Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2009, Qupperneq 2
fimmtudagur 26. mars 20092 Fréttir
Fjarar undan KaupFélaginu
Blikur eru á lofti í rekstri Kaupfélags
Skagfirðinga í kjölfar bankahrunsins
og falls krónunnar. Samkvæmt árs-
reikningum KS fyrir árið 2007 námu
erlendar skuldir félagsins liðlega 6
milljörðum króna, þar af voru lán
í jenum nærri 2,7 milljarðar króna.
Miðað við gengisfall krónunnar
stendur það lán eitt og sér í 5,8 millj-
örðum íslenskra króna í dag. Önnur
lán félagsins í erlendri mynt hafa
einnig hækkað mismikið eftir gjald-
miðlum og má áætla að rúmlega 6
milljarða skuld í ársreikningi standi
nú í um 11 milljörðum króna.
Samanlagðar langtímaskuldir
gætu því verið um 15 til 16 milljarð-
ar króna í stað 10 milljarða.
Bankahrun veldur
búsifjum í Skagafirði
Í skýringum ársskýrslunnar kem-
ur fram að afborganir KS af lang-
tímaskuldum á þessu ári og næstu
þremur árum nemi alls um 7 millj-
örðum króna. Þessar afborgarn-
ir hafa hækkað að sama skapi með
gengisfalli krónunnar. Svo virðist
sem skuldirnar séu einkum bundn-
ar við dótturfélög KS, FISK Seafood
hf., Fóðurblönduna hf. og Íslenskar
sjávarafurðir, en ekki sjálft móður-
félagðið.
Síðan ársskýrslan kom út í apr-
íl í fyrra hafa KS og dótturfélög
þess tapað liðlega þriggja milljarða
króna hlut sínum í Kaupþingi. Árið
2007 var hluturinn langverðmæt-
asta eign KS og dótturfélaganna í
öðrum hlutafélögum. Athygli vekur
að KS átti sáralítinn hlut í Kaupþingi
árið 2006 og hefur því fjárfesting KS
í bankanum hafist skömmu áður en
lánsfjárkreppunnar tók að gæta fyr-
ir alvöru.
Reyndar átti KS eignir í 16 hlut-
deildarfélögum að verðmæti 6,3
milljarðar króna. Mestu verðmæt-
in liggja í liðlega 49 prósenta hlut í
Fjárfestingarfélaginu Felli ehf. en
bókfært verð hlutarins var í árs-
lok 2007 nærri 6 milljarðar króna.
Fell ehf. hét áður AB 48 ehf. sam-
kvæmt því sem Sigurjón M. Egils-
son upplýsti á vef Mannlífs um síð-
ustu áramót. Stjórnarmaður er einn,
Sigurjón Rúnar Rafnsson, aðstoðar-
kaupfélagsstjóri. Á árinu 2007 var
bókfært verð félagsins einn milljarð-
ur króna og eigið fé var tíu milljarð-
ar. Helsta eign Fells ehf. er AB 50 ehf.
sem aftur átti hlut í Straumi. Straum-
ur hefur nú fengið greiðslustöðvun
og hefur verið settur í hendur skila-
nefndar. Þannig hefur gríðarlegur
eignarhlutur KS og tengdra félaga
í Kaupþingi og Straumi þurrkast út
frá því ársskýrslan var birt fyrir tæpu
ári.
Flókin viðskipti
kaupfélagsstjórans
Svo er að sjá sem Fjárfestingarfélag-
ið Fell ehf. sé einnig í eigu FS3 ehf.
en það hefur sama heimilisfang og
Kaupfélag Skagfirðinga við Ártorg 1
á Sauðárkróki. Eini eigandi FS3 er
EST ehf. en það er í raun skamm-
stöfun á Eignarhaldsfélagi Sam-
vinnutrygginga. Um síðustu áramót
var á vef Mannlífs eigið fé FS3 ehf.
talið vera 5,4 milljarðar króna. At-
hygli vekur að í stjórn FS3 ehf. sátu
á þessum tíma Helgi S. Guðmunds-
son, einn helsti forkólfur S-hópsins
og fyrrum bankaráðsmaður í Lands-
bankanum, Ólafur Friðriksson og
Sigurjón Rúnar Rafnsson, aðstoð-
arkaupfélagsstjóri á Sauðárkróki.
Bæði Helgi og Ólafur sátu saman í
stjórn Samvinnusjóðsins.
Um 30 milljarða króna eign fyrr-
verandi tryggingarhafa í Samvinnu-
tryggingum átti að renna inn í Fjár-
festingafélagið Gift ehf., en þar var
Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri
KS, stjórnarformaður þar til hann
sagði skyndilega af sér í lok febrúar í
fyrra. Ætlunin hafði verið að rétthaf-
ar úr Samvinnutryggingum fengju
greidda út eign sína með hlutabréf-
um í Gift ehf.
Það fór allt á annan veg. Í desem-
ber fyrir rúmu ári varð Gift ehf.
fimmti stærsti eigandi Kaupþings
þegar félagið keypti hlutabréf í bank-
anum fyrir 20 milljarða króna. Lið-
lega tveimur mánuðum eftir kaupin
sagði Þórólfur Gíslason kaupfélags-
stjóri KS af sér sem stjórnarformað-
ur Giftar ehf. eins og áður segir.
Níu mánuðum síðar þurrkuðust 20
milljarðar Giftar út þegar Kaupþing
komst í þrot.
