-
unni fyrir ofan Elliðaárdalsstíflu,
en slökkvistarf gekk vel og tókst
fljótlega að
slökkva eldinn.
Þá var einnig
talsvert að gera
við sjúkraflutn-
inga í gærkvöldi,
en fimm sjúkra-
bílar voru úti
þegar blaða-
maður hafði sam-
band við slökkviliðið. Sagði slökkvi-
liðsmaður á vakt að þetta hefði
verið mjög erilsamur föstudagur og
kvöldið hefði byrjað af krafti.
Mikill erill var hjá slökkviliðinu í gær