Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Blaðsíða 46
fimmtudagur 30. apríl 200946 Ættfræði
umsjón: Kjartan gunnar Kjartansson, kgk@dv.is
Þrándur Tryggvason
húsamálarameistari í reykjavík
Þrándur fæddist í Kaupmanna-
höfn og ólst þar upp. Hann var í
Den Classenske Ligatskole í Kaup-
mannahöfn, stundaði nám við Iðn-
skólann í Kaupmannahöfn og lauk
þaðan prófum sem húsamálara-
meistari 1998.
Þrándur var sveinn í húsamál-
un hjá Verner Rii, málarameistara í
Kaupmannahöfn, með námi. Hann
var málari hjá nokkrum verktakafyr-
irtækjum í Kaupmannahöfn til 2004
er hann flutti til Íslands. Hér á landi
hefur Þrándur unnið sjálfstætt sem
húsamálarameistari frá 2004.
Fjölskylda
Eiginkona Þrándar er Elísabet Hall-
dórsdóttir, f. 8.7. 1983, starfskona
við leikskóla.
Sonur Þrándar og Elísabetar er
Steinar Máni Þrándarson, f. 27.3.
2007.
Systkini Þrándar eru Stígur
Steinþórsson, f. 18.1. 1960, leik-
tjaldahönnuður í Reykjavík; Gígja
Tryggvadótt-
ir, f. 13.7. 1964,
tannfræðingur
í Reykjavík.
Foreldrar
Þrándar eru
Tryggvi Ól-
afsson, f. 1.6.
1940, mynd-
listarmaður í
Reykjavík, og Gerður Sigurðardótt-
ir, f. 11.11. 1940, lengi starfsmaður
Danska kennarasambandsins.
Ætt
Tryggvi er sonur Ólafs Magnús-
sonar og Sigríðar Bjarnadóttur, b. í
Hraunkoti í Lóni, Þorsteinssonar, b.
og hreppstjóra á Skálafelli í Suður-
sveit, bróður Sigurðar, langafa Kví-
skerjabræðra í Öræfum.
Gerður er dóttir Sigurðar B.
Jónssonar loftskeytamanns og Guð-
ríðar Sigurðardóttur.
Þrándur heldur upp á afmælið
með fjölskyldunni.
30 ára á föstudag 70 ára á fimmtudag
María Einarsdóttir
tónlistarkennari í kópavogi
María fæddist á Akureyri og ólst þar
upp til 1944. Þá flutti hún til Reykja-
víkur og ólst þar upp eftir það. Hún
stundaði nám við Tónlistarskóla
Reykjavíkur frá 1949 og lauk tón-
menntakennaraprófi frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík 1963.
María var kennari við Barnaskól-
ann á Fáskrúðsfirði 1957-59, kennari
við Tónlistarskóla Kópavogs 1967-68
og var tónmenntakennari við Kópa-
svogsskóla frá 1966-2006.
María hefur verið félagi í Þjóð-
dansafélagi Reykjavíkur frá 1958. Hún
söng með Söngsveitinni Fílharmón-
íu, Fríkirkjukórnum í Reykjavík og
Pólýfónkórnum 1958-82. María var
í stjórn kvennadeildar Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra 1966-68 og hef-
ur verið í stjórn Kennarasambands
Kópavogs.
Fjölskylda
María giftist 4.8. 1957 Sölva Ragnari
Sigurðssyni, f. 16.9. 1934, kennara
og fyrrv. launafulltrúa hjá Fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkurborgar. For-
eldrar hans voru Sigurður Jónsson, f.
19.8. 1906, d. 30.9. 1982, verkamaður
í Reykjavík, og k.h., Hildur Ingibjörg
Halldórsdóttir, f. 3.5. 1894, d. 24.4.
1945, ljósmóðir.
