Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2009, Page 22
svarthöfði
Í yfirstandandi kreppu hefur Svarthöfði verið að leita leiða til að bæta úr lausafjárstöðu sinni. Möguleikar til tekjuaukningar
eru engir þannig að horfa þarf til ann-
arra leiða. Það var svo í gærmorgun að
hugurinn uppljómaðist. Sagt var frá
því í DV að Björgólfur Guðmundsson
hefði verið með einkar sniðugt fyrir-
komulag. Hann keypti banka og nokk-
ur fyrirtæki og lét allt spila saman.
Bankinn lánaði fyrirtækinu með veði
í öðrum fyrirtækjum. Þannig var hægt
að koma sparifé kenndu við Icesave
í gagnið á Íslandi. Og þarna opnast
möguleiki fyrir Svarthöfða til að lag-
færa lausafjárstöðuna. Vegna þess að
reksturinn er smár í sniðum þarf ekki
heilan banka inn í köngulóarvefinn.
Sparisjóður dugir. Þegar skotsilfur
er ekki til fyrir afborgunum af húsi
Svarthöfða þá einfaldlega leitar hann
eftir láni í sparisjóðnum. Veðhæfnin
á húsinu er engin þar sem það er veð-
sett langt upp fyrir rjáfur. Þess vegna
er kjörið að bjóða veð í garðinum sem
er skuldlaus. Sparisjóðurinn fagnar
þessu og lánið dettur inn á einka-
reikning Svarthöfða. Þegar frá líður
brenna þeir peningar upp. Bílalánið
er þiðnað eftir þriggja mánaða fryst-
ingu og enn þarf lán frá sparisjóðnum.
Svarthöfði
slær upp
fundi
með
sjálf-
um
sér
og
biður um peninga. Það er sjálfsagt en
vandinn er sá að bíllinn er veðsettur
upp fyrir loftnet. Eftir nokkrar rökræð-
ur við sjálfan sig um reglur sparisjóðs-
ins finnur Svarthöfði að eitthvað loðið
strýkst við fótlegg hans þar sem hann
situr í veðsettum garðinum. Þetta var
norski skógarkötturinn hans sem að
vanda sýndi hlýju og tryggð. Kötturinn
hafði kostað stórfé í góðærinu en var
hverrar krónu virði. Svarthöfði gerði
uppgötvun. Kötturinn var skuldlaus
og veðhæfur. Hann nefndi þetta um-
svifalaust við sjálfan sig og eftir nokk-
urt hugarþref samþykkti hann veðið
og náði að borga af bílaláninu.
Þannig hefur líf Svart-höfða
tekið miklum
stakka-
skiptum.
Hringrás peninganna er fullkomin og
áhyggjur af fjármálum standa aðeins
þá stuttu stund sem Svarthöfði er að
gera upp við sjálfan sig að lána Svart-
höfða með veði í Svarthöfða. Til að
sýna sjálfum sér fyrirhyggju hefur nú
verið farið yfir möguleg veð í eignum
Svarthöfða. Þar er af einu og öðru að
taka. Tjaldvagninn sem keyptur var í
miðju góðærinu er skuldlaus og full-
komlega veðhæfur. Þá má hugsa sér
að slá út á eiginkonuna með einum
eða öðrum hætti. Og ef allt fer í hnút
er samt til leið. Það fellur fullkomlega
að útlánareglum sparisjóðsins að taka
krossveð í norska skógarkettinum
og tjaldvagninum. Annað mögulegt
krossveð er síðan garðurinn og eig-
inkonan. Svarthöfði er sáttur við allar
sínar lánalínur en vonandi fer ekki
sparisjóðurinn á hausinn.
