Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2009, Blaðsíða 20
fimmtudagur 26. mars 200920 Brúðkaup
í borginni
Brúðkaupsnóttin
Ýmislegt má gera til þess að gera brúðkaupsnóttina eftirminnilega.
Ekki treysta allir sér í brúðkaupsferðir í kreppunni og því eflaust
margir sem vilja að nóttin verði enn flottari og eftirminnilegri. DV
skoðaði hvað nokkur af helstu hótelum Reykjavíkur hafa upp á að
bjóða þegar kemur að þessari einstöku nótt.
101 hótel
Á 101 hóteli er ekki boðið upp á sérstakan brúðkaupsnæturpakka
en þar eru þrjár glæsilegar svítur. Hótelið reynir svo að aðstoða
gesti sína eftir allra fremstu getu við að uppfylla allar óskir þeirra.
101 svítan sem er aðalsvíta hótelsins kostar 122.900 krónur nóttin.
Næststærsta svítan sem er með svölum kostar 91.000 nóttin en
ódýrasta svítan sem er einnig með svölum kostar 82.900 krónur.
Grand Hótel
tilboðið sem grand Hótel býður upp er á þá leið að ef haldin er
brúðkaupsveisla á hótelinu fyrir 50 manns eða fleiri fylgir frí „junior“
svíta fyrir brúðhjónin. svítunni fylgir freyðivín, ávaxtakarfa og
morgunmatur upp á herbergi. „Junior“ svíta kostar annars 30 til 60
þúsund krónur eftir árstíma. Kostnaður vegna veislu fyrir 50 manns er
mjög breytilegur og fer eftir óskum í hverju tilviki fyrir sig.
Radisson SAS Hótel Saga
Þar er boðið upp á einn pakka fyrir brúðhjón. gisting í svítu þar sem með fylgir
freyðivín, rósir og gjöf frá hótelinu. Einn helsti kosturinn við brúðarpakkann er
að hjónin fá að dvelja á hótelinu fram eftir degi og þurfa því ekki að rífa sig upp
á hádegi eða fyrr. sé brúðkaupsveislan haldin á Hótel sögu er 50% afsláttur af
brúðarnæturgistingunni sem kostar annars 36.500 krónur.
Hilton Nordica Hótel
Hilton Nordica býður upp á þrjá pakka fyrir brúðkaupsnóttina. Þeir eru silfurpakki, gullpakki og demantspakki.
Silfurpakki
gisting í „guest room“ sem er hefðbundið herbergi á hótelinu. morgunverður fyrir tvo á veitingastaðnum Vox fylgir en hægt er að fá hann
upp á herbergi sé þess óskað. Boðið er upp á „High tea“ með freyðivíni þegar hjónin koma á staðinn um kvöldið auk þess sem ný blóm eru
á herberginu. Verð fyrir tvo er 24.900 krónur.
Gullpakki
gisting í „Executive room“ sem er lýst sem rómantísku herbergi innréttuðu með dökkum við. frír aðgangur á Nordica spa þar sem hægt er
að fara í ræktina, gufubað, heita potta, fá axlanudd og fleira. frír aðgangur að „Executive lounge“ sem er setustofa á 8. hæð þar sem útsýni
er yfir borgina. Þar er boðið upp á léttar veitingar. morgunverður frá Vox á veitingastað eða á herbergi. „High tea“ með freyðivíni við komu.
Verð fyrir tvo er 34.900 krónur.
Demantspakki
gisting í „King suite“ svítu. rúmgott herbergi með setustofu og stóru baðherbergi. frír aðgangur að Nordica spa þar sem hægt er að fara
í ræktina, gufubað, heita potta, fá axlanudd og fleira. frír aðgangur að „Executive lounge“ sem er setustofa á 8. hæð þar sem útsýni er yfir
borgina. Þar er boðið upp á léttar veitingar. morgunverður frá Vox á veitingastað eða á herbergi. „High tea“ með freyðivíni við komu. Verð
fyrir tvo er 49.900 krónur.