Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2009, Blaðsíða 31
fimmtudagur 26. mars 2009 31Umræða
Hver er konan „Ásdís rán gunnars-
dóttir.“
Hvað drífur þig áfram?
„metnaður og ákveðni og þrá til að
komast lengra í dag en í gær.“
Hvar ólstu upp? „Á Egilsstöðum, Höfn
og í reykjavík.“
Hvar finnst þér best að vera? „mér
finnst best að vera á ferð og flugi. Ég er
ekki enn búin að finna mér stað sem
mig langar að vera á.“
Ertu búin að læra einhverjar
búlgörsku? „Já, já, ég er búin læra
einhverja búlgörsku eins og góðan
daginn og sæll. Ég hef ekki lagt á mig
að reyna að læra þetta tungumál því ég
veit ekki hvað ég stoppa lengi hérna.“
Hvernig heldur þú þér í góðu
formi?
„Ég stunda líkamrækt þrisvar til fimm
sinnum í viku og ég borða hollan mat.
Ég leyfi mér fullt en ég borða ekki pitsu
eða skyndibita. Ég leyfi mér frekar
góðan eftirrétt.“
Af hverju eru Búlgarar svona
hrifnir af ljóshærðum konum? „Það
eru ekkert bara Búlgarar. Það er bara
áhugi í þessum hluta heimsins. Hérna
er töluvert dekkra fólk og húðtónninn
minn og hárlitur er það sem þeir kalla
exótískt hérna.“
Ef þú fengir þrjár óskir uppfylltar,
hvers myndirðu óska þér?
„Heimsfriðar, endaloka hungursneyðar
í heiminum og billjónar dollara fyrir
mig.“
Hvar sérðu þig eftir fimm ár? „Ég sé
mig á framandi stað og vonandi búna
að byggja upp tölvuert stærra veldi og
búna að koma mér vel fyrir einhvers
staðar með fjölskyldunni.“
Þú gerðir nýlega einn stærsta
módelsamning í Búlgaríu. Hvað
tekur við næst? „Ég er búin að fá
ansi mörg símtöl í dag. Íslendingar fá
að fylgjast með öllu á nýju vefsíðunni
minni. Hlutirnir gerast á hverjum degi
hjá mér. Ég get ekki ekki áætlað um
framtíðina. Það er allt svo fljótt að
gerast hjá mér. “
Hver vinnur formannsslaginn í sjálfstæðisflokknum?
„mér er bara alveg sama.“
HjAlti HrAfn HAfÞórsson
26 Ára nEmi Í HEimspEki
„Ég verð nú að segja að ég fylgist ekki
alveg nógu vel með því.“
ElmAr orri GunnArsson
20 Ára nEmi
„Bjarni Ben.“
Hrönn HArðArdóttir
45 Ára sÉrfræðingur
„Það verður Bjarni. Þetta er glæsilegur
maður.“
mArGEir inGólfsson
80 Ára EftirlaunaÞEgi
Dómstóll götunnar
Ásdís rÁn GunnArsdóttir
gerir það heldur betur gott í Búlgaríu.
Hún var valin kynþokkafyllsta
ljóshærða konan á dögunum af
búlgörskum fjölmiðlum og hún gerði
einn stærsta módelsamning í
Búlgaríu fyrr og síðar.
Langar að byggja
upp stórveLdi
„Ég verð bara að segja að ég veit ekki
einu sinni hverjir eru í framboði.“
siGrún GunnlAuGsdóttir
20 Ára nEmi
maður Dagsins
Í Sjálfstæðisflokknum er armur sem
kenna má við heimastjórn eða sjálf-
stæði.
Hugtök eins og sjálfstæði, þjóð-
erni, fullveldi, full yfirráð yfir auð-
lindum, einstaklings- og atvinnu-
frelsi, þjóðleg menning og stétt með
stétt skiptir þennan arm afar miklu
máli.
Þess vegna myndar fólk heima-
stjórnar- og sjálfstæðisafl í Sjálf-
stæðisflokknum.
Forystumenn Sjálfstæðisflokks-
ins eru meðvitaðir um þessi gildi og
líka hinir sem vilja taka forystu þar.
Menning og gildi eru ekkert of-
urafl sem ákvarðar lífshlaup okkar
í smáatriðum. Þegar vel er að gáð
lýsa hugtökin menning og gildi eins
konar ramma eða farvegi sem hátta-
lag okkar og venjur falla inn í. Þessi
rammi er mannanna verk og er í sí-
felldri mótun nýrra kynslóða. Um
leið og við endurkveðum menningu
fyrri kynslóða með gjörðum okkar; í
vísindum, bókmenntum, stjórnmál-
um, verkkunnáttu og heimilishaldi,
stundum við jafnframt nýsköpun á
öllum sviðum og fetum okkur án af-
láts áfram á breytingaleið inn í fram-
tíðina.
fiskur og lambakjöt
Kannski er þetta dálítið hátíðleg
umræða um heimastjórnararm
Sjálfstæðisflokksins og hinn flokks-
arminn sem telur að sjálfstæðis-
og þjóðernishyggjan gegn ESB hafi
komið þjóðinni hálfa leið til heljar.
Ekki skal gert lítið úr þessum gild-
um enda engin ástæða til, því þau
munu ráða mestu um niðurstöðu
landsfundar Sjálfstæðisflokksins um
tengslin við samfélag þjóðanna.
