Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2009, Page 4
miðvikudagur 7. janúar 20094 Fréttir
ritstjorn@dv.is
Innlendar FréttIr
„Við þurftum að sitja í vélinni í tvo
klukkutíma áður en okkur var til-
kynnt að hún væri ennþá biluð og
að við þyrftum að fara aftur inn í
flugstöðina,“ segir Sigrún Ólafsdótt-
ir sem búsett er í Þýskalandi og ætl-
aði að fljúga með Iceland Express til
Lúxemborgar frá Keflavík á öðrum
degi ársins.
Flugvélin átti að fara í loftið klukk-
an 15.20 en þegar hún mætti í flug-
stöðina var henni tilkynnt um seink-
un vegna bilunar. Starfsfólk sagði
viðgerð standa yfir og ef ekki yrði
búið að gera við vélina klukkan kort-
er í sex væri til staðar önnur vél sem
gæti flogið með farþegana.
„Um sexleytið voru allir komnir
inn í vélina og við bjuggumst við að
leggja af stað. Þá kom í ljós að ekki
hafði tekist að gera við vélina og okk-
ur gert að bíða. Við þurftum síðan
að bíða í sætunum okkar til klukkan
átta, í heila tvo tíma,“ segir Sigrún.
Nokkuð af barnafólki var í vélinni
og mörg börnin óróleg. „Okkur var
ekki einu sinni boðið vatn,“ segir Sig-
rún undrandi. Eftir tveggja tíma bið í
vélinni var ákveðið að skipta um flug-
vél. Á meðan verið var að afferma og
ferma hina vélina dvöldust flugfar-
þegar í flugstöðinni. „Engir veitinga-
staðir voru opnir og allar verslanir
lokaðar. Við gátum því ekkert keypt
okkur að borða,“ segir Sigrún.
„Þegar við síðan lögðum af stað
um sex klukkutímum seinna þurft-
um við að borga fyrir matinn í flug-
vélinni,“ segir hún.
Komið var fram yfir miðnætti
þegar vélin loks lenti í Lúxemborg.
Allar samgöngur til Þýskalands með
lestum og rútum höfðu þá lagst af
yfir nóttina. „Ég var langt fram á nótt
að koma mér heim. Við vorum ekki
einu sinni spurð hvort töfin hefði
valdið okkur vandræðum eða hvort
hægt væri að bæta okkur óþægindin
á nokkurn hátt,“ segir Sigrún.
„Ég keypti flugmiða fyrir tæpar 87
þúsund krónur. Þetta var því ekkert
lággjaldaflug,“ segir hún.
Sigrún hafði samband við skrif-
stofu Iceland Express símleiðis og
var sagt að koma erindi sínu áleiðis
með tölvupósti. Sigrún bíður nú eft-
ir svari um hvort flugfélagið ætli að
bæta henni skaðann. erla@dv.is
Sigrún Ólafsdóttir undrast að Iceland Express bjóði ekki bætur fyrir sex tíma seinkun:
Sat í tvo klukkutíma í bilaðri flugvél
Tíðar bilanir
Flugi véla iceland Express hefur verið frestað mikið undanfarið
og borið við bilunum. aðeins eru örfáir dagar síðan félagið keypti
Ferðaskrifstofu Íslands sem átt hafði í fjárhagsvandræðum.
FJÖLSKYLDA mYrtrAr
Konu er í Sárum
Georg Páll Kristinsson, faðir Hrafnhildar Lilju Georgsdóttur sem var myrt á hrotta-
fenginn hátt í Dómíníska lýðveldinu, hefur ekki fengið neinar upplýsingar um hvern-
ig rannsókninni miðar á morði dóttur hans. Hann segir það erfiða stöðu að vita ekkert
meira en alþjóð veit. Smári Sigurðsson, yfirmaður alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra-
embættisins, segir að embættið fái ekki frekari upplýsingar um málið þar sem lögregl-
an úti er ekki alveg á sama plani og við Íslendingar eigum að venjast.
