Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2009, Blaðsíða 32
fimmtudagur 26. mars 200932 Ættfræði
Kristján Þór Júlíusson
alþingismaður og fyrrv. bæjarstjóri
Kristján Þór Júlíusson alþingismaður
og fyrrv. bæjarstjóri á Dalvík, Ísafirði
og á Akureyri, hefur gefið kost á sér
sem formaður Sjálfstæðisflokksins á
landsfundi flokksins sem hefst í dag.
Starfsferill
Kristján fæddist á Akureyri 15.7. 1957.
Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1977,
fyrsta og annars stigs skipstjórnarprófi
frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík
1978, stundaði nám í íslensku og al-
mennum bókmenntum og lauk prófi
í uppeldis- og kennslufræði frá HÍ
1984.
Kristján var stýrimaður og skip-
stjóri á skipum frá Dalvík á árunum
1978-81 og á sumrin 1981-85. Hann
var kennari við Stýrimannaskólann á
Dalvík 1981-86 og við Dalvíkurskóla
1984-86, ritstjóri Bæjarpóstsins á Dal-
vík 1985-86, bæjarstjóri á Dalvík 1986-
94, bæjarstjóri Ísafjarðarkaupstaðar
1994-96 og Ísafjarðarbæjar 1996-97,
og bæjarstjóri á Akureyri 1998-2006,
jafnframt setu í bæjarstjórn, og hef-
ur verið alþingismaður Norðaustur-
kjördæmis fyrir Sjálfstæðisflokkinn
frá 2007.
Kristján hefur setið í bæjarstjórn
Akureyrar frá 1998 og hefur setið í
fjölda ráða og nefnda á vegum Akur-
eyrarbæjar. Hann sat í stjórn Útgerð-
arfélags Dalvíkinga hf. 1987-90, var
formaður stjórnar Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar hf. 1987-1992, sat í stjórn
Söltunarfélags Dalvíkur hf. 1987-93,
í stjórn Sæplasts hf. 1988-94, í stjórn
Togaraútgerðar Ísafjarðar hf. 1996-
97, var formaður stjórnar Samherja
hf. 1996-98, formaður stjórnar Lífeyr-
issjóðs starfsmanna Akureyrarbæj-
ar 1998-2007, í stjórn Eignarhaldsfé-
lagsins Brunabótafélags Íslands frá
1999, í stjórn Landsvirkjunar frá 1999,
í stjórn Fjárfestingabanka atvinnulífs-
ins, FBA, 1999-2000, í Ferðamálaráði
Íslands 1999-2003, formaður stjórnar
Lífeyrissjóðs Norðurlands 2000-2007,
í stjórn Fasteignamats ríkisins frá
2000, í ráðgjafanefnd Tölvuþjónustu
sveitarfélaga 1988-90, í stjórn Fjórð-
ungssambands Norðlendinga 1989-
90, í Héraðsráði Eyjafjarðar 1990-94,
í stjórn Slippstöðvarinnar hf, formað-
ur stjórnar Hafnasambands sveitarfé-
laga 1994-97, formaður stjórnar Ey-
þings 1998-2002, í stjórn Sambands
íslenskra sveitarfélaga 1998-2007,
situr í stjórn Byggðastofnunar, í mið-
stjórn Sjálfstæðisflokksins frá 2002 og
hefur verið formaður sveitarstjórnar-
ráðs Sjálfstæðisflokksins frá 2002. Þá
fór hann, ásamt Árna Sigfússyni, fyr-
ir Evrópuumræðu sjálfstæðismanna
nú í vetur.
Kristján situr í fjárlaganefnd Al-
þingis og iðnaðarnefnd Alþingis, og
situr á þingi Norðurlandaráðs.
Fjölskylda
Eiginkona Kristjáns er Guðbjörg
Ringsted, f. 12.1. 1957 myndmennta-
kennari. Foreldrar Guðbjargar: Bald-
vin Gunnar Ringsted, f. 23.10. 1914,
d. 27.12. 1988, tannlæknir, og Ágústa
Sigurðardóttir Ringsted, f. 3.8. 1925, d.