miðvikudagur 7. janúar 200922 Umræða
Köttur með Krossveð
spurningin
„Ég get ekki skammað hann því ég er
með lasið barn heima og hann þarf að
passa fyrir mig,“ segir Oddný
Sturludóttir, borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar. kári Sturluson,
bróðir Oddnýjar, er síður
en svo sáttur með
ríkisstjórnina og
sendi fjölmiðlum
afsökunarbeiðni
þess efnis að hann
harmaði mjög að
hafa kosið Samfylk-
inguna í síðustu
kosningum og vonar að
það verði öðrum
víti til
varnaðar.
ertu búin að
sKamma Kára?
sandkorn
n Syndajátning Bjarna Ár-
mannssonar, fyrrverandi for-
stjóra Glitnis, mælist víða vel
fyrir. Milljarðamæringurinn lagði
meira en 370 milljónir króna
inn í Glitni
þar sem
hann var að
greiða fyrir
laun sem
hann taldi of
mikil, í ljósi
hrunsins.
Stærstur
hluti afláts-
gjafarinnar, 300 milljónir króna,
hefur raunar brunnið upp á
tveimur mánuðum ef þær eru
settar í samhengi við framlög
Glitnis til Árvakurs. Vonast er
til að aðrir sjálfbjarga auðmenn
axli sína ábyrgð með svipuðum
hætti og leggi til samfélagsins
upphæðir í samræmi við vilja
og getu.
n Átökin um að fá Morgunblaðið
gefins standa sem hæst. Athygl-
isvert var að lesa grein Agnesar
Bragadóttur blaðamanns um
það hvern-
ig hún var
ritskoðuð.
Þar skýtur
hún föstum
skotum á ská
að núver-
andi ritstjóra
sínum, prúð-
menninu Ól-
afi Stephensen. Hún segir gömlu
ritstjórana, Matthías Johannes-
sen og Styrmi Gunnarsson vera
sem risa í sögu Moggans. Ekki
orð um Ólaf sem hún reyndar
hefur full tök á ef marka má um-
föllunarefni blaðamannsins.
n Náhirð Davíðs Oddssonar er
sögð vilja leggja allt undir til að
ná undir sig Mogganum og beita
blaðinu í Evrópuumræðunni.
Gangi yfir-
takan eftir er
einsýnt að
Evrópusinn-
inn Ólafur
Stephensen
mun fjúka.
Pískrað er
um að hugs-
anlegt sé að
Styrmir Gunnarsson muni hugs-
anlega snúa aftur um stundarsak-
ir. Einnig er nefndur sá mögu-
leiki að sjálfur Davíð Oddsson láti
verða af þeim gamla draumi sín-
um þegar hann fýkur sem seðla-
bankastjóri að verða ritstjóri.
n Erfiðleikar eru víðar en á
Mogganum. Þannig er Ari Ed-
wald, forstjóri 365, að leita leiða
til að minnka tap á útgáfu Frétta-
blaðsins.
Þannig mun
liggja fyrir
að útgáfu-
dögum þess
verði fækkað
og sunnu-
dagsblaðið
lagt niður.
Þá verður
blaðið skorið niður. Því fylgir að
fækkað verður á ritstjórninni.
