Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2009, Blaðsíða 6
fimmtudagur 26. mars 20096 Fréttir
„Mér finnst það grafalvarleg skilaboð
frá ASÍ að þeir sem taka þátt í stjórn-
málum séu verri en aðrir og eigi að
víkja,“ sagði Siv Friðleifsdóttir, þing-
maður Framsóknarflokksins, á Al-
þingi í gær. Þar vakti hún máls á for-
síðufrétt DV um brotthvarf Vigdísar
Hauksdóttur lögmanns frá Alþýðu-
sambandi Íslands eftir að hún ákvað
að taka fyrsta sæti á lista Framsókn-
arflokksins í Reykjavík suður.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt-
ir félagsmálaráðherra ætlar að láta
skoða í félagsmálaráðuneytinu hvort
lög um vinnumarkað hafi verið brot-
in þegar Vigdísi Hauksdóttur var sagt
upp störfum hjá Alþýðusambandi Ís-
lands.
Ennfremur ætlar Ásta að láta Jafn-
réttisstofu skoða þann þátt málsins
sem kunni að snúa að henni.
Pólitískar nornaveiðar
Í samtali við DV í gær sagðist Vigdís
undrast að hún þurfi að hætta störf-
um hjá ASÍ vegna kosningabarátt-
unnar á sama tíma og yfirlögfræð-
ingur ASÍ, Magnús M. Norðdahl, sem
skipar sjötta sæti á lista Samfylking-
arinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir
komandi kosningar, starfar áfram hjá
félaginu.
Siv sagði á Alþingi að málið lykti
af pólitískum nornaveiðum þar sem
Vigdís nýtur ekki sömu réttinda hjá
ASÍ og Magnús.
Siv benti á að lögum samkvæmt
væri atvinnurekendum óheimilt að
blanda sér í pólitísk afskipti launa-
fólks. Hún fengi ekki betur séð en
að ASÍ synjaði Vigdísi um launa-
laust leyfi á sama tíma og Magn-
ús fengi slíkt leyfi. „Eru framsókn-
armenn eitthvað verri en aðrir?“
spurði Siv.
Styður Gylfa
Á aukaársfundi ASÍ í gær ljáði Gylfi
máls á starfslokum Vigdísar vegna
greinar DV í gær. Hann sagðist
harma þær ásakanir sem hafð-
ar eru eftir Vigdísi í blaðinu. Gylfi
ítrekaði þau orð sín sem birtust í
greininni um að hann liti svo á að
brotthvarf Vigdísar frá ASÍ hefði
verið að hennar frumkvæði.
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambands Ís-
lands, tók málið upp á Eyjublogg-
inu þar sem hann varði Gylfa: „Sú
var tíð að þingsæti fylgdi forseta-
stóli ASÍ. En breytt viðhorf urðu til
þess að þessu var hætt, sem betur fer.
En það eru allmargir á listum stjórn-
málaflokka, sem sinna stjórnar- og
forystustörfum og starfa jafnframt
fyrir verkalýðshreyfinguna. Línan
hefur verið að menn hætti ef þeir séu
á leið inn á þing, þar á ég við innan
ASÍ. Annað virðist reyndar gilda um
önnur heildarsamtök launamanna.“
Fordæma ASÍ
Framsókarflokkurinn sendi í gær frá
sér yfirlýsingu þar sem vinnubrögð
ASÍ eru fordæmd. „Vigdís Hauksdótt-
ir taldi að hún væri að fara troðna
slóð þegar hún gaf kost á sér til þings
fyrir Framsóknarflokkinn. Forseti
Alþýðusambandsins ákvað að hún
hefði ekki sömu réttindi og aðrir,“
segir þar.
Ennfremur er vakin athygli á því
að löng hefð sé fyrir því að forystu-
menn verkalýðssamtaka séu á sama
tíma í framboði eða séu áhrifamenn
í stjórnmálum, og meðal annarra
nefndir til sögunnar þeir Ögmund-
ur Jónasson og Gylfi Arnbjörnsson
sjálfur.
