Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Blaðsíða 22
Orðubömmerinn mikli Stóra orðuhneykslið sem nú skekur Bessastaði og Hvíta hús-ið veldur Svarthöfða áhyggjum og hann sér fyrir sér að íslenska þjóðin sé ekki búin að bíta úr nálinni með þetta nýjasta útspil húsbóndans á Bessastöðum. Nú hefur Svarthöfði svosem aldrei skilið snobbið í kringum fálkaorðuna þar sem forsetinn dritar þessu heiðursmerki tvist og bast á alls konar fólk á mjög svo mismunandi forsendum. Sumir fá orðu fyrir óeig- ingjarnt starf í þágu annarra og jafnvel fyrir að leggja líf sitt í sölurnar til að bjarga fólki. Slíkt fólk væri auðvitað vel að heiðursmerki komið en fálkaorð- an er gengisfelld með því að hengja hana líka á fólk fyrir það eitt að stunda áhugamál sín af sjúklegri þráhyggju en þessi áhuga- málaverðlaun ná yfir allt frá frímerkja- söfnun til boltakasts. Og svo fá góðir og gegnir embættismenn líka reglulega orður fyrir að mæta í vinnuna í áratugi. Ólaf Ragnar skorti því svosem ekki tilefnið til þess að sæma Carol van Voorst, fráfarandi sendiherra Bandaríkjanna, fálkaorðu. Hún hefur örugglega verið mjög dugleg að sendiherrast og í raun á hver og einn útlendingur sem nenn- ir að hanga á Íslandi við skyldustörf heiður skilinn. Þess vegna er Svart- höfða illskiljanlegt hvers vegna Ólafur og Örnólfur húskarl hans létu bless- aða konuna fara fýluferð til Bessastaða. Hún hafði að því er virðist takmarkaðan áhuga á að hitta Ólaf en öllu meiri á að fá glingrið í barminn áður en hún yfirgæfi Skerið. Aum-ingja kon-an vissi ekkert hvaðan á sig stóð veðr- ið þegar hringt var í hana í heimkeyrslunni að Bessastöðum og henni tjáð að öngva fengi hún orðuna. Hún hlýtur að hafa átt von á því að Auddi Blöndal styngi hausnum blað- skellandi inn um hliðargluggann, með hljóðnemann á lofti, og gaggaði á hana að hún hefði verið tekin. En þetta var ekki svo gott og þetta axarskaft, eða síma-hrekkur, þeirra á Bessastöð-um er enn eitt dæmið um að þessa dagana verður ógæfu Íslands allt að vopni. Það getur ekki boðað gott að senda frú van Voorst saltvonda heim þar sem hún mun klaga í sinn skelegga forseta Barack Obama. Blóðið fraus í æðum Svart-höfða þegar hann heyrði þulinn í útvarpinu segja í há-degisfréttum í gær að Obama væri ævareiður. „Úff,“ hugsaði Svart- höfði með sér. „Nú kemur orðuskand- allinn!“ Sem betur fer voru samt bara einhverir kónar í útlöndum að styggja Barack að þessu sinni en röðin kemur að okkur. Íslendingar þurfa á vinum eins og Obama að halda. Hann hefur lýst áhuga á að kíkja hingað í heim-sókn og við hefðum örugglega náð af honum einhverjum dollurum áður en forsetaembættið tók upp á því að hafa sendiherra hans að fífli. Örnólfi og Ólafi Ragnari er margt til lista lagt en símahrekki og sprell eiga þeir að eft- irláta fagfólki. Fimmtudagur 30. apríl 200922 Umræða Sandkorn n Meðal þeirra sem kosning- arnar björguðu frá starfsmissi er Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. Birna er umdeild vegna kúluláns upp á yfir 100 milljón- ir sem hún fékk útlutað en það lán þurrkaðist út og hún slapp við að borga. Með- al seinni tíma af- reka Birnu er að hafa strikað út milljarðaskuldir Morgunblaðs- ins og þannig velt tjóninu yfir á almenning. Elín Sigfúsdótt- ir, bankastjóri Landsbankans, missti starf sitt í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar þegar boðað var að stöður ríkisbankastjóranna yrðu auglýstar. En algjör þögn ríkir um Birnu. n Þráinn Bertelsson, alþingis- maður og heiðurslaunaþegi, er stendur heldur betur í ströngu þessa dagana. Innan Borgara- hreyfingar hans gætir gríðarlegs óróa vegna þess að þingmaður þeirra ætlar að þiggja heiðurslaun- in og til við- bótar þing- fararkaup. En Þráinn stendur þó ekki einn því valdakjarni hreyfingarinnar hefur sent út