Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2009, Blaðsíða 30
miðvikudagur 7. janúar 200930 Fólkið
Eftir að auðmaðurinn og fyrrver-
andi bankastjóri í Glitni, Bjarni
Ármannsson, játaði mistök sín
í grein í Fréttablaðinu og í Kast-
ljósinu á mánudagskvöldið auk
þess að borga Glitni til baka
hluta af milljónunum sem hann
fékk greiddar í starfslokasamn-
ing hefur hópur fólks lýst yfir
stuðningi við hann á Facebook.
Sérstakur aðdáendaklúbbur hef-
ur nú verið stofnaður til heiðurs
Bjarna og segir meðal annars
á síðunni að meðlimirnir beri
virðingu fyrir manni sem taki
ábyrgð á gjörðum sínum. Þegar
þetta var ritað höfðu rúmlega
fjörutíu manns gengið til liðs
við aðdáendaklúbbinn. Að auki
hafði ríflega átta hundruð Face-
book-notendum til viðbótar ver-
ið boðið í klúbbinn og aldrei að
vita nema einhverjir úr fjöldan-
um þiggi boðið á næstu dögum.
Gott að hvíla
héGómann
„Það er svolítið táknrænt að hefja
nýjan kafla í lífi mínu í byrjun árs
2009,“ segir Sölvi Tryggvason, fyrr-
verandi þáttastjórnandi Íslands í
dag, sem óvænt var sagt upp störf-
um í lok árs eftir að
hafa nýlega tekið við ritstjórakyndl-
inum af Svanhildi Hólm Valsdóttur.
Sjónvarpsmaðurinn Sindri Sindra-
son og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir
voru ráðin til starfa og leit nýtt Ís-
land í dag dagsins ljós á
föstudaginn síðast-
liðinn.
„Tilfinn-
ingin er
ágæt,“
segir
Sölvi aðspurður hvernig það sé að
vera hættur í sjónvarpi. „Það er stutt
síðan ég hætti, ég er ekki enn farinn
að finna fyrir neinum söknuði. Ég lít
á þetta sem nýtt tækifæri. Nýjar dyr
opnast og möguleikarnir margir,“ út-
skýrir Sölvi og horfir bjartsýnn fram
á veginn.
Sölvi hefur unnið á fréttastofu
Stöðvar 2 í fjögur og hálft ár. Hann
hóf ferilinn í sumarafleysingum og
hefur síðan þá komið við sögu á hin-
um ýmsu stöðum innan fréttadeild-
arinnar þar á meðal í íþróttunum.
Síðastliðin tvö ár starfaði hann þó
sem þáttastjórnandi Íslands í
dag.
„Ég hef mjög gaman að því
vinna við fréttamennsku, sér-
staklega á þessum tímum,
en þessu starfi fylgir einn-
ig gríðarlegt álag og oft á
tíðum er það mjög erfitt.
Fylgikvillar þessa starfs eru
margir,“ segir Sölvi og bætir
við: „Ég hafði þó aldrei
hugsað mér að verða
ellidauður í þessu
starfi. Ég er hálfnað-
ur með meistara-
nám í fjölmiðla-
fræði. Kannski
klára ég
það
núna? Annars hef ég fengið heimboð
til fjögurra mismunandi landa og ég
gæti vel hugsað mér að nýta þau á
næstunni.“
Sölvi hefur nú þegar fengið nokk-
ur atvinnutilboð, þrátt fyrir hafa ver-
ið án vinnu í aðeins eina viku. Hann
segist ætla að taka sinn tíma í að líta í
kringum sig og viðurkennir að hann
gæti vel hugsað sér að vera í fríi í ein-
hvern tíma.
„Það er frábært að vera í fríi. Ég
ætla að vera sem allra duglegastur að
rækta líkama og sál. Það
var líka ágætt að
losna úr sjón-
varpi og hvíla
hégómann og
átta sig á því
að lífið snú-
ist um meira
en að vinna
á sjónvarps-
stöð á litlu
landi.“
hanna@dv.is
Brotthvarf Sölva Tryggvasonar, þáttastjórnanda Íslands í dag, úr sjónvarpi kom mörg-
um á óvart. Sölvi segir það tákrænt að hefja þennan nýja kafla í lífi sínu strax á nýju ári.
Hann er ekki enn farinn að sakna þess að vera á skjánum og segir fríið kærkomið.
Eins og tónleikagestum á Airwaves
2008 er ferskt í minni komust mun
færri að á tónleikum sænsku raftón-
listargrúppunar Familjen en vildu.
Tónleikarnir voru haldnir á Tungl-
inu en röðin á þá náði vel út fyrir
Grillhúsið á Tryggvagötu þegar hún
var sem lengst. Aðdáendur Familj-
en sem misstu af tónleikunum síð-
ast geta hins vegar glaðst því sveitin
spilar á NASA 6. febrúar.
Familjen sló rækilega í gegn með
laginu Det snurrar i min skalle á
síðasta ári. Myndband lagsins vakti
ekki síður mikla athygli en lagið
sjálft. Það var valið eitt af mynd-
böndum ársins af Pitchfork Media
og hlaut einnig sænsku Grammy-
verðlaunin.
Familjen er í raun bara eins
manns band sem er skipað Johan T.
Karlsson. Andreas nokkur Tilliand-
er kemur þó oft fram með Johan á
tónleikum og mun hann sennilega
fylgja kauða á klakann.
Miðasala á tónleikana hefst í
næstu viku á midi.is en miðaverð
og upphitunaratriði hafa ekki verið
tilkynnt ennþá. Ef eftirspurnin eftir
Familjen verður jafnmikil og á Air-
waves borgar sig að reyna tryggja
sér miða sem allra fyrst.
asgeir@dv.is
Familjen snýr aFtur
Johan T. Karlsson maðurinn
á bak við Familjen.
aðdáenda-
klúbbur
auðmanns
SænSka raftónliStarSveitin kemur aftur vegna mikillar eftirSpurnar:
Sölvi TryggvaSon:
Neytendafrömuðurinn Dr.
Gunni er orðinn langþreyttur
á peningaröflinu í landanum.
Þessu greinir hann frá á bloggi
sínu. „Fyrst var landið undir-
lagt í röfli um peninga. Hvað
allir væru að græða rosalega
mikið. Verg þjóðarframleiðsla
amma mín er pulsa. Dow Jones.“
Doktorinn segir þetta endalausa
hjal alveg jafnmikið núna nema
bara á hinum endanum. „Við
skuldum trilljón skrilljón eða
sjö ömmur með dýfu á mann
í þrjár kynslóðir, ó ó ó æ æ æ.
Dow Jones.“ Svar Dr.Gunna við
þessu vandamáli er einfalt, „Ég
segi: Troðið þessum peningum í
mínus eða plús upp í rassgatið á
ykkur. Persónugeriði vandann,“
segir Dr. Gunni og mælir með
því að fólk lesi um eitthvað upp-
byggilegra en peninga.
PeninGar
í rassi
Sindri Sindrason er tek-
inn við af Sölva í Íslandi í dag
Sölvi Tryggvason Fyrrverandi
þáttastjórnandi Íslands í dag. Hann
hefur nú þegar fengið atvinnutilboð
og ætlar að líta vel í kringum sig.