Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2009, Blaðsíða 3
framtíð Árvakurs. Hann segist treysta
því að félagið fái að taka þátt í frek-
ari viðræðum við bankann á sama
grundvelli og aðrir.
miðvikudagur 7. janúar 2009 2Fréttir
Mogginn brennir upp alMannafé
Ólafur Stephensen ritstjóri
Eigendavaldið yfir morgunblað-
iðnu hefur færst yfir til glitnis,
helsta viðskiptabanka Árvakurs.
Yfir þrjátíu nemendur Verzlunarskóla Íslands hafa sent Persónuvernd formlega
kvörtun vegna bréfs sem skólayfirvöld sendu foreldrum allra nemenda skólans með
upplýsingum um skólasókn. Birgir Þór Harðarson nemandi segir að sá einstaklingur
sem er sjálfráða eigi sér enga forráðamenn og því hafi skólinn ekkert leyfi til að senda
þessar upplýsingar til þriðja aðila. Ingi Ólafsson skólastjóri segir þetta hafa verið gert
í aldanna rás en að skólinn muni hlýða úrskurði Persónuverndar.
VerZlingar KVarTa
unDan SKÓlaSTJÓra
„Einstaklingur sem er sjálfráða á sér
enga forráðamenn samkvæmt lög-
um og það að senda bréf til foreldra
þeirra nemenda sem eru orðnir átj-
án ára og titla þá sem forráðamenn
finnst mér jaðra við brot á lögum um
persónuvernd,“ segir Birgir Þór Harð-
arson, ritstjóri V75 skólablaðsins, en
hann situr einnig í stjórn nemenda-
félags Verzlunarskóla Íslands.
Margir nemendur voru ósáttir
við bréf sem skólayfirvöld sendu for-
eldrum allra nemenda í skólanum
þar sem þau voru upplýst um stöðu
skólasóknar barna sinna. Mikill sam-
hugur er í nemendunum en rúmlega
þrjátíu nemendur hafa sent formlega
kvörtun til Persónuverndar.
Nemendurnir telja að Verzlunar-
skóli Íslands sé með þessu að brjóta
gegn lögverndaðri friðhelgi þeirra
sem kveðið er á um í 7. og 8. grein
laga um persónuvernd. Þá telja nem-
endurnir líka að dreifing bréfsins til
þriðja aðila, sem eru þá foreldrar eða
aðstandendur, stangist á við 1. máls-
grein 7. greinar laganna þar sem er
kveðið á um að meðferð slíkra upp-
lýsinga sé í samræmi við vandaða
vinnsluhætti.
Á gráu svæði
„Nemendafélagið er í grunn-
atriðum bara hagsmunasamtök
nemendanna. Við erum að beita
okkur þannig að við útvegum nem-
endum þetta kvörtunarplagg ef nem-
endur kjósa það,“ segir Birgir Þór.
„Þótt mér sé svo sem alveg sama
hvort foreldrar mínir viti hvernig
mætingin mín er í skólanum veit ég
um dæmi þar sem hagsmunirnir eru
meiri og þá er líka meira í húfi. Ég
veit um dæmi þar sem einstaklingur
býr ekki hjá foreldrum sínum vegna
heimiliserja og því bjó viðkomandi
hjá ömmu sinni en allir þessir aðilar,
bæði foreldrar og amman, fengu bréf
frá skólanum. Sumir vilja bara ekki fá
bréf heim til sín,“ segir Birgir Þór.
Þeir sem telja þetta sjálfsagt mál
benda á það að flestir þessara nem-
enda eru á framfærslu foreldra sinna
og jafnvel búa þar. Birgir Þór segir
þetta punkt sem foreldrar hans vekja
oft athygli á en hann segir það breyta
engu: „Þá komum við aftur að því að
átján ára einstaklingur á ekki forráða-
menn, sama hvernig á það er litið og
það er bara nokkuð skýrt í lögunum.“
Birgir Þór vonar að skrifstofa
Verzlunarskóla Íslands sjái að sér í
kjölfar kvartananna en segist sjálf-
ur ekkert óttast að upplýsingar um
skólasókn hans endi hjá mömmu og
pabba: „Ég er sjálfur að rétta úr kútn-
um.“
Persónuvernd ræður
„Þetta er nokkuð sem hefur ver-
ið gert í aldanna rás en það er alltaf
spurning hvenær er réttlætanlegt að
senda svona upplýsingar og hvenær
ekki,“ segir Ingi Ólafsson, skólastjóri
Verzlunarskólans.
