Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Blaðsíða 8
Fimmtudagur 30. apríl 20098 Fréttir Bakkabræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir reyna nú að komast yfir Exista. Félag þeirra BBR ehf. er komið með 40 prósenta hlut í Exista og hefur gert yfirtökutilboð í afganginn af hlutafénu. Óvíst er með fjárhagsstöðu forstjóra félagsins, þeirra Erlends Hjaltasonar og Sigurðar Valtýssonar. Þeir eru með 600 milljóna króna skuldir vegna hlutabréfakaupa en litlar eignir eru til fyrir þeim eftir bankahrunið. Rúmlega 70 milljarða króna viðskiptavild Skipta sem nýverið kynnti uppgjör sitt hefur líka vakið athygli. ENN HÆKKAR VIÐSKIPTAVILDIN Bakkabræðurnir Ágúst og Lýður Guð- mundssynir gerðu nú nýlega yfir- tökutilboð í allt hlutafé Exista. Í grein sem þeir skrifuðu í Fréttablaðið á mið- vikudag segja þeir að tilgangur þess sé ekki að komast yfir hluti annarra hlut- hafa í Exista. Yfirtökutilboðið sé til- komið vegna lagalegra kvaða þar sem félag þeirra BBR ehf. fari nú með 40 prósenta hlut í félaginu. Ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna þeir bræður vilja komast yfir fyrirtæk- ið. Bréf þess náðu hæstu hæðum í lok júlí 2007 á sama tíma og úrvalsvísital- an stóð í 9.000 stigum. Þá náðu þau genginu 40 en nú er gengi félagsins skráð 0,02. Mikil verðmæti eru þó í fé- lögum í eigu Exista eins og fjarskipta- fyrirtækjunum Skiptum og Mílu. Fé- lagið á einnig tryggingafyrirtækið VÍS. Óvíst er hvernig bílafjármögnunarfé- lagið Lýsing stendur. Skuldugir stjórnendur Þeir Erlendur Hjaltason og Sigurður Valtýsson, forstjórar Exista, eiga báð- ir einkahlutafélög sem fjárfest hafa í hlutabréfum. Félag Erlendar, Hái- klettur ehf. sem hann á ásamt sonum sínum, keypti hlutabréf í Exista fyr- ir 280 milljónir árið 2006. Verðmæti þessara bréfa eru í dag í kringum 500 þúsund krónur. Áætlaðar skuldir eru þó nálægt 360 milljónum króna. End- urskoðandi Erlendar er Reynir Vignir, formaður skilanefndar Straums fjár- festingabanka. Sigurður Valtýsson á félög- in Svalt ehf. og Sigurlind ehf. Eignir þeirra í dag eru 700 þúsund króna hlutur í Ex- ista, 2,5 milljónir í Bakkavör og 60 milljónir í MP Banka. Skuldirnar nema hins vegar 240 milljónum króna. Gríðarhá viðskipta- vild Skipta Fyrir viku kynnti símafyrir- tækið Skipti afkomu sína fyrir árið 2008. Tap félagsins nam 6,5 miljörðum króna. Nokkra athygli vakti að félagið hækk- aði viðskiptavild sína úr 67 milljörðum í 71 milljarð króna. Auk þess fjórfaldaðist handbært fé félagsins úr 5 milljörðum í 21 milljarð króna. Árið 2004 var síðasta árið sem félagið var í eigu ríkis- ins. Þá var viðskiptavild Landssímans skráð 970 milljónir króna. Það var 3 prósent af heildareignum félagsins. Árið 2008 er viðskiptavild Skipta hins vegar 55 prósent af heildareignum félagsins. Eigið fé Skipta er skráð 37 milljarðar króna sem er 28 prósent eigið fé. Ef viðskiptavildin væri lækkuð um helm- ing yrði því eigið fé félagsins uppurið. Segja reksturinn góðan Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Skipta, segir að há við- skiptavild skýrist að langstærstum hluta af því þegar ríkið seldi Símann á sínum tíma fyrir 66,7 milljarða króna. Hann segir að handbært fé félagsins hafi hækkað svona mikið vegna sterks fjárstreymis úr rekstri auk sölu á eign- um þar á meðal fjarskiptafélögum í Tékklandi. Félagið hafi því sterka stöðu til að takast á við framtíðina. „Jafn- vel greiða skuldir niður hraðar ef tekin verður ákvörðun um það,“ segir Pétur. Að sögn Péturs er fyrirtækið fjár- magnað til ársins 2013 og segir hann greiðslubyrði félagsins hóflega miðað við umfang og afkomu félagsins. Fé- lagið þurfi síðan að endurfjármagna sig árið 2013. Deloitte kvittar undir Í samtali við DV segir Hilmar A. Al- freðsson, endurskoðandi hjá Deloitte sem skrifar undir ársreikning Skipta, að ekkert óeðlilegt sé við hann. Allt eigi sér eðlilegar skýringar og ekk- ert athugavert við háa viðskiptavild félagsins. Deloitte hefur verið end- urskoðandi Skipta og eigenda þess, Exista, undanfarin ár. Knútur Þór- hallsson, stjórnarformaður Deloitte og skilanefndarmaður í Kaupþingi, er endurskoðandi Exista. Annar eigandi Deloitte og yfirmaður endurskoð- endasviðs er Lárus Finnbogason sem nú starfar sem formaður skilanefndar Landsbankans. Breyting á viðskiptavild Reynir Stefán Gylfason, endurskoð- andi hjá KPMG, segir að með upp- töku alþjóðlegu IFRS-staðlanna í árs- byrjun 2005 hafi orðið viss breyting á því hvernig viðskiptavildin bókfærist. „Einu áhrif staðlanna á viðskiptavild var að það var hætt að afskrifa hana með kerfisbundnum hætti,“ segir hann. Það hefði þó ekki átt að hafa þau áhrif að viðskiptavild fyrirtækja hækk- aði upp úr öllu valdi. Viðskiptavild Landssímans var 3 prósent af heildar- eignum í árslok 2004 áður en staðlarnir voru teknir upp. Viðskiptavildin 2008 hjá Skiptum er 55 prósent. Virðisrýrn- unarpróf eru gerð í dag. Í því felst að ef framtíðar sjóðsstreymi stenst þarf ekki að afskrifa viðskiptavild. Kaupin á Skiptum Geir H. Haarde undirritaði kaup- samning við Skipti ehf. árið 2005 um sölu ríkisins á 98,8 prósenta hlut rík- isins í Landssíma Íslands. Kaupverð- ið var 66,7 milljarðar króna. Þeir sem stóðu að Skiptum voru Exista sem átti 45 prósenta hlut, Kaupþing með 30 prósenta hlut og fjórir lífeyrissjóðir áttu síðan 21 prósent hlut auk nokk- urra minni fjárfesta. Hluti af samn- ingnum var að enginn einstakur aðili mætti eiga meira en 45 prósent hlut í Símanum. Félagið skyldi sett á mark- að í Kauphöllinni árið 2007. Auk þess skyldu 30 prósent af heildarhlutafénu boðin almenningi og öðrum fjárfest- um fyrir árslok 2007. Í útboði í mars 2008 var almenningi og öðrum fjárfestum boðinn 30 pró- senta hlutur í Skiptum. Seldust ein- ungis 7,5 prósent af því hlutafé. Viku síðar fóru Skipti á markað og gerði Ex- ista strax yfirtökutilboð í bréfin. Var fé- lagið síðan tekið af markaði tveimur mánuðum síðar. Exista á því félagið að fullu í dag. Skráð viðskiptavild Landssímans hefur aukist úr 970 milljónum króna 2004 í 71 milljarð króna á síðasta ári. annaS SiGmunDSSon blaðamaður skrifar: as@dv.is Hrunið viðskiptaveldi Sigurður Val- týsson, Erlendur Hjaltason ásamt Águsti guðmundssyni og guðmundi Haukssyni þegar veldi Exista stóð sem hæst. Skuldugur forstjóri Þrátt fyrir að Sigurður Valtýsson eigi 60 milljóna króna hlut í mp banka eru skuldir hans tæplega 180 milljónir umfram eignir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.