Morgunblaðið - 27.06.2015, Síða 30
30 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015
Árbæjarkirkja | Guðsþjónusta kl. 11.
Þór Hauksson þjónar og prédikar. Krist-
ina K. Szklenár er organisti. Félagar úr
kirkjukór Árbæjarkirkju leiða söng. Ef
vel viðrar verður guðsþjónustan úti und-
ir beru lofti við suðurgafl kirkjunnar.
Kaffiveitingar á eftir.
Áskirkja | Messa kl. 11. Sr. Sigurður
Jónsson sóknarprestur prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt Lindu Jóhanns-
dóttur djákna. Félagar úr Kammerkór
Áskirkju syngja. Kaffisopi eftir messu.
Borgarprestakall | Messa kl. 14.
Organisti er Steinunn Árnadóttir. Prest-
ur er Þorbjörn Hlynur Árnason.
Breiðholtskirkja | Messa kl. 11. Dr.
dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðs-
prestur þjónar. Kór Breiðholtskirkju
syngur. Organisti er Guðný Einarsdóttir.
Bústaðakirkja | Sumarmessa kl. 11.
Morgunstund með lofgjörð og hvetjandi
orðum. Samvera fyrir alla fjölskylduna.
Tvíburaskírn. Félagar úr Kór Bústaða-
kirkju syngja. Organisti er kantor Jónas
Þórir. Messuþjónar aðstoða og prestur
er sr. Pálmi Matthíasson. Molasopi og
hressing eftir messu.
Dómkirkja Krists konungs, Landa-
koti | Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku
og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og
mán, mið og fös kl. 8, lau kl. 16 á
spænsku og kl. 18 er sunnudags-
messa.
Dómkirkjan | Messa kl. 11. Séra
Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Dómkórinn syngur undir
stjórn Kára Þormars dómorganista.
Eiríksstaðakirkja | Árleg messa í Ei-
ríksstaðakirkju á Efra-Jökuldal fer fram
kl. 14. Prestur er Þorgeir Arason, org-
anisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Al-
mennur safnaðarsöngur. Kirkjukaffi á
Skjöldólfsstöðum eftir messu.
Fella- og Hólakirkja | Kvöldguðsþjón-
usta kl. 20. Kristín Kristjánsdóttir
djákni prédikar og þjónar fyrir altari.
Meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björns-
dóttir. Kór Fella- og Hólakirkju syngur.
Organisti er Guðný Einarsdóttir.
Fríkirkjan Reykjavík | Guðsþjónusta
kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Börn
verða borin til skírnar. Sönghópurinn
við Tjörnina leiðir tónlistina ásamt Erni
Arnarssyni, organista.
Garðakirkja | Sameiginleg messa
Garða- og Bessastaðasókna kl. 11.
Organisti er Jóhann Baldvinsson og
prestur er Hans Guðberg Alfreðsson.
Glerárkirkja | Messa kl. 20. Sr. Gunn-
laugur Garðarsson þjónar og Kór Gler-
árkirkju syngur undir stjórn Valmars
Väljaots.
Grafarvogskirkja | Guðsþjónusta kl.
11. Séra Sigurður Grétar Helgason pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Forsöngvari
leiðir safnaðarsöng. Organisti er Hákon
Leifsson. Kaffisopi eftir messu.
Grensáskirkja | Morgunmatur kl. 10
og bænastund kl. 10.15. Messa kl.
11. Altarisganga. Samskot í líknarsjóð.
Messuhópur þjónar. Félagar í kirkjukór
Grensáskirkju syngja. Organisti er Ásta
Haraldsdóttir. Prestur er sr. Ólafur Jó-
hannsson. Molasopi eftir messu.
Guðríðarkirkja í Grafarholti | Kvöld-
messa kl. 20. Prestur er sr. Karl V.
Matthíasson, organisti er Hrönn Helga-
dóttir og Kór Guðríðarkirkju syngur.
Meðhjálpari er Kristbjörn Árnason og
kirkjuvörður er Lovísa Guðmundsdóttir.
Kaffisopi eftir messu.
Hafnarfjarðarkirkja | Helgistund kl.
11. Orgelleikur, söngur, íhugun, bæn
og máltíð Drottins. Prestur er sr. Jón
Helgi Þórarinsson. Organisti er Dou-
glas A. Brotchie. Kaffisopi eftir stund-
ina.
Hallgrímskirkja | Messa kl. 11. Sr.
Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt rev. Leonard
Ashford og hópi messuþjóna. Félagar
úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti er Hörður Áskelsson. Sögu-
stund fyrir börnin. Gestakór, RBS Eu-
rope Singers, syngur í messunni.
