Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2009, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2009, Blaðsíða 12
fimmtudagur 26. mars 200912 Fréttir Ríkisstjórn Baracks Obama, for- seta Bandaríkjanna, hefur ákveð- ið að flytja hundruð hermanna og lögreglumanna að landamærun- um við Mexíkó til þess að mæta aukinni hörku í eiturlyfjastríð- inu sem geisar í Mexíkó og landa- mæraborgum Bandaríkjanna. Á síðastliðnum tveimur árum hafa rúmlega 8 þúsund manns verið myrtir í eiturlyfjastríðinu og viku- lega berast fréttir af grimmilegum morðum á lögregluþjónum beggja vegna landamæranna. Fjöldi lög- reglumanna hefur hætt störfum að undanförnu af ótta um líf sitt. Með tilfærslu mannaflans er markmiðið að stöðva flæði vopna og peninga yfir landamærin til Mexíkó. Fíkniefnabarónar í Mex- íkó hafa beitt málaliðum sem eru búnir fullkomnustu vopnum á borð við árásarþyrlur og sprengju- vörpur. Vígbúa mexíkóskar löggur Auk þess að flytja mannafla að landamærunum hyggst ríkis- stjórnin stórauka eftirlit með full- komnum gegnumlýsingartækj- um og númeraplötuskönnum. Þá hyggst Bandaríkjastjórn verja 700 milljónum dollara til þess að þjálfa og vígbúa mexíkóska lög- reglumenn og landamæraverði, en þeir hafa mátt sín lítils í baráttunni gegn málaliðum eiturlyfjabarón- anna. Bandaríkjastjórn segir að þess- ar aðgerðir séu fyrsti liður í áætlun Obama forseta um að tryggja ör- yggi á landamærunum og hjálpa Felipe Calderón, forseta Mexíkó, í baráttunni gegn eiturlyfjahringj- unum. Áætlað er að um það bil 90 pró- sent af öllum eiturlyfjum sem flutt eru til Bandaríkjanna komi í gegn- um Mexíkó. Yfirvöld áætla einn- ig að 90 prósent af vopnum sem málaliðar í Mexíkó nota komi frá Bandaríkjunum. Reyna að laga samskiptin Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú í opinberri heimsókn í Mexíkó, til þess að reyna að lægja öldur í samskipt- um ríkjanna. Almenningur í Mex- íkó kennir Bandaríkjamönnum að hluta til um ástandið í landinu, enda hefur landið á síðustu árum breyst í eins konar hraðbraut fíkni- efnasmyglara frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna. Í gær var svo tilkynnt að mex- íkóska lögreglan hefði handtek- ið Hector Huerta Rios, einn eftir- lýstasta fíkniefnabarón í landinu. Herferð var hrundið af stað fyrir skemmstu þar sem yfirvöld bjóða allt að 150 milljónir króna fyrir upplýsingar sem leiða til handtöku fíkniefnabarónanna. Það hefur hins vegar litlu skilað enda hefur þessi upphæð verið kölluð skipti- mynt í augum stærstu barónanna og samverkamanna þeirra, enda veltir eiturlyfjaiðnaðurinn í land- inu þúsundum milljarða króna. Barack Obama er sjálfur væntan- legur í opinbera heimsókn í næsta mánuði til þess að treysta sam- skipti ríkjanna. Bandarísk yfirvöld hafa ákveðið að stórauka landamæraeftirlit við Mexíkó til þess að stemma stigu við harðnandi fíkniefnastríði á landamærum landanna. Í landa- mæraborgum Mexíkó eru lögreglumenn myrtir í hverri viku og hefur ofbeldið færst yfir landamærin. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að verja gríðarlegum upphæð- um til þess að vígbúa mexíkóska lögreglumenn sem mega sín lítils gegn málalið- um sem eru búnir fullkomnustu vopnum. VÍGBÚAST GEGN EITURLYFJABARÓNUM Mexíkó hefur breyst í hraðbraut fíkniefna- smyglara frá Suður-Am- eríku til Bandaríkjanna. Handteknir mexíkóskir lögreglumenn sýndu meðlimi Cardenas gullien-fíkniefna- hringsins á blaðamannafundi í mexíkóborg á dögunum. Lögreglumenn sýna ekki andlit sín af ótta við hefndaraðgerðir. ValgeiR öRn RagnaRsson blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Bandaríkjamaðurinn Bob Petrella man hvert einasta smáatriði: man allt sem hann hefur sagt Sjónvarpsframleiðandinn Bob Pet- rella frá Los Angeles í Bandaríkjun- um er gæddur þeim einstaka hæfi- leika að muna eftir nánast hverju einasta smáatriði sem hann hefur upplifað. Bob, sem er 58 ára, hefur verið greindur með ofurminni, eða hyperthymestia eins og það útleggst á læknamáli. Aðeins er vitað um fjóra einstaklinga í heiminum sem búa yfir svipuðum eiginleikum og hann. Petrella gaf sig fram á síðasta ári í rannsókn sem framkvæmd var af Kaliforníuháskóla. Rannsóknin sner- ist um það hvernig heilastarfsemi fólks fer fram og hvernig fólk hefur mismunandi minni. Það var þá sem hann fékk greininguna. Óhætt er að segja að eiginleik- ar Petrella séu um margt sérstakir. Þannig man hann nákvæmlega eft- ir deginum sem hann kynntist besta vini sínum. Þá getur hann rakið öll samtöl sem hann hefur átt við fólk undanfarin 53 ár, eða síðan hann var fimm ára. Petrella komst fyrst að þessum eiginleikum sínum þegar hann var í barnaskóla. Þá fékk hann hæstu ein- kunnir í öllum fögum, nánast án þess að líta í bækur. „Ég var alltaf mjög undrandi á þessu. En ég kunni aldrei við að auglýsa þetta eitthvað sérstak- lega við ókunnuga. Ég man sérstak- lega vel eftir hlutum sem vekja áhuga minn. Hvort sem það eru íþróttavið- burðir, sögulegir atburðir eða atvik tengd stjórnmálum,“ segir Petrella. Þá man hann öll símanúmer sem honum hafa verið sögð. Hann bend- ir til dæmis á það að hann hafi týnt farsímanum sínum árið 2006. Mörg- um hefði eflaust brugðið vegna þess að margir stóla á símana til að fletta upp símanúmerum. Það hafi þó ekki skipt neinu máli því hann hafi geymt öll númerin í höfðinu. einar@dv.is Fékk alltaf 10 Bob Petrella var afburðanámsmaður og þurfti aldrei að lesa fyrir próf. Ráðist á heimili bankamanns Ráðist var á heimili Sir Freds Goodwin, fyrrverandi stjórnar- formanns Royal Bank of Scot- land, í Edinborg í fyrrinótt. Að minnsta kosti fjórar rúður voru brotnar og svört Mercedes Benz- bifreið sem stóð fyrir utan heim- ili hans var skemmd. Heimili hans í Edinborg er metið á að minnsta kosti þrjár milljónir punda, eða rúmlega hálfan milljarð króna. Goodwin hefur verið gagnrýndur harka- lega í heimalandi sínu að und- anförnu en hann þáði 16,9 millj- óna punda starfslokagreiðslu þegar hann lét af störfum fyrir bankann. Rúta sprakk Níu óbreyttir borgarar létust þegar sprengja sprakk í rútu á ferð rétt utan við Kabúl, höf- uðborg Afganistans, í gær. Sjö manns að auki eru alvarlega særðir. Rútan var að keyra eftir fjölförnum vegi sem afganskir og bandarískir hermenn keyra daglega. Meðal hinna látnu eru konur og börn. Enginn hefur enn lýst ódæðinu á hendur sér, en aug- un beinast jafnan að talibönum þegar slíkar sprengingar verða í landinu. Bjó með lát- inni móður Lögregluyfirvöld í Flórída í Bandaríkjunum hafa greint frá því að upp hafi komist að 61 árs gömul kona, Penelope Jordan, bjó með líkamsleifar látinnar móður sinnar í íbúð sinni í sex ár. Lögreglan fann líkamsleifar móðurinnar á rúmi í herbergi í íbúð kon- unnar. Penelope Jordan sagði við lögreglu að hún hefði ekki haft efni á því að greiða fyrir útför móður sinnar. Nágrann- ar höfðu margoft kvartað undan ólykt frá íbúðinni á síðustu árum. Ungbarn á flug- vélarsalerni Engu mátti muna að nýfæddu stúlkubarni yrði hent út með ruslinu á salerni flugvélar í Nýja- Sjálandi í síðustu viku. Móðir stúlkunnar, sem kölluð er Grace, fæddi hana á salerni vélarinn- ar og skildi hana eftir í ruslaföt- unni. Hefði ræstingastúlka ekki tekið eftir litlum handlegg teygja sig upp úr fötunni þegar vélin hafði verið rýmd hefði barnið eflaust mætt þeim örlögum sem móðir þess ætlaði því. Lögregl- an í Auckland á Nýja-Sjálandi handtók og ákærði í dag 29 ára gamla konu fyrir ódæðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.