Stjórn Landssambands fram-
sóknarkvenna sendi sömuleiðis frá
sér ályktun í gær. Þar segir: „Með
þessari ákvörðun er ASÍ að sýna af
sér dæmalausa pólitíska misbeit-
ingu valds. Fordæmi ASÍ færir jafn-
framt atvinnurekendum um allt land
tækifæri til að segja upp fólki einung-
is fyrir þá ástæðu að taka þátt í pólit-
ísku starfi.“
Ásta R. Jóhannesdóttir félagsmálaráðherra ætlar að skoða hvort lög á vinnumarkaði
hafi verið brotin þegar Vigdísi Hauksdóttur var sagt upp störfum hjá Alþýðusambandi
Íslands eftir að hún tók fyrsta sæti á lista Framsóknarflokks. DV ræddi við Vigdísi í
gær og vakti staða hennar gífurlega athygli.
Pólitískar norna-
veiðar hjá así „Eru framsóknar-menn eitthvað verri en aðrir?“
dv.is
F r j á l s t , ó h á ð d a g b
l a ð
miðvikUdagUr 25. mars 2009 dagblaðið
vísir 51. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
mÆTTimEð
BYssU Á
ÆFiNgU
HriNT aF
HJÓLi
rOBiNHO
HÓTar
PELÉ
ÁsdÍsvaLiN
BLONdÍNa
BÚLgarÍU
mJaðma-
griNdarBrOTNaði
NEYTENdUr
rÁNdÝr
gÆLUdÝr
vigdÍs HaUksdÓTTir missti vinnuna við þ
ingframboð:
REKIN
FYRIR
FRAMBOÐ
„ÞETTa kOm mÉr
mJög Á ÓvarT“
Í FramBOði FYrir
FramsÓkNarFLOkkiNN
rEkiN FrÁ aLÞÝðU-
samBaNdiNU
TELUr BrOTið Á sÉr
FÆr BOrgað FYrir að mÆTa Í ParTÍ
FÓLk
FÓLk
sPOrT
krisTJÁN ÞÓr JÚLÍUssONYFirHEYrðUr
krisTJÁNÞÓr:
„Er EkkimEð
sEkTarkENNd“
ÁHÆTTUsTJÓri FÉkk
800 miLLJÓNa kÚLULÁN
YFirmaðUr LÁNaEFTirLiTs gLiTNis FÉkk
LÁN FrÁ gLiTNi TiL að kaUPa Í gLiTNi
FrÉTTir
ÓsÁTTUr grUNNskÓLaNEmi Á BLöNdUÓ
si
ERlA HlynSdóttiR
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Mismunað
mál Vigdísar Hauksdóttur hefur
vakið gríðarlega athygli en hún
telur asÍ hafa mismunað sér.
Mynd HEiðA HElGAdóttiR
Athugar málið
Ásta ragnheiður Jóhannesdóttir ætlar
að láta athuga hvort brotið hafi verið
á Vigdísi.
Mynd SiGtRyGGuR ARi
25. mars 2009
Kristján B. Jónasson segir bókaútgefendur hafa áhyggjur af því hvað verður um Pennann:
Óttast um framtíð bóksölu á Íslandi
„Bóksala á Íslandi er í fanginu á rík-
isstjórninni. Menn óttast hvað ger-
ist næst í þessum málum. Við vitum
ekkert hvert framhaldið verður,“ seg-
ir Kristján B. Jónasson, formaður Fé-
lags íslenskra bókaútgefenda. Hon-
um þykir ógnvænleg sú þróun að
Nýja Kaupþing hafi tekið yfir Penn-
ann og bóksalar sem og bókaunn-
endur í landinu séu í óvissu um
framtíð bóksölu á Íslandi.
DV hefur heimildir fyrir því að
ýmsir bókaútgefendur hafi aðeins
fengið hluta greiddan af því sem þeir
áttu inni hjá Pennanum og hafi ekki
upplýsingar um hvenær afgangur-
inn verður greiddur út.
