Morgunblaðið - 27.06.2015, Síða 16
ÚR BÆJARLÍFINU
Jónas Erlendsson
Mýrdal
Eftir afar kalt og síðbúið vor skartar Mýrdalurinn
loksins orðið sínum fallega græna lit. Sauðfé er víðast
farið eða að fara úr túnum og fuglarnir sem lifðu af vorið
eru komnir með unga. Sláttur verður töluvert seinni
þetta ár en á undanförnum árum enda hefur spretta ver-
ið mjög hæg. Það er þó að verða nokkuð gott gras á al-
friðuðum blettum.
Sauðfjárbændur í Mýrdalnum virðast hafa slopp-
ið við þann mikla sauðfjárdauða sem víða hefur herjað á
bændur, en hafa vissar áhyggjur af því að ef þetta er ein-
hver sjúkdómur þá geti hann breiðst út um landið, og
vonast því væntanlega eins og allir eftir því að fullkomin
skýring fáist á því af hverju ærnar eru að drepast.
Mikill uppgangur er í ferðaþjónustu á svæðinu
og flestir sem eiga laust herbergi búnir að breyta því í
gistipláss sem þeir leigja út, fjölgun á allskonar gisti-
möguleikum er því stöðugt að aukast, enda virðist alveg
sama hvað mikið fjölgar af herbergjum, ferðamönnunum
virðist fjölga hraðar.
Mikið er búið að gera í hreppnum til að bæta að-
gengi ferðamanna að helstu perlum staðarins, búið er að
byggja upp og malbika veginn upp að Sólheimajökli
núna í vor en þangað er mjög vinsælt að fara og skoða
skriðjökulinn, og eins að fara í göngu með leiðsögumanni
upp á jökulinn. Áður var búið að malbika leiðina út á
Dyrhólaey og fram í Reynisfjöru en báðir þessir staðir
eru mjög fjölsóttir enda náttúran stórkostleg.
Þá er búið að setja upp plan fyrir framan Víkurskála
í Vík í Mýrdal þar sem þeir sem vilja heimsækja Vík-
urfjöru geta lagt bílum sínum.
Bætt aðgengi ferðamanna
að náttúruperlum í Mýrdal
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Vinsæl náttúruperla Sólheimajökull er alltaf jafn vinsæll hjá ferðamönnum.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015
Skjót viðbrögð starfsmanna Bíla-
leigu Akureyrar urðu til þess að
ekki varð stórtjón á húsnæði fyr-
irtækisins í Skeifunni fyrr í mán-
uðinum.
Eldur braust út við vinnu verk-
taka á svæðinu þegar þakpappi var
lagður á þak hússins með logsuðu.
Níu slökkvitæki tæmd
Að sögn Jóns Gests Ólafssonar,
gæða-, umhverfis- og öryggisstjóra
bílaleigunnar, kraumaði eldurinn
undir þakklæðningunni. Hann
blossaði upp þegar verktakinn
hugðist gera breytingar á verki
sínu og reif gat á klæðninguna.
Verktakinn hafði slökkvitæki við
höndina sem venja er en það dugði
ekki eitt til að slökkva eldinn.
Starfsmenn bílaleigunnar söfnuðu
þá saman öllum slökkvitækjum
hússins og handlönguðu þau upp á
húsþak á örskotsstundu. „Það var
tæmt úr níu tækjum yfir eldinn og
það mátti ekki tæpara standa,“ seg-
ir Jón Gestur, en slökkvitækin rétt
dugðu til að slökkva eldinn áður en
slökkviliðið kom á staðinn nokkrum
mínútum síðar og sinnti eftirliti
með því að eldurinn tæki sig ekki
upp aftur. Jón Gestur þakkar þjálf-
un starfsmanna skjót viðbrögð.
„Starfsfólkið veit hvar tækin eru.
Við höfum svokallað „Eigið eld-
varnareftirlit“ sem framkvæmt er
einu sinni í mánuði ásamt við-
bragðsáætlun við eldsvoða sem
inniheldur teikningar af eldvörnum
hússins,“ segir Jón Gestur, en bíla-
salan hefur lagt mikið upp úr ör-
yggi hvað eldhættu varðar.
Eldvarnir til fyrirmyndar
VÍS, tryggingafélag bílaleig-
unnar, veitti henni viðurkenningu á
dögunum fyrir öflugt eldvarnareft-
irlit og snör handbrögð vegna elds-
voðans.Að sögn Sigrúnar Rögnu
Ólafsdóttur, forstjóra VÍS, leikur
enginn vafi á að skjót og hárrétt
viðbrögð hafi skipt sköpum. Ekki
hafi aðeins verið komið í veg fyrir
verulegt eignatjón heldur líka að
nokkurt rof yrði á rekstri bílaleig-
unnar á háannatíma. Reglubundin
slökkvitækjaþjálfun starfsfólks hafi
nú sýnt sig í verki. jbe@mbl.is
Morgunblaðið/Eva Björk
Viðurkenning Gísli Níls Einarsson og Sigrún Ragna Ólafsdóttir hjá VÍS
ásamt Jóni Gesti Ólafssyni og Bergþóri Karlssyni frá Bílaleigu Akureyrar.
Starfsmenn komu
í veg fyrir stórtjón
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Nils Folmer Jörgensen finnst gam-
an í stórfiskaleik. Ekki þessum
gamla góða eltingarleik heldur virð-
ist þessi duglegi veiðimaður vera
öðrum mönnum lunknari við að fá
stóra laxa og urriða til að taka flugur
sínar. Hver er galdurinn?
