Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Blaðsíða 18
Fimmtudagur 30. apríl 200918 Fréttir Birna Einarsdóttir og Helgi Anton Eiríksson keyptu bæði hlut í Glitni í lok mars 2007. Helgi fyrir 211 millj- ónir króna og Birna fyrir 184 milljónir. Áætla má að skuld Helga við bankann standi nú í 445 milljónum en Birna er skuldlaus vegna „tæknilegra“ mistaka. DV hefur áður fjallað um 2,8 milljarða króna kúlulán Glitnis til stjórnenda sinna. Þau eru þó talin nema níu milljörðum króna. Birna sleppur við 390 milljóna skuld Í lok mars árið 2007 var Kauphöll- inni tilkynnt um viðskipti tveggja fruminnherja hjá Glitni sama dag. Helgi Anton Eiríksson, fram- kvæmdastjóri fjárfestingabanka- sviðs, og Birna Einarsdóttir, fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs, höfðu nýtt sér kauprétti. Hafði Helgi keypt fyrir 211 milljónir en Birna fyrir 185 milljónir króna. Eins og frægt er orðið urðu „tæknileg mistök“ til þess að kaup Melkorku ehf., félags Birnu, gengu aldrei eftir. Hins vegar gengu kaup félags Helga sem heit- ir Krem ehf. eftir. Samkvæmt árs- reikningi Krems ehf. fyrir árið 2007 var tap félagsins þá 62,4 milljón- ir króna. Höfðu bréf félagsins far- ið úr 211 milljónum í 176 milljón- ir króna. Skuldir félagsins voru 238 milljónir. Skuldir Helga tvöfaldast Samkvæmt ársreikningi Krems ehf. fyrir árið 2007 sést að skuldir eru skráðar 238 milljónir króna. Á þeim tíma sem lánið var tekið stóð geng- isvísitalan í 120 stigum. Hún stend- ur nú í 225 stigum og því má áætla að skuldir Krems ehf. séu núna 445 milljónir króna. Ef kaup Birnu hefðu gengið eftir má áætla að skuld hennar vegna þeirra hefði verið 208 milljónir í lok árs 2007. Miðað við núverandi gengi skuldaði Birna nú bankanum 390 milljónir króna. En vegna mistaka má gera ráð fyrir að nú skuldi félag Helga bankanum 445 milljónir króna en félag Birnu er skuldlaust. Samkvæmt ársreikn- ingi Melkorku ehf., sem var ekki skilað inn fyrr en í september 2008, er félag hennar skuldlaust. Skráð hlutafé er 500 þúsund krónur sem er lágmarksupphæð við stofnun einkahlutafélags. KPMG er endur- skoðandi Melkorku ehf. 11 mánuði að fatta mistök Í yfirlýsingu sem Birna sendi frá sér í lok október á síðasta ári sagði hún að Glitnir hefði boðið sér fimm ára kúlulán fyrir kaupunum. Það hefði átt að greiða með einni greiðslu árið 2012. Að sögn Birnu óskaði hún eft- ir atkvæðisrétti á aðalfundi Glitnis í febrúar 2008. Þá kom í ljós að engin hlutabréf voru skráð á félag Birnu. Þegar Birna óskaði eftir atkvæð- isrétti á aðalfundi Glitnis höfðu bréf hennar sem hún keypti á 184 milljónir króna lækkað um tæp 30 prósent. Verðmæti þeirra hafði því rýrnað um 55 milljónir króna. Níu milljarða kúlulán Hjá Íslandsbanka starfa nú sjö í framkvæmdastjórn. Fimm þeirra fengu samtals 2,8 milljarða króna kúlulán. Öll lánin voru veitt til eignarhaldsfélaga sem voru í eigu framkvæmdastjóranna. Samkvæmt heimildum DV er þetta þó einungis brot af þeim kúlulánum sem bank- inn veitti háttsettum starsmönnum. Sú upphæð er talin nema í kringum níu milljarða króna. Áætla má að þær skuldir hafi tæplega tvöfaldast miðað við núverandi gengi. Sam- kvæmt árshlutareikningi Glitnis fyrir annan ársfjórðung 2008 jukust lán bankans til stjórnenda úr 1.800 milljónum árið 2007 í níu milljarða árið 2008. Már Másson, upplýsinga- fulltrúi Íslandsbanka, sagði fyr- ir stuttu í samtali við DV að engin lán til stjórnenda eða félaga þeim tengdum hefðu verið afskrifuð. Ís- landsbanki hefði falið utanaðkom- andi lögmanni að kanna réttar- stöðu bankans vegna lánveitinga til hlutabréfakaupa starfsmanna og annarra aðila. BirNA EiNArSdóttir Félag: melkorka ehf. dagsetning viðskipta: 29.3.2007 upphæð viðskipta: 184 milljónir króna Áætluð skuld við núverandi gengi: 390 milljónir Skuld: Engin HElgi ANtoN EiríkSSoN Félagi: Krem ehf. dagsetning viðskipta: 29.3.2007 upphæð viðskipta: 211 milljónir króna Áætluð skuld við núverandi gengi: 445 milljónir króna Skuld: 445 milljónir króna ANNAS SigmuNdSSoN blaðamaður skrifar: as@dv.is Birna Einarsdóttir Áætla má að skuld Birnu við glitni vegna hlutabréfakaupa árið 2007 stæði nú í 390 milljónum króna. Græni hatturinn í samtarfi við Blúsfélag Akureyrar stendur fyrir þriggja daga tónlistarhátíð þar sem gítarinn er í aðalhlutverki! Fram koma gítarleikararnir: Björn Thoroddsen Gunnar Þórðarson Halldór Bragason Hallgrímur Ingvason Jón Páll Bjarnason Kristján Edelstein Ómar Guðjónsson Thiago Trinsi Auk þeirra: Birgir Baldursson Davíð Þór Jónsson Gunnlaugur Briem Jóhann Ásmundsson Róbert Þórhallsson Halldór G. Hauksson Stefán Gunnarsson Stefán Ingólfsson Valgarður Óli Ómarsson Wolfgang Frosti Zahr Fimmtudagskvöld kl. 21.00 Kristján Edelstein tríó Hallgrímur Ingvason og hljómsv. Gunnar Þórðarson og vinir Miðaverð kr. 2.000,- Föstudagur kl. 14.10 50 manna gítarkór í göngugötunni Föstudagur kl. 15.00 Masterclass á vegum Tónlistarskólans á Græna hattinum Föstudagskvöld kl. 21.00 Ómar Guðjónsson Halldór Bragason Björn Thoroddsen ásamt hljómsveit skipaðri: Birgi Baldurssyni, trommur, Róberti Þórhallssyni, bassi Davíð Þór Jónssyni, Hammond orgel Miðaverð kr. 2.000,- Laugardagur kl. 16.00 Gítarhetjutónleikar fyrir yngstu kynslóðina og þau sem ekki komast á hina viðburðina vegna aldurs. Miðaverð kr. 500,- Laugardagskvöld kl. 21.00 Thiago Trinsi tríó Jón Páll Bjarnason og hljómsveit All Star Gítardjamm: Björn Thoroddsen Halldór Bragason Hallgrímur Ingvason Jón Páll Bjarnason Kristján Edelstein Ómar Guðjónsson Thiago Trinsi Auk þeirra: Birgir Baldursson, trommur, Róbert Þórhallsson, bassi Miðaverð kr. 2.500,- Dagskrá: R A R I K E R M ÁT TA R S T Ó L P I M E N N I N G A R Í E Y Þ I N G I 30. apríl - 2. maí Forsala í Eymundsson, Hafnarstræti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.