27.8. 2003, húsmóðir.
Börn Kristjáns og Guðbjargar eru
María, f. 12.8. 1984, nemi í spænsku
við HÍ; Júlíus, f. 15.12. 1986, lækna-
nemi við HÍ; Gunnar, f. 16.7. 1990,
nemi við MA; Þorsteinn f. 15.1. 1997,
grunnskólanemi.
Systkini Kristjáns eru Sigvaldi, f.
7.7. 1952, útvarpsþulur, búsettur í
Reykjavík; Ásgeir Páll, f. 26.7. 1961,
viðskiptafræðingur í Danmörku.
Foreldrar Kristjáns: Júlíus Kristj-
ánsson, f. 16.9. 1930, búsettur á Dal-
vík, og Ragnheiður Sigvaldadóttir, f.
5.5. 1934, fyrrv. skjalavörður á Dalvík.
Ætt
Júlíus er sonur Kristjáns Eldjárn, b.
og sjómanns í Nýjabæ á Dalvík sem
er fyrsta íbúðarhúsið í plássinu, byggt
1899, bróður Jónínu, langömmu Jóns
Hjaltasonar, sagnfræðings á Akur-
eyri. Kristján var sonur Jóns, útgerð-
armanns, póststjóra og frumbyggja á
Dalvík, hálfbróður Sigurðar Draupn-
isformanns, afa Sigursteins, forstjóra
SÍS í Edinborg, föður Magnúsar Magn-
ússonar, dagskrárgerðarmanns hjá
BBC og rektors Edinborgarháskóla,
föður Sallýjar, fréttakonu á BBC. Jón
var sonur Sigurðar, skipstjóra á Bögg-
visstöðum og síðan hreppstjóra á
Hálsi í Svarfaðardal Jónssonar. Móð-
ir Kristjáns var Rósa, systir Steinþórs,
langafa Bernharðs Haraldssonar,
fyrrv. skólameistara VMA, og Sigurð-
ar J. Sigurðssonar, fyrrv. forseta bæj-
arstjórnar Akureyrar. Annar bróðir
Rósu var Kristján, afi Björns Jónsson-
ar, forseta ASÍ og ráðherra. Systir Rósu
var Þórey, móðir Steinþórs, fyrrv.
kaupmanns í Vörubæ. Rósa var dótt-
ir Þorsteins, b. á Öxnhóli í Hörgárdal
Þorsteinssonar, Sigurðssonar, bróður
Rósu, ömmu Vilhjálms Stefánssonar
landkönnuðar. Móðir Rósu í Nýjabæ
var Kristín Kristjánsdóttir.
Móðir Júlíusar var Þórey Frið-
björnsdóttir, útvegsb. í Efstakoti á
Upsaströnd Gunnarssonar, b. í Efsta-
koti Jónssonar. Móðir Friðbjörns var
Þórey Jónsdóttir. Móðir Þóreyjar var
Hólmfríður Sveinsdóttir, b. í Sjöunda-
koti í Fljótum Jónssonar.
Ragnheiður er dóttir Sigvalda frá
Upsum, skipstjóra, bróður Magnúsar,
afa Magnúsar Gauta kaupfélagsstjóra.
Systir Sigvalda var Rósa, móðir Magn-
úsar Péturssonar píanóleikara. Sig-
valdi var sonur Þorsteins, útvegsb. á
Upsum, bróður Helga, afa Atla Rúnars
og Jóns Baldvins Halldórssona frétta-
manna. Þorsteinn var sonur Mín-
ervu-Jóns, sjómannafræðara á Hofi
og Upsum Magnússonar. Móðir Þor-
steins var Rósa Sigríður, systir Snjó-
laugar, móður Jóhanns Sigurjónsson-
ar skálds og ömmu Sigurjóns, fyrrv.
lögreglustjóra í Reykjavík, föður Jó-
hanns, forstjóra HAFRÓ, en systir Sig-
urjóns var Ingibjörg, móðir Magnúsar
hjá BBC. Snjólaug var einnig lang-
amma Benedikts Árnasonar leikstjóra
og langamma Stefáns Gunnlaugs-
sonar, fyrrv. bæjarstjóra í Hafnarfirði,
föður Guðmundar Árna, sendiherra
og fyrrv. alþm. og bæjarstjóra. Bróðir
Rósu Sigríðar var Þorsteinn, útvegsb.