Stjórnandi er Jeremy Jackman og undir-
leikari Arnhildur Valgarðsdóttir. Ensk
messa kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs
Bjarnasonar.
Háteigskirkja | Sumargleði kl. 11.
Messa, matur og leikir. Prestur er Eirík-
ur Jóhannsson. Organisti er Kári All-
ansson.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Yfirskrift júnímánaðar er:
Eins og andinn gefur að mæla. Svein-
björn Gizurarson prédikar. Kaffi og
samfélag eftir samkomuna. Samkoma
á ensku hjá Alþjóðakirkjunni kl. 14.
Íslenska Kristskirkjan | Samkoma
kl. 20 með lofgjörð og fyrirbænum.
Ólafur H. Knútsson prédikar. Athugið
að þetta er síðasta samkoman fyrir
sumarfrí.
Keflavíkurkirkja | Guðsþjónusta kl.
20. Kórfélagar úr kirkjukór Keflavíkur
leiða söng, organisti er Arnór Vilbergs-
son. Prestur er sr. Sigfús Baldvin Ingva-
son. Athugið breyttan messutíma.
Kópavogskirkja | Guðsþjónusta kl
11. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir
prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti
er Svanhvít Hallgrímsdóttir.
Laugarneskirkja | Messuhald fellur
niður 28. júní - 2. ágúst. Bent er á þjón-
ustu í Háteigsprestakalli á meðan.
Mosfellskirkja | Guðsþjónusta kl. 11.
Félagar úr kirkjukór Lágafellssóknar
syngja undir stjórn Arnhildar Valgarðs-
dóttur organista.
Neskirkja | Messa kl. 11, utandyra ef
veður leyfir. Félagar úr Kór Neskirkju
syngja, meðhjálparar taka þátt og kaffi
á eftir. Prestur er Skúli S. Ólafsson.
Óháði söfnuðurinn | Guðsþjónusta
kl. 11. Sýndur verður magadans. Eftir
messu verður boðið upp á súpu og
brauð á 500 kr. fyrir börn (6-12 ára) en
á 1000 kr. fyrir þá eldri. Frí ábót.
Salt kristið samfélag | Samkoma kl.
17 í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut
58-60. 3. hæð. ,,Að tala við Guð í mót-
vindi og efa.“ Ræðumaður er Skúli
Svavarsson. Túlkað á ensku.
Selfosskirkja | Messa kl. 11. Prestur
er Axel Á. Njarðvík. Organisti er Jörg E.
Sondermann og Kirkjukór Selfoss leiðir
söng. Súpa og kaffi í hádeginu.
Seljakirkja | Messa kl. 20. Sr. Bryndís
Malla Elídóttir þjónar, Douglas Brotchie
leikur á orgel og félagar úr kór Selja-
kirkju leiða almennan safnaðarsöng.
Kaffi eftir messu.
Seltjarnarneskirkja | Ferming-
armessa kl. 11 á vegum íslenska safn-
aðarins í Noregi. Sr. Arna Grétarsdóttir
fermir íslensk börn sem eru búsett í
Noregi.
Skálholtsdómkirkja | Messa kl. 11.
Orð dagsins:
Hinn týndi sauður.
(Lúk. 15)
Morgunblaðið/Jim SmartÁrbæjarkirkja
✝ Björk Jóns-dóttir
Hallgrímsson
fæddist á Siglu-
firði 3. september
1929. Hún lést á
heilbrigðisstofn-
uninni á Siglufirði
12. júní 2015.
Foreldrar
Bjarkar voru Jón
Jóhannsson, skip-
stjóri og útgerð-
armaður á Siglufirði, f. 31. okt.
1895 á Helgustöðum í Flóka-
dal, d. 1. okt. 1962 í Reykjavík,
og kona hans, María Hjálm-
arsdóttir, f. 1. apríl 1899 á Eg-
ilsá í Akrahreppi, d. 3. mars
1993 í Reykjavík.
Björk var elst fimm syst-
kina, en hin eru: Snorri, f. 8.
maí 1934, d. 23. júní sama ár,
Alda, f. 28. júní 1937, d. 21.
júní 2008, Hrönn, f. 2. maí
1939, og Sjöfn, f. 7. apríl 1942,
d. 2. júlí 1943.
Hinn 31. desember 1955
gekk Björk að eiga Tómas G.
