Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2009, Page 4
fimmtudagur 26. mars 20094 Fréttir
Hvorki Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, né Ásbjörn Óttarsson, forseti
bæjarstjórnar, vilja upplýsa hvað felst í 95 ára einkaréttarsamningi á vatnsréttindum
við Iceland Glacier Products. Samningurinn er sagður trúnaðarmál vegna þess að í
honum komi fram ýmsar tölur er varða greiðslur. Ekki er vitað hvaða greiðslur er átt
við en eigandi fyrirtækisins, Otto Spork, er borinn þungum sökum í heimalandi sínu
vegna stórfellds fjármálamisferlis.
leynisamningur um
vatnsréttindi sporks
Snæfellsbær gerði stóran langtíma-
samning við Iceland Glacier Prod-
ucts vegna fyrirhugaðrar vatnsverk-
smiðju á Rifi. Samningurinn felur í
sér að næstu 95 árin eigi fyrirtækið
Iceland Glacier Products einkarétt
á vatni sem kemur úr lindum undir
Snæfellsjökli. Iceland Glacier Prod-
ucts er miðpunkturinn í stórfelldu
fjármálamisferli sem yfirvöld í Kan-
ada hafa til rannsóknar en það teyg-
ir anga sína frá Kanada til Íslands og
þaðan til Cayman-eyja.
Engar frekari upplýsingar fást um
samninginn en forsvarsmenn Snæ-
fellsbæjar segja hann trúnaðarmál og
neita að svara spurningum er snerta
þennan stóra og langa samning við
fyrirtækið.
Trúnaður um greiðslur
„Hann er trúnaðarmál,“ segir Krist-
inn Jónasson, spurður út í samning-
inn við Iceland Glacier Products.
Aðspurður hvort það væri ekki
óeðlilegt að slíkur samningur sem
afsali vatnsréttindum til 95 ára væri
trúnaðarmál sagðist hann ekki ætla
að leggja dóm á hvað væri eðlilegt og
hvað ekki.
„Í þessum samningum eru tölur
er varða greiðslur sem talið er eðlilegt
að ríki trúnaður um.“
Ásbjörn Óttarsson, forseti bæjar-
stjórnar og efsti maður á framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvest-
urkjördæmi, var einn af þeim sem
samþykktu samninginn en sagðist þó
ekki muna hvað í honum stæði. Hann
benti á bæjarstjórann sem var, eins
og áður sagði, þögull sem gröfin.
Gruggugt vatnsfyrirtæki
DV greindi frá því á þriðjudaginn að
Iceland Glacier Products væri flækt
í kanadíska svikamyllu. Eigandi fyr-
irtækisins er Otto Spork en hann er
einnig stjórnandi og stofnandi vog-
unarsjóðs sem lagði gríðarlega fjár-
muni í tvö vatnsfyrirtæki sem eru
skráð í Lúxemborg. Vatnsfyrirtækin
tvö eiga síðan hvort um sig eitt fyr-
irtækið hér á landi, annað sér um
vatnsverksmiðjuna á Rifi en hitt sér
um vatnsverksmiðju í Vestmanna-
eyjum.
Otto Spork er sagður hafa setið
báðum megin við borðið auk þess
sem hann skammtaði fyrirtæki sínu
himinháa bónusa þrátt fyrir að hvor-
ugt vatnsfyrirtækið hefði skilað hagn-
aði, hvað þá tappað á eina einustu
vatnsflösku. Þá virðist vatnsverk-
smiðjan á Rifi í uppnámi en Stálfélag-
ið, sem flutti inn húsið sem á að hýsa
verksmiðjuna, hefur ekki enn fengið
greitt og liggur því húsið ótollafgreitt
á kajanum á Rifi.
Um það bil tvö hundruð og fjöru-
tíu kanadískir fjárfestar höfðu lagt
mikla fjármuni í verkefnið og nú vilja
þeir peningana til baka.
Endalaus einkahlutafélög
Otto Spork og starfsmaður hans,
Sverrir Pálmarsson sem jafnframt er
talsmaður fyrirtækisins hér á landi,
hafa stofnað í það minnsta sex einka-
hlutafélög hér á landi; Iceland Glac-
ier Products ehf., Iceland Global
Water ehf., Sextant Capital Manage-
ment INC., Iceland Global Shipping
ehf., Iceland Bulk Water ehf. og Sex-
tant Capital Management á Íslandi
ehf. Félögin eru ýmist skráð á Sverri
eða Otto Spork.
Tapar en græðir samt
Það sem vekur athygli er að í skýrslu
verðbréfaeftirlits Kanada segir að
hlutabréf í Iceland Glacier Products
S.a.r.l., aðaleiganda vatnsverksmiðj-
unnar á Rifi, hafi hækkað um 984% frá
því vogunarsjóður Ottos Spork fjár-
festi í fyrirtækinu. Samt sem áður er
tap félagsins á árinu 2007 rúmar þrjá-
tíu milljónir króna. En þar sem hluta-
bréfin hækkuðu í verði átti fyrirtækið,
sem heldur utan um vogunarsjóðinn,
rétt á ríflegum bónusum sem nú eru
meðal þess sem kanadísk stjórnvöld
rannsaka.
Eftir því sem DV kemst næst eru
fjárfestarnir tvö hundruð og fjörutíu
ævareiðir vegna málsins en meðal þess
sem þeir skoða nú er hvort hægt sé að
sækja peningana til Íslands. Ekki náð-
ist í Otto Spork við vinnslu fréttarinnar
en DV hefur árangurslaust reynt að ná
tali af honum síðan á þriðjudag.
ATli MÁr GylfASOn
blaðamaður skrifar: atli@dv.is
Allt í góðu Þessi mynd var tekin í mars þegar forseti Íslands hitti forsvarsmenn fyrirhugaðrar verksmiðju á rifi. frá vinstri:
Ásbjörn Óttarsson, Kristinn Jónasson, Otto spork, Ólafur ragnar grímsson og eiginkona Ottos. sverrir Pálmarsson, talsmaður
fyrirtækisins, er lengst til hægri.
„Í þessum samning-
um eru tölur er varða
greiðslur sem talið er
eðlilegt að ríki trúnað-
ur um.“
Forystumenn Sjálfstæðisflokksins óttast ekki að vera í stjórnarandstöðu:
„Ég er að hugsa um flokkinn“
Geir H. Haarde, fráfarandi formaður
Sjálfstæðisflokksins, segist ekki óttast
að flokksins bíði löng stjórnarand-
stöðuseta þar sem aðrir stjórnmála-
flokkar vilji ekki starfa með flokknum
í ríkisstjórn. Geir og Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir svöruðu spurningum
fréttamanna í Alþingishúsinu í gær.
„Ég held að það þurfi alls ekki að vera
þannig. Stjórnarflokkarnir standa
vel að vígi í skoðanakönnunum en
Framsóknarflokkurinn hefur ekki
grætt á því að leggja þessari ríkis-
stjórn lið,“ segir Geir. Þorgerður Katr-
ín tekur í sama streng. „Fyrst það fór
eins og fór með gömlu ríkisstjórnina,
þá var það ekki það versta fyrir okk-
ur sjálfstæðismenn að fara í stjórn-
arandstöðu. Ég held að við höfum
einfaldlega haft gott af því. Ég vona
að það verði þó í skamman tíma og
ég held að menn sjái það núna þeg-
ar við horfum á þessa ríkisstjórn að
ákvarðanir vantar í stóru málunum,“
segir hún.
Aðspurður segir Geir Haarde að
honum sé ekki létt að hætta í stjórn-
málum. „Þetta ber öðruvísi að en ég
hafði hugsað mér. Ég var búinn að sjá
það fyrir mér að ríkisstjórnin myndi
starfa út kjörtímabilið 2011. Þá hefði
landsfundur flokksins ekki verið fyrr
en í haust og þá hefði ég haft svig-
rúm til þess að taka þessi veikindi
sem komu óvænt upp öðrum tökum
og ekki verið knúinn til þess að taka
ákvörðunina svona skyndilega,“ seg-
ir hann.
Geir segist þó telja að hann hafi
gert allt rétt. „Ég er að hugsa um
flokkinn minn. Það er fullt af góðu
fólki í flokknum sem getur tekið við
og ég er ekki það eigingjarn að halda
að ég sé ómissandi. Þetta er auðvitað
heilmikil breyting, það verður mjög
skrítið að hafa ekki pósthólf hérna
niðri á Alþingi.“
valgeir@dv.is
Geir H. Haarde „Þetta er auðvitað
heilmikil breyting, það verður mjög
skrítið að hafa ekki pósthólf hérna niðri
á alþingi.“
Íbúð brann
á akureyri
Eldur kom upp í íbúð í fjölbýl-
ishúsi við Keilusíðu á Akureyri
aðfaranótt miðvikudags. Eld-
urinn kom upp um þrjúleytið
en íbúar hússins vöknuðu við
reykskynjara. Íbúðin var mann-
laus og sakaði engan. Íbúðin er
mikið skemmd og talið er að allt
innbú hennar sé ónýtt. Eldur-
inn náði ekki að breiða úr sér frá
íbúðinni en nokkurn reyk lagði
þó um stigagang hússins. Greið-
lega gekk að slökkva eldinn en
lögregla vinnur nú að rannsókn
á upptökum hans.
atvinnulausir
útlendingar
Tæplega tvö þúsund erlendir
ríkisborgarar voru án atvinnu
í lok febrúar, sem jafngildir því
að tæplega þrettán prósent allra
sem voru skráðir atvinnulausir
í lok síðasta mánaðar hafi verið
erlendir ríkisborgarar. Um það
bil 65 prósent þeirra útlendinga
sem voru skráðir atvinnulausir í
lok febrúar voru Pólverjar. Þetta
kemur fram á vef Greining-
ar Íslandsbanka. Alls störfuðu
778 þeirra útlendinga sem hafa
misst vinnuna í byggingariðn-
aði, eða um 40 prósent þeirra
sem misst hafa vinnuna. Í lok
september voru aðeins 122 út-
lendingar skráðir án atvinnu og
hefur þeim því fjölgað um 1.830
síðan þá.
nauðgun kærð
Lögreglan í Vestmannaeyjum
rannsakar nú kæru vegna mein-
trar nauðgunar sem sögð er að
átt hafi sér stað aðfaranótt 22.
mars. Málsatvik liggja ekki ljós
fyrir en skýrsla hefur verið tek-
in af meintum þolanda, sem er
kona um fertugt, og meintum
geranda, sem er karlmaður um
þrítugt. Lögreglan í Vestmanna-
eyjum nýtur aðstoðar rannsókn-
ardeildar lögreglunnar á Selfossi
við rannsókn málsins.
650 kannabis-
plöntur
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu stöðvaði umfangsmikla
kannabisræktun í húsi í Hafnar-
firði í fyrradag. Við húsleit fund-
ust um 600 kannabisplöntur á
ýmsum stigum ræktunar. Karl
á þrítugsaldri var yfirheyrður í
tengslum við rannsókn málsins.
Þá stöðvaði lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu kannabisræktun
í húsi í miðborginni síðdegis á
sunnudag. Við húsleit á áður-
nefndum stað fundust tæplega
50 kannabisplöntur á ýmsum
stigum ræktunar.