„Ég veit það ekki,“ svarar hann
hógvær. „Kannski að fara varlega að
veiðistöðum, styggja ekki fiskana og
vanda sig við að leggja fluguna fyrir
þá.“ Og hann bætir við: „Ég fæ nú
ekki bara stóra fiska, líka marga
smærri.“ Þegar gengið er á hann
segist hann hafa fengið 15 eða 16
laxa lengri en 100 cm síðustu sumur.
Ljósmyndir af tröllvöxnum ur-
riðum sem Nils hefur veitt und-
anfarið í Þingvallavatni hafa vakið
mikla athygli, ekki síst þessi þar sem
hann heldur á 101 cm löngum fiski
sem var 63 cm að ummáli. Fiskurinn
var ekki veginn áður en honum var
sleppt en sérfræðingar giska á 35 til
36 pund. Sá tók litla púpu.
„Þetta er sá stærsti sem ég hef
fengið, algert monster. Hann var
óvenjulegur þessi, svakalega feitur,“
segir hann og í ljós kemur að hann
hefur veitt gríðarmarga urriða á
flugur sínar í vor og sumar, alls 174
fiska. Þar af eru nokkrir um og yfir
90 cm langir, einn 98 cm. Langflesta
fékk Nils á svokölluðu Ion-svæði að
sunnanverðu við vatnið og þar segir
hann gott að sjá til fiska og gaman
að veiða á þurrflugur og púpur.
Nils Folmer var í opnunarhollinu í
Víðidalsá í vikunni og þar gekk ljóm-
andi vel, 25 löxum var landað. Sjálf-
um gekk honum mjög vel. Af 11 löx-
um sem veiddust fyrsta daginn fékk
Nils sex á fyrstu vakt. „Þetta var
frábær opnun í ánni,“ sagði hann í
gær þegar veiði var að ljúka. „Ég
byrjaði í Fitjá og meðan rólegt var á
svæðum 1 og 2 urðum við varir við
laxa í öllum hyljum sem við veiddum
í neðri hluta Fitjár. En ég veiði ekki
alltaf – í dag fékk ég engan og það er
verið að stríða mér á því!“ segir
hann og hlær.
Reyndir veiðimenn sem rætt hef-
ur verið við síðustu daga telja að lax-
veiðin fari yfirleitt ágætlega af stað.
Á miðvikudag hafði 171 lax veiðst í
Þverá og Kjarrá, 155 í Norðurá, þar
sem smálaxinn er farinn að sýna sig,
og 124 í Blöndu. Veiði hófst í Ytri-
Rangá í gærmorgun og það vel, 12
laxar veiddust á fyrstu tveimur tím-
unum. Ef litið er til Norðurlands þá
er byrjunin í hinni nettu en fengsælu
Laxá á Ásum sú besta í 15 ár, að
sögn Arnars Jóns Agnarssonar hjá
Salmontails sem eru leigutakar ár-
innar, og aðallega stórlax að veiðast.
Veiðidagur fjölskyldunnar er á
morgun, sunnudag, og gefst lands-
mönnum þá kostur á að veiða frítt í
fjölmörgum vötnum víða um land.
Upplýsingar: landssambandid.is.
Þetta er sá stærsti – algert „monster“
Nils Folmer Jörgensen er lunkinn að setja í þá stóru Veiddi 174 urriða í Þingvallavatni í vor og
nokkra um og yfir 90 cm Byrjaði vel í Víðidalsá-Fitjá Mikilvægt að fara varlega að veiðistöðum
Sá stóri Nils Folmer Jörgensen hefur veitt fjölda stórfiska í Þingvallavatni
en þessi urriði tók öðrum fram: 101 cm á lengd. Mögulega um 36 pund.
Morgunblaðið/Golli
Sterkur Aðstæður hafa verið erfiðar í Vatnsdalsá fyrstu dagana vegna
vatnavaxta en hér glímir Óskar Páll Sveinson við 91 cm lax í „Two stone“.
Veiðin hófst í Veiðivötnum 18. júní síðastliðinn, sam-
kvæmt áætlun, en aðgengi var með heldur öðrum
hætti en veiðimenn hafa vanist á undanförnum árum.
Víða snjór, fara þurfti óvenjulegar leiðir að vötnum og
tvö þau gjöfulustu enn ísi lögð. „Ísa er að leysa en
Litlisjór og Grænavatn voru ísi lögð þegar veiðimenn
mættu, það hefur gengið erfiðlega að fá þau til að
opna sig. Venjulega er allt að helmingur veiðimanna
við þau tvö vötn,“ segir Bryndís Magnúsdóttir sem
hefur umsjón við vötnin. Alls veiddust 1777 silungar
fyrstu vikuna, 393 urriðar og 1384 bleikjur. Bryndís
segir þetta mun minni veiði en undanfarin ár en aðstæðurnar séu líka erf-
iðar. „Nú er þetta allt að koma,“ segir hún. „En gestir hafa verið frábærir
og hafa farið alveg eftir merkingum og leiðbeiningum.“
Mun minni veiði í Veiðivötnum
HELSTU VEIÐIVÖTNIN VORU ENN ÍSI LÖGÐ Í OPNUN
Frá Veiðivötnum