Hallgrímsson, fulltrúa á Siglu-
firði. Tómas fæddist 25. júlí
1911, sonur hjónanna Guð-
mundar T. Hall-
grímsson, héraðs-
læknis á Siglufirði,
og konu hans Ca-
millu Therese
Hallgrímsson.
Tómas lést 19. jan-
úar 1987.
Björk ólst upp á
Siglufirði og fór
síðan suður til
Reykjavíkur til
náms í Verzl-
unarskóla Íslands. Að loknu
verslunarprófi hóf Björk störf
á bæjarskrifstofunni á Siglu-
firði og starfaði þar óslitið, allt
þar til hún lét af störfum fyrir
aldurs sakir.
Eftir að hefðbundinni starfs-
ævi lauk tók Björk virkan þátt í
félagsmálum á Siglufirði. Hún
sat í stjórn Kvenfélags Sjúkra-
hússins á Siglufirði og var rit-
ari hennar um árabil. Hún sat
jafnframt í stjórn Félags eldri
borgara á Siglufirði, einnig
sem ritari.
Útför Bjarkar fer fram frá
Siglufjarðarkirkju í dag, 27.
júní 2015, og hefst athöfnin kl.
14.
Þegar við rennum í hlað á
Lindargötunni er þæfingur á
götunum og trén í garðinum eru
að sligast undan snjóþunganum.
Krakkarnir stökkva út úr bílnum
og hlaupa hálfhring kringum
húsið eftir þröngum snjóstígn-
um. Glugginn á eldhúsinu er á
kafi í snjó, aðeins efsti hlutinn er
sjáanlegur og það er móða á
glugganum innanverðum. Það er
greinilega verið að elda. Það þarf
varla að banka, því um leið opn-
ast dyrnar og Björk stendur í
dyrunum. „Hvað eruð þið bara
strax komin?“ Hún faðmar okkur
öll að sér, snýr sér við, snarar sér
inn í eldhús og segir: „Þetta er
allt að verða tilbúið, ég á bara
eftir að klára jafninginn, lokið
þið bara dyrunum svo það komi
ekki kalt inn.“ Um leið og komið
er inn fyrir blandast saman lykt
af hangikjöti við kunnuglega lykt
sem hefur verið í þessu húsi svo
lengi sem maður man. Ótrúlegt
hvernig lykt sem maður finnur
ekki nema einu sinni til tvisvar á
ári laðar fram ljúfar bernsku-
minningar:
Sex ára gutti er mættur um
páska í nýja skíðagallanum sín-
um í anddyrið þar sem hann
byrjar á því að sýna frænku og
frænda að hægt sé að hafa úlp-
una bæði á réttunni og röngunni.
Björk og Tómas hafa alla þol-
inmæði í heiminum gagnvart
svona litlum guttum. Eftir skíða-
ferð inn að Hóli bíða rjómakökur,
súkkulaði og braggakaka þar
sem guttinn fær báða endana.
Kvöldmatur sem hæfir prins og
kvöldkaffi sem samanstendur af
tei, ristuðu brauði og spældu
eggi. Nokkrum árum síðar dvel-
ur guttinn sumarlangt hjá þeim
hjónum og fer hann bústnari
heim að hausti eftir allar kræs-
ingarnar þrátt fyrir hamagang-
inn og útiveruna. Þegar ekki
gefst færi á að fara norður um
páska, kemur stór kassi með
póstinum og þar í tvö páskaegg á
mann, minna mátti það ekki
vera. Um jólin koma pakkar frá
þeim sem innihalda bækur og
leikföng. Þegar Björk og Tómas
dvelja í Reykjavík, hafa þau þá
venju að taka okkur systkinin
hvert fyrir sig í dekurferðir í bæ-
inn, fara með okkur í leikfanga-
búðir, láta okkur stjórna ferðinni
og enda svo inni á Hressó með
stóran bolla af kakó og risastóra
rjómatertusneið. Tómas hafði
sérstaklega gaman af þessu og
þegar guttinn varð aðeins stærri
var hann tekinn með að þrífa bíl-
inn og svo var farið á fótbolta-
leik.
Ég hrekk upp úr minningun-
um við það að Björk segir að
maturinn sé til og við hjónin
ásamt börnunum setjumst að
borði sem er ávallt jafn drekk-
hlaðið kræsingum. Eftir dag á
skíðum bíður okkar svo hlaðið
kaffiborð.
