Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2009, Blaðsíða 25
miðvikudagur 7. janúar 2009 25Sport
Enginn Aron í dAg Íslenska landsliðið í handbolta leikur um þriðja sætið á æfingamótinu í Sví-
þjóð í dag eftir sigur á Egyptum í gær, 29-17. ungstirnið aron Pálmarsson verður ekki með í leiknum
vegna nárameiðsla en hann var einnig frá í sigurleiknum í gær. guðmundur guðmundsson landsliðs-
þjálfari staðfesti við dv í gær að aron yrði ekki með í dag en hann verður líklega klár á föstudaginn.
Þá mætir Ísland rúmeníu á öðru æfingamóti í danmörku. ragnar Óskarsson fær því aðrar sextíu
mínútur til að sanna sig en Ír-ingurinn knái lék allan leikinn gegn Egyptum í gær og stóð sig með
ágætum. Einar Hólmgeirsson er einnig frá vegna nárameiðsla en þess utan vantar sex leikmenn
í íslenska liðið, þar af fimm byrjunarliðsmenn, frá því á Ólympíuleikunum í Peking í sumar.
Fyrri helmingur Íslandsmótsins í
körfubolta, Iceland Express-deildar-
innar, var gerður upp á blaðamanna-
fundi á Carpe Diem við Rauðarárstíg
í gær. Var þar kynnt val sérstakr-
ar dómnefndar á bestu leikmönn-
um beggja deilda, bestu þjálfurum,
dugnaðarforkum, besta dómaran-
um ásamt því að úrvalslið deildanna
voru valin.
Hjá körlunum var KR-ingurinn
Jakob Örn Sigurðaron valinn bestur
en hann hefur leikið frábærlega með
KR í vetur fyrir meistarakandídatana
í Vesturbænum sem eru ósigraðir
eftir ellefu leiki. Fullkominn árang-
ur dugði Benedikt Guðmundssyni,
þjálfara KR, ekki til þess að vera val-
inn besti þjálfarinn en þann heiður
hlaut Einar Árni Jóhannsson, þjálf-
ari Breiðabliks. Eftir brösótta byrjun
vann Breiðablik sig upp töfluna og
hefur unnið fimm leiki það sem af er
móti. Dugnaðarforkurinn var valinn
Ísak Einarsson hjá Tindastóli.
Hjá konunum var Kristrún Sigur-
jónsdóttir, leikmaður toppliðs Hauka,
valin best en þjálfarinn var valinn Ari
Gunnarsson, þjálfari Hamars. Dugn-
aðarforkurinn var kjörinn Fann-
ey Lind Guðmundsdóttir, einnig úr
Hamri. Besti dómarinn var valinn
Sigurmundur Már Herbertsson.
tomas@dv.is
Uppgjör fyrri helmings Iceland Express-deilda karla og kvenna:
JAkob Örn og kristrún bEst
HvErsu HrAtt
kEmst bolt?
glen miller, þjálfari spretthlauparans
magnaða, usains Bolt, segir að Bolt
eigi nóg inni og muni hlaupa enn
hraðar á þessu ári. Hinn 22 ára Bolt
setti heimsmet í bæði 100 og 200
metra hlaupi á Ólympíuleikunum í
Peking síðasta sumar og hjálpaði
sveit jamaíka að vinna gullið í 4x100
metra hlaupi. miller telur að Bolt geti
bætt sig talsvert í startinu og hægt sé
að laga þrjú atriði fyrir komandi
tímabil. „við getum lofað því að
enginn mun stinga hann af í startinu
framvegis,“ sagði miller og bætti við:
„Ég veit ekki hversu hratt Bolt getur
hlaupið en ég veit að hann kemst
miklu hraðar af því við erum rétt að
byrja.“
gEtum
náð þrEnnu
john Terry, fyrirliði Chelsea, tekur ekki
í mál að liðið hans sé að gefa eftir og
segir að Chelsea geti unnið þær þrjár
keppnir sem eftir eru. Chelsea gerði
aðeins jafntefli gegn C-deildarliði
Southend í Fa-bikarnum á laugardag-
inn og var slegið háðulega út af
Burnley í deildarbikarnum í haust. En
Terry, sem er að klára sitt þriggja leikja
bann, sagði: „Hingað til hefur okkur
ekki gengið það illa. Það var velgjandi
að detta úr deildarbikarnum og við
drógumst aftur úr Liverpool en það er
hægt að laga það. við erum í 16 liða
úrslitum í meistaradeildinni og erum
ennþá í Fa-bikarnum. við þurfum að
spila betur en við getum unnið allar
þessar keppnir,“ sagði Terry minnugur
þess að Chelsea vann engan titil
2008.