yfirlýsingu um að málið sé al- farið á valdi Þráins sjálfs sem ráði hvað hann geri. Búsáhalda- byltingin hefur þannig talað. n Deilurnar um Þráin Bert- elsson tóku á sig einkennilega mynd þegar Fréttablaðið upp- lýsti um háleynileg tölvupósta- samskipti milli þingmanns- ins og órólegu deildarinnar sem vildi að hann afsalaði sér heiðurs- laununum. Framarlega í flokki gagn- rýnenda var Mummi í Mótorsmiðj- unni sem fékk það óþvegið frá þingmanninum. Friðrik Þór Guðmundsson, blaðamaður og einn helsti talsmaður Borgara- hreyfingarinnar, gagnrýndi að póstunum hefði verið lekið til fríblaðsins. Skömmu síðar upp- götvaði hann að leyndarmálið hafði farið úr hans eigin tölvu til fríblaðsins. n Það hvílir mikið á guðfeðrum ríkisstjórnarinnar, Ögmundi Jónassyn heilbrigðisráðherra og Össur Skarphéðinssyni utanríkisráðherra, nú þegar núningur er milli flokka þeirra. Þeir félagar áttu hugmyndina að samstjórn vinstri flokkanna og sprengdu þannig Sjálfstæð- isflokkinn út í buskann. Össur átti síðan hugmyndina að því að fá Jóhönnu Sigurðardóttur sem forsætisráðherra á sínum tíma. Nú leggja guðfeðurnir nótt við dag til að ná saman um nýja ríkisstjórn. lyngháls 5, 110 reykjavík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn loftsson framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 70 50. umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Fádæma sóðaleg auglýsing“ n Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands, um blaðaauglýsingu Samtaka iðnaðarins (SI) sem birt var í dag. Þar sést ógeðfelldur læknir standa yfir stúlku með glennta fætur í skemmuhúsnæði líkt og fóstureyðing sé að fara eiga sér stað. Verið er að hvetja til þess að velja fagmenn. – MBL.is „Andinn hér á landi er þannig að það eru ekki margir að bjóða honum starf.“ n Heimildarmaður DV um Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, sem hann segir íhuga að flytja frá Íslandi. – DV. „Rótin var miklu fremur erfða- fyrirkomulag í forystu Sjálf- stæðisflokksins.“ n Ólafur Arnarsson í nýrri bók sinni, Sofandi að feigðarósi, um að útrásarvíkingarnir ættu ekki sök á bankahruninu nema að hluta til. – DV. „Kaupþing er það sem gerist þegar þybbnir, sköllóttir, stjórnendur líta í spegil og sjá Brad Pitt.“ n Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri Monitors, sem furðar sig á því að gjaldþrot Kaupþings sé talið það þriðja stærsta í sögunni. – DV. Ranglætisþjóðfélagið Leiðari Undir verndarvæng vinstri grænna og Samfylkingarinnar þrífst enn ranglætisþjóðfélag. Það felst í því að þeim er refsað sem gerðu allt rétt, en þeim sem gerðu allt rangt er hyglað. Fólkið sem passaði að skuldsetja sig ekki um of í kaupum á heimili þarf að draga á eft- ir sér margra milljóna skuldahala sem stökk- breyttist úr ævisparnaðinum í fasteigninni. Þeir sem hins vegar skuldsettu sig mest í góð- ærinu og horfa fram á gjaldþrot eru þeir einu sem ríkið kemur til móts við. Þeir sleppa við að vera hlekkjaðir við yfirveðsetta fasteign á sökkvandi markaði. Þeir sem fengu kúlulán hjá fyrirtækjum til að kaupa í sömu fyrirtækjum með veði í sömu bréfum sleppa flestir létt. Einkahluta- félög þeirra fara á hausinn, en „persónuleg- ar ábyrgðir“ eru ekki til staðar. Sökudólg- arnir í bólunni miklu sem sprakk í andlitið á almenningi eru þeir sem sleppa, en hinir sem gerðu allt rétt og keyptu hlutabréf með sparnaðinum missa eignir sínar. Fólkið sem gerði allt rétt er stuðpúði rík- isstjórnarinnar. Það er fólkið sem sparaði milljónir til að kaupa sér heimili, en horfði upp á bankana hækka lánin um hundruð þúsunda í hverjum mánuði með hjálp verð- tryggingar stjórnvalda. Nú sér það fasteign- ina hrynja í verði vegna þess að óvarfærin útlánastefna bankanna og heimskuleg hag- stjórn ríkisstjórnarinnar ollu eignabólu sem var dæmd til að