Morgunblaðið - 27.06.2015, Page 22
BAKSVIÐ
Sigurður Tómasson
sigurdurt@mbl.is
Þrátt fyrir að fjöldi hjólreiðamanna
á höfuðborgarsvæðinu hafi næstum
þrefaldast frá árinu 2009 hefur inn-
flutt magn á reiðhjólum lítið breyst
á milli ára. Hins vegar hefur verð-
mæti innfluttra reiðhjóla tvöfaldast
frá árinu 2009 og um 60% á föstu
verðlagi. Þetta má lesa úr gögnum
frá Reykjavíkurborg og Hagstofu
Íslands.
Af þessu má draga þá ályktun að
meira sé flutt inn af dýrari hjólum
og notkun þeirra hafi aukist. „Fólk
vill, með meiri notkun, komast í
betri og dýrari hjól,“ segir Róbert
Grétar Pétursson hjá reiðhjóla-
versluninni TRI.
Hjólin orðin betri
og meira notuð
Á árinu 2009 voru flutt til lands-
ins tæplega 15.000 reiðhjól og í
fyrra voru þau 15.744. Þótt magn
innfluttra hjóla hafi ekki aukist til
muna hefur hins vegar eftirspurn
vaxið eftir bæði dýrari hjólum og
hjólabúnaði. „Reiðhjólin eru orðin
að raunhæfara samgöngutæki en
þau voru,“ segir Jón Pétur Jónsson,
eigandi reiðhjólaverslunarinnar
Arnarins. Að hans sögn hefur
stærsta breytingin í rekstrinum
verið þjónustuliðurinn en starfs-
mönnum á verkstæði hefur á síð-
ustu fimm árum fjölgað úr tveimur
í sex. „Miklu fleiri koma með hjólin
sín í viðgerð en áður sem sýnir að
reiðhjól eru meira notuð. Þegar fólk
byrjar að nota hjólin sín eins og bíla
þurfa þau meira viðhald, rétt eins
og bílarnir.“ Jón Pétur segir að sal-
an á hjólum hafi þó farið hægt af
stað í ár vegna veðurs og einnig
þeirrar óvissu sem fylgdi kjaradeil-
um á vinnumarkaðinum.
Auðveldara að hjóla
Frá árinu 2009 hefur orðið 180%
fjölgun hjólreiðamanna samkvæmt
tölum frá Reykjavíkurborg. Ás-
björn Ólafsson, formaður Lands-
samtaka hjólreiðamanna, segir að
tvær skýringar búi þar helst að
baki. Í fyrsta lagi tóku gildi vegalög
hinn 1. janúar 2008 sem gerði Vega-
gerðinni kleift að veita fé til al-
mennra hjólreiða- og göngustíga
meðfram umferðarmestu þjóðveg-
um landsins. „Með þeim fjölgaði
hjólreiðastígum og þar með hjól-
reiðamönnum. Í kjölfar fleiri og
betri stíga urðu hjólreiðar að raun-
hæfari samgöngukosti.“ Átakið
„Hjólað í vinnuna“ hefur einnig haft
mikið að segja og tekur Róbert
Grétar hjá TRI í sama streng. „Að
taka þátt í slíku átaki með vinnu-
félögum er oft stökkpallur fyrir fólk
sem er að byrja.“
Þrátt fyrir mikla fjölgun hjól-
reiðamanna undanfarin ár hafa tals-
vert færri verið á ferðinni í ár en í
fyrra. Björg Helgadóttir hjá sam-
gönguskrifstofu Reykjavíkurborgar
segir að veðurfarslegar skýringar
séu þar að baki en samkvæmt upp-
lýsingum frá Veðurstofu var með-
alhiti í júní- og maímánuði langt
undir meðaltali fyrri ára.
Dýrari reiðhjól orðin að
raunhæfara samgöngutæki
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hjólabóla Áhugi á hjólreiðum fer vaxandi og eftirspurnin eftir bæði dýrari hjólum og hjólabúnaði hefur aukist.
Vaxandi vinsældir
hjólreiða
» Reiðhjól voru flutt inn fyrir
535 milljónir árið 2014.
» Hjólreiðamönnum hefur
fjölgað undanfarin ár og fólk
notar hjólin sín meira.
» Bætt aðgengi og hjóla-
átakið „Hjólað í vinnuna“ hef-
ur átt stóran þátt í vaxandi
vinsældum hjólreiða hér á
landi.
Innflutningsverðmæti tvöfaldast frá árinu 2009 þrátt fyrir óbreytt magn
Innflutningur reiðhjóla
600
500
400
300
200
100
0
25.000
20.000
15.000
10.000
5.000
0
2009 2010 2011 2012 2013 2014
Í milljónum kr. á nafnverði Fjöldi hjóla
Verðmæti innflutnings Fjöldi innfluttra reiðhjóla
22 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015
!"#
!
$"
%$#
#$$$
!"
"#"#
!$$
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%"#
% "
$!
%"#
#$#
% %
" !#
!!
!
!#
%!$
$!"
%$
#$#
%
%!!
