Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2009, Blaðsíða 10
fimmtudagur 26. mars 200910 Neytendur
Mikilvægt
fyrir börn
Neytendasamtökin fagna ákvörð-
un útvarpsráðs um að hætta birt-
ingu auglýsinga í tengslum við
barnaefni í sjónvarpi. Frá þessu
segir á heimasíðu samtakanna.
„Þetta er í samræmi við leiðbein-
andi reglur um aukna neytenda-
vernd barna sem umboðsmað-
ur barna og talsmaður neytenda
gáfu út í janúar 2009 og tóku gildi
15. mars síðastliðinn. Að mati
samtakanna þarf að bregðast við
sífellt meira markaðsáreiti gagn-
vart börnum og er þetta mikil-
vægt skref í þeim efnum. Jafn-
framt hvetja Neytendasamtökin
seljendur til að kynna sér þessar
reglur og að fara eftir þeim.“
Engan fjöl-
póst – takk
Hjá Íslandspósti má fá límmiða
til að setja á póstlúgur eða -kassa
og afþakka fjölpóst. „Pósthús-
ið sem dreifir einnig slíku efni
virðir þessar merkingar. Einfald-
ast er að fara inn á heimasíðu
Íslandspósts og láta senda sér
miða. Einnig er hægt að fara á
afgreiðslustaði Íslandspósts og
fá miða þar,“ segir á ns.is. Einnig
er hægt að skrá sig hjá Hagstof-
unni þannig að óheimilt sé að
senda slíkan póst til viðkomandi.
„Þessi póstur er margvíslegur,
meðal annars beinist hann mikið
að fermingunum sem núna eru
framundan, enda um mikilvægan
markhóp þar að ræða,“ segir þar
einnig.
n Íslensk stúlka, sem
býr í Danmörku,
heimsótti landið sitt
og ætlaði að kaupa sér
síma sem hún hugðist
borga með kredit-
korti. Borgun hf. hafnaði
því að dreifa greiðslunni á sex
mánuði vegna þess að hún býr
erlendis. Hún hefur um árabil
verið skilvís viðskiptavinur
Mast-
ercard, að
eigin sögn.
n Lofið fær veitingastaðurinn San
Fran í Glæsibæ. Staðurinn selur
nútímalegan og hollan mat á
sanngjörnu verði. Viðskipta-
vinur sem þangað fór í vikunni
sagði matinn frábæran,
andrúmsloftið gott og
þjónustuna til fyrirmyndar.
sENdiÐ LOf EÐa Last Á NEYtENdur@dV.is
Dísilolía
algengt verð verð á lítra 141,4 kr. verð á lítra 151,2 kr.
skeifunni verð á lítra 139,8 kr. verð á lítra 149,6 kr.
algengt verð verð á lítra 141,4 kr. verð á lítra 151,2 kr.
bensín
Dalvegi verð á lítra 138,3 kr. verð á lítra 148,0 kr.
fjarðarkaupum verð á lítra 138,3 kr. verð á lítra 148,1 kr.
algengt verð verð á lítra 141,4 kr. verð á lítra 151,2 kr.
umsjóN: BaLdur guÐmuNdssON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
„Sumir telja að þetta leiði til þess
að ábyrgðarmannakerfið leggist af.
Ef það er rétt mat þá verður svo að
vera,“ segir Gísli Tryggvason, tals-
maður neytenda, og bætir því við að
það viti á gott að kerfið annaðhvort
leggist af að verði takmarkað með
þeim hætti sem lagt er til í lagafrum-
varpi sem að líkindum verður sam-
þykkt á næstu dögum á Alþingi.
Nái frumvarpið fram að ganga
verður þröngum skilyrðum háð að
gera þriðja aðila ábyrgan fyrir láni
sem einstaklingur tekur í banka.
Bankar og aðrar fjármálastofnanir
munu auk þess ekki geta sótt fast-
eignir ábyrgðarmanna en hingað til
hefur íslenska kerfið verið þannig úr
garði gert að ættingjar og jafnvel vin-
ir hafa þurft að skrifa upp á lánveit-
ingar til einstaklinga. Þannig hafa
systkini, foreldrar og jafnvel afar og
ömmur átt heimili sín undir því að
lántakandinn standi í skilum.
Engin þriðji aðili
„Meginhugsunin á bakvið frumvarp-
ið er að lánveitandi og lántakandi
beri ábyrgð á sínum viðskiptum.