á Krossum, afi Margrétar, ljósmóð-
ur á Hléskógum, ömmu þeirra Sam-
herjabræðra og frænda, Þorsteins og
Kristjáns Vilhelms Vilhelmssona, og
Þorsteins Más Baldvinssonar. Rósa
Sigríður var dóttir Þorvalds, b. á Kross-
um á Árskógsströnd, Gunnlaugsson-
ar, ættföður Krossaættar Þorvalds-
sonar. Móðir Sigvalda var Anna Björg,
dóttir Benedikts Jónssonar úr Keldu-
hverfi og Hólmfríðar Gísladóttur, b. á
Þorvaldsstöðum á Langanesströnd
Sveinssonar.
Móðir Ragnheiðar var María,
dóttir Jóhanns, b. á Syðri-Haga á Ár-
skógsströnd Jóhannssonar, b. þar
Einarssonar. Móðir Jóhanns yngra var
Sigríður Jensdóttir Buck frá Húsavík.
Móðir Maríu var Lára, dóttir Gissurar,
bátasmiðs í Ytri-Skjaldarvík Gissur-
arsonar og Maríu Jónsdóttur frá Efri-
Dálksstöðum.
Páll fæddist á Dynjanda í Jökulfjörð-
um og ólst þar upp til átján ára aldurs
en flutti þá að Bæjum á Snæfjalla-
strönd með foreldrum sínum. Páll
var í farskóla í Grunnavíkurhreppi.
Hann var á vertíð 1946-57 frá Djúpi
og á Suðurnesjum.
Páll hóf búskap í Bæjum 1957 og
var þar bóndi til 1995 er hann brá
búi sem síðasti bóndinn á Snæfjalla-
strönd.
Fjölskylda
Páll kvæntist 31.5. 1958 Önnu Jónu
Magnúsdóttur, f. 5.6. 1934, frá Þverá í
Ólafsfirði. Anna Jóna er dóttir Magn-
úsar Sigurðssonar, f. 25.8. 1891, d.
26.8. 1974, og Ásu Sæmundsdóttur, f.
7.11. 1891, d. 4.12. 1984, en þau voru
bændur á Þverá.
Börn Páls og Önnu eru Kristinn
Arnar, f. 5.11. 1956, en kona hans er
Hrönn Þórarinsdóttir, f. 16.1. 1958;
Rebekka Jóhanna, f. 10.3. 1959 en
maður hennar er Pétur Ingi Ásvalds-
son, f. 5.3. 1957; Magnús Ási, f. 1.12.
1963; Haraldur Bjarmi, f.10.6. 1976
en kona hans er Hrönn Eiríksdóttir.
Systkini Páls: Jóhanna, f. 4.4. 1926,
d. 1932; Óskar, f. 1.11. 1927, d. 1.2.
1993; Rósa, f. 5.7. 1930; Ingi, f. 19.1.
1932; María, f. 29.10. 1934; Felix f. 9.7.
1936; Jóhanna, f. 8.12. 1938.
Foreldrar Páls eru Jóhannes Ein-
arsson, f. 14.5. 1899, d. 6.6. 1981, og
Rebekka Pálsdóttir, f. 22.11. 1901, d.
28.11. 1984, bændur á Dynjanda og
síðan í Bæjum.
Ætt
Jóhannes var sonur Einars Bærings-
sonar og Engilráðar Benediktsdótt-
ur frá Dynjanda. Rebekka var dótt-
ir Páls Halldórssonar og Steinunnar
Jóhannesdóttur frá Bæjum, síðan á
Höfða í Grunnavíkurhreppi.
