Morgunblaðið - 27.06.2015, Síða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Að minnsta kosti 39 manns, flestir
þeirra ferðamenn, létu lífið í skot-
árás í Túnis í gær. Að sögn frétta-
stofu breska ríkisútvarpsins báru
vitni að menn vopnaðir byssum
hefðu hafið skotárásina á strönd
milli tveggja hótela í bænum Sousse.
Heilbrigðisráðuneyti Túnis segir í
tilkynningu að meðal látinna hafi
verið breskir, þýskir og belgískir
ferðamenn, auk Túnisbúa. Þá særð-
ust að minnsta kosti 36 manns.
Í tilkynningu frá innanríkisráðu-
neyti landsins er árásinni lýst sem
hryðjuverki. Talið er að um tvo
menn hafi verið að ræða en annar
þeirra var skotinn til bana. Segir
varnarmálaráðherra Túnis að
maðurinn hafi verið námsmaður og
áður ókunnur lögreglu.
Í viðbragðsstöðu síðan í mars
Lögregluyfirvöld í Túnis hafa ver-
ið í mikilli viðbragðsstöðu síðan í
marsmánuði, þegar vopnaðir íslam-
istar réðust inn á Bardo-safnið í
höfuðborginni Túnis og drápu hóp
erlendra ferðamanna.
Sousse er 150 kílómetrum frá
höfuðborginni og er einn vinsælasti
strandstaður landsins, en þangað
koma ferðamenn frá Evrópu og ná-
grannalöndum í Norður-Afríku.
Í ávarpi frá Brussel sagði breski
forsætisráðherrann David Cameron
að Bretland myndi sýna samstöðu í
baráttunni gegn „þessari illsku
hryðjuverka“. Hélt hann svo áfram:
„Fólkið sem gerir þetta heldur því
stundum fram að það geri það í nafni
íslams. Það gerir það ekki. Íslam er
trú friðar,“ sagði Cameron.
Herskáir íslamistar hafa sótt í sig
veðrið í Túnis síðan Zine al-Abidine
Ben Ali var steypt af stóli forseta í
arabíska vorinu svokallaða árið 2011.
Ríkisstjórn landsins hefur átt í erfið-
leikum í baráttunni við íslamistana,
sem hafa styrkst í kjölfar átaka í
Líbíu og einnig vegna heimkomu
Túnisbúa sem hafa barist fyrir sam-
tökin Ríki íslams í Sýrlandi og Írak.
Mannskæð
árás á ferða-
menn í Túnis
AFP
Blóðbað Að minnsta kosti 39 manns
létu lífið og 36 særðust í skotárás.
Innanríkisráðuneytið lýsir skotárás
tveggja manna sem hryðjuverki
Fækkar ferðamönnum?
» Líkt og í marsmánuði óttast
yfirvöld að færri ferðamenn
komi til Túnis í kjölfar árásar-
innar.
» Rúmlega sex milljónir ferða-
manna komu til landsins á síð-
asta ári.
» Hlutfall ferðaþjónustunnar í
vergri þjóðarframleiðslu Túnis
er rúmlega 15%.
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Fundur leiðtoga Evrópusambands-
ins samþykkti endanlega í gær að
40 þúsund þeirra flóttamanna sem
kæmu næstu tvö ár á land í Ítalíu
og Grikklandi mundu deilast á rík-
in.
Á fundinum kom þó bersýnilega í
ljós óeining meðal leiðtoganna um
hvernig skyldi glíma við þann
vanda sem felst í gríðarlegum
straumi farandfólks sem knýr dag-
lega að dyrum sambandsins.
Meira en 144 þúsund manns, á
flótta undan stríði eða fátækt, hefur
verið bjargað á Miðjarðarhafi á
þessu ári eftir að hafa reynt siglingu
til norðurs á óhaffærum bátum.
„Þetta er satt að segja virkilega lítið
skref,“ sagði forseti framkvæmda-
stjórnar ESB, Jean-Claude Juncker,
eftir fundinn og forsætisráðherra
Ítalíu, Matteo Renzi, var sammála.
„Þetta er ekki há tala. Í þessu felst
smávegis hjálp fyrir Ítalíu en það er
mikið verk óunnið.“
Á fundinum, sem stóð í tvo daga
og lauk í gær, var öllum tillögum
sambandsins um skipulega dreifingu
innflytjenda á aðildarríkin hafnað,
eins og Morgunblaðið greindi frá í
gær. Jafnvel ákvörðunin sem tekin
var, um að deila þeim 40 þúsund
Sýrlendingum og Erítreumönnum
sem kæmu næstu tvö ár á önnur ríki
en Grikkland og Ítalíu, komst aðeins
í gegn eftir þrábeiðni Ítala.
„Ef þið eruð ekki sammála því eig-
ið þið ekki skilið að kallast Evrópa.
Ef þetta er ykkar hugmynd að Evr-
ópu getið þið átt hana,“ á Renzi að
hafa sagt samkvæmt heimildum
dagblaðsins New York Times.
Leiðtogafundur sýnir óeiningu ríkjanna
AFP
Fundað Jean-Claude Juncker ræðir
við Angelu Merkel fyrir fundinn.