Ég var unglingur þegar Tóm-
as féll frá og eins og gengur og
gerist þá verða unglingar líka
uppteknir af öðru. Sambandið við
Björk rofnaði aldrei, þótt það
yrði stopulla í nokkur ár. Þegar
ég tók að venja komur mínar aft-
ur til Bjarkar með mína fjöl-
skyldu var okkur tekið með sömu
kostum og kynjum. Þannig var
Björk, alltaf boðin og búin og
gerði það sama fyrir börnin okk-
ar sem hún og Tómas höfðu gert
fyrir okkur systkinin einni kyn-
slóð fyrr. Við fjölskyldan kveðj-
um Björk með miklum söknuði
og þökkum fyrir allar góðu
stundirnar sem við náðum að
eiga saman.
Hans Guttormur,
Elsa Albína, Eiríkur Andri
og Steinunn María.
Mig langar í fáum orðum að
minnast guðmóður minnar og
frænku, Bjarkar J. Hallgríms-
son.
Þau voru ófá skiptin sem ég
bankaði á útidyrnar á Lindargöt-
unni bæði sem ungur drengur og
síðar með minni eigin fjölskyldu.
Alltaf voru viðtökurnar jafn hlýj-
ar og góðar. Ég minnist góðra
stunda með Björk og Tómasi
hvort sem er dorgandi á bryggj-
unni eða sitjandi við matarborðið
í stofunni. Ég finn það á mínum
eigin börnum að þau minnast
Siglufjarðarheimsókna á sama
hátt. Það hefur líka glatt mig að
sjá öspina sem ég lenti með á
Siglufjarðarflugvelli fyrir rúm-
um 30 árum vaxa og dafna með
hverri heimsókn. Ég minnist þó
ekki síst hússins, góðu lyktarinn-
ar sem mætti mér í forstofunni,
stigans upp á efri hæð og hlýleik-
ans sem íbúarnir veittu því. Mér
verður hugsað til þess hversu
mikinn hlýhug ég ber til Siglu-
fjarðar, bara vegna þeirra hjóna.
Björk var mér góð á allan hátt,
og vildi allt fyrir mig gera. Öll
símtöl enduðu á sama hátt: „Er
ekki eitthvað sem ég get gert
fyrir þig?“ Alltaf á sjálfsagðan og
áreynslulausan hátt. Og það er á
þennan hátt sem ég mun minnast
hennar.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
getað verið nærri þær síðustu
stundir sem þú áttir hér á jörðu
og fylgt þér að endastöð. Heim-
sóknin í sumar verður að bíða
annars tíma.
Og nú kveð ég þig, Björk, og
þakka þér allt gamalt og gott.
Þinn
Gylfi Örn Þormar.
Ég var 6 ára gömul þegar ég á
björtum sumardegi fór ein með
lítilli flugvél norður á Siglufjörð.
Ég var svolítið smeyk enda langt
að fara. Ég var á leið til sum-
ardvalar hjá móðursystur minni,
Björk, og Tómasi, manninum
hennar. Þegar vélin lenti tóku
þau á móti mér. Við keyrðum í
rauða bílnum í litla húsið á Lind-
argötunni. Þar var ég vafin ást
og umhyggju. Allur kvíði hvarf
eins og dögg fyrir sólu. Við tóku
yndislegir dagar á heimili Bjark-
ar og Tómasar, þar sem allt
snérist um að mér liði eins og lít-
illi prinsessu.
Þetta var fyrsta skipti af
mörgum sem ég dvaldist hjá
Björk og Tómasi sem barn, ým-
ist að sumri eða um páska. Alltaf
var jafngott að koma á Siglu-
fjörð. Ýmislegt var brallað. Við
gengum um bæinn og niður á
höfn. Ég heyrði um sögu fjöl-
skyldunnar og Siglufjörð. Við
spiluðum á spil og einhverra
hluta vegna vann ég alltaf.
Margar bækur voru á heimilinu.
Á kvöldin sat ég uppi á kvisti og
las bók sem ég sofnaði út frá
undir notalegum píanóleik Tóm-
asar á neðri hæðinni. Björk
sendi mig á sundnámskeið og ég
lærði að synda. Þær urðu marg-
ar sundferðirnar okkar Bjarkar
en Björk synti talsvert sér til
ánægju og heilsubótar. Um
páska fórum við á skíði inni í
firði. Ég naut útivistarinnar og
samverunnar með Björk og
Tómasi. Þetta voru góðir og
áhyggjulausir tímar. Þarna
sköpuðust djúp tengsl sem aldr-
ei slitnuðu.
Björk og Tómas voru stór
hluti af lífi mínu öll mín uppvaxt-
arár. Nokkru eftir að Tómas
lést, átti Björk við erfið veikindi
að stríða sem hún tókst á við af
miklum kjarki og komst aftur til
heilsu með sterkum vilja og
þrautseigju. Aldrei heyrði ég
hana kvarta, aldrei var bilbug á
henni að finna.