Páll Halldór Jóhannesson
fyrrv. bóndi í bæjum á snæfjallaströnd
Sigurlaug Rósa sem er að ljúka
dönskunámi við HÍ er þrítug í dag.
Hún hefur gaman af afmælum, sér-
staklega sínum eigin, er hrifin af
bleikum lit, er búin að hlakka mikið
til afmælisins og verður með afmæl-
ispartí á Sólon, 2. hæð, í kvöld milli
kl. 20.00 og 24.00.
„Já, já, ég held alltaf upp á afmæl-
in mín, að minnsta kosti með kökum
fyrir fjölskylduna og vandamenn.
Þegar ég varð tvítug var ég með
veislu úti í bæ og eins þegar ég varð
tuttugu og fimm ára. Það kom þess
vegna ekkert annað til greina en að
halda svona upp á afmælið núna.
Þetta er líka mjög praktískt og alls
ekki svo dýrt, í stað þess að vera að
bjóða öllum heim til sín. Svo getur
fólk bara haldið áfram að skemmta
sér á staðnum, eða þá farið á pöbb-
arölt. Liðið er alla vega komið í bæ-
inn og búið að taka úr sér hrollinn.“
En er allt til reiðu fyrir veisluna?
„Já, það má segja það. Ég er búin
að vera að stússast í dag, kaupa
snakk og svoleiðis. Ég verð með
bleikt þema í boðinu: Allir verða
að koma í einhverju bleiku, strák-
arnir líka, til dæmis bleikri skyrtu
eða með bleikt bindi. Síðan verður
keppni í því hver útfærir best bleika
litinn. Dómararnir í keppninni
verða maðurinn minn, hann Stein-
ar Bragi, og litli bróðir minn, Krist-
ján Freyr Kristjánsson, sem einnig
er veislustjóri. Keppendum er hins
vegar frjálst að múta dómurunum
ef þeir vilja. Svo er auðvitað aldrei
að vita nema að maður fái einhverja
óvænta og skemmtilega uppákomu.
Þetta leggst alla vega vel í mig. Ég
held að þetta verði bara fínt afmæl-
ispartí.“
80 ára í dag
Sigurlaug Rósa þrítug:
bleikt afmælisþema á sólon
30 ára
n Sanne Hendrikje van der Wiel Grenimel 9,
Reykjavík
n Guðmundur Birgir Kiernan Fellsmúla 7, Reykjavík
n Darius Daniel Martin Jaðarseli 8, Borgarnesi
n Anna Stoch Hátúni 6, Reykjavík
n Kjartan Ari Jónsson Mávahlíð 13, Reykjavík
n Benedikt Hjalti Sveinsson Sólvallagötu 38c,
Reykjanesbæ
n Dagný Huld Hinriksdóttir Flókagötu 62, Reykjavík
n Stefanía Sigfúsdóttir Hvassaleiti 34, Reykjavík
n Thelma Ólafsdóttir Seljalandsvegi 69, Ísafirði
n Anna Björk Þorvarðardóttir Laugarbraut 8,
Akranesi
n Ásbjörn Stefánsson Njálsgötu 79, Reykjavík
n Pálmi Sigurðsson Efstahjalla 1b, Kópavogi
n Jóhann Friðrik Friðriksson Háaleiti 29,
Reykjanesbæ
n Hinrik Ingi Guðbjargarson Klappakór 4, Kópavogi
n Bjarki Þór Jónsson Brekkubraut 29, Akranesi
n Ársæll Freyr Hjálmsson Hraunbæ 98, Reykjavík
40 ára
n Rodrigo V. C. Corcuera Gyðufelli 4, Reykjavík
n Jaroslaw Slawomir Lenski Laufrima 18, Reykjavík