HolyfiEld
vill mEirA
gamla hnefaleikakempan Evander
Holyfield, gæti fengið að eiga aftur
við rússneska risann nikolay valuev,
handhafa WBa-beltisins í þungavigt,
sem sigraði Holyfield á stigum eftir 12
lotur í hringnum. Bardaginn fór fram
20 desember og telur hinn 46 ára
Holyfield dómarana hafa „rænt“ sig
sigrinum með glórulausri stigagjöf.
WBa hefur sett saman nefnd til að
fara yfir málið. um ástæðu þess að
sambandið skoðar kröfu Holyfield af
alvöru sagði talsmaður WBa: „af
virðingu við skoðanir áhangenda og
fjölmiðla.“ almennt er viðurkennt að
frammistaða gamla meistarans hafi
komið mjög á óvart en það kom líka á
óvart að hann fengi tækifærið. WBa
er þekkt fyrir að ganga oft í berhögg
við viðurkennd álit boxheimsins og
kæmi því ekki á óvart ef annar
sirkusbardagi yrði skipulagður af sam-
bandinu í stað þess að leggja beltið
að veði gegn alvöru áskorendum.
umSjÓn: TÓmaS ÞÓr ÞÓrðarSon, tomas@dv.is / SvEinn WaagE, swaage@dv.is
úrvAlslið kArlA
n jakob Sigurðarson kr
n Cedric isom Þór
n jón arnór Stefánsson kr
n Páll axel vilbergsson grindavík
n Sigurður Þorsteinsson keflavík
úrvAlslið kvEnnA
n Slavica dimovska Haukar
n kristrún Sigurjónsdóttir Haukar
n Birna valgarðsdóttir keflavík
n Svava Ósk Stefánsdóttir keflavík
n Signý Hermannsdóttir val
Bestur jakob Örn Sigurðarson
hefur verið frábær með kr.
mynd Sigtryggur Ari
Egyptaland lagði sjálft silfurlið Íslands
örugglega á æfingamóti í Frakklandi
fyrir Ólympíuleikana á síðasta ári og
gerði svo jafntefli við okkar menn á
Ólympíuleikunum sjálfum. Það var
því ekki árennilegasti andstæðing-
urinn til að mæta eftir neyðarlegt tap
gegn B-liði Svía í fyrsta leik á æfinga-
mótinu í Svíþjóð sem landsliðið tekur
nú þátt í.
En eins og alltaf virðist vera þegar
íslenska liðið fær skell kom það sterkt
til baka og rústaði Egyptum með tólf
marka mun, 29-17, í gær. Gríðarlega
öflugur varnarleikur lagði grunninn
að sigrinum og frammistaða Björg-
vins Páls í markinu var einnig mögn-
uð.
Ákveðnir Íslendingar
Eftir fjórar mínútur var Björgvin Páll,
sem alls varði 19 skot í leiknum, bú-
inn að taka þrjá bolta og Ísland leiddi,
4-1. Einu hnökrarnir sem komu í leik
liðsins upp frá því kostuðu að for-
ystan var minnkuð í eitt mark, 5-4,
vegna brottvísana en eftir það leit
íslenska liðið aldrei til baka. Það var
ákveðið að vinna sigur í leiknum frá
upphafi til enda og þá er ekki á vísan
að róa fyrir andstæðinga Íslands.