Þó ferðunum norður hafi
fækkað eftir að ég fluttist til út-
landa, hélst samband okkar
Bjarkar. Við töluðum saman í
síma og skrifuðumst á. Alltaf gat
ég leitað til Bjarkar ef eitthvað
bjátaði á og alltaf vildi hún
hjálpa. Þegar ég kom til Íslands
hittumst við oftast hjá mömmu
og fórum á kaffihús og fengum
okkur kaffi og köku. Björk var
sérstaklega gjafmild og rausn-
arleg og þess fékk ég að njóta.
Hennar gleði var að gleðja aðra.
Þegar elsta dóttir mín, Erla
Björk, fór að fara ein til Íslands
á sumrin mynduðust einlæg
tengsl milli hennar og Bjarkar.
Erla fór með ömmu Bellu og
Steinu Mæju í heimsóknir til
Bjarkar á Siglufjörð og einnig
ferðuðust þær fjórar vítt og
breitt innanlands. Björk var allt-
af fús til ferðalaga. Þannig
kynntist Erla Björk frænku
sinni og nöfnu og naut hlýju
hennar og umhyggju á sama
hátt og ég.
Sumarið 2015 fyrirhuguðum
við dætur mínar að dvelja hjá
Björk frænku í nokkra daga á
Siglufirði. Við hlökkuðum allar
til. Þær áætlanir breyttust því
miður. Björk veiktist alvarlega
eftir páska og í byrjun júní var
ljóst hvert stefndi. Komið var að
kveðjustund. Við mæðgurnar er-
um þakklátar fyrir að hafa getað
farið norður á Siglufjörð og verið
hjá Björk síðustu dagana. Það er
með sárum söknuði, hlýju og
þakklæti að við kveðjum elsku
Björk frænku. Minningin um
góða konu lifir í hjörtum okkar.
Katrín María, Erla Björk
og Jóhanna Júlía.
Björk Jónsdóttir
Hallgrímsson
Nú kveð ég konu
sem átti þátt í því
að gera æsku mína
jafn sólbjarta og
nafn hennar gefur til kynna. Ás-
laug Sólbjört Jensdóttir var ná-
granni okkar á Núpi í Dýrafirði
þar sem ég ólst upp. Heimili
hennar og Valdimars Kristins-
sonar stóð mér alltaf opið, svo
og öðrum. Á stóru heimili er
Áslaug Sólbjört
Jensdóttir
✝ Áslaug Sól-björt Jens-
dóttir fæddist 23.
ágúst 1918. Hún
lést 12. júní 2015.
Útför Áslaugar
fór fram 26. júní
2015.
alltaf mikið að gera.
Ása og Valdi eign-
uðust níu börn.
Elstu stelpurnar
pössuðu mig og
þær yngri urðu vin-
konur mínar. Og ég
var svo heppin að fá
að verða heimaln-
ingur í þessu húsi.
Best af öllu voru þó
sögurnar hennar
Ásu. Þegar hún
hafði tíma og var tilbúin, þá
sögðum við hvort öðru frá og all-
ir flýttu sér inn í kojur. Ekki
bara hennar börn og ég, heldur
líka Mummi og Magga, börn
Hauks bróður Valda. Og svo
sagði Ása sögur. Einu skipti
man ég eftir þegar pabbi hringdi
og spurði hvort ég væri hjá
henni. Þá sagði Ása: „Fyrirgefðu
Arngrímur, nú þarf ég að fara
inn og telja hausa.“
Svona gott var þeirra heimili.
Ása og Valdi áttu ágætis safn af
bókum og fór ég oft til að fá eitt-
hvað lánað. Alltaf gat Ása ráð-
lagt mér, samt skil ég ekki
hvernig hún þekkti bækurnar
því ég sá hana aldrei nema vinn-
andi. En hún var hagyrt og
orðasnillingur. Og vinna kunni
hún. Á jólum fyrir tíu árum
barst mér óvænt jólagjöf. Þetta
voru einbandsvettlingar sem
Ása hafði fundið tíma til að
prjóna handa mér 85 ára að
aldri.
Ég er einlæglega þakklát fyr-
ir að hafa kynnst Ásu og Valda,
svo og þeirra fjölskyldu. Guð
veri með ykkur.
Kveðja frá Örnu frá Núpi.
Guðrún Arna
Arngrímsdóttir.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einn-
ig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Minningargreinar
Minningar
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996
Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson