Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Blaðsíða 25
Fimmtudagur 30. apríl 2009 25Fókus Fyrsta myndin um kókaínkúrekana er ennþá í fersku minni. Þar var fjallað um lygilegar leiðir kókaíns inn í Bandaríkin og öllu sem því fylgir. Þar var fjallað um kókaíngeir- ann almennt í víðara samhengi en framhaldið þrengir í snörunni. Það skýrist af því að krakksalinn Charles Cosby er í raun sögumaður tvists- ins vegna sérstæðs sambands síns við kókaínkeisaraynjuna Griseldu Blanco. Hún er aðal myndarinn- ar, verandi umfangsmeiri en Pablo Escobar á hún klárlega sína eigin mynd skilið. Við fylgjumst með viðskipta- /ástarsambandi þeirra Charles, hvernig hann stækkar veldi sitt fyr- ir tilstuðlan Griseldu og ævintýra- leg plön hennar verða veruleiki þótt hún sé á bak við lás og slá. Við fáum innsýn í hræðilegan uppvöxt henn- ar í fátækt og ofbeldi og þar af leið- andi aukinn skilning á miskunnar- leysi hennar. Það er flott að útskýra sögu Griseldu til að undirstrika það að fólk fæðist ekki svona illa inn- rætt. Önnur samfélagsleg tenging er kynþáttaspennan. Þar sem Charles er svartur er það ásteytingarsteinn við ýmsa lagsmenn Griseldu og bætist þar við spennandi kynþátta- pæling um það hvernig slíkir hlutir spila inn í í Kólumbíu. Þetta er heimildamynd með miklu afþreyingargildi og hraða sem lætur mann aldrei slappa af. Þetta er vissulega ekki dýpsta mynd- in um efnið og er meira á persónu- legum nótum en samfélagslegum. Hún segir samt spennandi sögu og hreint ótrúlega en lætur aðra um að setja í dýpra félagslegt samhengi. Sagan er sviðsett með teiknimynd- um sem fylla upp í skarð sem heim- ildamyndir eiga við að etja. Þetta er frumlegt og undirstrikar hvað at- burðarásin er ævintýraleg. Talað er við alls konar lið hér, löggur og bófa til skiptis en mest við eiturlyfjaprinsinn Charles. Þetta dregur vissulega úr heimildagild- inu, vitandi að hann getur ekki talað fullkomlega frjálst. Sennilega dreg- ur hann ýmislegt undan enda gæti ákæruvaldið gert sér mat úr ýmsu sem hann segir og það sem verra er, Griselda er ennþá á lífi með sín tvö hundruð morð á samviskunni. Kraftmikið og lygilegt 90% med- ellin coca köttað með amerískum draumi, gjörið svo vel. Erpur Eyvindarson Snortaðu á þessu m æ li r m eð ... Man on Wire Frábær heim- ildarmynd um djarfan mann sem eltir draum sinn í hæstu hæðir. DrauMalanDið mögnuð mynd. Kemur á besta tíma þegar uppgjör á sér stað á grunnhugmynd- um seinustu ára. låt Den rätte koMMa in Ekki missa af þessari. Hún er svo miklu meira en hryllings- mynd. Bigger Stronger FaSter Heimild um áhugavert viðfangs- efni og lífsviðhorf. SoFanDi að FeigðaróSi reyfarakennd, snörp og skemmtileg frásögn af íslenska efna- hagshruninu. oBServe anD report Óendanlega fyndin á köflum en fullsteikt þess á milli. Fimmtudagur n orka, ólöf arnalds og eivör páls - Sæti / Seating Orka, Ólöf arn- alds og Eivör pálsdóttir koma fram í Norræna húsinu í kvöld. miðaverð í stæði er 1.900 krónur en það kostar 2.900 krónur í sæti. tónleikarnir hefjast klukkan 21. n kiasmos á kaffibarnum Ólafur arnalds er önnur hönd dans- tónlistartvíeykisins Kiasmos sem mun sjá um tónlistina á Kaffibarnum síðari hluta nætur og spila fyrir ykkur það heitasta í danstónlist í dag í bland við glænýtt Kiasmos-efni. Opið er langt fram eftir nóttu. n Bubbi á eskifirði Kóngurinn sjálfur mætir eldhress til leiks á tónleikum í menningarmið- stöð Eskifjarðar. tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og kostar 2.000 krónur inn. Föstudagur n klúbbakvöld Weirdcore á Jacobsen Fyrsta klúbbakvöld Weirdcore verður haldið á Jacobsen í kvöld. Fram koma Yahya, Frank murder og Biogen. Ásamt Vector, anonymous, thor og andre þeyta skífum. Fjörið byrjar klukkan 01.00 og kostar ekkert inn. n Skímó á players Þeir eru fáránlega hressir á sviði og ef þú hefur gaman af því að dansa og syngja, ættirðu ekki að láta þetta ball framhjá þér fara. Fjörið byrjar upp úr miðnætti og kostar 1.600 krónur inn. n pub Quiz á Dillon Sports Bar Það er allt að gerast í Hafnarfirðin- um. Eitís pub Quiz byrjar klukkan 