n Þuríður Unnarsdóttir Eskivöllum 9a, Hafnarfirði
n Guðbjörg Halldórsdóttir Lækjasmára 98,
Kópavogi
n Gunnar Hermannsson Háholti 15, Reykjanesbæ
n María Guðmundsdóttir Þrastarhöfða 3,
Mosfellsbæ
n Anna Sigríður Brynjarsdóttir Fagrahjalla 42,
Kópavogi
n Elín Davíðsdóttir Höfðaholti 5, Borgarnesi
n Sigríður Björg Haraldsdóttir Túngötu 15, Grenivík
n Gréta Björk Eyþórsdóttir Tröllagili 2, Akureyri
n Helga Steinunn Torfadóttir Flókagötu 18,
Reykjavík
n Þorbjörg Bjarnadóttir Víðimel 64, Reykjavík
n Margrét Jóhanna Jóhannsdóttir Sæviðarsundi
49, Reykjavík
n Aðalheiður Sigtryggsdóttir Borgarhlíð 4d,
Akureyri
n Stella Björk Guðjónsdóttir Akurbraut 17, Njarðvík
n Sigurður Gíslason Háarifi 91b Rifi, Hellissandi
50 ára
n Unnur Heba Steingrímsdóttir Litlakrika 28,
Mosfellsbæ
n Hrafnhildur Sigurbergsdóttir Gvendargeisla 21,
Reykjavík
n Óskar Knudsen Fannafold 122, Reykjavík
n Anna Steinunn Ágústsdóttir Sjafnargötu 10,
Reykjavík
n Anna Heiða Reynisdóttir Þverholti 3,
Reykjanesbæ
n Sigurgeir Þór Bjarnason Tjarnabraut 16, Njarðvík
n Þorfinnur Þ Guðbjartsson Burknavöllum 1c,
Hafnarfirði
n Jónas Pétur Bjarnason Ásgerði 4, Reyðarfirði
n Elísa Guðrún Ragnarsdóttir Dalhúsum 67,
Reykjavík
n Rúnar Már Sverrisson Bólstaðarhlíð 12, Reykjavík
n Hallgrímur Stefánsson Kringlumýri 2, Akureyri
60 ára
n Guðrún Júlíusdóttir Suðurtúni 19, Álftanesi
n Kolbrún Sigríður Hilmarsdóttir Hringbraut 71,
Reykjavík
n Sólveig Pálsdóttir Prestsbakkakoti, Kirkjubæjarkl.
n Gylfi Pálsson Bakkahlíð 4, Akureyri
n Alma Vestmann Heiðarbraut 7i, Reykjanesbæ
n Smári Kristjánsson Stekkholti 17, Selfossi
n Höskuldur H Dungal Réttarseli 7, Reykjavík
n Ragnheiður Brynjólfsdóttir Dalsbyggð 8,
Garðabæ
n Anton Antonsson Súluhöfða 24, Mosfellsbæ
70 ára
n Aðalbjörg Jóna Sigfúsdóttir Hólsvegi 9b, Eskifirði
n Sólveig Guðmundsdóttir Skipagerði 1, Hvolsvelli
75 ára
n Sigríður Tómasdóttir Grænuhlíð 26, Reykjavík
n Sigurbjörn H Ólafsson Ásbraut 13, Kópavogi
n Svana Svanþórsdóttir Ásbraut 21, Kópavogi
80 ára
n Ragnheiður Tryggvadóttir Skógarseli 43,
Reykjavík
n Áslaug Andrésdóttir Safamýri 29, Reykjavík
n Hallfríður Elín Pétursdóttir Frostafold 6,
Reykjavík
85 ára
n Fjóla Bjarnadóttir Kirkjuvegi 5, Reykjanesbæ
90 ára
n Einar Ólafsson Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík
n Sigurbjörg Sveinsdóttir Snorrabraut 56, Reykjavík
100 ára
n Georg Ólafsson Silfurgötu 13, Stykkishólmi
Til
hamingju
með
afmælið!
fólk í fréTTum
Sigurlaug Rósa Guðjónsdóttir Hér er afmælisbarnið með bræðrum sínum – og
allir í bleikum nærfötum.