Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2009, Qupperneq 6
miðvikudagur 7. janúar 20096 Fréttir
ritstjorn@dv.is
Innlendar FréttIr Fyrrum samstarfsfólk Isolar Lind, íslensku konunnar sem myrt var á hrottafenginn hátt
af eiginmanni sínum á gamlársdag, hefur komið fyrir söfnunarbaukum í versluninni
þar sem hún og dóttir hennar unnu. Verslunarstjóri Emmanuels Marketplace segir að
Isol Lind hafi trúað henni fyrir því að William Cotto myndi á endanum drepa hana.
Safna fé fyrir
dóttur
iSolar
Fyrrum vinnuveitandi Isolar Lind
Cotto, íslensku konunnar sem myrt
var á hrottafenginn hátt af eigin-
manni sínum á gamlársdag, segir
að Isol hafi sagt samstarfsmönn-
um sínum að sig grunaði að hún
yrði ekki mjög gömul. Eiginmaður
hennar myndi vera búinn að drepa
hana áður. Patty Phillips, verslun-
arstjóri Emmanuel‘s Marketplace
þar sem Isol vann, segir að Willi-
am Cotto hafi áður beint byssu að
Isol fyrir hina örlagaríku nótt þegar
hann drap hana með haglabyssu.
Fyrrum samstarfsfélagar Isolar og
Kristínu í versluninni hafa nú haf-
ið söfnun fyrir dótturina og til að
heiðra minningu Isolar Lind.
Ekki í fyrsta skipti
Patty Phillips er verslunarstjóri í
Emmanuels Marketplace í smá-
bænum Marbletown í New York
fylki fullyrðir við vefmiðilinn Recor-
donline.com sem þjónar fjölmiðlin-
um Times-Herald í New York fylki
að Isol Lind hafi óttast að hún yrði
ekki langlíf í sambandinu við Willi-
am. Hann myndi vera búinn að
drepa hana áður, en William beitti
hana líkamlegu ofbeldi. „Þetta var
ekki í fyrsta skipti sem hann beindi
byssu að höfði hennar,“ er haft eft-
ir Phillips á Recordonline. „Hann
gerði það líka tveimur árum áður,
en ég efast um að það sé til á ein-
hverjum skjölum til staðfesting-
ar. Þá var hann lögreglumaður og
gjörðir hans voru í skjóli þess,“ segir
Phillips.
Safna fé fyrir dótturina
Starfsfólk Emmanuel‘s Marketplace
hefur komið fyrir söfnunarbaukum
við afgreiðsluborð sín til að safna fé
fyrir 22 ára gamla dóttur Isolar og
Williams, Kristínu. Báðar unnu þær
í versluninni. Isol hafði hafði kom-
ið við í versluninni aðeins viku fyrir
atburðinn, en nú hafa vinir hennar
safnað ríflega 600 dölum til heiðurs
minningar hennar.
Barði úr henni framtennurnar
Phillips segir að William Cotto hafi
verið ráðríkur og ofbeldisfullur eig-
inmaður sem oft hefði misþyrmt
Isol Lind. „Hún var dauðhrædd við
hann, enda var hann vanur að berja
hana. Hún þurfti meira að segja
að láta lagfæra á sér framtennurn-
ar út af honum. Isol lét lögregluna
handtaka William þann 30. desem-
ber síðastliðinn eftir að hann hafði
brugðist ókvæða við ósk Isolar um
skilnað. Isol og William skildu að
borði og sæng fyrir nokkrum árum,
en voru ennþá formlega gift og
höfðu tekið saman aftur. William
var færður í fangelsi en síðar það
sama kvöld reiddi hann fram 5000
dollara tryggingu og var leystur úr
haldi rétt upp úr miðnætti sama
dag. Lögreglan setti nálgunarbann
á William Cotto til að halda honum
frá Isol Lind.
Talinn hafa falið haglabyssuna
Lögreglan leitaði á dvalarstað Willi-
ams þar sem haglabyssa, hnífar,
kylfur og skotfæri voru gerð upp-
tæk. Tæplega einum og hálfum
tíma síðar hafði William skotið Isol
til bana með haglabyssu í svefnher-
bergi hennar á Main Street, og svipt
sjálfan sig lífi.
„Við teljum að hann hafi falið
byssuna einhversstaðar á dvalar-
stað sínum í Accord,“ er haft eftir
yfirrannsókarlögreglumanninum
Pete Kusminsky. Talið er að William
hafi jafnvel falið hana utandyra eða í
útihúsi. Rannsókn stendur enn yfir.