21.00 og eitístónlist á fóninum. Frítt í pool. laugardagur n Minningartónleikar um rúnar Júl í Höllinni Enn eru til miðar á þennan einstaka atburð. Verðflokkarnir eru mismun- andi. adáendur íslenska rokksins ættu ekki að láta þetta tækifæri framhjá sér fara. n tatatanZen mit tränen im augen á Jackobsen ta ta ta-kvöldin eru þau langskemmti- legustu. Það verður dansað þangað til sólin kemur upp. Ekki missa af þessu. Stuðið byrjar klukkan 23. n Bubbi í Djúpavogi Kappinn ferðast um landið með gítarinn sinn og syngur fyrir landann. Hann kemur fram á Hótel Framtíð í djúpavogi í kvöld. miðaverð 2.000 krónur. n ný Dönsk á naSa Strákarnir í Ný dönsk stíga á svið á NaSa í kvöld og gera allt vitlaust. Þess- ir menn kunna að halda uppi góðri stemningu. Ballið byrjar á miðnætti. Hvað er að GERAST? Á plastinu sem er utan um súkkul- aðið má sjá stillansa og byggingakrana sem er hluti af því útliti húsanna sem Reykvíkingar hafa vanist undanfarna mánuði og misseri. „Súkkulaðið sjálft sýnir í rauninni byggingarnar eins og þær verða eða eiga að vera,“ lýs- ir Arna. „Á pakkningunum sést hins vegar þetta augnablik sem er núna. Og ástæðan fyrir því að ég vel súkku- laði er út af því að það er líka tíma- bundin vara, alveg eins og augnablik- ið. Súkkulaði hefur bara sinn tiltekna hillutíma.“ gnæfa og silast Vinna verkefnisins hófst í janúar síð- astliðnum. Arna segir aðspurð að fleiri byggingar hafi komið til greina en þessar þrjár. Hún hafi til að mynda skoðað Höfðatorg, glerskrímslið við Borgartún, með súkkalaðieftirlíkingu í huga. „En síðan er sú bygging allt of langt komin þannig að ég sleppti henni. Ég var líka búin að skoða ýmsar aðrar byggingar og aðra hluti en komst svo að þeirri niðurstöðu að mér fyndist þessar þrjár byggingar, með þessum stillönsum, mest einkennandi fyr- ir miðborgina. Öll þessi framkvæmd sem er annaðhvort stopp eða silast áfram. Þessar byggingar gnæfa allt- af yfir okkur þegar við göngum eða ökum um miðborgina.“ Hágæða súkkulaði Súkkulaðibyggingarnar eru raunsæir minjagripir um þetta augnablik, þetta tímabil, segir Arna. Og hún segir verk- ið ekki pólitískt. „Ég ákvað að skilja það eftir fyrir hvern og einn. Ég er því ekki að mata fólk á einhverjum upplýsing- um heldur er ég bara að sýna það sem er, án þess að ýkja það eða nokkuð slíkt.“ Spurð hvort þetta augnablik eða tímabil sé sorglegt tímabil í sögu þjóð- arinnar kveðst Arna ekki treysta sér til að kveða upp úr um það. „Kannski bæði og. Ég held að þessi kreppa hafi bæði gott og slæmt í för með sér. Þetta var ágætt sjokk fyrir marga held ég, en hrunið hefur auðvitað um leið haft hræðileg áhrif á marga.“ Súkkulaðið sem Arna notaði í hið merkingarþrungna sælgæti er alls ekki eitthvað ódýrt suðusúkkulaði úr Bónus. „Þetta er hágæða súkkulaði,“ segir Arna og hlær. „Sextíu og átta prósent súkkulaði frá svissnesku fyrir- tæki, upphaflega frá Bólivíu.“ Sýningargestir ekki markhópurinn Arna gerði allt sjálf í hönnun og fram- Stressaðist þegar Stuðmaðurinn mætti leiðslu nammisins, fyrir utan að hella súkkulaðinu í mót. „Hann heitir Ás- geir Sandholt hjá Sandholtsbakaríi sem ég fékk til þess að sjá um það fyr- ir sýninguna. Ég veit hins vegar ekki hvernig framhaldið verður. En á með- an ég hef ekki kunnáttu í þessu læt ég fagmann sjá um þetta,“ segir Arna í léttum dúr. Sælgætið er til sölu á Kjarvalsstöð- um á fimmtán hundruð krónur stykk- ið. Arna segir eitthvað hafa selst þótt ekki hafi það verið í bílförmum. „Fólk- ið sem sækir sýninguna er kannski ekki alveg markhópurinn, þótt ég hafi hugsað þetta sem minjagripi fyrir okkur öll. En þetta virðist höfða meira til þeirra sem eru að fara til útlanda eða vilja senda vinum í útlöndum einhvern glaðning.“ kristjanh@dv.is einar ingi Sigmundsson Einar spurði Jakob hvort hann væri „brjálæður“ sem sá síðarnefndi kvaðst ekki vera. MYnD SigtrYggur ari JóHannSSon CoCaine Cowboys 2 leikstjóri: Billy Corben Sýnd á Bíódögum Græna ljóssins kvikmyndir kókaínkúrekarnir 2 Heimildamynd með miklu afþreyingargildi og hraða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.