Morgunblaðið - 27.06.2015, Síða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2015
Flosi Hrafn Sigurðsson er einn af fjórum eigendum OPUS lög-manna. „Það var nýlega gengið frá eigendastöðu í félaginu enég hef unnið hjá OPUS lögmönnum frá útskrift minni 2010.“
Flosi er MA í lögfræði með áherslu á refsirétt frá Háskóla Íslands. MA-
ritgerð Flosa fjallaði um mansal. „Þar var ég að skoða hver væru skil-
yrði íslenskra laga til að hægt væri að sakfella fyrir mansal.
Sérsvið mín sem lögmanns eru sifjamál eða forsjármál og sakamál,
einnig ýmis skiptamál, þ.e. mál sem snúast um dánarbú og þrotabú.“
Áhugamál Flosa eru fyrst og fremst fjölskyldan enda er hann með
tvö lítil börn. „Svo hef ég mikinn áhuga á íþróttum, sérstaklega körfu-
bolta, en einnig útivist og fjallgöngu. Ég hef þó lítið komist í það und-
anfarið. Við fjölskyldan ætlum þó að reyna að ferðast eins og við getum
í sumar og verðum meðal annars í viku í bústað í Hrífunesi í Skaftár-
tungu.“
Flosi er fæddur og uppalinn í Borgarnesi og foreldrar hans eru Sig-
urður Már Einarsson fiskifræðingur og Anna Steinsen viðskiptafræð-
ingur. Sambýliskona Flosa er Þórunn Kjartansdóttir þjóðfræðingur og
börn þeirra eru Einar Jósef 3 ára og Anna Diljá sem verður eins árs í
haust.
„Ég ætla að halda afmælisveislu á laugardaginn í sal í miðbæ Reykja-
víkur þar sem helstu vinum og vandamönnum verður boðið í veislu.“
Lögmaðurinn Sérsvið Flosa eru sifjamál, sakamál og skiptamál.
Einn af eigendum
OPUS lögmanna
Flosi Hrafn Sigurðsson er þrítugur í dag
R
agnheiður fæddist í
Reykjavík 27.6. 1975
og ólst fyrst upp í
Smáíbúðahverfinu en
flutti í Mosfellssveit
þegar hún var 14 ára: „Smáíbúða-
hverfið var yndislegt, fullt af krökk-
um, frelsi og víðáttu. Mér fannst því
ekki spennandi tilhugsun að flytja í
Mosfellssveitina. Þetta var eins og
að fara á annað og ókunnugt til-
verustig og einugis rútuferð í bæinn
á margra klukkutíma fresti.
En þetta lagaðist nú fljótt. Ég var
að vísu bara einn vetur í Gagn-
fræðaskóla Mosfellsbæjar og naut
þar kennslu og leiðsagnar Ragn-
heiðar Ríkharðsdóttur, þingmanns í
dag.
En þegar maður er svo á annað
borð kominn í Mosfellsbæinn fer
maður ekkert þaðan. Náttúran er
svo fjölbreytileg og umhverfið fjöl-
skylduvænt. Þess vegna bý ég hér
enn.“
Ragnheiður Jóhannesdóttir þróunarstjóri – 40 ára
Fjölskyldan Ragnheiður og Sigurjón, með Þóru Maríu og Sindra, njóta veðurblíðunnar í Landmannalaugum.
Veiðikló í bankageira
Stórfjölskyldan Ragnheiður og Hrafnhildur með foreldrum og fjölskyldum.
Sauðárkrókur Gunn-
björn Ingi Agnarsson
fæddist 19. júní 2014 kl.
9.03. Hann vó 3.660 g
og var 52 cm langur.
Foreldrar hans eru Elín
Lilja Gunnarsdóttir og
Agnar Logi Eiríksson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Smiðjuvegi 9, 200 Kópavogi ■ Sími 535 4300 ■ axis.is ■ Opið: mán. - fös. 9:00 - 18:00
Fataskápur
Hæð 2100 mm
Breidd 800 mm
Dýpt 600 mm
Tegund: Strúktúr eik
TIL Á LAGER
S KÁPATI LB OÐ
Verð58.900,-m. vsk.