„Við höfum ekki heyrt neitt annað
en að rannsóknin stæði bara opin og
það er ekki annað að heyra en engin
niðurstaða sé í málinu, “ segir Georg
Páll Kristinsson, faðir Hrafnhildar
Lilju Georgsdóttur sem var myrt á
hrottafenginn hátt í Dómíníska lýð-
veldinu í september síðastliðnum.
Rúmlega þrír mánuðir eru síðan
þessi skelfilegi atburður átti sér stað
en ættingjar hinnar látnu hér á Ís-
landi fá engar upplýsingar um hvort
einhver liggi undir grun eða hvort
komið sé út úr DNA-rannsóknum
á tveimur mönnum. Enginn situr í
gæsluvarðhaldi vegna málsins.
Erfitt að vita ekki
hver er morðinginn
„Við höfum verið í sambandi við ut-
anríkisráðuneytið hérna heima og
höfum fengið voðalega litlar upp-
lýsingar en eigur hennar náttúrlega
skiluðu sér til landsins í desember-
mánuði,“ segir Georg. Hrafnhild-
ur var jörðuð í október. Hann seg-
ir það afar erfitt að vita ekki hver
varð dóttur hans að bana. „Að sjálf-
sögðu er þetta erfið staða, við vit-
um í rauninni ekki meira en alþjóð
veit.“ Lögreglan taldi í upphafi að
um ástríðuglæp hefði verið að ræða
en tveir menn sátu í gæsluvarðhaldi
sem þekktu Hrafnhildi vel. Þeim
var sleppt fljótlega. Georg segir það
miður að fá ekki frekari fregnir en
það er lítið sem hægt er að gera. „Það
er bara vonandi að þetta upplýsist,“
segir hann að lokum.
Engin úrræði hjá
ríkislögreglustjóra
Smári Sigurðsson, yfirmaður al-
þjóðadeildar ríkislögreglustjóra-
embættisins, segir að engar upp-
lýsingar hafi borist embættinu. „Við
erum ekki með neinar upplýsingar,
það gæti tengst því að Venesúela er
með flest morð í heiminum að mér
skilst og lögreglan þar er ekki á svona
sama plani og við eigum að venjast.
Við höfum ekki fengið upplýsingar
og höfum engin ráð til að knýja þær
fram.“
Smári segir að áður hafi komið
upp morðmál á Íslendingi á svipuð-
um slóðum, þær upplýsingar hafa
ekki enn borist þrátt fyrir að mörg ár
séu liðin. Hann segir að erfitt sé að
segja til um hvort upplýsingar varð-
andi rannsóknina berist embættinu.
„Reynslan segir okkur að við erum
ekkert of bjartsýnir á að fá upplýs-
ingar.“
Hrottafengið morð
Hrafnhildur Lilja var 29 ára göm-
ul þegar hún fannst látin á baðher-
bergi í íbúð sinni í bænum Caparete
í Dómíníska lýðveldinu í endaðan
september síðastliðinn. Hrafnhildur
fór í heimsreisu síðastliðið vor, sem
endaði í Dómíníska lýðveldinu þar
sem hún starfaði á hóteli sem kallast
Extreme. Hún hugðist dvelja í bæn-
um fram í janúar á þessu ári en hún
hafði komið við í Ástralíu og Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum.
Stuttu eftir morðið náði DV tali af
Thomas Fernandez, rannsóknarlög-
reglumanni hjá ríkislögreglu Dóm-
íníska lýðveldisins, sem sagði þá að
lögreglan væri á réttri slóð að finna
morðingjann. „Við erum mjög ná-
lægt því að ná honum.“ Enginn hefur
enn verið kærður eða handtekinn.
Boði LoGaSon
blaðamaður skrifar bodi@dv.is
Smári Sigurðsson hjá alþjóða-
deild Engar upplýsingar berast
embættinu frá dómíníska lýðveld-
inu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Hrafnhildur ásamt vini sínum Hún
var vinsæl hvar sem hún kom og þótti
bæði brosmild og einstaklega jákvæð.
