Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2009, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2009, Page 23
miðvikudagur 7. janúar 2009 23Umræða Hver er maðurinn? „guðmundur Steingrímsson.“ Hvað drífur þig áfram? „von um að geta látið gott af mér leiða.“ Uppáhaldstónlist? „Ég hlusta talsvert á tónlist og er að búa til tónlist. Einhverra hluta vegna er ég mikið að hlusta á plötuna okkar sem er að koma út. Hún er aðallega á fóninum. annað sem ég hlusta mikið á er nick Cave, Will Oldham og Fleet Foxes. Svo hef ég mjög gaman af Portishead, arcade Fire og morrissey. david Bowie er samt alltaf hetjan. Hvers vegna ertu að ganga til liðs við Framsóknarflokkinn? „Ég vil sjá þennan flokk rísa upp, byggðan á gömlum gildum sem ég held að eigi brýnt erindi við samfélagið. Þetta eru gildi sem eru mér ágætlega kunn um ákveðið öfgaleysi, skynsemi, félags- hyggju og samvinnustefnu. Ég held að frjálslyndishugsjónin eigi líka að vera eitthvað sem er lifandi í pólítíska landslaginu. Framsóknarflokkurinn er hefðbundinn málsvari þessara gilda. Hann hefur farið svolítið af leið og ég hef gagnrýnt það, en nú á að fara fram endurmat og endurreisn og ég iða í skinninu að fá að taka þátt í því. “ Hafði pabbi þinn áhrif á þessa ákvörðun? „við tölum mikið saman um pólitík, ég og pabbi. Ég hef alltaf farið mínar leiðir og hann sínar og hann hefur alltaf stutt mig. Okkar samræður um pólítík eiga mjög ríkan þátt í því að ég vel að fara í Framsókn. Ég elst upp við ákveðin tengsl við þennan flokk og bý yfir mikilli vitneskju um hans sögu. úrslitatímar eru fram undan í lífi þessa flokks, þá er það ríkur þáttur í mér sem segir að ég eigi að fara þarna yfir og taka þátt í þessum bardaga. Ef það mistekst er við hæfi að ég fari niður fyrir hönd ættbogans. En það verður ekki.“ Stefnirðu á að verða formaður flokksins, og jafnvel forsætisráð- herra þegar fram líða stundir, líkt og faðir þinn og afi? „Ég ætla bara að taka eitt skref í einu. Þessa stundina er ég að ganga frá vesturbæn- um og upp Hverfisgötuna og ganga í Framsókn. Ég ætla að láta það nægja í bili. Svo sjáum við til.“ Styður þú málSókn ÍSlendinga á hendur Bretum? „já, ég geri það. Ég held að það sé ekkert annað í stöðunni.“ GUðjón MaGnúSSon 25 ára í ÞjónuStudEild „já, ég bloggaði meira að segja um það. Ég vil ekki láta þá traðka á okkur.“ HelGa KriStjánSdóttir 74 ára Ekkja „jájá, þeir eiga það skilið.“ BirGir BirGiSSon 19 ára nEmi „já, ég geri það!“ Sindri StröM 15 ára vErSlunarmaður Dómstóll götunnar GUðMUndUr SteinGríMSSon tilkynnti í gær að hann væri genginn í Framsóknarflokkinn. Hann vill sjá flokkinn rísa upp byggðan á gömlum gildum og hlakkar til að takast á við það verkefni. Iðar í skInnInu „nei.“ davíð Þór SveinSSon 20 ára nEmi maður Dagsins Fjarlægðin gerir fjöllin blá og þjóðirn- ar einsleitar. Ísraelar verða Ísraelar og Palestínumenn verða Palestínumenn. Ekki kannski alveg svona einfalt því við erum búin að ná því að höfuðfylk- ingar Palestínumanna heita Fatah og Hamas. Síðarnefndu samtökin höfðu vinninginn í síðustu þingkosningum í Palestínu. Það líkaði hernámsliði Ísra- ela illa og neitaði að viðurkenna rétt- kjörna stjórn. Þá var mynduð þjóð- stjórn með sameiginlegri þátttöku Fatah og Hamas. Þeirri stjórn settu Ísraelar skilyrði, sem hún réð ekki við og sprakk hún því. Í kjölfar vopnaðra átaka á meðal Palestínumanna fór svo að Hamas fékk völd yfir Gaza en Fatah yfir Vesturbakkanum. Áfram var sorf- ið að Hamas. Aftur voru sett starfsskil- yrði sem ekki reyndist unnt að standa við. Svæðið var þá sett í herkví og nú hefur verið ráðist þar inn með hrika- legum afleiðingum. En hver skyldu vera skilyrðin sem sprengja allar stjórnir í Palestínu; skil- yrði sem jafnframt eru ísraelska her- námsliðinu skálkaskjól fyrir ofbeld- isaðgerðir? Þau eru að palestínsk yfirvöld viðurkenni tilvist Ísraelsríkis undanbragðalaust og komi jafnframt í veg fyrir allar árásir á Ísrael af pal- estínsku svæði. Hamas hefur einmitt verið borið á brýn að viðurkenna ekki tilvist Ísraelsríkis og virða ekki vopna- hlé. erindreki SÞ talar En er þetta rétt? Ekki telur Richard Falk svo vera, en hann er bandarísk- ur prófessor í alþjóðalögum, sérstak- ur erindreki Sameinuðu þjóðanna um mannréttindamál á palestínsku svæðunum. Hann fullyrðir að Ham- as hafi kappkostað að halda í heiðri samkomulag um vopnahlé sem Eg- yptar höfðu forgöngu um og lagt til að það yrði framlengt