Börn Maríu og Sölva eru Hild-
ur Ingibjörg, f. 21.11. 1956, tækni-
teiknari í Reykjavík, gift Gunnari Jóni
Hilmarssyni, starfsmanni Landspít-
alans, og eiga þau þrjú börn og fimm
barnabörn; Þórunn Ósk, f. 3.1. 1958,
þroskaþjálfi í Kópavogi, var gift Guð-
mundi Helgasyni kennara og eiga þau
þrjú börn og þrjú barnabörn en mað-
ur Þórunnar Óskar er Guðmundur
Heiðarsson stálsmiður; Einar, f. 25.10.
1962, grafíker í Óðinsvéum en kona
hans er Judith Sölvason sjúkraliði;
Sölvi, f. 5.10. 1963, lögfræðingur í Lúx-
emborg, kvæntur Guðrúnu Gunnars-
dóttur leikskólakennara og eiga þau
tvö börn.
Systkini Maríu: tveir drengir sem
báðir létust ungir; Hildigunnur, f.
25.3. 1931, húsmóðir í Hafnarfirði;
Ragnheiður, f. 5.5. 1934, húsmóðir á
Dalvík; Sigvaldi, f. 30.4. 1939, fyrrv.
sjómaður, búsettur í Reykjavík.
Hálfsystir Maríu, samfeðra, er
Hulda, f. 28.1. 1945, búsett í Dan-
mörku.
Foreldrar Maríu voru Sigvaldi Jó-
hannes Þorsteinsson, f. 22.2. 1898,
d. 1952, sjómaður, og k.h., María Jó-
hannsdóttir, f. 22.11. 1904, d. 1939,
húsmóðir.
Kjörforeldrar Maríu voru Ein-
ar Benediktsson, f. 21.6. 1900, d. 3.9.
1953, loftskeytamaður í Reykjavík, og
k.h., Þórunn I. Þorsteinsdóttir, f. 5.8.
1910, d. 15.4. 1989. Þórunn var jafn-
framt föðursystir Maríu.
Ætt
Sigvaldi var afi Sigvalda Júlíussonar
útvarpsþular og Kristjáns Þórs Júlí-
ussonar alþm.. Bróðir Sigvalda var
Magnús, afi Magnúsar Gauta, fyrrver-
andi kaupfélagsstjóra á Akureyri. Syst-
ir Sigvalda var Rósa, móðir Magnúsar
Péturssonar píanóleikara. Sigvaldi
var sonur Þorsteins, útvegsb. á Ups-
um á Upsaströnd, bróður Helga, afa
Atla Rúnars, Jóns Baldvins og Óskars
Þórs Halldórssona fréttamanna. Þor-
steinn var sonur Jóns Magnúsar, sjó-
mannafræðara, sem kenndur var við
hákarlaskipið Mínervu, Magnússon-
ar frá Selá Jónssonar. Móðir Sigvalda
var Anna Björg, dóttir Benedikts Jóns-
sonar, úr Kelduhverfi. Móðir Önnu
Bjargar var Hólmfríður Gísladóttir, b.
á Þorvaldsstöðum Sveinssonar. Móð-
ir Þorsteins var Rósa Sigríður, systir
Snjólaugar Guðrúnar, móður Jóhanns
Sigurjónssonar skálds. Snjólaug var
einnig móðir Jóhannesar Baldvins,
afa Benedikts Árnasonar leikstjóra.
Önnur systir Rósu Sigríðar var Kristín
Hólmfríður, móðir Stefáns Baldvins
Kristinssonar, pr. á Völlum, afa Þor-
steins Sæmundssonar stjörnufræð-
ings. Rósa Sigríður var dóttir Þorvalds,
b. á Krossum Gunnlaugssonar, b. á
Hellum Þorvaldssonar. Móðir Rósu
Sigríðar var Snjólaug Baldvinsdóttir.
María var dóttir Láru Gissurar-
dóttur og Jóhanns Sigurvins Jóhanns-
sonar, sjómanns í Syðri-Haga Jóhans-
sonar, b. í Syðri-Haga Einarssonar, b.