"#
!#"
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Afnám tolla á fatnað gæti sparað ís-
lenskum heimilum um 5 milljarða króna
á ári, að því gefnu að útsöluverð myndi
lækka um 13%. Í nýrri umfjöllun Sam-
taka atvinnulífsins eru rifjaðar upp hug-
myndir fjármálaráðherra um að afnema
15% toll á fatnað og skó, en slík aðgerð
myndi stuðla að því að sú verslun
myndi færast frekar inn fyrir landstein-
ana. Benda SA á að niðurfelling vöru-
gjalda af innfluttum vörum um áramót-
in hafi reynst veruleg búbót fyrir
íslenska neytendur og þótt verðlag sé
hátt á Íslandi hafi verðmunur dregist
umtalsvert saman í alþjóðlegum
samanburði.
Afnám tolla á föt sparar
heimilum um 5 milljarða
● Reitun hefur veitt Lánasjóði sveitar-
félaga, LS, lánshæfiseinkunnina i.AAA.
Einkunninn byggist aðallega á sterkri
eiginfjárstöðu LS og þróuðu rekstrar-
umhverfi sjóðsins en hlutverk hans er
að tryggja íslenskum sveitarfélögum,
stofnunum þeirra og fyrirtækjum lánsfé
á hagstæðum kjörum með veitingu
lána eða ábyrgða. Í frétt á vefsíðu Reit-
unar kemur fram að einnig hafi haft
áhrif á einkunnina að LS hafi náð góð-
um kjörum á markaði og viðhaldið
markaðsstöðu sinni, auk þess sem LS
hafi einstæðar tryggingar fyrir útlán-
um sínum en 99,9% af útlánum sjóðs-
ins eru tryggð með veði í tekjum sveit-
arfélaga. Þá er tilgreint gott aðgengi LS
að innlendum fjármálamarkaði og mikil
eftirspurn í útboðum skuldabréfaflokka
en skuldabréf LS eru ein af fáum
skuldabréfum sem Seðlabankinn hefur
heimild til að samþykkja sem tryggingu
í viðskiptum við bankann.
Lánasjóður sveitarfé-
laga fær hæstu einkunn
STUTTAR FRÉTTIR ...
en ýti vísitölunni upp að nýju í ágúst
og september þegar verðbólgan verð-
ur orðin 2,1% samkvæmt spá bank-
ans.
Býst við að matarverð hækki
Greiningardeild Arion banka segir
að á næstu mánuðum megi áætla að
verðhækkun á innlendum neysluvör-
um auki verðbólguþrýstinginn frekar.
Matarkarfan hafi ekki hækkað í júní
en búast megi við að matur og
drykkjarvörur hækki í verði á næstu
mánuðum og líklegt sé að aukinn
launakostnaður í kjölfar nýgerðra
kjarasamninga muni skila sér í hærra
verðlagi á innlendum neysluvörum.
Verðbólga mælist nú 1,5% samkvæmt
upplýsingum frá Hagstofunni, en vísi-
tala neysluverðs hækkaði um 0,26%
frá fyrri mánuði. Þetta er minna en
1,6% verðbólgan sem mældist í maí
og enn vel undir 2,5% verðbólgu-
markmiði Seðlabankans, en greining-
araðilar höfðu spáð hækkun á bilinu
0,3-0,4%.
Greining Íslandsbanka segir að
verðbólgan hafi verið undir markmið-
inu samfleytt í hálft annað ár en horf-
ur séu hins vegar á vaxandi verðbólgu
eftir því sem líður á árið. Íslandsbanki
telur líklegt að verðbólgan fari yfir
markmiðið fyrir árslok en verðbólgu-
horfur fyrir næstu mánuði eru svip-
aðar og fyrr að mati hans. Þó gæti
hækkun húsnæðisliðar orðið meiri í
júlí en það muni þó ekki vega nægi-
lega þungt til að breyta spá bankans.
Þá segir að verðbólguþróun næstu
mánaða litist talsvert af sumarútsöl-
um, sem þrýsti vísitölunni niður í júlí
Bráðabirgðaspá Arion banka fyrir
næstu mánuði helst óbreytt, en gert
er ráð fyrir að verðlag lækki um 0,2%
í júní í kringum sumarútsölur en
hækki svo um 0,4% í ágúst og sept-
ember og verðbólgan verði þá 2,2%.
Verkfall með áhrif
á húsnæðisverðið
Hækkun verðlagsins í júní er helst
rakin til 0,9% hækkunar á verði ferða
og flutninga og 1,9% hækkunar á
verði á þjónustu hótela og veitinga-
staða. Föt og skór hækkuðu í verði
annan mánuðinn í röð og nam hækk-
unin nú 1,64%. Arion banki segir að
hafa þurfi í huga að föt og skór hafi lít-
ið sem ekkert hækkað undanfarin ár.
Kostnaður við húsnæði lækkaði í
mælingunni og segja báðar grein-
ingardeildirnar að þar hafi áhrifa
gætt af því að ekki hafi verið hægt að
þinglýsa samningum vegna verkfalls
lögfræðinga. Greiningardeild Arion
banka segir að úrvinnsla þinglýsing-
anna muni koma inn í vísitöluna
næstu mánuði, en reiknuð húsaleiga
byggir á þriggja mánaða meðaltali
þinglýstra kaupsamninga.
margret@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Verðbólga Sumarútsölur munu
hafa áhrif til lækkunar vísitölu.
Verðbólga minnkar lítillega
Horfur á vax-
andi verðbólgu
þegar líður á árið
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30
ÚTSALA
HÖFUMBÆTT VIÐ
VÖRUM Á ÚTSÖLU
ENNMEIRI
VERÐLÆKKUN