Ekki er ólíklegt að einn ritstjóri
verði látinn duga. Þá má ljóst
vera að Þorsteinn Pálsson haldi
starfinu en óljóst er með afdrif
hins ritstjórans, Jóns Kaldal.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.iS
aðalnúmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 515 70 50.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Það er svo gaman að sjá
þig loksins, það er mikið
lán sem fylgir þér.“
n Móðir Björns Vagnssonar við Þráin Bjarnason
Farestveit, hetju DV 2008, sem bjargaði Birni úr
brennandi bíl. – DV
„Þetta snerist algerlega
um Kaupþing og mig.“
n Kristján Arason sem hefur sagt
upp störfum hjá Kaupþingi en
segir það ekki til þess að gera
eiginkonu sinni og
menntamálaráðherra, Þorgerði
Katrínu, léttara fyrir. – DV
„Ein byssa er alveg
jafnhættuleg og
þrjár.“
n Sigmar B. Hauksson,
formaður Skotvís, sem segir lög
um að eiga þurfi fleiri en þrjár byssur til að skylda
sé að eiga læstan byssuskáp út í hött. – DV
„Þetta er í það minnsta
fólk sem hefur viljað axla
meiri ábyrgð í
samfélaginu.“
n Sigmundur Ernir
Rúnarsson sem íhugar hvort
Stöð 2 sæki til saka
mótmælendur sem eyðilögðu útsendingarbúnað
á gamlársdag. Sama fólk og hefur krafist þess að
aðrir axli ábyrgð. – DV
„Þessar Torrent-síður eru
ekki að fara neitt og ekki
útgefendur heldur.“
n Páll Óskar Hjálmtýsson um
að sátt þurfi að nást milli
þessara tveggja aðila til
frambúðar. – Fréttablaðið
Leynd afhjúpuð
Leiðari
Fjölmiðlar á Íslandi hafa stundum funkerað í bandalagi. Umfjöllun ræðst af persónulegum ástæðum og fréttir eru stundum sagðar út
frá hagsmunum þeirra sem segja tíðindin.
Skólabókardæmi úr fortíðinni er mál tengt
alþingismanninum Árna Johnsen. DV opn-
aði málið en Morgunblaðið á þeim tíma
reyndi að loka því með yfirklóri. Þar mynd-
aðist sú togstreita milli fjölmiðla að annar
sagði sannleikann en hinn reyndi að breyta
málsatvikum. Farsællega náði DV að færa
fullar sönnur á málið sem að fullu var upp-
lýst. Fleiri mál frá sama tíma lýsa innbyggðri
spillingu fjölmiðla sem velta sér upp úr smá-
atriðum en sneiða hjá kjarna mála og raun-
verulegu inntaki. Sá tími var að DV var blygð-
unarlaust stýrt í þágu Sjálfstæðisflokksins.
Réttsýnn ritstjóri var rekinn fyrir flokksdindil
og viðhengi hans. Helsta starf þeirra manna
við stjórnvölinn var að ritskoða fréttir blaða-
manna svo þær féllu að smekk flokksins. Nið-
urlút ritstjórnin var rekin áfram eins og roll-
ur í þeim eina tilgangi að koma ritstjórunum
í mjúkinn hjá stjórnvöldum. Þaggað var
niður í röddum öryrkja en áróðri ráðherra
haldið hátt á lofti. Almenningur sá í gegnum
ósómann og gjaldþrot varð. Tilgangur blaðs-
ins má ekki vera annar en sá að varpa skýru
ljósi á atburði samfélagsins og svipta hulunni
af því sem á erindi við almenning.
Það fylgir þess háttar fjölmiðli að
margir vilja hann feigan. Ofbeld-
ismenn með fjármagn reyna það
sem þeir geta til að þagga niður í
miðlinum. Á það hefur reynt en
án árangurs. DV hefur það skýra
markmið að færa almenningi
upplýsingar, jafnvel gegn vilja yf-
irvalda eða hagsmunaaðila. Það
var gert þegar blaðið birti skýrslu
íslenskra stjórnvalda til Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins. Og það var gert
þegar DV tók að sér að efna lof-
orð ráðamanna Árvakurs um að
gagnsæi myndi ríkja við tilraun-
ir þeirra til að fá nýja fjárfesta að
Morgunblaðinu. Trúnaðarskýrsla
þeirra sem stjórna félaginu var birt og nú
geta allir Íslendingar séð hvað það er sem
þeir þurfa að greiða 150 milljónir króna fyrir
á mánuði. Tilgangur DV er, eins og lengst af,
sá að upplýsa fólkið í landinu og aflétta óeðli-
legri leynd.
reynir traustason ritstjóri sKrifar. Réttsýnn ritstjóri var rekinn fyrir flokksdindil.
bókstafLega