Frábær vörn
Egyptar byggja sóknarleik sinn upp á
skotum fyrir utan og klippa mikið fyr-
ir skyttur sína svo þær komist í loftið.
Fótavinna og færsla íslensku varnar-
innar var eins og hún gerist best í gær
og minntu klippingar Egypta meira á
lélegan ballet en sóknarleik í hand-
bolta. Egyptar voru langt frá því jafn-
öflugir og þegar íslenska liðið mætti
þeim í síðustu tvö skipti og átti Ró-
bert Gunnarsson í litlum vandræð-
um með að stöðva skyttur þeirra en
Róbert þykir seint besti bakvörðurinn
í bransanum.
Pirraðir, grófir og leiðinlegir.
Munurinn í hálfleik var sex mörk,
14-8, og var seinni hálfleikurinn að-
eins spurning um hversu stór sig-
ur Íslands yrði. Egyptar gáfust fljótt
upp, pirruðust mjög og fóru að brjóta
gróflega á íslensku strákunum. Alls
fóru leikmenn Egypta þrisvar aftan í
hendur okkar stráka þegar þeir voru
komnir inn úr dauðafærum og í eitt
skiptið var Ásgeir Örn Hallgríms-
son sleginn af algjöru tilefnisleysi.
Sá ágæti maður sem gerði það baðst
ekki afsökunar heldur sendi Ásgeiri
fingurkoss sem skemmti ekki vara-
mannabekk íslenska liðsins. Hefndin
kom þó fram inni á handboltavellin-
um. Öruggur og góður tólf marka sig-
ur, 29-17.
Hamskipti
„Þetta var allt annað,“ sagði sáttur
þjálfari Íslands, Guðmundur Þ. Guð-
mundsson, við DV eftir leikinn í gær.
„Þetta voru bara hamskipti. Það var
allt annað sjá liðið bæði varnar- og
sóknarlega. Varnarlega byrjuðum við
mjög vel og brutum Egyptana niður
strax. Við fengum líka frábæra mark-
vörslu en Björgvin Páll varði helming
skotanna sem komu á markið og það
verður ekki mikið betra en það,“ sagði
Guðmundur sem var eðlilega tölu-
vert sáttari en eftir Svíaleikinn.
gerðum eins og á ÓL
Sóknarleikur Egypta var á löngum
köflum hreint vandræðalegur en ís-
lenska vörnin var alveg með á hreinu
hvað þeir höfðu upp á að bjóða. „Við
vorum búnir að skoða þá vel í tölv-
unni og vorum með allar þeirra leik-
aðferðir á hreinu,“ sagði Guðmundur.
„Við ákváðum að fara framar á móti
þeim og reyndum að gera eins og
á Ólympíuleikunum þar sem varn-
arleikurinn var hvað bestur,“ sagði
Guðmundur Guðmundsson lands-
liðsþjálfari.
Íslenska landsliðið í handknattleik kom sterkt til baka í gær eftir niðurlægjandi tap
gegn B-liði Svía og keyrði yfir Egypta á æfingamótinu í Svíþjóð. Allt annað var að sjá til
íslenska liðsins bæði í vörn og sókn, og áttu Egyptar aldrei möguleika gegn ákveðnum
Íslendingum. Ísland leikur um 3. sætið á mótinu.
„Þetta voru hamskipti“
íslAnd - EgyptAlAnd 29-17
mörk Íslands: Logi geirsson 11/4,
róbert gunnarsson 4, ragnar
Óskarsson 3, Þórir Ólafsson 3, vignir
Svavarsson 2, Sturla Ásgeirsson 2,
Ásgeir Örn Hallgrímsson 1, Sverre
jakobsson 1, Sigurbergur Sveinsson
1, rúnar kárason 1.
Varin skot: Björgvin Páll
gústavsson 19
tÓmAS ÞÓr ÞÓrÐArSOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Ákveðnir Íslenska liðið var ákveðið
bæði í sókn og vörn gegn Egyptum í
gær og vann sannfærandi sigur.