F r j á l s t , ó
h á ð d a g b l
a ð
dv.is
besta rannsóknar
blaðamennska ár
sins
SjálfStæðiSflokku
r
á barmi klofningS
miðvikudagur 24. s
eptember 2008 dag
blaðið vísir 176. tb
l. – 98. árg. – verð k
r. 295
miSSti fóStur eftir
hnífaáráS
Sambýliskonur dauðhr
æddar eftir innrás á heim
ilið
Vítamínbætt
erhættulegt
fannst myrt á hótelherbe
rgi í Dóminíska lýðvelDinu
:
fór í heimsreisu til að f
inna sjálfa sig
lögreglan segir morði
ð ástríðuglæp
Var einstaklega lífsglö
ð og hlý stúlka
fornarlamb
astriðuglæps
fréttir
Djúpstæður klofningu
r milli geirsarms og Da
víðsarms
neytenDur
getur valdið lifrarskem
mdum
hjá börnum
fréttir
Neytendavit-
und eykst
Erindi og fyrirspurnir til
Neytendastofu vegna fjár-
málafyrirtækja jukust um
234 prósent á milli áranna
2007 og 2008. Þegar heildar-
fjöldi erinda er skoðaður var
aukningin 40 prósent á milli
ára. Alls bárust tæplega 13
þúsund erindi til Neytenda-
stofu á árinu. Flestar voru fyr-
irspurnirnar vegna verðlags
og auglýsinga, ferðalaga, fjár-
málafyrirtækja og raftækja.
Kvörtunarmál þar sem
starfsfólk Neytendastofu hef-
ur milligöngu um að ná sátt-
um milli seljanda og neyt-
enda jókst einnig talsvert en
þau voru 235 á síðasta ári.
Mest aukning var í þeim
málum sem bárust Evrópsku
neytendaaðstoðinni en málin
þar voru 25 árinu, en einung-
is 7 árið áður.
Samviskan á
við gamlan
Yaris
„Sú fjárfesting sem Bjarni
ræðst í með því leggja inn
370 milljónir til afláts vegna
bankahrunsins er því sam-
bærileg við að ómenntað-
ur skúringamaður réðist í
að kaupa ársgamlan Yaris,“
segir blaðamaðurinn Páll
Ásgeir Ásgeirsson á vefsíðu
sinni. Bjarni Ármannsson,
fyrrverandi forstjóri Glitnis,
endurgreiddi 370 milljónir
af þeim greiðslum sem hann
fékk í starfslokasamning frá
bankanum. Páll Ásgeir setti
upphæðina í samhengi. Hinn
almenni verkamaður hefur
um 200 þúsund á mánuði á
meðan árstekjur Bjarna árið
2007 voru 43 milljarðar.
Brenndist
í andliti
Tvö flugeldaslys voru tilkynnt
til lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu á mánudag en í báð-
um tilvikum voru aðilar fluttir
á slysadeild. Í Grafarvogi voru
tveir unglingar að taka í sundur
skotelda þegar illa fór en annan
þeirra þurfti að færa undir lækn-
ishendur. Í Kópavogi var þriðji
unglingurinn við sams konar
iðju og þar fór allt á sama veg. Sá
brenndist á höndum og í and-
liti. Mikið ónæði var af flugeld-
um í gær og bárust lögreglunni
margar kvartanir vegna þessa.
Nokkuð var líka um skemmdar-
verk en púðurkerlingum og öðru
slíku var ýmist troðið inn um
bréfalúgur eða sett í póstkassa
og ruslatunnur.
24. september 2008
„lögreglan þar er
ekki á svona sama
plani og við eigum
að venjast.“
Brennur
gengu vel
Þrettándabrennur, til þess að
kveðja jólin formlega, fóru fram
víða um land í gærkvöldi. Gestir
létu rigningu ekki aftra sér og
fjölmenntu á brennurnar. Sam-
kvæmt upplýsingum frá helstu
lögregluumdæmum á landinu
gengu brennurnar víðast hvar
vel og engin óhöpp voru til-
kynnt. Engar fregnir hafa heldur
borist um óhöpp vegna flug-
elda. Lögreglan víða um land
er ánægð með hvernig til tókst í
gærkvöldi.