„Þetta mál er bara í skoðun og
vinnslu bæði hjá okkur og hjá Per-
sónuvernd og engin niðurstaða
komin í það,“ segir Ingi og tekur fram
að skólinn muni fylgja úrskurði Per-
sónuverndar.
„Við gerum eins og Persónuvernd
segir, þeir ráða. Það er ekki kom-
in niðurstaða í málið en það er Per-
sónuvernd sem ræður þarna og við
förum ekki að deila neitt við þá,“ seg-
ir Ingi og heldur áfram: „Það má al-
veg skoða þetta á marga vegu en við
gerum þetta því við erum með hags-
muni nemenda í huga. Þetta eru
ákveðnar vinnureglur sem hafa verið
hér í aldanna rás.“
Nemendurnir eru þó ekki sam-
mála skólastjóranum sínum þó svo
að foreldrarnir séu á öðru máli.
„Foreldrarnir eru mjög ánægðir
og þeir senda okkur bréf og eru þakk-
látir. Langflestir af þessum krökkum
búa líka hjá foreldrum sínum og eru
á þeirra framfæri,“ segir Ingi.
Boltinn hjá Verzló
„Við óskuðum skýringa frá skóla-
stjóra Verzlunarskóla Íslands og höf-
um fengið nokkrar skýringar en töld-
um okkur þurfa nánari svör og bíðum
þeirra,“ segir Sigrún Jóhannesardótt-
ir hjá Persónuvernd.
„Þannig að í raun og veru er
boltinn núna hjá Verzlunarskólan-
um,“ segir Sigrún.
Persónuvernd hafa borist áþekkar
kvartanir en eftir því sem DV kemst
næst hefur ekki jafnmikill fjöldi nem-
enda kvartað undan eina og sama
málinu áður.
„Við eigum bara eftir að komast
að niðurstöðu en það gerum við ekki
fyrr en báðir aðilar hafa tjáð sig. Þeg-
ar við erum búin að fá svar frá Verzl-
unarskólanum gefum við þeim sem
kvörtuðu tækifæri á að sjá þau svör.
Allar þessar kvartanir eru í farvegi,“
segir Sigrún.
AtlI MÁr GylfASon
blaðamaður skrifar: atli@dv.is
nemendur ósáttir Yfir þrjátíu
nemendur hafa sent kvörtun til
Persónuverndar vegna bréfs sem
sent var foreldrum þeirra.
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
dv.is
besta rannsóknarblaðamennska ársins
miðvikudagur 12. nóvember 2008 dagblaðið vísir 211. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
Skatturinn
Skoðar riSnu
HanneSar
Yfirtaka á Árvakri var áformuð í október
Samruni við Fréttablaðið breytti stöðunni
nú er Glitnir aftur kominn af stað
Björgólfur Guðmundsson og
aðrir eigendur berjast á móti
Glitnir vill Gjaldfella milljarða skuldir Árvakurs:
RiKiÐ ViLL
EiGNAST
MOGGANN
Barn
Svikið
aF Bt
Safnaði fyrir tölvu í heilt ár
en er svikinn um peninginn
Fékk gallaða tölvu og beið
í fimm mánuði eftir nýrri
neYtendur
Fréttir
tapaði HúSinu
veGna iceSave
Fólk
Fréttir
HunGur-
verkFall
Spiluðu
upp í YFir-
drÁttinn
Fólk
oG líkamSÁrÁSir
Fréttir
krónan er
dauðadæmd
nýjasti þingmaðurinn
Játaði
ást sína
í 100
þúsund
eintökum 12. nóvember 2008
dv greindi fyrst frá því að
glitnir vildi yfirtaka Árvakur.