Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Blaðsíða 20
Fimmtudagur 30. apríl 200920 Helgarblað
„Ef það eru hlýindi og ekki mikill raki
í loftinu verða þeir í fyrra fallinu. Við
megum búast við fyrstu geitungun-
um um eða eftir miðjan maí,“ segir
Guðmundur Óli Scheving, formað-
ur Félags meindýraeyða, aðspurður
hvenær geitungarnir láti sjá sig.
Guðmundur segir erfitt að dag-
setja nákvæmlega hvenær þeir vakna
til lífsins, það fari alfarið eftir veðr-
inu. „Þótt það hafi verið hlýtt undan-
farið kemur oftar en ekki kuldakast
sem hægir á öllu aftur. Geitungarnir
koma því líklega ekki fyrr en eitthvað
er liðið á maímánuð,“ segir hann en
undanfarin tvö ár hafa fyrstu geit-
ungarnir sést 25. maí. „Það hefur
ekkert að segja að úða eitri í görð-
um fyrr en eftir 11. eða 12. maí,“ segir
Guðmundur.
Fjölga sér hratt
Þó geitungarnir fari ekki að sjást fyrr
en eftir mánuð hafa fyrstu býflug-
urnar þegar látið á sér kræla. „Ein-
hverjar drottningar eru komnar á
stjá. Þær vakna af svefninum þegar
þeim finnst aðstæður réttar. Þær geta
hins vegar dregið sig í hlé aftur ef það
verður kalt og rakt,“ segir hann.
Geitungar geta fjölgað sér mjög
hratt þegar drottningin er komin á
stjá. „Ferlið er þannig að drottningin
byrjar á því að naga trjábörk og búa
sér til litla kúlu. Hún verpir þrem-
ur til fjórum eggjum inn í hana. Þá
verða til þrjár eða fjórar vinnukonur
sem hefjast handa við að búa til ná-
kvæm sexstrendingslaga varphólf.
Þegar þær eru komnar á stjá sest
drottningin í miðjuna og verpir,“ seg-
ir Guðmundur og bætir við að þegar
ferlið er komið á þetta stig geti búin
stækkað hratt. Á einni viku geti geit-
ungunum leikandi fjölgað úr fimm-
tíu í hundrað.
Þegar líður á sumarið kemur að
því að drottningin fer að búa til karl-
dýr. Þeir fara út og safna vetrarforða
fyrir drottningar næsta árs. „Þeir
sækja í blómin og drekka safann úr
blaðlúsum. Svo þegar drottningin
er búin að verpa næstu drottning-
um koma karldýrin með forðann og
sprauta í eggin,“ segir Guðmundur.
Gefðu þeim að borða
Guðmundur segir aðspurður að geit-
ungar ráðist yfirleitt ekki á fólk og dýr
nema þeim sé ógnað. Best sé þó að
láta fagmenn eyða búunum enda
þarf ekki mikið út af að bregða. „Ef
það er geitungager í garðinum er best
að finna út fluglínuna. Geitungar á
flugi eru annaðhvort að koma eða
fara frá búinu. Það borgar sig ekki að
standa í vegi fyrir þeim, annars láta
þeir þig í friði,“ útskýrir hann.
Flestir kannast við að vera úti í
garði á góðviðrisdegi og verða fyrir
ónæði af býflugum eða geitungum.
„Það getur verið gott að setja upp
skordýragildrur eða hreinlega gefa
þeim að borða á hinum enda palls-
ins. Þá láta þeir fólk í friði. Þessi dýr
sækja í það sem er sætt,“ segir hann.
10 þúsund gegn geitungum
Á Facebook er til hópur sem ber
yfirskriftina Útrýming geitunga.
Eins og nafnið gefur til kynna vill
hópurinn einfaldlega að geitung-
um verði útrýmt. „Geitungar eru
viðbjóðsleg dýr. Þeir sem halda
öðru fram geta farið í meðferð. Það
er fullkomlega eðlilegt að óttast
þessi kvikindi og þú þarft ekki að
vera stunginn til þess að réttlæta
hræðsluna þína. Þú þarft bara ekk-
ert að réttlæta hana, punktur,“ seg-
ir forsprakki hópsins, sem nærri
tíu þúsund Íslendingar hafa þegar
skráð sig í.
Sálfræðingurinn Eyjólfur Örn
Jónsson hefur sérmenntun í hug-
rænni atferlismeðferð frá Háskóla
Íslands. Hann segir óttann við geit-
unga mega rekja til þess að mann-
fólk sé hrætt við hluti sem það þekkir
ekki. „Þessar pöddur eru mjög litl-
ar og geta því leynst víða. Þær geta
einnig stungið og vekja því óhug hjá
fólki,“ segir hann. „Grunnurinn er þó
hræðslan við að meiða sig,“ útskýrir
hann.
Hræddari en Ástralir
Sumir Íslendingar eru logandi
hræddir við geitunga, býflugur,
kóngulær og önnur skordýr. Eyjólf-
ur segir að ímyndunaraflið spili þar
stóran þátt. Fólk magni upp hræðsl-
una í huganum. Fæstir hafi verið
stungnir. „Erlendis eru þessi skor-
dýr ekkert tiltökumál en hér er það
hræðslan við að verða stunginn sem
ræður för. Það er mjög sjaldgæft að
fólk hafi ofnæmi fyrir þessum stung-
um og því stafar fólki ekki sérstök
ógn af þeim,“ segir hann og bendir á
að Íslendingar séu oft mun hræddari
við kóngulær en til dæmis Ástralir
sem búi þó í landi þar sem kóngulær
geta verið lífshættulegar.
Eyjólfur segir að til séu leiðir til að
yfirstíga þann ótta sem geitungar og
önnur fyrirbæri kunna að vekja. Þær
snúist um að nálgast kerfisbundið
það sem viðkomandi óttast. „Í fræði-
bókunum er manni ráðlagt að byrja
á því að teikna það sem fólk óttast, í
þessu tilviki geitunginn. Þegar mað-
ur hefur lært að slaka á við hliðina á
myndinni væri næsta skref að horfa
til dæmis á myndband með geitung-
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Guðmundur Óli Scheving,
formaður Félags meindýra-
eyða, segir að geitungar
fari jafnan á stjá þegar líður
á maímánuð. Margir eru log-
andi hræddir við geitunga líkt
og 10 þúsund manna íslenskur
Facebook-hópur sem vill útrýma
geitungum ber vitni um. Eyjólfur
Örn Jónsson sálfræðingur segir að
með markvissum hætti sé hægt að yf-
irstíga óttann.
Geit G nir vakna
Eins og að koma við pappa guð-
mundur Óli Scheving meindýra-
eyðir segir að hátt í 200 geitungabú
hafi verið eyðilögð í fyrra.
MyND KRiStiNN
Holugeitungur Þeir eru líklegastir
íslenskra geitunga til að ráðast á fólk.
trjágeitungur Vaknar
fyrstur til lífsins á vorin.