Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2009, Page 18
Miðvikudagur 7. janúar 200918 NÁMSKEIÐ&SKÓLAR
Nýlega tók til starfa glæsilegur Fótaaðgerðaskóli í Snyrtiakademíunni í Kópavogi. Guðrún Möller, eigandi
skólans, sagði DV frá skólanum.
Fæturnir bera okkur uppi
„20. desember útskrifuðum við með
stolti fyrsta hópinn okkar héðan úr
Fótaaðgerðaskólanum,“ segir Guð-
rún Möller, framkvæmdastjóri SA í
Kópavogi, sem hóf starfsemi sína í
árslok 2006.
Að sögn Guðrúnar er mikil eft-
irspurn eftir fótaaðgerðafræðing-
um hér á landi og því mikil þörf á að
bjóða upp á nám í fótaaðgerðafræði.
„Dæmi eru um að fólk hafi þurft að
bíða allt upp í þrjá mánuði til að
komast að hjá fótaaðgerðafræðing-
um,“ segir Guðrún.
Námið er á framhaldsskólastigi og
samþykkt af menntamálaráðuneyt-
inu og þurfa nemendur því að hafa
ákveðna undanfara til að komast inn
í námið. Einnig er námið lánshæft
hjá Lín. „Ég hvet áhugasama til að
koma í heimsókn til okkar og kynna
sér málið. Við getum þá farið í sam-
einingu yfir það sem viðkomandi er
búinn að læra og hvað hann vantar
til að geta hafið námið. Ég vil gjarn-
an taka það fram að þetta nám hent-
ar bæði konum og körlum,“ leggur
Guðrún áherslu á.
„Námið tekur rúmt ár og geta
nemendur að því loknu til dæmis
hafið eigin atvinnurekstur þar sem
námið er löggilt. Einnig er mikið um
að fótaaðgerðafræðingar ráði sig á
hinar ýmsu stofnanir, samanber elli-
heimili, sjúkrahús og fleiri. Þjóðin
er að eldast og þarf að hugsa vel um
fæturna á sér. Það eru jú fæturnir
sem bera okkur uppi.“
Guðrún segir námið, sem fer fram
á daginn, mjög áhugavert og að far-
ið sé nokkuð vítt og breitt í náminu á
þessu rúma ári. „Námið er kjörið fyr-
Margrét B. Stefánsdóttir Margrét B.
Stefánsdóttir, kennari og fótaaðgerða-
fræðingur, kennir við skólann.
MYND: SIGTRYGGUR
Framkvæmdastjóri Snyrti-
akademíunnar Guðrún
Möller, framkvæmdastjóri SA
Þó svo að HHS-nám sé nýjung í íslenskum háskólum hefur það verið kennt í alþjóðaháskóla-
samfélaginu svo áratugum skiptir.
Námið var fyrst sett á laggirnar í Ox-
ford-háskóla í Bretlandi árið 1920.
HHS stendur fyrir heimspeki, hag-
fræði og stjórnmálafræði en það er
þekkt sem PPE á ensku (Philosophy,
Politics og Economics). Fleiri þekkt-
ir háskólar hafa einnig kennt þetta
nám svo sem Háskólinn í Pennsylv-
aníu, Háskólinn í Norður-Karólínu
og Pomona-háskólinn í Kaliforníu
svo eitthvað sé nefnt.
Háskólinn á Bifröst bauð fyrst upp
á námið á haustönn árið 2005. Um er
að ræða þriggja ára BA nám en fyrsti
hópurinn var útskrifaður frá skólan-
um haustið 2007. Jón Ólafsson, próf-
essor og deildarstjóri félagsvísinda-
deildar, segir námið hafa farið vel af
stað.
„Þetta hefur gengið mjög vel og
hefur verið að mótast þessi þrjú ár
sem námið hefur verið í gangi,“ seg-
ir Jón en Bifröst var að taka á móti
fjórða árganginum í HHS. „ Almennt
eru nemendur mjög ánægðir með
það sem þeir fá út úr þessu námi.
Þetta er breið og góð undirstöðuhá-
skólamenntum. Sem er góð bæði fyr-
ir þá sem ætla beint út á vinnumark-
ByRjAÐI í
OxfORd 1920
Háskólinn á Bifröst bauð fyrst íslenskra há-
skóla upp á svokallað HHS-nám árið 2005.
Námið á rætur sínar að rekja til hins virta
Oxford-háskóla í Bretlandi þar sem það var
fyrst kennt 1920. Námið er blanda af heim-
speki, hagfræði og stjórnmálafræði.
Jón Ólafsson prófessor
Deildarstjóri félagsvís-
indadeildar Bifrastar.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA
897-2896 OG Á www.bakleikfimi.is
RÓLEGIR OG KRÖFTUGIR HÓPAR Í
HÁDEGINU OG EFTIRMIÐDAGA Í
NÝLEGRI OG BJARTRI SUNDLAUG
VIÐ LAUGARÁS
BAKLEIKFIMI Í VATNI
BETRI LÍÐAN Í HÁLSI HERÐUM OG BAKI
UNDIR LEIÐSÖGN SJÚKRAÞJÁLFARA