Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2009, Side 27
miðvikudagur 7. janúar 2009 27Sviðsljós
Leikkonan Michelle Rodriguez sem
þekktust er fyrir leik sinn í Lost og
Fast and the Furios afplánaði síðustu
tíma sína í samfélagsþjónustu í Los
Angeles á mánudaginn. Leikkonunni
var gert skylt að sinna erfiðri samfé-
lagsþjónustu eftir að hafa ekki virt
skilorð sem hún fékk eftir að aka und-
ir áhrifum áfengis.
Rodriguez gekk meðfram hrað-
braut L.A. og hirti
upp rusl á vegin-
um klædd skær-
gulu verkamanna-
vesti og hjálmi og virtist
ekki skemmta sér neitt
allt of vel við ruslatínsluna.
Þetta ætti þó að kenna hinni
þrítugu leikkonu að keyra ekki
aftur undir áhrifum.
Leikkonunni Michelle Rodriguez var gert skylt að vinna við samfélagsþjónustu
eftir að hafa brotið skilorð sitt. Leikkonan afplánaði síðustu tímana í þjónust-
unni tínandi rusl meðfram hraðbraut í Los Angeles.
RodRiguez í
Rusli
Sjúskuð
rodriguez hefur
aldrei verið
þekkt fyrir að
vera sú
dömulegasta en
var ansi sjúskuð
á mánudaginn.
Óþefur af ruslinu
af svipnum á leikkonunni
að dæma var einhver óþefur
af stórum rusalpokunum.
Spjallað við kollega
rodriguez tók sér smápásu til
að tuða yfir ruslatínslunni við
kollega sinn.
Dröslaðist með ruslið
Leikkonunni var sérstaklega
gert skylt að vinna við
krefjandi samfélagsþjón-
usta vegna brota á skilorði.
Klóraði sig gegnum
ruslahrúgurnar
rodriguez notaðist við
hjálpartæki til að gera
hreint við hraðbrautina.
Lindsay Lohan þrætir nú fyrir það að
vera hætt með Samönthu Ronson eins
og öll slúðurblöðin vestanhafs hafa
keppst við að halda fram að undan-
förnu. Ekki nóg með það að þræta fyr-
ir hana segir hún það vera ógeðslegt
hvernig fólki takist að búa til svona
mikið drama úr lífi hennar.
„Við hættum ekki saman. Nei. Fólk
verður að hætta að búa til svona mikið
drama. Það er ógeðslegt,“ svaraði Lo-
han spurð um sambandsslitin í tíma-
ritinu Life & Style.
Í kjölfarið skellti hún sér líka á
bloggið sitt og sendi frá sér yfirlýs-
ingu þar sem sagði meðal annars:
„Smávægilegar sannar upplýsing-
ar: Við hættum ekki saman. Öll
þessi slúðurblöð og slúðurheima-
síður. Verið með sögurnar ykkar
réttar í guðanna bænum. Það er
mjög pirrandi að fá endalaust af
tölvupósti og skilaboðum frá
vinum sem samhryggjast
manni vegna sambands-
slitanna.“
Lindsay Lohan segir ógeðslegt hvað fólk geri mikið drama úr lífi hennar:
ÞRætiR fyRiR
sambandsslitin
Ennþá saman
Lindsay þrætir fyrir þær
sögusagnir að hún sé hætt
með Samönthu ronson.
Kevin Federline er fleira til lista lagt en að
rappa og skemmta sér. Nýjustu fregnir herma
að hann sé að vinna að barnafatalínu sem ber
heitið Otzi. Kevin sem er faðir fjögurra barna er
greinilega annt um að þau séu vel klædd. Mið-
að við hans eigin fatastíl má því gera ráð fyrir
mikið af stuttermabolum, pokalegum galla-
buxum og hálskeðjum.
Af einkalífi hans er það að frétta að hann er á
föstu núna með Victoriu Prince en hún er fyrr-
verandi blakstjarna.
Kevin fedeRline
hannaR föt
Jennifer Love Hewitt og unnusti hennar,
Ross McCall, hafa slitið trúlofun sinni. Par-
ið, sem hafði verið heitbundið í nokkur ár,
ákvað yfir hátíðarnar að hætta saman og
kom það mörgum á óvart. Heimildarmað-
ur People segir frá því að þau séu afar leið
yfir hvernig hafi farið og hafa vinir sagt að
þau virtust hafa verið mjög hamingjusöm.
Sambandsslitin komu því mörgum í opna
skjöldu. Sjálf vilja þau lítið tjá sig um málið.
JennifeR love-
hewitt á lausu