Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2009, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2009, Blaðsíða 27
miðvikudagur 7. janúar 2009 27Sviðsljós Leikkonan Michelle Rodriguez sem þekktust er fyrir leik sinn í Lost og Fast and the Furios afplánaði síðustu tíma sína í samfélagsþjónustu í Los Angeles á mánudaginn. Leikkonunni var gert skylt að sinna erfiðri samfé- lagsþjónustu eftir að hafa ekki virt skilorð sem hún fékk eftir að aka und- ir áhrifum áfengis. Rodriguez gekk meðfram hrað- braut L.A. og hirti upp rusl á vegin- um klædd skær- gulu verkamanna- vesti og hjálmi og virtist ekki skemmta sér neitt allt of vel við ruslatínsluna. Þetta ætti þó að kenna hinni þrítugu leikkonu að keyra ekki aftur undir áhrifum. Leikkonunni Michelle Rodriguez var gert skylt að vinna við samfélagsþjónustu eftir að hafa brotið skilorð sitt. Leikkonan afplánaði síðustu tímana í þjónust- unni tínandi rusl meðfram hraðbraut í Los Angeles. RodRiguez í Rusli Sjúskuð rodriguez hefur aldrei verið þekkt fyrir að vera sú dömulegasta en var ansi sjúskuð á mánudaginn. Óþefur af ruslinu af svipnum á leikkonunni að dæma var einhver óþefur af stórum rusalpokunum. Spjallað við kollega rodriguez tók sér smápásu til að tuða yfir ruslatínslunni við kollega sinn. Dröslaðist með ruslið Leikkonunni var sérstaklega gert skylt að vinna við krefjandi samfélagsþjón- usta vegna brota á skilorði. Klóraði sig gegnum ruslahrúgurnar rodriguez notaðist við hjálpartæki til að gera hreint við hraðbrautina. Lindsay Lohan þrætir nú fyrir það að vera hætt með Samönthu Ronson eins og öll slúðurblöðin vestanhafs hafa keppst við að halda fram að undan- förnu. Ekki nóg með það að þræta fyr- ir hana segir hún það vera ógeðslegt hvernig fólki takist að búa til svona mikið drama úr lífi hennar. „Við hættum ekki saman. Nei. Fólk verður að hætta að búa til svona mikið drama. Það er ógeðslegt,“ svaraði Lo- han spurð um sambandsslitin í tíma- ritinu Life & Style. Í kjölfarið skellti hún sér líka á bloggið sitt og sendi frá sér yfirlýs- ingu þar sem sagði meðal annars: „Smávægilegar sannar upplýsing- ar: Við hættum ekki saman. Öll þessi slúðurblöð og slúðurheima- síður. Verið með sögurnar ykkar réttar í guðanna bænum. Það er mjög pirrandi að fá endalaust af tölvupósti og skilaboðum frá vinum sem samhryggjast manni vegna sambands- slitanna.“ Lindsay Lohan segir ógeðslegt hvað fólk geri mikið drama úr lífi hennar: ÞRætiR fyRiR sambandsslitin Ennþá saman Lindsay þrætir fyrir þær sögusagnir að hún sé hætt með Samönthu ronson. Kevin Federline er fleira til lista lagt en að rappa og skemmta sér. Nýjustu fregnir herma að hann sé að vinna að barnafatalínu sem ber heitið Otzi. Kevin sem er faðir fjögurra barna er greinilega annt um að þau séu vel klædd. Mið- að við hans eigin fatastíl má því gera ráð fyrir mikið af stuttermabolum, pokalegum galla- buxum og hálskeðjum. Af einkalífi hans er það að frétta að hann er á föstu núna með Victoriu Prince en hún er fyrr- verandi blakstjarna. Kevin fedeRline hannaR föt Jennifer Love Hewitt og unnusti hennar, Ross McCall, hafa slitið trúlofun sinni. Par- ið, sem hafði verið heitbundið í nokkur ár, ákvað yfir hátíðarnar að hætta saman og kom það mörgum á óvart. Heimildarmað- ur People segir frá því að þau séu afar leið yfir hvernig hafi farið og hafa vinir sagt að þau virtust hafa verið mjög hamingjusöm. Sambandsslitin komu því mörgum í opna skjöldu. Sjálf vilja þau lítið tjá sig um málið. JennifeR love- hewitt á lausu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.