Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2009, Síða 21
miðvikudagur 7. janúar 2009 21Fréttir
Lögreglan útkljáir kalda fætur
Kona ein í Kína hafði samband
við lögregluna í Ningbo eftir að
kærastinn hennar neitaði að hlýja
henni á tánum. Kærastinn fylgdi
síðan í kjölfarið og hafði samband
við lögregluna þar sem hann kvart-
aði undan kröfum kærustunnar.
Hafði hún víst smellt býfunum á
magann á kærastanum án þess að
spyrja um leyfi í von um að hlýja
sér. Til að reyna að leysa ágrein-
inginn mættu lögregluþjónar á
vettvang. Þar tókst þeim að koma
kærastanum í skilning um að það
væri hlutverk kærastans að hlýja
kaldri kærustu. Á það féllst parið
og þakkaði lögreglunni aðstoðina.
Endaði í fangelsi með stjúpanum
Maður sem særðist illa eftir að
hafa verið skotinn af stjúpföður
sínum í Jacksonville í Bandaríkj-
unum var sendur rakleiðis í sama
fangelsi og árásarmaðurinn eftir
að lögreglan uppgötvaði að hann
átti nokkrar handtökuskipanir á
bakinu. Á fimmtudaginn var komu
lögreglumenn að hinum 21 árs
gamla Michael Bass þar sem hann
hélt blóðugu handklæði að mag-
anum á sér og sagði að stjúpfaðir
hans hefði skotið hann. Stjúpinn,
Richard Hayes, var handtekinn og
sömuleiðis Bass eftir að lögreglan
fletti honum upp og gert hafði ver-
ið að sárum hans.
Frelsið lét ítölskum fanga líða eins og smábarni:
Guido Beneventi frá Palermo á Ítalíu
hlaut reynslulausn frá fangelsisvist
sinni á dögunum en hefur nú grát-
beðið yfirvöld um að henda honum
aftur í svartholið. Ástæðan er að hann
þolir ekki að búa með foreldrum sín-
um. Beneventi var sleppt fyrr úr fang-
elsi gegn því að hann bæri ökklaband
sem léti lögregluna vita af ferðum
hans og að hann færi aftur heim til
foreldra sinna til að búa þar. Hinn þrí-
tugi Beneventi segir að látlausir fyrir-
lestrar foreldra hans um afleiðingar
glæpa og skipanir foreldra hans um
að taka til í herberginu hafi látið hon-
um líða eins og smábarni.
Eftir fjölmörg heiftarleg rifrildi
ákvað Beneventi að rjúfa útgöngu-
bann sitt til að flýja til höfuðstöðva
lögreglunnar og heimta að vera hand-
tekinn vegna brotsins. Það væri hans
eina útgönguleið frá ráðríki foreldra
sinna.
„Þið eruð bjargvættir mínir,“ sagði
hann við fangaverði eftir að hafa ver-
ið sendur aftur í svartholið. „Ég hefði
ekki lifað af annan dag með þeim.
Eina sem ég fékk að heyra var hversu
gagnslaus ég væri og aðrir fyrirlestr-
ar um lífið og tilveruna voru of mikið.
Síðan var mér skipað að sinna hús-
verkunum, mér leið eins og barni.
Fangelsið er mun betra,“ er haft eftir
Beneventi. mikael@dv.is
Meikaði ekki foreldrana
Ítalski glæpamaðurinn
guido Beneventi vildi frekar
afplána dóm sinn í fangelsi
en í foreldrahúsum.
Mynd: photos.coM
Frekar Fangelsi en heim
Nokkrir góðir dagar áN sEðLabaNka
málaeftirlit í Panama. Þegar erlent
fjármagn streymir inn í landið lána
bankarnir allt umfram fjármagn til
útlanda en ekki innanlands og koma
þannig í veg fyrir þann óstöðugleika
og vandræði sem hljótast af hárri
verðbólgu sem önnur lönd þurfa að
glíima við þegar fjármagn og aukið
lánsfé streymir inn í kerfið.
Bankar sjá um stöðugleika
Fyrir utan þetta hafa stjórnvöld litla
möguleika á að fikta með fjármál
ríkisins. Ekki er hægt að auka halla-
rekstur ríkissjóðs með seðlaprent-
un. Ekkert samband er á milli efna-
hagsstefnunnar og peningamagns
í umferð. Reyni stjórnvöld að auka
peningamagn í umferð með erlend-
um lántökum þegar samdráttur og
verðhjöðnun þjaka þjóðina bregð-
ast bankarnir við með því að taka
allt umfram fjármagn úr umferð og
lána það úr landi.
Taugaveiklun og fjármagnsflótti
úr bankakerfinu, sem lék með-
al annars bandaríska bankakerfið
grátt í eina tíð, hefur ekki gert vart
við sig í Panama. Saied segir jafn-
framt í grein sinni að fall eins banka
hafi ekki haft dómínóáhrif í landinu.
Aðrir bankar hafa einfaldlega keypt
eignir banka í nauðum, enda alltaf
fýsilegt að skoða vel það sem fæst á
góðu verði á brunaútsölum.
Hann bætir við að í Panama tíðk-
ist heldur engar tryggingar á inni-
stæðum og enginn gegni hlutverki
lánveitanda til þrautavara eins og
seðlabankar eigi að gera. Það er
heldur enginn seðlabanki til staðar
sem stígur fram á sviðið og lækkar
stýrivexti til að ýta undir lántökur
og auka með þeim hætti umsvif í at-
vinnulífi. Í raun verður þetta til þess
að verðhjöðnun er tíðari í landinu
en annars staðar og það sefar neyt-
endur segir Seied.
Hagvöxtur í Panama hefur verið
allt að 7 prósent undanfarin ár.
Augljóst má vera af þessu – seg-
ir Saied – að efnahagslíf án lögskip-
aðs gjaldmiðils, án seðlabanka og
án stöðugrar glímu við verðbólgu er
ekki aðeins mögulegt heldur einn-
ig raunverulegt í litlu landi eins og
Panama.
Spurning er hvort þetta haglíkan
gæti gengið á Íslandi og meðal fjöl-
mennari þjóða.