Endanleg ákvörðun um að deila 40 þúsund flóttamönnum á aðildarríki Evrópu-
sambandsins Forsætisráðherra Ítalíu segir að ESB eigi mikið verk óunnið
„Ef þetta er ykk-
ar hugmynd að
Evrópu getið þið
átt hana.“
Matteo Renzi
Fagnað var fyrir utan Hæstarétt Bandaríkjanna og víðar í gær eftir að
rétturinn komst að þeirri niðurstöðu með fimm atkvæðum gegn fjórum að
bandaríska stjórnarskráin tryggði samkynhneigðum rétt til að ganga í
hjónaband. Skrifaði Anthony M. Kennedy hæstaréttardómari í áliti meiri-
hlutans að samkynhneigðum yrði „ekki lengur neitað um þennan rétt“.
John J. Roberts, forseti réttarins, sagði í séráliti að stjórnarskráin hefði
ekkert að segja um hjónabönd samkynhneigðra.
Niðurstaða hæstaréttar þýðir að þau fjórtán ríki sem enn banna hjóna-
bönd samkynhneigðra geta ekki lengur framfylgt banninu.
AFP
Staðfestir rétt til að giftast
Samkynhneigðir fagna dómi hæstaréttar
Að minnsta kosti 30 manns létu lífið
í gær eftir að menn vopnaðir
byssum réðust inn í herstöð Afríku-
sambandsins í Suður-Sómalíu, að
því er BBC hefur eftir vitnum. Þá
ók maður bíl hlöðnum sprengjum
inn um aðalhlið stöðvarinnar, sem
er skammt frá höfuðborginni
Mógadisjú.
Al-Shabab, samtök herskárra
íslamista, segja að liðsmenn þeirra
hafi náð herstöðinni á sitt vald en
það hefur enn ekki fengist staðfest.
Samtökin berjast nú við ríkis-
stjórn Sómalíu um yfirráð yfir land-
inu. Herstöðin er mönnuð búrúnd-
ískum hermönnum á vegum
Afríkusambandsins, sem hefur 20
þúsund manna herlið í landinu sam-
kvæmt upplýsingum AFP-
fréttaveitunnar.
Fjöldi fregna hefur borist um að
erlendir einstaklingar hafi gengið
til liðs við samtökin á síðustu árum.
Al-Shabab drápu
30 manns í árásum
SÓMALÍA
Elísabet Bret-
landsdrottning
heimsótti í gær
staðinn þar sem
útrýmingarbúðir
nasista, Bergen-
Belsen, stóðu frá
1940 fram til árs-
ins 1945, þegar
fangar búðanna
voru frelsaðir af
breskum her-
mönnum. Lagði hún blómsveig að
minnismerki um þá sem létust í
búðunum, en þeirra á meðal var
dagbókarhöfundurinn Anne Frank.
Var heimsóknin hluti dagskrár á
síðasta degi opinberrar heimsóknar
drottningarinnar til Þýskalands, en
gærdaginn nýtti hún einnig til að
skoða Brandenborgarhliðið í Berl-
ínarborg.
Bretlandsdrottning
skoðar stríðsminjar
Elísabet Bret-
landsdrottning
ÞÝSKALAND
Hafin er rann-
sókn á hugsan-
legu hryðjuverki
eftir að afhöfðað
lík og fánar
íslamista fundust
á vettvangi árás-
ar sem gerð var í
gær á banda-
ríska gasverk-
smiðju.
„Enn á ný hafa Frakkar orðið
fyrir barðinu á hryðjuverkum
íslamista,“ sagði Manuel Valls, for-
sætisráðherra Frakklands.
35 ára gamall maður var hand-
tekinn á vettvangi árásarinnar. Er
hann sagður vera öfgamaður en
ekki með nein tengsl við hryðju-
verkahópa, samkvæmt upplýs-
ingum frá AFP.
Réðist á bandaríska
gasverksmiðju
Manuel Valls
FRAKKLAND
Í dag hefst síðasta stig viðræðna á milli stjórn-
valda Írans og hins svokallaða P5+1 hóps, en
hann skipa öll fastaríki öryggisráðs SÞ auk Þýska-
lands. Snúast viðræðurnar um að setja takmark-
anir á kjarnorkuáætlun Írana og í staðinn muni
ríkin aflétta viðskiptaþvingunum gegn landinu.
Stórfyrirtæki um heim allan eru talin líkleg til
að reyna að tryggja sér samninga við stjórnvöld
Írans um leið og hin ósýnilegu landamæri opnast á
nýjan leik. Meðal þeirra fremstu í röðinni eru olíu-
fyrirtæki sem vonast eftir aðgangi að fjórða
stærsta olíuforða heimsins eftir nærri 40 ára bið.
Er enda víða búist við að olíuverð í heiminum muni
lækka fari svo að samningar náist.
Repúblikanar vestanhafs hafa ítrekað lýst yfir
óánægju varðandi áform Baracks Obama
Bandaríkjaforseta um að reyna að ná samn-
ingum við ríki sem þeir margir hverjir telja
óvin Bandaríkjanna. Segja þeir samnings-
stöðu hans ekki sterka þar sem hann eigi
mikilla hagsmuna að gæta af því að ná
samkomulagi. Til þess hefur forsetinn
opinberlega frest fram á þriðjudag og eru
góðar líkur taldar á að það takist.
Munu viðskiptagáttir Írans opnast?
Breska dagblaðið Financial Times segir
að olíurisarnir Shell og Eni hafi þegar
hafið opinberar viðræður við stjórn-
völd Írans.
Þá hefur fréttavefurinn Quartz
heimildir fyrir því að British
Petroleum hafi gert slíkt hið sama,
án þess þó að játa það opinberlega.
Leita nú samninga
OLÍUFYRIRTÆKI BÍÐA Í OFVÆNI Lokaviðræður hefjast í dag Frestur til þriðjudags