á Laugalandi á Þelamörk og Sigríð-
ar Jensdóttur Buck. Lára var dóttir
Gissurar, bátasmiðs í Ytri-Skjaldarvík
Gissurarsonar og Maríu Jónsdóttur
frá Efri-Dálksstöðum.
Jón fæddist á Torfastöðum í Fljóts-
hlíð og ólst þar upp. Hann lauk iðn-
skólanámi í bifvélavirkjun og síðar
meistaraprófi í sömu iðn.
Jón var bifvélavirki hjá Kaupfélagi
Rangæinga þar til hann setti á stofn
Steypustöðina Þverá 1970 en hana
starfrækti hann í tíu ár. Þá ók hann
eigin vörubifreið til 1992. Hann rak
eigið bifvélaverkstæði í Hveragerði á
árunum 1992-2006.
Fjölskylda
Jón kvæntist 3.6. 1961 Selmu Egils-
dóttur, f. 30.3. 1942, ellilifeyrisþega
á Hvolsvelli. Foreldrar hennar eru
Guðmundur Egill Þorsteinsson og
Kristín Alda Guðmundsdóttir. Jón
og Selma skildu.
Börn Jóns og Selmu eru Eyvind-
ur, f. 9.3. 1961, véltæknifræðingur í
Sviss, kvæntur Berit Widing Pry og á
Eyvindur tvær dætur; Kristín Auður,
f. 17.1. 1962, skrifstofumaður í Mos-
fellsbæ, gift Sig-
urði Maríssyni,
og eiga þau tvö
börn; Yngvi
Karl, f. 9.1. 1963,
meðferðarfull-
trúi, búsett-
ur á Rauðalæk
í Rangárvalla-
sýslu, en kona
hans er Kristín Sigfúsdóttir og eiga
þau tvö börn; Lilja Sólrún, f. 25.2.
1964, hagfræðingur og matarfræð-
ingur í Reykjavík, en maður henn-
ar er Nigel Richard, og á Lilja eina
dóttur; Ingibjörg Guðmunda, f. 26.9.
1972, doktor í líffræði hjá HAFRÓ en
maður hennar er Hlynur Snæland
Lárusson og eiga þau tvær dætur;
Ólöf Guðrún, f. 6.5. 1976, talmeina-
fræðingur í Danmörku en maður
hennar er Lasse Flensted-Jensen
stjórnmálafræðingur.
Systur Jóns eru Jóna Guðrún, f.
28.2. 1934, búsett í Reykjavík; Eygló,
f. 29.5.
1940, búsett í Reykjavík.
Uppeldisbróðir Jóns er Gunnar
Ingi Birgisson, f. 30.9. 1947, bæjar-
stjóri í Kópavogi.
Foreldrar Jóns voru Kort Eyvinds-
son, f. 1.12. 1901 í Seljalandi undir
Eyjafjöllum, d. 21.8. 1964, bóndi á
Torfastöðum, og k.h., Ingibjörg Jóns-
dóttir, f. á Torfastöðum, 17.3. 1909, d.
23.1. 2001, húsfreyja í Reykjavík.
Ætt
Kort var sonur Eyvindar, b. í Selja-
landi og síðar í Reykjavík Eyvinds-
sonar, Jónssonar, b. í Sauðtúni Ey-
vindssonar, b. í Svínhaga og Sauðtúni
Nikulássonar, b. á Rauðnefsstöðum
Eyvindssonar duggusmiðs.
Ingibjörg var dóttir Jóns, b. á
Torfastöðum Guðmundssonar, b. á
Langekru á Rangárvöllum Jónsson-
ar, b. á Háarima í Þykkvabæ.
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur
ættir þjóðþekktra íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra íslendinga. lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
70 ára á fimmtudag
Jón Sigurbergur Kortsson
bifvélavirki í hveragerði
Magnús Sveinsson
flugumferðarstjóri
Magnús fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp og í Garðabænum. Hann
var í Flataskóla og Garðaskóla,
stundaði nám við Fjölbtautaskóla
Garðabæjar og lauk þaðan stúd-
entsprófi 1998, stundaði síðan nám
í flugumferðarstjórn í Svíþjóð og á
Íslandi og lauk prófum sem flugum-
ferðarstjóri 2002.
