Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2009, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2009, Blaðsíða 24
fimmtudagur 26. mars 200924 Brúðkaup „Verið velkomin í hlýlegt og róandi umhverfi og látið streituna líða úr ykkur í amstri dagsins“ Alla þriðjudaga og fimmtudaga, fyrir hádegi, verða nemar hjá okkur á stofunni. Þegar pantaðir eru tímar hjá snyrtifræðingum á stofunni er hægt að fá aðra meðferð samtímis með 30% afsl. hjá nemanum. Við erum staðsett að Stórhöfða 17 Sími: 517-9291 Allar nánari upplýsingar er hægt að finna á www.vilji.is Einnig er hægt að senda okkur póst á vilji@vilji.is Ýmis tilboð Brúðar-, fermingar- og árshátíðarförðun Brúðkaup, aðdragandi þeirra, steggja- og gæsapartíin, brúð-kaupsveislan og alls konar for- og eftirmálar þeirrar stóru stundar eru kvikmyndagerðarfólki endalaust yrkisefni og í sjálfu sér er ekkert und- arlegt við að brúðkaup falli vel að hugmyndafræði og heimssýn Holly- wood-liðsins þar sem brúðkaup eru oft heilmiklar leiksýningar þar sem mest áhersla er á umgjörð, leikbún- inga, leikmynd, blóm, skreytingar og tónlist en loforðið sem brúðhjónin gefa hvor öðru við altarið frammi fyr- ir Guði og mönnum. Það myndi æra óstöðugan að reyna að koma tölu á allar þær bíó- myndir sem hverfast á einhvern hátt um brúðkaup en öllu auðveldar að telja þær sem eru góðar. Einhverra hluta vegna virðist það nánst vera ófrávíkjanleg regla að brúðkaups- myndir séu svo leiðinlegar að þær geta drepið naut. Breska myndin Four Weddings and a Funeral er sjálfsagt skemmtileg- asta brúðkaupsmynd síðari ára enda var þá sjarmörinn Hugh Grant í bana- stuði, dyggilega studdur úrvalsliði breskra leikara og nettur gálgahúm- orinn dempaði glassúrbleiku væmni- slepjuna sem einkennir bandarískar brúðkaupsmyndir. Ástralska myndin Muriel´s Wedding fyllir þröngan hóp skemmtilegra brúðkaupsmynda og sömu sögu má segja um My Big Fat Greek Wedding sem sló verðskuldað í gegn á sínum tíma. Síðan má auð- vitað ekki gleyma söngvamyndinni Mamma Mia! sem sló öll aðsóknar- met á Íslandi í fyrra með svo mikl- um gauragangi að tónlist ABBA úr myndinni bergmálar enn í hausnum á mörgum. Leikkonan Julia Roberts hefur gert út á altarisdramatík með ágætis ár- angri bæði í hinni frekar súru Run- away Bride og svo í My Best Friend´s Wedding þar sem Julia, þrátt fyrir all- an sinn þokka, lenti í þeirri undarlegu stöðu að fá skyndilegan áhuga á besta vini sínum þegar hann ákvað að leiða Cameron Diaz upp að altarinu. Brúðkaupsmyndir snúast sem betur fer ekki allar um hvíta kjóla, kransakökur og hræðslu krepptra karlmanna við skuldbindingu. Brúð- kaup bjóða upp á svo margt, margt meira eins og þeir Owen Wilson og Vince Vaughn vissu upp á sína tíu fingur í hinni hressilegu Wedding Crashers. Þar léku þessir heiðurs- menn hressa spaða sem gerðu út á ástarþörf einhleypra kvenna í brúð- kaupsveislum. Hressileg mynd og tvímælalaust með betri brúðkaups- myndum síðari ára. Eins og áður sagði er úrval leiðin- legra brúðkaupsmynda öllu meira og má þar til dæmis nefna The Father of the Bride með Steve Martin sem gat svo af sér enn verri mynd, The Fath- er of the Bride Part II. Sú brúðkaups- mynd sem ber þó höfuð og herðar yfir aðrar slíkar í leiðindum skartar sjálfri Jennifer Lopez í aðahlutverkinu en hún og Matthew McConaughey leiddu saman hesta sína í The Wedd- ing Planner í upphafi aldarinnar. Þar lék Lopez unga konu sem er sérfræðingur í að skipuleggja brúð- kaupsveislur en þar sem slíkar at- hafnir eiga það til að verða hinar flóknustu leiksýningar er ekki ónýtt að hafa góðan leikstjóra á bak við tjöldin. Persóna Lopez var fagmann- eskja fram í fingurgóma og lét ekkert trufla sig við að skila 100% árangri, enda besti brúðkaupsveislustjórinn í San Francisco. Metnaðurinn kostar hana hins vegar allt einkalíf og hún hefur ekki verið við karlmann kennd í ein sex ár. Þessi öruggi en leiðinlegi heimur hennar hrynur svo skyndi- lega til grunna þegar hún kolfellur fyrir væntanlegum eiginmanni nýj- asta viðskiptavinar síns. Þessu fylgja mikil átök milli fagmannsins og ást- föngnu konunnar innra með henni, og allt virðist þetta stefna í eymd og volæði, þangað til hinar sígildu síð- ustu fimmtán mínútur rómantísku gamanmyndanna renna upp og allt fellur í ljúfa löð með tilheyrandi gervi- spennu og jarðarberjabúðingsbleikri væmni. Allt dufl við grín og rómantík í myndinni er sorglega lélegt en hún má þó eiga það að hún gefur ágætis innsýn í hversu mikil vinna og hugs- un fer í að plana boðlegt brúðkaup nú til dags. toti@dv.is BrúðkaupsBröltá hvíta tjaldinuBrúðkaupsbíómyndir eru sérstök kvikmyndagrein enda af nógu að taka þegar hjónavígslur eru annars vegar. Flestar eru þessar myndir þó frekar leiðinlegar og fyrirsjáanlegar þótt sem betur fer megi finna nokkrar ánægjulegar undantekningar. Hugh Grant Bar uppi bestu brúðkaupsmynd seinni ára, four Weddings and a funeral.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.