SIgurður MIkaEL jónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Safna fyrir kristínu Fyrrum
vinnuveitandi isolar Lind, Patty
Phillips stendur hér við afgreiðslu-
borðið í Emmanuels marketplace
Mynd: rECordSonLInE.CoM
Vettvangur morðsins
Heimili isolar Lind og
Williams Cotto á main
Street í marbletown.
Morðingi William Cotto myrti isol Lind
á gamlárskvöld skömmu eftir að hafa
verið sleppt úr fangelsi.
„Þetta var ekki í fyrsta skipti sem hann
beindi byssu að höfði hennar“
Ölvaður píanisti
truflaði svefn
Ölvaður píanóleikari hélt vöku
fyrir nágrönnum sínum í Kópa-
vogi aðfaranótt mánudagsins.
Lögreglan var þá kölluð út að
fjölbýlishúsi eftir að kvartað var
undan hávaða. Þegar lögregl-
an kom á staðinn heyrðist að
kvörtunin á rökum reist en heyra
mátt óm af hljóðfæraleik út á
stétt. Þegar málið var kannað
frekar reyndist karl á fimmtugs-
aldri vera að spila á píanó. Ekki
þarf að hafa mörg orð um spila-
mennskuna en maðurinn var
ölvaður og ekki í neinu standi
til að spila á píanó eða önnur
hljóðfæri ef út í það er farið.
Sigurjón gerist
stundakennari
Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi
bankastjóri Landsbankans, hef-
ur tekið að sér stundakennslu
við tækni- og verkfræðideild Há-
skólans í Reykjavík.
Sigurjón kemur þar til með
að kenna inngangsnám-
skeið á sviði fjár-
málaverkfræði.
Sjálfur er Sigurjón
menntaður véla-
verkfræðingur frá
Háskóla Íslands.
Tíðkast hefur
hjá HR að menn úr
atvinnulífinu taki
að sér stunda-
kennslu.
Styður styttugerð
„Það vekur sérstaka athygli að
breytingartillögur meirihlutans
birtast hér við síðari umræðu í
borgarstjórn að 5 milljónum á
að verja til myndastyttugerðar.
Myndastyttugerðar. Ég skora á
meirihlutann að draga þá tillögu
til baka,“ sagði Dagur B. Eggerts-
son, borgarfulltrúi Samfylkingar,
á borgarstjórnarfundi í gær. Þar
var hart tekist á um hvort verj-
andi væri að veita fé til mynda-
styttna á sama tíma og þjón-
usta við börn og eldri borgara
er skert. Hanna Birna Kristj-
ánsdóttir borgarstjóri styður
myndastyttugerðina.
Veðsettur kvóti íslenskra útgerða gæti fallið útlendingum í hlut:
Tugmilljarða veð til Þjóðverja
Tugmilljarða króna veð í kvóta eru
nú í höndum þýskra banka. Þetta er
eftir að Glitnir færði kvótaveð nokk-
urra stærstu útgerða landsins í hend-
ur bankanna síðasta sumar. Frétta-
stofa Stöðvar 2 greindi frá þessu í
gærkvöldi og hafði fengið staðfest-
ingu á þessu hjá stjórnendum Brims,
HB Granda og Þorbjörns.
Útgerðarfélög landsins eru mörg
hver mjög skuldug og eiga sum hver í
það minnsta á hættu að fara á haus-
inn þurfi þau að standa undir afborg-
unum af lánum sínum. Af þessum
sökum hafa útgerðarmenn leitast
eftir að fá skuldaniðurfellingu hjá ís-
lensku bönkunum, líkt og DV greindi
frá 18. desember síðastliðinn. Eftir
það hafa útgerðarmenn komið fram
og farið fram á skuldaniðurfellingu og
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs-
ráðherra tekið undir það sjónarmið.
Sömu sögu er að segja af flokksbróð-
ur hans Árna Johnsen, þingmanni
suðurkjördæmis sem kemur úr Vest-
mannaeyjum - helsta útgerðarplássi
þess landshluta.
Samkvæmt fréttum Stöðvar 2 í
gærkvöldi eru nú kvótaveð fyrir lán-
um upp á 20 til 30 milljarða króna
komin í hendur þýskra banka. Þetta
segja forsvarsmenn útgerðarfélag-
anna HB Granda, Brims og Þor-
bjarnar að væri þvert á það sem þeir
Þorsteinn Már Baldvinsson og Lár-
us Welding, þáverandi stjórnendur
bankans, hefðu lofað þeim. Forstjóri
Þorbjarnar sagði í fréttinni að hann
væri hættur að borga Glitni af láninu
og þess í stað farinn að borga Deuts-
che Bank beint.
brynjolfur@dv.is
Svikin loforð? Forstjóri Þorbjarnar segir
stjórnarformann glitnis hafa lofað að
veðin færðust ekki til erlendra banka.