Morgunblaðið - 27.06.2015, Side 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015
rænna manna í Ameríku þar sem
fremstur fór sonur hans, Leifur
heppni.
Nýtt Klondike?
Undirlendi á Skarðsströnd er lít-
ið. Vegurinn inn ströndina liggur við
fjallshlíð og þar standa bæirnir;
margir yfirgefnir eða þá sum-
arsetur. En hér eru auðlindir og
miklir möguleikar til framtíðar litið
svo hér gæti orðið svolítið Klondike;
gullgrafarabær eins og í Alaska
forðum. Hér eru auðlindir, frá
Skarðsstöð hafa grásleppukarlar
sótt á sjó, niður af bænum Hval-
gröfum og inn með allri Skarðs-
strönd er þangskógur nýttur á veg-
um þörungaverksmiðjunnar á
Reykhólum. Í námu við eyðibýlið
Tinda voru sótt kol eða surt-
arbrandur alveg frá því um 1890 og
fram á miðja 20. öldina – sem lagðist
af þegar olía og síðar heitt vatn urðu
nærtækari orkugjafar.
Við Ytri-Fagradal fæst svo úr
jörðu þéttur og steinríkur leir sem
listafólk sækist eftir. Fagradals-
bændurnir Halla Sigríður Steinólfs-
dóttir og Guðmundur Gíslason selja
lambakjöt sitt sem lífrænt, rækta
býflugur og tína söl úr flæðarmáli.
„Búi maður vel að sínu er lítið mál
að lifa að stórum hluta af því einu
sem landið gefur,“ segir Halla Sig-
ríður í viðtali við Morgunblaðið á
síðasta ári.
Á slóðum lénsherra
Af föður Höllu, Steinólfi Lár-
ussyni, sem lést fyrir nokkrum ár-
um, gengu þjóðsögur enda var karl-
inn kúnstugur. Í æviminningunum
Einræður Steinólfs segir hann að
þegar foreldrar hans hófu búskap
árið 1926 hafi þau búið við lénsfyr-
irkomulag; það er að lénsherra sat á
höfuðbóli sveitar, átti flestar jarðir
og „byggði þær svo leiguliðum sem
oft stöldruðu stutt við,“ segir Stein-
ólfur sem vísar þarna til lénsherr-
anna á Skarði. Telja menn að þarna
hafi endalok lénsveldis á Íslandi
verið, þó velta megi fyrir sér hvort
pólitík síðari tíma á Íslandi hafi
skapað eitthvað sambærilegt.
Fyrrnefnt höfuðból, Skarð á
Skarðsströnd, er þekkt. Þar hefur
sama ættin setið allt frá því um árið
1100 með stuttu hléi undir lok 18.
aldar. Nærri lætur að 30 ættliðir
hafi setið að Skarði. Úr þeim fríða
flokki ber hæst Ólöfu ríku sem þeg-
ar karl hennar, Björn Þorleifsson
hirðstjóri, var veginn árið 1467
sagði svo eftirminnilega að enn óm-
ar að „eigi skal gráta Björn bónda,
heldur safna liði og leita hefnda“.
Og það gerði Ólöf líka með miklum
tilþrifum.
Skáld við Skollhól
Síðasta sveitin á leiðinni fyrir
Dalastrandir er Saurbær. Stað-
arhólskirkja og félagsheimilið á
Skollhól setja svip á sveitina. Öðru
fremur fanga þó athyglina þrír
steinstöplar. Þetta er listaverk gert
af Jóni Sigurpálssyni á Ísafirði,
minnisvarðar um Dalaskáldin
Sturlu Þórðarson, Stein Steinarr og
Stefán frá Hvítadal. Þeir – og marg-
ir fleiri – sköpuðu Dölunum nafn og
komu svæðinu á kortið. Tilraun til
hins sama er gerð í þessari grein,
þar sem stiklað hefur verið Dalastr-
andir og Klofning, fallega en fáfarna
leið.
Gamli Laugarásstrætóinn er nú á Skerðingsstöðum.
Ytrafellsmúli setur svip á Fellsströndina þótt lágur sé.
Möltukross við traðirnar að bænum Kvennahóli.
Guðrún Elísabet Jóhannsdóttir á
Klifmýri og fleiri konur á Skarðs-
strönd hafa á síðustu árum lagt
sig eftir því að efla menningar-
lífið í sveitinni. Röðul, sem er
gamalt félagsheimili, hafa þær
lagt undir sig og sýnt þar ýmsa
muni, ljósmyndir og fleira er
tengist sögu sveitarinnar.