Eignir um 50 þúsund tryggingar-
hafa í gömlu Samvinnutryggingum
voru að engu orðnar.
Þess má geta að 10 félög sem öll
byrja á AB... ehf. eru með heimilis-
fang hjá Kaupfélagi Skagfirðinga að
Ártorgi 1 á Sauðárkróki.
Var efnahagslegt sjálfstæði
þjóðarinnar í hættu?
Fyrir tæpu ári síðan og innan við
tveimur mánuðum eftir afsögn sína
í Gift ehf. sagði Þórólfur Gíslason í
inngangsorðum ársskýrslu Kaup-
félags Skagfirðinga að blikur væru
á lofti í efnahagsmálum þjóðarinn-
ar. Verðbólga væri vaxandi, gengi
krónunnar hefði fallið, vextir væru
í hæstu hæðum og ekki væri enn
séð fyrir endann á óáran á erlend-
um fjármálamörkuðum. Hann bætti
við að fjárhagslegur styrkur KS,
burðaráss í atvinnustarfsemi hér-
aðsins, hefði vaxið á síðustu árum
og félagið væri því í stakk búið til að
mæta tímabundnum erfiðleikum.
En hann bætti við: „Mikilvægt er að
góð samstaða skapist í þjóðfélaginu,
svo komið verði í veg fyrir að raun-
veruleg hætta verði á að þjóðin glati
efnahagslegu sjálfstæði.“
Orðalag Þórólfs í ársskýrslunni
um mögulega hættu á að þjóðin
glati efnahagslegu sjálfstæði verður
að teljast athyglisvert í ljósi banka-
hrunsins tæpu hálfu ári síðar. DV
hefur ekki tekist að bera þessi orð
og fleira undir Þórólf þar sem hann
hefur legið veikur heima hjá sér
undanfarna daga.
Útibússtjóri Landsbankans
í stjórn KS
Í ársreikningi KS kemur meðal ann-
ars fram í efnahagsreikningi að var-
anlegar aflaheimildir eru metnar
tæpir 4,4 milljarðar króna bæði árin
2006 og 2007. Þetta kann að koma
spánskt fyrir sjónir þar sem veiði-
heimildir í þorski voru minnkaðar
um 30 prósent á miðju ári 2007.
Kvótaverð hefur hríðfallið að
undanförnu og af þeim sökum má
einnig gera ráð fyrir verulegri eigna-
rýrnun í ársreikningum fyrir árið
2008 sem birtir verða í næsta mán-
uði.
Í árslok 2006 var í reikningum
KS-samstæðunnar talin nærri 12
milljarða króna skammtímaskuld.
Ári síðar námu skammtímaskuld-
ir í sama lið aðeins um 1,1 millj-
arði króna. Á sama tíma eru ýmsar
Kaupfélag Skagfirðinga situr uppi með
stórfellt eignatjón vegna mikilla fjárfest-
inga í gjaldþrota bönkum og gríðarlegra
skuldabyrða í kjölfar gengisfalls krónunn-
ar. Bókfærð kvótaeign var óhreyfð milli
ára þrátt fyrir stórfelldan niðurskurð
þorskveiða. Þegar í apríl í fyrra taldi Þór-
ólfur Gíslason kaupfélagsstjóri hættu á
því að þjóðin gæti glatað efnahagslegu
sjálfstæði sínu.
Straumur hefur nú
fengið greiðslustöðvun
og hefur verið settur í
hendur skilanefndar.
Þannig hefur gríðar-
legur eignarhlutur KS
og tengdra félaga í
Kaupþingi og Straumi
þurrkast út frá því árs-
skýrslan var birt fyrir
tæpu ári.
Sauðárkrókur athygli vekur að Ásta Pálmadóttir, útibússtjóri Landsbankans á
sauðárkróki, er ritari stjórnar kaupfélagsins og kann því að vera vanhæf til að fást
við viðskipti milli Landsbankans og Ks.
Stjórn KaupfélagS
SKagfirðinga
11. apríl 2008
n Stefán Guðmundsson, formaður
n Bjarni P. Maronsson, varaformaður
n Ásta Pálmadóttir, ritari
n Pétur Pétursson
n Rögnvaldur Ólafsson
n Örn Þórarinsson
Hverjar voru reKStrarteKjurnar í fyrra?
n rekstrartekjur kaupfélags 4,5 milljarðar
n rekstrartekjur útgerðar og fiskvinnslu 4,8 milljarðar
n rekstrartekjur fóður- og áburðarsölu 4,1 milljarður
n rekstrartekjur annarra félaga 0,8 milljarðar
JÓhann hauKSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
afborganir langtímaSKulda KS
Kaupfélag, útgerð, fiskvinnsla, fóður- og áburðarsala.
Ljóst er að gríðarLegar afborganir af LangtímaLÁnum bíða KauPféLags sKagfirðinga Á afar erfiðu tímabiLi í efnahags-
Lífi þjóðarinnar. athuga ber að eKKi er teKið tiLLit tiL gengisfaLLs Krónunnar aLLt Árið í fyrra en ætLa mÁ að greiðsLu-
byrði LangtímaLÁnanna hafi þyngst um þrjÁ miLLjarða í Krónum taLið.
2009 2010 2011 2012
1,02
milljarðar
0,95
milljarðar
3,5
milljarðar
1,5
milljarðar