springa. Bankarnir og ríkis- stjórnin eru vírus í fjárhagslegri heilsu þessa fólks, svo talað sé út frá auglýsingaherferð eins bankans. Ríkisstjórninni finnst fráleitt að leiðrétta ranglætið gagnvart fólkinu sem gerði allt rétt, jafnvel þótt ríkið sjálft og þess kerfi hafi kippt fótunum undan því. Í einhverjum tilfellum refsar ríkið sér- staklega þeim fyrirtækjum sem skuldsettu sig lítið. Þau fyrirtæki sem skulduðu millj- arða fá hins vegar afskriftir og áframhald- andi lán. Þau sem skulduðu lítið fá síður lán, því bankarnir eiga meiri hagsmuni undir því að bjarga þeim sem þeir lánuðu of mikið. Íslenskt þjóðfélag verðlaunar vanhæfni og refsar hinum hæfu. Flest fólk á Íslandi þarf enga hjálp frá rík- isstjórninni, heldur þarf að bjarga því frá rík- inu og hættulegum ákvörðunum stjórnmála- manna. Yfirlýsingar stjórnmálamanna um björgunarleiðangur í kjölfar hrunsins voru goðsagnakenndar. Björgunarleiðangurinn var um leið ránsleiðangur. Ræningjar ríkis- ins sýndu hins vegar þá uppgerðarkurteisi að gera við lásinn eftir að þeir brutust inn og hirtu allt af heimilinu. En lásinn snýr öfugt. Jón TrausTi reynissOn riTsTJóri skrifar. Íslenskt þjóðfélag verðlaunar vanhæfni og refsar hinum hæfu. bókStafLega Algjör óvinur Mér skilst að nafn mitt sé ekki að finna á lista yfir verstu andstæð- inga Framsóknarflokksins. Þetta er náttúrlega hneisa og lýsir kannski best þeim aumingjagangi sem þessi himpigimpasamkunda er frægust fyrir. Þetta segir okkur hinum það að minnisleysi hljóti að hrjá alla þá sem kjósa þennan ömurlega flokk. Ekki nóg með að flokkurinn hafi stund- að ýmiskonar glæpsamlegt athæfi sem sum hver hafa birst í almenn- um leiðindum, einkavinavæðingu, stöðuveitingum til flokksgæðinga, umhverfisspjöllum, gegndarlausu bruðli með almannafé og aðild að helmingaskiptaveldi, heldur hefur margur þjóðníðingurinn leikið þar lausum hala og þar hafa menn feng- ið að hygla mannleysum sem stund- að hafa sjálftöku, lygar, bitlingapólitík og brask. Það er hrein og klár sögufölsun að nefna mig ekki á nafn þegar listi yfir óvini Framsóknarflokksins er birtur. Ég hef ort fleiri níðvísur um þennan flokk en nokkur annar maður. Ég held ég hafi ábyggilega kallað forsprakka flokksins: lygara, þjófa, glæpamenn, þjóðníðinga, landráðamenn, fanta, dusilmenni, lyddur og vesalmenni. Ég held ég hafi yfirleitt notað öll ljót- ustu orð sem ég hef fundið þegar ég hef neyðst til að fjalla um þennan skríl. Þannig að ég hélt að ég þyrfti ekki að sanna það frekar að ég er óvinur þessa versta stjórnmálaflokks sem til hefur verið. Ég sendi meira að segja frá mér vísnakverið ALDREI KAUS ÉG FRAMSÓKN. Þar birtust í löngum röðum ljótar vísur um fólk einsog Halldór Ásgrímsson, Finn Ingólfsson, Valgerði Sverrisdóttur, Guðna Ágústsson og fleiri framsókn- armenn. Hvernig getur staðið á þessum mistökum? Eina hugsanlega skýringin er sú að framsóknarmenn hafi áttað sig á því að ég hafi ávallt notað réttu orð- in þegar ég lýsti innviðum flokksins. Kannski hafa þeir einfaldlega átt- að sig á því að það sem sumir köll- uðu níðvísur – voru bara eðlilegar og yndislegar lýsingar á drullusokkum flokksins. Núna keppist þessi einkennilegi hópur við andlitslyftingu og menn sem komast inn á þing undir merkj- um annarra flokka, en eru brenni- merktir bitlingapólitík Framsóknar reyna að sverja af sér tengslin. Svo slæmt er ástandið að góður drengur, Þráinn Bertelsson, á í mesta basli við að losa sig úr gapastokki grimmúð- legra örlaga. Sá sem inn í Framsókn fer og fagnar dýrðarljóma um eilífð mun í heimi hér hljóta slæma dóma. kristján Hreinsson skáld skrifar Það er hrein og klár sögufölsun að nefna mig ekki á nafn þegar listi yfir óvini Framsóknarflokksins er birtur.“ SkáLdið Skrifar Svarthöfði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.