Kristján segir félagið af sam-
keppnisástæðum ekki hafa heim-
ild til að safna saman upplýsingum
um hvernig viðskipti einstakra út-
gefenda við endursöluaðila eigi sér
stað og því geti hann ekkert sagt um
það. Hann sjálfur kannast þó við að
hafa heyrt fregnir um að það standi
á greiðslum frá Pennanum.
Kristján segir bóksala áhyggju-
fulla vegna þeirrar óvissu sem rík-
ir um framtíð Pennans. „Við vitum
ekki neitt. Við vitum ekki hvað bank-
inn ætlast fyrir með þessar verslan-
ir. Á meðan svo er finnst mér eðlilegt
að menn séu svolítið hræddir,“ segir
Kristján.
Penninn er öflugasti endursölu-
aðili bóka á Íslandi utan jólaver-
tíðar og því hefði það áhrif á alla
bókaunnendur ef rekstrarformið
myndi breytast.
Berghildur Erla Bernharðsdóttir,
upplýsingafulltrúi Kaupþings, seg-
ir málið á viðkvæmu stigi og erfitt
að gefa yfirlýsingar um framhaldið.
Hún bendir á að fyrirtækið hafi ver-
ið mjög skuldsett og að nú sé unnið
að því að finna farsæla leið til fram-
tíðar.
erla@dv.is
Bóklestur
Penninn er orðinn bóksala í ríkiseigu
eftir að Nýja Kaupþing tók hann yfir.
Tíu þúsund
undirskriftir
Tíu þúsund Íslendingar hafa
skrifað undir í undirskrifta-
söfnun Helga Vilhjálmssonar,
sem kenndur er við sælgætis-
gerðina Góu, gegn sukkinu í
lífeyrissjóðakerfinu. Helgi fór
af stað með herferðina nú á
dögunum og hyggst afhenda
Jóhönnu Sigurðardóttur for-
sætisráðherra listann. „Við
viljum endurskoðun á lífeyris-
sjóðakerfinu strax. Það gengur
ekki að lífeyrisgreiðslurnar
okkar séu notaðar til að borga
sukk örfárra einstaklinga í stað
þess að þær séu nýttar í okkar
þágu. Við höfum fengið nóg,“
segir meðal annars í auglýs-
ingunni fyrir undirskriftasöfn-
unina.
hæstu launin
lækka
Orkuveita Reykjavíkur mun
lækka laun stjórnenda til að
bregðast við áhrifum efnahags-
kreppunnar á tekjur fyrirtækis-
ins og gjöld. Hörleifur B. Kvaran,
forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur,
kynnti starfsfólki í dag víðtækar
aðhaldsaðgerðir í rekstri fyrir-
tækisins og dótturfélaga þess.
Áhersla verður lögð á að verja
grunnþjónustu fyrirtækisins
og störf starfsfólks. Almennar
launabreytingar felast í aðgerð-
unum þar sem laun stjórn-
enda lækka mest en laun undir
300 þúsund krónum á mánuði
skerðast ekki. Um tímabundna
ákvörðun er að ræða.
ábendingar frá
almenningi
Fjármálaeftirlitinu hafa á und-
anförnum mánuðum borist fjöl-
margar ábendingar, sem margar
hverjar hafa orðið grundvöll-
ur að frekari rannsóknum.
„Ábendingar neytenda, sem og
ábendingar eftirlitsskyldra aðila
og starfsmanna á þeirra vegum,
eru mikilvægur og nauðsynlegur
þáttur í sérhverju eftirliti,“ segir á
heimasíðu Fjármálaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitið hvetur þá
sem hafa í störfum sínum fyrir
eftirlitsskyldan aðila tekið eftir
hugsanlegu misferli til að upp-
lýsa um slíkt. Neytendum er
bent á að hringja í neytenda-
síma Fjármálaeftirlitsins í síma
525 2755 eða senda tölvupóst á
fyrirspurn@fme.is.
Dópaður
undir stýri
Einn ökumaður var handtek-
inn grunaður um akstur und-
ir áhrifum ávana- og fíkni-
efna í umdæmi lögreglunnar
á Suðurnesjum í gær. Þá var
annar ökumaður tekinn við
akstur án ökuréttinda.