„Þetta hefur vakið áhuga og er
ágæt viðbót hér í sveitinni,“ segir
Guðrún sem bætir við að sam-
komuhús þetta hafi verið vett-
vangur ýmissa þekktra viðburða.
Þar má nefna þegar tríóið Frost-
rósir, skipað nokkrum Dalakon-
um, sté þar á svið fyrir 60 til 70
árum og flutti fyrstu djasslögin á
Íslandi. Eða svo segir þjóðsagan.
Þrettán ára sonur Guðrúnar og
Hermanns Karlssonar, Ragnar, er
eina grunnskólabarnið á Skarðs-
strönd. „Já, auðvitað er talsvert
fyrir barn að sækja skóla þangað
sem er klukkutímaferð tvisvar á
dag. En þetta gengur,“ segir Guð-
rún sem er frá Skerðingsstöðum í
Hvammssveit, bænum sem ferða-
lýsing þessi byrjar á. Það eru um
20 ár síðan hún kom að Klifmýri
þar sem fjölskyldan býr með um
1.000 fjár og einhvern næstu
daga reka þau um 1.700 lömb í
sumarhaga.
„Nei, það er alveg sáralítil um-
ferð um þetta svæði. Yfir sum-
arið teljast 15-20 bílar á dag tals-
vert.“
Sáralítil umferð um svæðið
REKA RAUSNARBÚ Á KLIFMÝRI Á SKARÐSSTRÖND
Bóndinn Guðrún Elísabet á Klifmýri gefur heimalningunum drukkinn sinn.
Í gömlum bókum eru Kjarlaks-
staðir á Fellsströnd nefndir Kjal-
laksstaðir. „Nafnið breyttist,
kannski var auðveldara fyrir tung-
una að tala um Kjarlak en Kjallak,“
segir Helgi Þorgils Friðjónsson
listmálari. Hann á sumarsetur að
Kjallaksstöðum og þar stendur nú
gamalt íbúðarhús frá Breiðaból-
stað frá Fellsströnd, þaðan sem
föðurætt Helga er.
„Kjallakur var af írsku konunga-
kyni. Ól af sér syni sem meðal ann-
ars er getið í Eyrbyggju fyrir mann-
víg og fleira slíkt,“ segir Helgi,
sem kynntist því ungur hvað sagan
og atburðir sem gerðust fyrir öld-
um eru ekki svo langt undan. „Um-
hverfið hér er mér alltaf mjög ná-
lægt og mörg myndefni mín eru
héðan. Ég vil helst ekki skálda upp
landslag í mínum myndum. Ég hef
málað Ytrafellsmúla í mörgum til-
brigðum, Klofningsfjall og eyjum
og klettum í Breiðafirði bregður
fyrir í myndum mínum. Og einnig
nota ég mikið litina úr þessu um-
hverfi, og reyndar frá almennu ís-
lensku landslagi; grænt, grátt og
blátt. Þessi litbrigði hefur fólk
suður í Evrópu þar sem ég sýni
gjarnan kallað dæmigert norræn
málverk, þar sem oft eru notaðir
mettaðir litir. Þá hef ég haldið
tvær sýningar með myndum þar
sem efniviðurinn er að stórum eða
öllum hluta sóttur í Dalina, sem
eru alltaf nærri í mínu lífi.“
Nýti bæði litina og landslag
FELLSSTRÖNDIN ER NÁLÆG LISTMANNINUM
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Myndir Helgi Þorgils við nokkur málverka sinna af landslagi Dalanna.
Þjónusta með yfirsýn
Einbeittu þér að því sem þú ert bestur í og láttu okkur sjá um tölvumálin. Við sérhæfum
okkur í að sinna litlum og meðalstórum fyrirtækjum og notum nýjustu tækni í sambland
við gömlu góðu þjónustugildin, svo þú og þínir starfsmenn geti unnið í spennandi og
áreiðanlegu tölvuumhverfi.
Verð frá aðeins 440 kr. án vsk. á mánuði
Allar nánari upplýsingar í síma 444 9900 eða á sala@omnis.is
Lægri kostnaður – betri rekstur
Microsoft Partner
Gold Small Business
Cloud Accelerate
Þjónustan
er sniðin að
þínum
þörfum