Magnús var í sveit á unglingsár-
unum á Syðra-Velli í Flóa í þrjú sum-
ur, sinnti lagerstörfum og verslunar-
störfum á sumrin með námi. Hann
hóf störf sem flugumferðarstjóri hjá
Flugmálastjórn (nú Flugstoðum)
2002 og hefur starfað þar síðan.
Magnús og kona hans dansa
swing og salsa hjá félagssamtökun-
um Komið og dansið. Þá er hann
mikill áhugamaður um útivist og
veiðar.
Fjölskylda
Eiginkona Magnúsar er Sólveig
Krista Einarsdóttir, f. 14.2. 1980, MS
í líffræði og menntaskólakennari.
Synir
Magnúsar og
Sólveigar eru
Einar Ernir
Magnússon,
f. 30.7. 2003;
Tómas Vigur
Magnússon, f.
15.12. 2005.
Systkini
Magnúsar eru Kjartan Sveinsson, f.
14.10. 1965, húsasmiður á Hvamms-
tanga; Ásgeir Sveinsson, f. 23.1.
1967, framkvæmdastjóri í Mosfells-
bæ; Hanna Lára Sveinsdóttir, f. 29.9.
1968, skrifstofustjóri í Domus Med-
ica; Stefán Sveinsson, f. 3.6. 1982,
rannsóknarlögreglumaður, búsettur
í Hafnarfirði; Guðmundur Sveins-
son, f. 30.10. 1984, rafvirki, búsettur
í Reykjavík.
Foreldrar Magnúsar eru Sveinn
Kjartansson, f. 17.6. 1941, fyrrv.
framkvæmdastjóri, og Helga Stef-
ánsdóttir, f. 1.3. 1955, matráðskona
við leikskóla.
30 ára á laugardag
Signý Björg Sigurjónsdóttir
viðskiptafræðingur og sérfræðingur
Signý fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Kópavogi. Hún var í Snæ-
landsskóla, lauk stúdentsprófi frá VÍ
1999, lauk prófum í viðskiptafræði
við Tækniháskóla Íslands 2004 og er
nú að ljúka MS-námi í mannauðs-
stjórnun frá HÍ.
Signý var skrifstofustjóri og
starfsmannastjóri hjá Vinnuskóla
Kópavogs á sumrin og með námi.
Hún hefur verið sérfræðingur hjá
hugbúnaðarfyrirtækinu Trackwell
frá 2006.
Signý lærði söng við Tónlistar-
skóla Kópavogs og syngur gjarnan
í sturtunni. Þá æfði hún og keppti í
sundi og knattspyrnu með Breiða-
bliki á unglingsárunum.
Fjölskylda
Eiginmaður Signýjar er Sigurgeir
Sigurpálsson, f. 24.12. 1975, heim-
spekingur, tölvunarfræðingur og
verkefnastjóri.
Börn Signýj-
ar og Sigurgeirs
eru Salný Kaja
Sigurgeirsdótt-
ir, f. 11.6. 2002;
Sólný Inga Sig-
urgeirsdóttir, f.
16.6. 2004; Sig-
urpáll Valmar
Sigurgeirsson,
f. 2.2. 2009.
Systkini Signýjar eru Brandur
Sigurjónsson, f. 31.1. 1970, tölvun-
arfræðingur, búsettur á Akranesi;
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson, f.
28.2. 1977, tónlistarmaður í Kópa-
vogi; Sara Valný Sigurjónsdóttir,
f. 8.8. 1981, listfræðingur, búsett í
Kópavogi.
Foreldrar Signýjar eru Sigurjón
Valdimarsson, f. 11.12. 1949, við-
skiptafræðingur, kennari og bókaút-
gefandi, og Ásta Björnsdóttir, f. 9.11.
1953, kennari og hönnuður.
30 ára á sunnudag