Stefnan er að auka ábyrgð í við-
skiptum. Það hefur skapað ákveðið
agaleysi að þriðji aðili beri ábyrgð
á efndum í viðskiptum,“ segir Lúð-
vík Bergvinsson, þingflokksformað-
ur Samfylkingarinnar og einn flutn-
ingsmanna frumvarpsins. Hann
hefur í 12 ár lagt sambærilegt frum-
varp fram á Alþingi en Pétur Blön-
dal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
hefur allan tímann flutt það með
honum. Frumvarpið hefur nú hlotið
náð fyrir augum allra flokka og því
eru miklar líkur á að það muni verða
að lögum.
Jafnar möguleika til náms
Lúðvík segir að mjög rík krafa verði
gerð til lánveitanda, ef leitað verði
eftir ábyrgðarmanni fyrir láni, um
að hann geti metið áhættu sína og
fengið allar nauðsynlegar upplýs-
ingar. „Ábyrgðarmannakerfið ís-
lenska á sér enga hliðstæðu. Það
er mikilvægt á þessum tímapunkti
að við endurskipuleggjum þetta
kerfi okkar og byrjum á núlli,“ seg-
ir Lúðvík en kerfið verður ekki aft-
urvirkt. Lögin munu sem sagt ekki
ná til þeirra sem þegar hafa gengið í
ábyrgðir fyrir skuldum annarra. „Ég
held að með þessu móti fáum við
smátt og smátt heilbrigðara og betra
viðskiptalíf,“ segir hann og bætir því
við að þessi breyting muni til dæmis
hafa veruleg áhrif á námsmenn sem
geti brátt fengið lán án þess að þurfa
ábyrgðarmenn. Þetta muni því jafna
möguleika til náms.
Fagnar frumvarpinu
Kaupþing hefur þegar riðið á vað-
ið og hætt töku sjálfskuldarábyrgða
eða fasteignaveða þriðja aðila vegna
lána til einstaklinga, eins og það er
orðið á heimasíðu bankans. Þar seg-
ir að einstaklingar fái því framvegis
fyrirgreiðslu eingöngu í takt við eig-
in greiðslugetu og efnahag. „Reynsla
bankans af ábyrgðum þriðja að-
ila hefur ekki verið góð, innheimta
þeirra hefur gengið treglega og
skapað bankanum óþarfa óvild. Því
er afnám ábyrgða þriðja aðila rökrétt
skref í því uppbyggingastarfi sem nú
á sér stað,“ segir þar enn fremur.
Gísli Tryggvason, talsmaður
neytenda, fagnar því að þetta frum-
varp virðist ætla að ná fram að ganga.
Hann segir þó að þó viðbrögð Kaup-
þings séu ágæt séu þau svolítið síð-
búin, sér í lagi í ljósi þess að einung-
is séu fáeinir dagar þar til frumvarp
þessa efnis verði að lögum. Hann
játar þó aðspurður að ekki sé hægt
að taka það af Kaupþingi að þeir hafi
þrátt fyrir allt verið fyrstir banka til
að afnema ábyrðgarmannakerfið að
miklu eða öllu leyti. Gísli segir að
við Íslendingar höfum brennt okk-
ur á að veita fólki lán sem hefur ör-
ugglega ekki efni á að borga þau til
baka. „Ég held að þetta leiði til þess
að menn fari að meta greiðslugetu
hvers og eins lántakanda. Hugs-
anlega mun þetta leiða til að þeir
sem voru ábyrgðarmenn verði aðal-
skuldarar að lánum,“ segir hann. Að
því leyti fagni hann frumvarpinu.
„Ábyrgðarmannakerfið
íslenska á sér enga
hliðstæðu.“
AmmA og Afi ekki
gerð gjAldþrotA
Ef fer sem horfir mun hið séríslenska ábyrgðarmannakerfi verða lagt af. Nýtt frum-
varp kveður á um að lánveitandi og lántakandi muni bera ábyrgð á sínum viðskipt-
um en ekki þriðji aðili. Talsmaður neytenda fagnar frumvarpinu en um það ríkir
þverpólitísk sátt.
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Ömmur og afar áhyggjulaus
Ættingjar eða vinir þurfa framvegis
ekki að leggja hús sín eða aðrar
eignir að veði.
MyND phOtOS.cOM