í áratug um leið og unnið yrði að framtíðarlausn sem byggðist á landamærum Ísra- els eins og þau voru fyrir 1967 en það er landamæralínan sem Sameinuðu þjóðirnar krefjast að verði virt. Með öðrum orðum, Hamas viðurkennir Ísrael og vill virða vopnahlé. Richard Falk segir vanda Ham- as margþættan. Þannig ráði Hamas ekki yfir öllum vopnuðum sveitum á Gaza svæðinu, til dæmis svokallaðri Baráttusveit al-Aqsa píslarvottanna, sem njóti stuðnings Fatah. Þessi sam- tök hafi að öllum líkindum staðið fyr- ir eldflaugaárásum á Ísrael til að grafa undan trúverðugleika Hamas. Hvað sem því líður, segir Falk að vopnahlé hafi að mestu verið virt fram til 4. nóv- ember þegar ísraelski herinn gerði skyndilega sprengjuárásir á meint hryðjuverkahreiður á Gaza. að deila og drottna Richard Falk telur að þetta hafi verið gert í ögrunarskyni enda hafi Ham- as fyrir sitt leyti reynt að standa við vopnahlésskilmála. Staðreyndin er sú að ísraelska hernámsliðið veit sem er, að með árásum og ögrunum er hægt að æsa upp harðdrægustu baráttusveitirnar. Við slíkar aðstæð- ur standa palestínsk yfirvöld jafnan frammi fyrir tveimur afarkostum: Að berja landa sína niður með vopna- valdi sem iðulega hefur leitt af sér innra stríð eða eiga á hættu innrás frá Ísrael. Í tímans rás hefur það bæði verið hlutskipti Fatah og Hamas að standa frammi fyrir þessum kostum. Rómverjar kölluðu þessa aðferð að deila og drottna. Staðreyndin er sú að eldflaugaár- ásir frá Gaza eru með heimatilbúnum skammdrægum flaugum sem hingað til hafa valdið sáralitlu tjóni og er eng- an veginn saman að jafna við vopna- búnað ísraelska hersins sem nú hefur brytjað niður 500 manns og er tekið til þess hve mörg börn hafi verið drepin í þessari síðustu árás. Á móti hafa sára- fáir Ísraelar verið vegnir. Pólitík, innan ríkis og utan Inn í þessa mynd þarf síðan að setja þá staðreynd að fyrir dyrum standa þingkosningar í Ísrael. Varnarmála- ráðherrann, Ehud Barak og utanrík- isráherrann, Tzipi Livni, er að sögn fréttaskýrenda umhugað um að sýna hörku og þá ekki síst í ljósi þess að stórnarnarandstæðingurinn og stríðsmangarinn, Netanyahu, sækir að þeim með ásakanir um linku. Allt þetta reifar Richard Falk í skýrslum sínum og bendir jafnframt á að skýr- ingin á því að Egyptaland, Saudi-Ar- abía og Jórdanía standi þögul hjá, sé sú að keppinautur þeirra í þessum heimshluta, Íran, sé jafnframt bak- hjarl Hamas. Þarna glittir með öðrum orðum í stórveldapólitík. Fórnarlömb slíkrar taflmennsku eru nú sem endranær, óbreyttir borg- arar, ekki síst börn. Fjölmiðlum ber að færa okkur gagnrýnar fréttaskýr- ingar sem varpa ljósi á hagsmuni í húfi. Með því móti verður atburðarás- in skiljanlegri og fordómar fjarlægari. Eða hve margir skyldu gera sér grein fyrir því að samkvæmt margendur- teknum skoðanakönnunum á yfir- gnæfandi meirihluti gyðinga í Ísra- el sér þann draum heitastan að lifa í friði með Palestínumönnum? Fórnarlömbin eru börnin kjallari svona er íslanD 1 Segist ekki vera að vernda Þorgerði kristján arason segist ekki hafa hætt hjá kaupþingi til að vernda stöðu Þorgerðar katrínar gunnarsdóttur, menntamálaráð- herra og eiginkonu hans. 2 útgáfudögum Fréttablaðsins fækkar leitað er leiða til að draga úr kostnaði við útgáfu fríblaðsins Fréttablaðsins. 3 Samviska Bjarna á við Yaris Bloggaranum Páli ásgeiri ásgeirssyni finnst lítið til þess koma að Bjarni ármannsson hafi endurgreitt glitni 370 milljónir. Hann segir þetta jafngilda því að ómenntaður starfsmaður hefði keypt toyota Yaris. 4 Glerfín í ræktinni dita von teese þykir ávallt hin glæsilegasta til fara, hún lætur sitt ekki eftir liggja þó hún sé á leið í ræktina. 5 Morðingi rhys jones barinn í fangelsi Sean mercer sem skaut hinn 11 ára rhys jones í liverpool var barinn í fangelsi. 6 Hægt að vopna þriðja hvern landsmann talið er að skráð og óskráð skotvopn á íslandi séu um 70 þúsund talsins. Það dugar þriðja hverjum landsmanni. 7 Fáránlega heit á fertugsaldrin- um – myndir jim Carrey datt í lukkupottinn þegar hann kynntist leikkonunni og fyrrverandi Playboy-fyrirsætunni jenny mcCarthy. mest lesið á dv.is öGMUndUr jónaSSon alþingismaður skrifar „Að berja landa sína niður með vopnavaldi sem iðulega hefur leitt af sér innra stríð eða eiga á hættu innrás frá Ísrael. Í tímans rás hefur það bæði verið hlut- skipti Fatah og Hamas að standa frammi fyrir þessum kostum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.