Þessi heimastjórnargildi eru í
rauninni grunntónn rótgróinnar
sjálfsmyndar. Íhaldssöm sjálfsmynd
heimastjórnararmsins togast á við
nýja sjálfsmynd og nýja hagsmuni
sem eiga sér engin landamæri. Nýi
skilningurinn snýr gömu gildunum
á haus: Við tryggjum sjálfstæði okk-
ar og fullveldi með því að deila því
með vinum okkar og nágrönnum.
Hagsmunirnir eru ekki lengur fisk-
ur og lambakjöt heldur menning,
stjórnmál, tækni, alþjóðleg viðskipti
og öryggi herlausrar þjóðar í banda-
lagi við aðrar þjóðir. Við gjöldum
fyrir þá þráhyggju að vilja ævinlega
standa ein. Aðeins í krafti samvinnu
við aðrar þjóðir höldum við efna-
hagslegu sjálfstæði. Við þurfum ekki
frekari sannanir.
séreignarréttur ofar öllu
Sem fyrr skiptir einkaframtakið og
séreignarrétturinn sjálfstæðismenn
miklu máli eins og fram mun koma á
landsfundi flokksins sem hefst í dag.
Hugmyndafræðin er einföld: Íslend-
ingar fengu langþráð sjálfstæði 1944.
Sjálfstæðið og fullveldið voru not-
uð til að tryggja yfirráð þjóðarinn-
ar yfir auðlindum. Þorskastríðin og
allt það. Auðlindir skapa því aðeins
hagvöxt og hámarks arð fyrir þjóðar-
heildina ef þær eru í höndum einka-
fyrirtækja og einkaframtaks. Því ber
að nota sjálfstæðið, fullveldið og
þar með ríkis- valdið til þess
að tryggja að
auðlindirnar
verði nýttar
af einkaað-
ilum. Helst
eiga þeir
að njóta
hámarks-
frelsis til
þess arna og
sem minnst-
ra skatta.
Þannig er
sjálfstæðismönn-
um eðlilegt að fylkja
sér um sjálfstæði,
auðlindavörslu, einkaeign
og atvinnufrelsi. Flokkur-
inn hefur beitt ríkisvaldinu
til þess að tryggja sérhags-
muni, jafnvel með slíkum
þunga, að flokknum hef-
ur þótt við hæfi að víkja til hliðar
mannréttindum í hagsmunagæslu
fyrir kvótagreifana.
lítilla breytinga að vænta
Líklegasta niðurstaða landsfund-
ar Sjálfstæðisflokksins um stærsta
átakamál samtímans, nýjan gjald-
miðil og nýja tegund af sambandi
við nágranna okkar og helstu við-
skiptavini, er eftirfarandi:
Hagsmunir útgerðar og landbún-
aðar verða teknir fram fyrir þá brýnu
heildarhagsmuni þjóðarinnar að
samþykkja aðildarumsókn að ESB
og stefna einarðlega að upptöku evru
til að tryggja þann stöðugleika sem
þjóðin þarf svo sárlega á að halda.
Íslenskur útvegur á enn um sinn að
geta sölsað undir sig veiðikvóta ná-
grannalanda án þess að þau fái að
njóta jafnræðis og gagnkvæmni.
Landsfundarfulltrúar voga sér hins
vegar ekki að fara gegn tillögum um
að einhver útgáfa af þessu Evrópu-
málinu verði lögð í dóm þjóðarinnar
í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það þætti
tilræði við lýðræðið og kæmi illa við
ímynd flokksins ef hann á sama tíma
hafnar því á Alþingi að greiða fyrir
persónukjöri með einföldum
lagabreytingum.
Einangrunarsinnar í Sjálfstæðisflokki
kjallari
svona er íslanD
1 stórskuldugir stjórnendur
íslandsbanka
fjórir framkvæmdastjórar hjá gamla
glitni fengu 2,6 milljarða króna kúlulán í
maí í fyrra til að kaupa hlutabréf í
bankanum.
2 Varð beðinn um að taka
myndbandið út
myndbandið Játning mín til Hildar, sem
birt var á vefsíðunni Youtube, vakti
óskipta athygli.
3 netníðingar leggja börn í
einelti
fjölmörg íslensk börn hafa verið og eru
beitt grófu andlegu ofbeldi í gegnum
vefsíðuna ringulreid.org.
4 rekin vegna framboðs
Vigdís Hauksdóttir þurfti að hætta
störfum sem lögfræðingur hjá asÍ eftir að
hún tók oddvitasæti hjá framsóknar-
flokknum.
5 Hrint af hjólinu
Jóhann sigmarsson kvikmyndagerðar-
maður mjaðmagrindarbrotnaði þegar
honum var hrint á hjóli.
6 silfurskeiðin var ekki skot á
Bjarna
kristján Þór Júlíusson býður sig fram til
formanns sjálfstæðisflokksins á
landsfundinum um næstu helgi.
7 Kom með byssu á æfingu
Byssa fannst í fötum þrettán ára drengs í
búningsklefa í íþróttahúsinu á Blönduósi
á mánudaginn.
mest lesið á dV.is
jóHAnn
HAuKsson
útvarpsmaður skrifar
„Flokkurinn hefur
beitt ríkisvaldinu
til þess að tryggja
sérhagsmuni.“